Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
Útbreiðsla haf-
íss eðlileg
HAFÍSRANNSÓKNADEILD
Voðurstofu íslands mun eins og í
fyrravetur láta í té upplýsingar
Kaupfélag Ár-
nesinga 50 ára
KAUPFÉLAG Árnesintta held-
ur upp á 50 ára afmæli sitt í
dají, en það var stofnað á
Selfossi 1. nóvember 1930.
Stjórn félagsins mun koma
saman til sérstaks afmælisfund-
ar í dag og minnast afmælisins.
Stjórnarformaður Kaupfélags
Árnesinga er Þórarinn Sigur-
jónsson, alþingismaður, en
kaupfélagsstjóri er Oddur Sig-
urbergsson.
mánaðariega um hafisinn i Is-
landshafi, en svo hefur verið
nefnt hafsvæðið milli íslands,
Grænlands og Jan Mayen. Kortin
eru gerð eftir veðurtunglamynd-
um, athugunum sem landhelgis-
verðir gera í gæzluflugi og til-
kynningum sjófarenda um hafís í
nánd.
Hafís við Grænland er minnstur
í september og var í sumar vel
sjófært inn í hinn mikla fjörð,
Scoresbysund og ís óvenjulítill enn
norðar. I október hefur sem vænta
má stór svæði lagt suður með
austurströnd Grænland, en mynd-
in sýnir í stórum dráttum, hvernig
umhorfs var 29. október sl. Út-
breiðslan er eðlileg.
Heildregna línan sýnir jaðar
nýs langaðaríss, en nær Græn-
landi er ísinn þykkri og er sjór þar
alþakinn.
Kóngsdóttirin sem
kunni ekki að tala
frumsýning í Lindarbæ á morgun
KÓNGSDÓTTIRIN sem kunni
ekki að tala heitir finnskt
harnaleikrit, sem Alþýðuleik-
húsið frumsýnir í Lindarbæ á
morgun, sunnudag. Sýning
þessi er að því leyti sérsta-ð að
talmál og táknmál eru notuð
jöfnum höndum, i þeim tilgangi
að heyrnarlausir getið notið
þess sem fram fer á sviðinu,
ekki síður cn þeir sem haía
óskerta heyrn. Sýningin er
raunar ætluð fleiri aldurshóp-
um en börnum. en til þess að
koma þessu verki á fjalirnar
nýtur Alþýðuleikhúsið styrks
frá Framkvæmdanefnd árs fatl-
aðra.
Öllum heyrnarlausum börnum
verður boðið að sjá sýninguna,
en auk sýningar í Lindarbæ er
ætlunin að sýna leikritið í skól-
um og utan Reykjavíkur. Ætlun-
in er að hafa sérstakar sýningar
í samvinnu við dagvistarstofn-
anir og skóla.
Leikstjóri og þýðandi verksins
er Þórunn Sigurðardóttir, og í
stuttu samtali við Mbl. sagði hún
að nemendur Heyrnleysingja-
skólans hefðu lagt fram aðstoð
við undirbúninginn með því að
koma á æfingu og gefa holl ráð,
en sviðsetningin er að verulegu
leyti grundvölluð á látbragðs-
leik.
Með hlutverk kóngsdóttur fer
Nemendur i Heyrnleysingjaskólanum komu á æfingu hjá Alþýðu-
leikhúsinu nu i vikunni, og hér sést einn þeirra tala við
kóngsdótturina.
Sólveig Halldórsdóttir. Ragn-
heiður Arnardóttir er sögukona,
en Helga Thorberg og Ánna S.
Einarsdóttir leika biðlana. Guð-
rún Auðunsdóttir bjó til leik-
mynd, brúður og búninga, en
Ólafur Thoroddsen sér um hljóð
og lýsingu.
Flugbjörgunar
sveitin 30 ára
Laugarnessókn:
LAUGARDAGINN 1. nóv. verð-
ur haldin fjölskylduskemmtun
I Laugarnesskólanum á vegum
fjáröflunarnefndar safnaðar-
heimilis Laugarnessóknar.
Hefst skemmtunin kl. 3. Margt
verður til skemmtunar m.a.
mun Lúðrasveit Laugarnes-
skólans flytja nokkur lög.
Hjáimtýr Hjálmtýsson og
Margrét Matthíasdóttir syngja,
Guðmundur Guðmundsson flyt-
ur búktal og eftirhermur.
Fluttur verður samtalsþáttur-
inn: Skrafað í skrúðgarðinum,
og einnig verður danssýning
sem ungar stúlkur annast. I
hléi verða seldir gosdrykkir.
Fjölskylduskemmtun sem
þessi er nýjung í safnaðarstarf-
inu og á vonandi eftir að gefa
góða raun.
HVER kannast ekki við: „Gjörið
svo vel að spenna beltin." Þessi
orð nægja til að minna okkur á, að
öryggi er haft efst i huga þegar við
ferðumst.
Á hverju hausti efnir F.B.S. til
árvissrar merkjasölu fyrir starf-
semi sína um allt land, það er
ætlun þessarar greinar að vekja
athygli á sveitinni, sem alltaf er
tilbúin að færa fórnir, ef til
hennar er leitað.
Safnaðarheimili Laugarnes-
sóknar rís nú hægt og örugg-
lega. Búið er að steypa húsið upp
og verður það því fokhelt nú á
næstu dögum. Ekki þarf að fara
í neinar grafgötur með það að
mikils fjármagns er þörf og
vonar fjáröflunarnefndin að
safnaðarfólk styrki þetta mál-
efni með fjárframlögum sínum
og taki höndum saman við að
ljúka verkinu. — Fjölskyldu-
skemmtunin er að sjálfsögðu
haldin til fjáröflunar og hvetur
fjáröflunarnefndin því alla sem
eiga þess nokkurn kost að koma
og styrkja nú þetta góða málefni
og fá um leið góða skemmtun.
Skemmtikraftarnir gefa allir
vinnu sína til málefnisins og
þökkum við innilega fyrir það.
Jón D. Hrjóbjartsson,
sónkarprestur.
Skelfingarangist þeirra, sem
lenda í lífshættu, bera fyrir hug-
skotssjónir okkar, þegar við heyr-
um um slys eða hamfarir þar sem
fólk er í hættu statt, þá eigum við
það til að gleyma því, að við eigum
fórnfúsa bjargvætti sem bíða þess
að kallið komi, að þeir geti hafist
handa um björgun.
Ein þessara sveita er einmitt
Flugbjörgunarsveitin, hún er skip-
uð sjálfboðaliðum, sem fórna sér
frá vinnu, þegar leit stendur yfir
og varir jafnvel marga sólar-
hringa. En það þarf meira en
mannaflann til leitar, það þarf
tæki til að komast á áfangastað,
það þarf útbúnað til að bjarga
þeim nauðstöddu, og fyrst og
fremst bensín á farartækin. Allt
slikt lætur sveitin af hendi rakna,
og það eru ekki neinir smámunir
úr vasa hvers einstaklings sem
sveitina skipa.
En hún verður að leita til
almennings um aðstoð svo halda
megi uppi nauðsynlegustu örygg-
isþjónustu fyrir almenning. Því er
svo komið, að við leitum til
almennings með merkjasölu, hinni
árlegu fjáröflun sveitarinnar og
nánast eina tekjumöguleika, sem
hún hefur kost á og verður að
duga fyrir öllum útlögðum kostn-
aði.
Við leitum til samborgara okkar
um að meðaxla þá ábyrgð til
félagslegra þarfa þjóðfélagsins,
sem björgunarsveit gerir, en sam-
borgaranum er gefinn kostur á að
létta undir og sýna skilning með
því að kaupa merki sveitarinnar.
„Takir þú vel á móti okkur
laugardaginn 1. nóv., tekur þú
virkan þátt í og sýnir viðleitni að
bjarga mannslífum.
Erlendur Björnsson,
Logalandi 12,
Reykjavík.
Fjölskylduskemmtun
í Laugarnesskóla
til fjáröflunar fyrir safnaðarheimilið