Morgunblaðið - 01.11.1980, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
HLAÐVARPINN
VEÐURFAR^^^^hb
Á kuldaboli heima
í Breiðholtinu?
Bryndís Schram óskar Tage Ammendrup til
haminKju með 900. upptökuna.
Sjónvarpið:HMHHMiHM
900. upp-
taka Tages
TAGE Ammendrup er ákaflega vinsaell mað-
ur á sjónvarpinu. Hann hefur starfað þar frá
upphafi og síðastliðinn mánudag stjórnaði
hann sinni 900. upptöku hjá sjónvarpinu — og
það var af Stundinni okkar.
Af því tilefni brugðu félagar hans á
sjónvarpinu á leik og stilltu upp stórri mynd
af honum og að henni rauðan dregil. Tage
gekk síðan eftir dreglinum eins og sönnum
herramanni sæmir og síðan var skálað í
kampavíni. Til hamingju, Tage.
Hvar er kaldast í Reykjavik og hvar er
hlýjast? Eða er kannski enginn munur á
veðurfari eftir því hvar búið er i höfuðborg-
inni? Sumum finst Breiðholtið hið mesta
veðraviti og telja, að þá sé nú betra að búa á
Seitjarnarnesinu, enda er það bæði litið og
lágt, eins og segir i kvæðinu. Tii að forvitnast
um þetta, hringdum við í þá bóri Sigurðsson
og Trausta Einarsson. veðurfræðinga á Veð-
urstofunni, og báðum þá um að miðla okkur af
þekkingu sinni.
Fram kom í máli þeirra kolleganna, að
úrkoma er mjög misjafnlega mikil í Reykjavík
og eykst eftir því sem ofar og fjær dregur sjó. Á
Reykjavíkurflugvelli er meðaltalsúrkoma t.d.
800 mm á ári, um 900 inni við Elliðaár, 1200 mm
á Rjúpnahæð, sem er í 120 m hæð yfir
sjávarmáli og rúmlega 1200 á Hólmi fyrir ofan
Reykjavík. Meðalhiti er einnig nokkuð misjafn
á þessum stöðum og til jafnaðar er hann einni
gráðu minni í Breiðholtinu en annars staðar í
borginni.
Af þessu að dæma, virðist engum blöðum um
það að fletta, að kuldaboli búi í Breiðholtinu,
enda er meðalhiti aðeins minni þar en niðri í
bæ, úrkomusamara og þar af leiðandi snjó-
þyngra. En er Breiðhyltingum þá ekki veitt
nein líkn með þraut? Jú, reyndar, sögðu þeir
veðurfræðingarnir. í Breiðholtinu er norðanátt-
in, sem gjarnan er kennd við hregg og hríð,
tiltölulega fátíðari en annars staðar í borginni
og það er Esjan, sem því veldur. Breiðhyltingar
mega því með sanni kallast skjólstæðingar
hennar og ekki bara þeir, því að Esjan skýlir
Hafnfirðingum líka fyrir norðannæðingnum.
Þó að Esjan sé Breiðhyltingum góð, þá nær
gæska hennar ekki til Seltirninga, sem fá sinn
skammt af norðangarranum alveg óskertan.
Það er því vindasamara á Seltjarnarnesinu og
af þeim sökum er húshitun líklega dýrari þar en
annars staðar í hinum gamla Seltjarnar-
neshreppi.
Just a Gigolo
— mynd Dav-
id Bowie hefur
vakið mikið
umtal. Nú er
hægt að fá
hana á video-
bandi.
Videobondi
Hundruð mynda
nú á boðstólum
MYNDSEGULBÖND eru nú víða á heimilum á
fslandi. Þau hafa verð lögð i fjölmörg fjölbýlis-
hús og fullyrða má, að þúsundir íslendinga fái
nú notið efnis á heimilum sinum utan þess sem
islenzka sjónvarpið sendir út.
En hvað skyldi vera á boðstólum af myndum.
Nokkur fyrirtæki hafa sprottið upp og sinna
þessari þörf. Viedoþjónustan á Skólavörðustíg er
eitt þessara fyrirtækja. „Héðan eru bæði lánuð
út videobönd og einnig myndsegulbönd, sjónvörp
og myndatökuvélar," sagði Rannveig Marelsdótt-
ir hjá Videoþjónustunni í samtali við blaðamann.
„Þetta er mjög vinsælt og eftirspurnin eykst
sífellt. Þá tökum við einnig upp fyrir fyrirtæki og
í því sambandi má nefna, að við tókum upp á
videoband þegar ungfrú Hollywood var krýnd í
vikunni. Videoþjónustan er annars vegar með
klúbb þar sem félagar geta fengið myndir, en
einnig er hægt að fá myndir lánaðar utan þess,
þó það sé dýrara fyrir vikið. Við erum með
samning við Intervision og myndir frá því
fyrirtæki geta allir fengið.
Við erum með fjölmargar myndir — um eða
yfir 100. Meðal nýrra mynda, sem við höfum og
nú er mikið umtöluð erlendis, er „Just a Gigolo"
með David Bowie. Einnig má nefna nýlegar
myndir, eins og Death of a Snowman, Silent
Partner. Af eldri myndum má nefna Patton,
Mars, Soldier Blue, French Connection og
Magnificent Matador með Anthony Quinn.“
Radíóbær er annað fyrirtæki, sem leigir út
myndir og rekur klúbbinn „5 stjörnur". Radíóbær
hóf þjónustu sína í janúar síðastliðnum, og eru
nú boðnar til leigu 107 myndir, bíómyndir.
Tromulurnar snúast og stúlkurnar á 03 gefs
Póstur & Sími:"*""*
Símaskráin
tölvuvæðist
Tölvuvæðing símaskrárinnar er
hafin. „Við erum þessa dagana að taka
i notkun skerma og um áramótin
reiknum við með því, að hafa lokið
tölvuvæðingu símaskrárinnar,“ sagði
Hafsteinn Þorsteinsson, simstjóri i
Reykjavík, i samtali við blaðamann.
„Hingað til hafa símanúmer verið á
tromlum — á hjólum með strimlum.
Þetta er nú orðið úrelt og erfitt var
orðið að bæta við fleiri nöfnum og
símanúmerum. Það var því orðið brýnt
að gera breytingar.
Þegar tölvuvæðingunni er lokið, tek-
ur símaskráin yfir allt landið. Það
verður hægt fyrir allt landið að kalla á
skerma, nafn götu, númeraskrána og
nafnaskrána. Símanúmer símaskrár-
innar verður eftir sem áður óbreytt —
03. Stofnkostnaður verðr mikill, þó
íleiðinni
Gleymdi
konunni
IJr Degi: „Þær fregnir ber-
ast af Vestfjörðum, að fyrir
skömmu hafi „þarlendur"
maður verið á ferð í bíl sínum
og við hlið mannsins sat eig-
inkona hans. Þau komu að
hliði og fór konan út og opnaði
svo bíllinn gæti ekið áfram. Og
það gerði hann svo sannar-
lega. Ökumaðurinn gleymdi
konunni og ók áfram á annan
klukkutíma. Þá varð á vegi
hans annað hlið ... og engin
kona í bílnum til að opna það.
Við höfum engar spurnir haft
af endurfundi þeirra hjóna.“
Peningar
Ur því við erum farnir að
vitna í Dag, þá fannst okkur
rétt að láta tvær klausur
fylgja:
„Hér á árum áður báru
menn virðingu fyrir peningum
— fóru um þá mildum höndum
og veltu fyrir sér hverri krónu.
Þetta viðhorf hefur tekið
miklum stakkaskiptum. Nú
beygja menn sig ekki eftir
fimmköllum og krónum og
einstaka harðsvíraður nútíma-
maður tekur aðeins seðla upp
af götu sinni. Ung börn eru
send með háar upphæðir í
verslanir og er leyft að kaupa
sér ýmiskonar óþarfa fyrir fé,
sem betur væri geymt heima í
skúffu eða í banka. Því miður
er það of algengt, að fólk kaupi
sér allskyns glys og glingur —
en eigi síðan ekki neitt nema
postulínshunda og þ.h., þegar
mögru árin koma.“
Lítið dæmi
af sóun
... var næsta fyrirsögn í
Degi og hana fannst okkur
tilvalið að birta á sömu for-
sendum. „Nú er enginn gjald-
gengur á skíði, skauta og
ýmsar aðrar íþróttagreinar
nema sá hinn sami gangi í
útbúnaði, sem kostar tugi ef
ekki hundruð þúsunda. Börn-
um og unglingum er oft illa
við að kaupa gamlan útbúnað,
sem stendur fyllilega fyrir
sínu, vilja fá nýtt og glans-
andi. Sumir skíðamennirnir
minna helst á jólasveina eins
og þeir eru á útlenskum kort-
um — rauðir með röndum, í
kolsvörtum skóm. Barnmarg-
ar fjölskyldur geta engan veg-
inn haft efni á að kaupa það
sem þarf til íþrótta í dag, ef
allt á að vera nýtt. En þrátt
fyrir þessa staðreynd, eru
hlutirnir æði oft keyptir og þá
er bara að lengja vinnudaginn
svo endar nái saman."
*
„I hlað ríður maður á hvítum hesti“
UR SUÐURLANDI „Á síðastliðnu sumri var þjóðvegurinn gegnum
byggðina á Laugarvatni lagður varanlegu slitlagi. Einnig varð hugmyndin
að leggja slitlag á athafnasvæði skólanna þar efra, þ.e. aðkeyrslur og
bílastæði. En áður en því verki var lokið, sáu framvæmdaaðilar að
fjárveitingin dygði ekki. Var þá ákveðið að sleppa plönunum við
Héraðsskólann og Húsmæðraskólann.
Að vonum voru Laugvetningar óhressir yfir þessum málalokum — en þá
gerðist ævintýr. „í hlað ríður maður á hvítum hesti“. Var sá þingmaður
utan af landi og hafði verið nemandi í Héraðsskólanum á sínum yngri
árum. Er þingmaðurinn spurði hin dapurlegu tíðindi brá hann skjótt við,
fór suður og „kippti þar í ýmsa spotta". Og viti menn, Héraðsskólinn fékk
sína olíumöl. Húsmæðraskólinn einn varð hins vegar útundan.
En það er svona að sofa á verðinum og kannski er það hlálegast, að
þingmenn annarra kjördæma skuli þurfa að bjarga svona málum fyrir
Sunnlendinga."
Hver setti auglýsinguna í Dag?
Toppurinn í dag
Aston
Villa
Villa fan club branch ol Akureyri
Blaðamaður rakst á nokkuð sér-
stæða auglýsingu í Degi nú í
vikunni. Auglýsingin hljóðaði
svona:
Það er blaðamaður vissi, að Sig-
björn Gunnarsson, sá góðkunni
knattspyrnumaður á Akureyri,
heldur með Aston Villa sló hann á
þráðinn til hans. „Ég er eini stuðn-
ingsmaður Aston Villa hér á Akur-
eyri,“ sagði Sigbjörn en ekki vildi
hann gefa upp, hvort hann hefði sett
auglýsinguna í Dag. Hann hlýtur þó
að liggja undir grun. „Ég hef haldið
með Aston Villa frá því ég var
smástrákur — af hverju veit ég
ekki. Það bara æxlaðist svo. Það
hefur ekki alltaf verið dans á rósum
hjá Villa nú síðustu árin, og ég hef
orðið að ganga í gegnum margan
hreinsunareldinn. Én þó Villa hafi
gengið í gegnum mikið niðurlæg-
ingartímabil, og fallið niður í 3.
deild, þá var ég ekkert að leita mér
að öðru liði til að halda með, eins og
margir virðast gera. Þannig varð ég
að ganga í gegnum enn eina þrek-
raunina á laugardag. Konan mín
hefur sterkar taugar til Southamp-
ton og Villa vann Southampton á
The Dell á laugardag 2—1. Það
þýddi, að ég fékk ekkert að borða
þann daginn. En það er sama hvað á
dynur — Villa er mitt lið og verður.
Ég verð þrí-
tugur 2. maí í vor
og þá leikur Villa
á Highbury við
Arsenal. Ég
stefni að því að
vera þar og taka
á móti bikarn-
um.“
Sigbjörn
Gunnarsson.
Hvað verður um
KIRKJUNNAR menn hafa nú af því
nokkrar áhyggjur hve nýútskrifaðir
guðfræðingar skila sér seint og illa út
á starfsakurinn. Þeir hjá Kirkjuritinu
könnuðu nýlega hvernig þessi mál
standa og birtu niðurstöðurnar í
siðasta hefti ritsins. Nú skulum við
gefa þeim orðið:
„Nokkur prestaköll hafa ítrekað ver-
ið auglýst laus til umsóknar og enginn
sótt. Verst er ástandið á Vestfjörðum.
Þar vantar tilfinnanlega presta á
Suðureyri, Þingeyri, Bíldudal og víðar.
Lengi heur verið prestlaust í Árnesi á
Ströndum og Sauðlauksdal. Prestlaust
er á Langanesi, enginn sækir um Ása í
Skaftártungum. Annað prestsembættið
í Eyjurn hefur veið óskipað í nokkur ár.
Hvað verður um guðfræðinga?,
spyrja menn. Guðfræðideildin útskrif-
ar nokkurn hóp árlega. Vilja guðfræð-
ingar ekki fara í prestskap? Eru
breytingar á afstöðu þeirra til prests-
þjónustunnar?
Á árabilinu 1950 til 1976, eða 26
árum, hafa útskrifast 120 guðfræð-
ingar. Af þeim tóku 110 vígslu en 10 eru
óvígðir. Á árunum 1977—1979 útskrif-
uðust 19 guðfræðinga, af þeim eru 10
óvígðir, en níu vígðir. I vor útskrifuðust
6 menn og hefur enginn þeirra tekið
vígslu enn.