Morgunblaðið - 01.11.1980, Side 15
Ilradamælinxar á þjóövegunum:
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
15
Alltof algengt að
menn séu teknir á
REKJA má stóran hluta allra umferðaróhappa til hraðaksturs. Það er
þvi ekki að ástæðulausu að lögreglan lejíKur Keysimikla áherslu á að
halda ökuhraðanum innan skynsamieKra takmarka. Hún beitir til
þess ýmsum ráðum en hraðamælinKarnar hafa lanK mesta þýðinKU
eins ok Kefur að skilja. ÞýðinK þeirra mun enn aukast á næstunni með
aukinni tækni.
MorKunblaðsmenn fylKdust ný-
verið með löKreglumönnum við
hraðamælingar. Aður hefur verið
lýst frásögn af hraðamælingu í
Reykjavík en hér á eftir verður
stuttlega lýst hraðamælingum
vegalögreglumanna í nágrenni
höfuðborgarinnar. Ekki virðist
vanþörf á ströngu eftirliti úti á
þjóðvegunum því margir ökumenn
keyra á vítaverðum hraða. Þess
eru jafnvel dæmi að menn hafi
verið teknir á yfir 140 km hraða og
það sjá allir heilvita menn að
slíkur glannaakstur getur haft
stórháska í för með sér.
Við slógumst í för með lögreglu-
mönnunum Þorgrími Guðmunds-
syni og Svavari Jónssyni á bíl
vegalögreglunnar RL 1. t RL 1 er
fullkomnasti radar lögreglunnar,
radar sem gjörbreyta mun öllum
hraðamælingum. Þessi radar er
þannig útbúinn að hægt er að
mæla bifreiðir þótt lögreglubíllinn
sé á ferð. Ef bifreið kemur á móti
dregur radarinn frá hraða lög-
reglubifreiðarinnar og sýnir á
Ekki var meira gert á Suður-
landsvegi en ástandið kannað á
Reykjanesbrautinni. Stöðvað var
við Kúagerði og hraðinn mældur
en sem betur fer var ástandið með
bezta móti. Ekki þýðir að vera of
lengi á sama staðnum því fréttir
berast fljótt af því hvar radar-
mælingamenn eru, um það sjá
bílar með talstöðvar, FR-menn,
leigubílar og vörubílar. Því fluttu
þeir sig um set Þorgrímur og
Svavar og var stoppað næst við
Vogaafleggjarann. Nokkrir bílar
voru stöðvaðir á 90—100 km
hraða.
En brátt fór ástandið versnandi
og leigubíll úr Reykjavík var
mældur á 109 km hraða. Kona ók
bílnum og mótmælti því algerlega
að hún væri á svo miklum hraða.
Algengt er að ökumenn viðurkenni
ekki að hafa ekið eins hratt og
radarinn sýnir og er þeim þá
venjulega bent á að láta athuga
hraðamælinn í bílnum, ítrekaðar
prófanir hafa nefnilega sýnt að
radararnir eru réttir en hraða-
Það hefur áður komið fram hér
í blaðinu að undantekningarlaust
er ökuleyfissviptingu beitt, ef
menn eru teknir á 100 km hraða
og þar yfir. Að auki þurfa menn að
greiða háar sektir. Varðhald og
enn hærri sektir liggja við ítrek-
uðum brotum. Það er því skoðun
lögreglunnar að ódýrast sé og
hættuminnst að halda hraðanum
innan skynsamlegra marka. Undir
það geta víst flestir tekið ef þeir
hugsa málið. —SS.
Þetta er hinn nýi ok fullkomni radar. Hann sýnir bæði hraða
logreglubílsin.s og hraða hílsins sem mældur er. Þarna er verið að elta
einn á 112 km hraða. Ljúsm. Emiha.
130-140 km hraða
Þessi var tekinn á 120 km hraða. Hann mun vafalaust missa
ökuréttindin.
ljósaborði hraða bifreiðarinnar,
sem á móti kemur. Til þessa hafa
radarar lögreglunnar einungis
getað mælt ökuhraða á ákveðnum
föstum punkti. Það er einnig
nýjung að óþarfi er að senda
stöðuga geisla og er það svar við
þeim fjölmörgu ökumönnum, sem
fjárfest hafa í svokölluðum rad-
arvara en hann gefur til kynna ef
radarmælingar eru í nágrenninu.
Sú fjárfesting borgar sig ekki
þegar nýju radararnir eru komnir
í alla lögreglubíla.
Við lögðum fyrst leið okkar upp
á Suðurlandsveg. Fljótlega varð á
vegi lögreglubílsins bifreið með
V-númeri og mældist hún á 110
km hraða. Lögreglubílnum var
snúið snarlega við og hraði V-bíls-
ins mældur með jöfnu millibili og
síðan var bíllinn stöðvaður og
nafn ökumannsins skrifað niður.
Aftur var haldið af stað í áttina að
Geithálsi en ekki hafði verið lengi
ekið þegar stór sandflutningabíll
kom á móti á 91 km hraða. Hann
var líka mældur með jöfnu milli-
bili og kom i ljós að hann hafði
aukið ferðina frekar en hitt. Bif-
reiðin var stöðvuð og færð á
lögreglustöðina enda geta menn
gert sér í hugarlund hvaða hætta
er á ferðum þegar 22ja tonna bíll
er kominn á 100 km hraða.
mælarnir mjög oft vitlausir. Næst
var stöðvaður bíll með G-númeri
sem var á ofsahraða, 120 km.
Hann var einnig mældur með
jöfnu millibili og reyndist vera á
115—120 km hraða: Annar bíll
með G-númeri var stöðvaður
næst. Hann mældist á 113 km
hraða en þegar hann var mældur
með jöfnum hraða kárnaði gam-
anið, bíllinn fór í 130 km og hann
náðist ekki fyrr en á Grindavíkur-
afleggjaranum og hafði þá ekið
tugi kílómetra. Þessi ökumaður
var ekkert banginn, taldi sig hafa
ekið á 80 km hraða! Þarna munaði
ekki nema litlum 50 km á fram-
burði hans og því sem radarinn
sýndi.
Þegar teknir höfðu verið 11
bílar á hraðanum 90—130 km vár
ákveðið að snúa niður á lögreglu-
stöð. En ekki hafði verið ekið lengi
þegar við mættum amerísku
tryllitæki á 125 km hraða. Enn var
snúið við, bifreiðin mæld með
jöfnu millibili og hún síðan stöðv-
uð. I ljós kom að ökumaðurinn var
17 ára piltur, sem hafði aðeins
haft ökuréttindi í þrjá mánuði.
Sannarlega ekki gæfuleg byrjun á
ökuferli og því varð pilturinn að
gjöra svo vel að koma niður á stöð,
þar sem hann var sviptur ökurétt-
indunum til bráðabirgða.
Þorgrímur gefur einum brotlegum bendingu um að stöðva.
5//
þ v* t.a
Sumbflsæti
eru sjóöheít á sumrín,
en ískóld á vetrum
Þekkiröu vandamálið?
En vissiröu aö á því höfum viö Ijómandi
góða lausn. Austi bílaáklæðin.
Viöurkennd dönsk gæðavara, falleg og
furðulega ódýr. Þau veita góöa einangrun
og hlífa bílsætinu.
Framleidd eftireinföldu kerfi sem tryggir
lágt verð og aö áklæöi séu fyrirliggjandi í
flestargerðirbíla.
Austi bílaáklæöi. Úr fallegum efnum,
einföld í ásetningu.
Fást á öllum bensínstöðvum okkar.
Q
QM f— & □ Q □ LJ cu QQ Q cn m. c ;5'
olis
Vöruval og vönduö þjónusta
STÖÐVARNAR