Morgunblaðið - 01.11.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
23
Glæsibær
Erfðaskrá Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar:
„Gjöf aldarinnar
ef ekki allra alda“
segja skiptaforstjórarnir
Skiptaforstjórarnir i dánarbúi
Helgru Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar sendu i gær frá
sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu:
Hinn 8. nóvember 1972 lést í
Reykjavík Sigurliði kaupmaður
Kristjánsson, annar eigandi fyrir-
tækisins Silla og Valda. Eiginkona
Sigurliða var Helga Jónsdóttir.
Hún lést 3. júní 1978. Þau hjón
voru barnlaus er þau féllu frá og
því ekki um skylduerfingja að
ræða. Hjónin höfðu gert gagn-
kvæma og sameiginlega erfðaskrá
þar sem kveðið var á, að það
þeirra, er síðar félli frá skyldi erfa
það sem fyrr félli frá að öllum
eignum þess, föstum og lausum
hverju nafni sem nefnast. Sam-
kvæmt þessu varð Helga einkaerf-
ingi Sigurliða. í erfðaskránni var
einnig kveðið á um það, hvernig
fara skyldi um eignir þeirra eftir
andlát þess, sem síðar félli frá.
Þorri eignanna var bundinn í
fyrirtækinu Silli og Valdi, en
Sigurliði hafði átt helming í því
fyrirtæki. Var það vilji þeirra
hjóna að nettó-andvirði eignar-
Smiði nýja
B.Ú.R.-
togarans
miðar vel
SMÍÐI skuttogara Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur, sem er í smiðum
hjá Stálvik í Garðabæ, miðar vel
að sögn Jóns Sveinssonar for-
stjóra Stálvíkur. Skv. samningi
átti að afhenda togarann siðari
hluta næsta árs, eða 22 mánuðum
eftir fyrstu innborgun, en liklega
verður togarinn tilbúinn fyrir
þann tíma. Kostnaðarverð togar-
ans var umsamið 1.929 millj. kr.
miðað við vísitölu 19. marz 1979.
Jón sagði að það hefði haft
áhrif, að verk sem búið var að
semja um að afgreitt yrði á undan
B.Ú.R.-togaranum, sem var togari
fyrir Ögurvík, hefði verið aftur-
kallað.
Hinn nýji togari Bæjarútgerð-
arinnar er að sögn Jóns teiknaður
og hannaður hér heima. „Þetta er
öflugt togskip sem skila á góðri
nýtingu og er fyrst og fremst
smíðaður með sparneytni í huga,“
sagði Jón að lokum.
hluta þeirra í Silla og Valda skyldi
varið til menningarmála á sviði
leiklistar, málaralistar, sönglistar
og raunvísinda, með beinum fjár-
framlögum til leikhúsbyggingar,
óperuhúsbyggingar í Reykjavík,
listasafnsbyggingar, styrkjum til
efnalítilla stúdenta með góða
námshæfileika, er einkum leggja
stund á raunvísindanám og til
stuðnings nýjungum í læknis-
fræði, sérstaklega á sviði heila- og
hjartaskurðaðgerða, auknlækn-
inga og öldrunarsjúkdóma.í sam-
ræmi við þetta var ákveðið, að
25% af nettóandvirði eignarhluta
þeirra hjóna í Silla og Valda
skyldi renna til Listasafns ts-
lands, sem stendur nú í því að
bygKja yfir safnið og önnur 25%
renni til íslensku óperunnar, og
skuli öllu framlaginu varið til að
koma upp söngleikahúsi til flutn-
ings á óperuverkum. Ennfremur
að 25% gangi til Leikfélags
Reykjavíkur, enda renni allt féð
sem framlag Leikfélags Reykja-
víkur til byggingar leikhúss, en
svo sem kunnugt er hafa Leikfélag
Reykjavíkur og Reykjavíkurborg
hafið byggingu leikhúss í Kringlu-
mýri í Reykjavík. Þau 25% sem
eftir eru ganga til tveggja sjóða,
sem þegar hafa verið stofnaðir og
skipulagsskrá þeirra hlotið stað-
festingu forseta íslands. Fær hvor
sjóður 12,5%. Sjóðirnir heita
Minningarsjóður Helgu Jónsdótt-
ur og Sigurliða Kristjánssonar til
styrktar stúdentum í raunvísinda-
námi og Minningarsjóður Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Kristjáns-
sonar til stuðnings nýjungum í
læknisfræði.
Fyrirtækinu Silla og Valda var
skipt milli eigenda 1977, þeirra
Valdimars Þórðarsonar kaup-
manns og Helgu Jónsdóttur. í hlut
Helgu komu sex fasteignir í
Reykjavík, meðal annars 97,1% í
Álfheimum 74 (Glæsibær) og
Laugavegur 82. Samanlagt fast-
eignamat þessara sex fasteigna
(húsverð og lóðarverð) nemur kr.
2.204.696.599, miðað við fasteigna-
matið 1/12 1979. Samanlagt
brunabótaverð húsanna nemur kr.
3.561.093.000. Auk þessara eigna
ákváðu þau hjón, að ríkissjóður
íslands skyldi fá íbúðarhús þeirra
hjóna, Laufásveg 72, Reykjavík.
Þá ráðstöfuðu þau hjón eignarjörð
sinni, Ásgarði, Grímsneshreppi,
Árnessýslu, til þriggja aðila,
Hjartaverndar, Reykjavíkurborg-
ar og Skógræktar ríkisins. Var
það vilji þeirra hjóna, að land-
svæði Hjartaverndar yrði notað
sem hvíldar- og hressingarstaður.
Landið liggur meðfram Álftavatni
og Sogi og fær Hjartavernd öll
veiðiréttindi fyrir sínu landi.
Einnig fékk Hjartavernd sumar-
hús þeirra hjóna, sem er á þessu
landi. Land Hjartaverndar er um
80 hektarar. Það var vilji hjón-
anna, að á landi Reykjavíkurborg-
ar rísi sumardvalarheimili fyrir
drengi á aldrinum 6—14 ára og sé
unglingunum ætlað að hlúa að
gróðri landsins, svo sem með
trjárækt og hvers kyns annarri
ræktun. Land þetta er um 50
hektarar. Land þetta liggur með-
fram Sogi og Ásgarðsá og fær
Reykjavíkurborg veiðiréttindi
fyrir sínu landi. Annað land jarð-
arinnar, um 600 hektarar, á að
renna til Skógræktar ríkisins, með
þeirri kvöð að á landi jarðarinnar
fari fram skógrækt. Skógrækt
ríkisins fær veiðiréttindi fyrir
sínu landi. Vegna ákvæða um
forkaupsrétt í III. kafla jarðalaga
nr. 65/1976 varð að gefa hrepps-
nefnd Grímsneshrepps kost á að
neyta forkaupsréttar að jörðinni.
Hefir hreppsnefndin æskt mats
hjá matsnefnd eignarnámsbóta og
er úrskurðar matsnefndar að
vænta innan tíðar. Það er því enn
háð óvissu hvort framangreindir
gjafþegar fá að njóta Ásgarðs-
gjafar. Ekki er ástæða til að
greina frá ákvæðum erfðaskrár
þeirra hjóna að öðru leyti, enda
gerð grein fyrir öllum meginþátt-
um erfðaskrárinnar með þessari
fréttatilkynningu.
Svo sem ljóst má vera af
framangreindri skýrslu um eigur
þeirra hjóna voru þau stórauðug,
er þau féllu frá. Trúlega er hér um
að ræða gjöf aldarinnar, ef ekki
allra alda. Jafnframt því sem
gjöfin speglar fágæta rausn þeirra
hjóna varpar hún einnig ljósi á
áhugamál þeirra. Áhugasviðið var
vítt: Leiklist, málaralist, sönglist,
skógrækt og mannrækt. Þess má
geta, að í dánarbúinu reyndust
vera tæplega 270 olíumálverk eftir
Sigurliða, sem sýnir hvílíkur elju-
og afkastamaður hann var.
Sigurliði Kristjánsson var
fæddur í Reykjavík 17.6. 1901 og
Helga Jónsdóttir 22.10. 1901 á
Jökulsá í Borgarfirði eystra.
Fréttatilkynning þessi er gefin
vegna fyrirspurna fjölmiðla að
undanförnu um ráðstöfun þeirra
hjóna á eigum sínum.
Reykjavík, 31.10.1980.
Skiptaforstjórarnir í
dánarbúi Helgu Jónsdóttur
og Sigurliða Kristjánssonar.
Jóhann Hinrik Nieisson hrl.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl.
Sveinn Snorrason hrl.
stáliö er heitgalvaniseraö og lakkaö meö PVF2
lökkun, sem talin er fremsta litunaraöferö á
markaönum í dag.
Litir: svart og rautt
PLEGEL
má negla beint á pappaklætt þak. Allir fylgihlutir
fáanlegir í slömu litum t.d. kjölur, skotrennur,
vindskeiöar, sléttjárn og saumur meö gúmmí-
þéttingu.
Leitiö upplýsinga og tilboða.
Ég óska eftir myndlista um PLEGEL
I Nafn
Heimili
PLEGEL UMBOÐIÐ,
PARDUS H.F.
Box 98, Keflavík, sími 92-3380.
stálplötu þak meö tígulsteina útlit
PLEGEL er fáanlegt í plötum, lengd 110 cm og
215 cm og þekja plöturnar 100 cm á breidd.