Morgunblaðið - 01.11.1980, Page 30

Morgunblaðið - 01.11.1980, Page 30
LEIKLIST: TÓNLIST: KVIKMYNDIR: LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: „Að sjá til þín, maður“: Fjöl skyldan fyrir framan sjónarps tækið: Marjfrét Helga Jóhanns dóttir, SÍKurður Karisson ok Em il Gtinnar Guðmundsson. Þorlákur þreytti fimmtugur reyin í kvöld — að verða algjört met, segir Magnús Olafsson í KVÖLD kl. 20.30 hefst 50. sýninK Leikfélags Kópavogs á Þorláki þreytta. Af því tilefni höfðum við samhand við Magn- ús ólafsson, sem leikur príma- donnuhlutverkið í þessuro vin- sæla gamanleik. — Þetta hefur gengið eins og í sögu hjá okkur, sagði Magnús, — enda höfum við verið heppin með leikstjóra og starfsfólk og allir unnið sem einn maður. Þetta fer að verða algjört met hjá okkur með sýningafjöldann, auðvitað miðað við að við rekum hér áhugamannaleikhús. Aðsóknin er svo góð, að útlit er fyrir áframhaldandi sýningar eitt- hvað fram eftir mánuðinum. Og það er búið að falast eftir að við Magnús Óiafsson. förum í leikferðir út á land, en önnur verkefni knýja á hjá okkur. Leynimelur 13 Við erum nú að æfa af kappi fyrir næsta verkefni og frum- sýnum að öllum líkindum Leyni- mel 13 á annan í jólum. Leik- stjóri er Guðrún Ásmundsdóttir. Leikritið, sem er í revíustíl, er eftir Þrídrang; Harald Á., Emil Thoroddsen og Alfreð Andrés- son. Jú, ég leik þarna nokkuð stórt hlutverk, skemmtilegan náunga, gjörólíkan Þorláki — Svein Jón nokkurn Jónsson. Og það verða fleiri kvikmynda- stjörnur en ég með í leiknum, t.d. Hólmfríður Þórhallsdóttir, sem lék í Óðali feðranna, Sigurð- ur Jóhannsson, sem lék annan lögregluþjónanna í Veiðiferðinni og Sólrún Yngvadóttir, húsfrúin í Þorláki, en lék einnig í Punkt- inum. Þá verður að geta þess, að Jón Hjartarson leikari hefur samið texta við gamla slagara frá stríðsárunum og er þeim bætt inn í verkið, með góðfús- legu ieyfi Haralds Á. Sigurðs- sonar, sem er einn höfundanna á lífi. Magnús Pétursson sér um tónlistina, en Ivan Torrök um leiktjöld, svo að það má ljóst vera, að þarna er einvala lið á ferð. „Að sjá til þín, maður*‘ vekur athygli og umtal Úr „Snjó“: Pétur Einarsson og Bríet Héðinsdóttir i hlutverkum sínum. í KVÖLD sýnir Leikfélag Reykja- víkur leikritið Að sjá til þín, maður eftir Franz Xaver Kroetz, sem er einn þekktasti leikritahöf- undur Þjóðverja í dag. Sýningin hefur vakið mikla at- hygli og umtal, bæði leikstjórn Hallmars Sigurðssonar og leikur þeirra Sigurðar Karissonar, Mar- grétar Helgu Jóhannsdóttur og Emils Gunnars Guðmundssonar í hlutverkunum þremur. Leikritið lýsir samskiptum hjónanna Ottós og Mörtu, svo og við Lúðvík, son þeirra á táninga- aldri. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Kroetz samið ein þrjátíu leikrit og er óhætt að segja að fá ef nokkur þeirra hafa vakið jafn mikla athygli og Að sjá til þín, maður! I þessu verki, sem er mjög nærgöngult, grannskoðar höfund- ur manneskjuna af sjaldgæfri nákvæmni, baráttu hennar við sjálfa sig og samskipti einstakl- inga. MORGUNI Kammertónleikar Súningar um helgina Kjarvalsstaðir: Yfirlitssýning á verkum Braga Ásgeirssonar. Sýn- ingin er í öllu húsinu og lýkur annað kvöld. Listasafn íslands:Yfirlitssýning á verkum Svavars Guðnasonar opnuð kl. 14 í dag. Listmunahúsið, Lækjargötu: Sig- ríður Björnsdóttir sýnir 70 lands- lagsmyndir og 7 afstraktmyndir. Opið frá kl. 10—18 virka daga og 14—18 um helgar. Sýningunni lýkur 9. þ.m. Listaskáli ASÍ, Grensásvegi 16: Sigurður Thoroddsen verkfræð- ingur sýnir vatnslitamyndir. Opið frá kl. 14—22. Sýningin stendur til 9. þ.m. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3: Hol- lensk myndlistasýning, Vídd á pappír. Opið frá kl. 16—20 á virkum dögum, en 14—20 um helgar. Sýningin stendur til 16. þ.m. Norræna húsið: Jón Reykdal sýnir 21 olíumálverk og27 grafíkmyndir í kjallara. Sýningunni lýkur annað kvöld. Finnski grafíklistamaðurinn Pentti Kaskipuro sýnir grafík- myndir í anddyri. Sýningi stendur út mánuðinn. Mokka-kaffi: Japönsk kona, Yuki Kishe sýnir teikningar. Sýningin stendur aðeins í örfáa daga. Kirkjustræti 10: Sigrún Gísla- dóttir sýnir collage-myndir. Sýn- ingin stendur til 18. þ.m. Torfan: Gylfi Gíslason og Sigur- jón Jóhannsson sýna leikmynda- og búningateikningar. Gallerí Háhóll, Ákureyri: Val- garður Stefánsson sýnir 58 pastel- og olíukrítarmyndir. Sýningunni lýkur annað kvöld. Eden, Hveragerði: José Luis Lopez Ayala sýnir málverk og vatnslita- myndir. Sýningin stendur í tvær vikur. Sigríður Björnsdóttir í sýningarsal Listamunahússins við Lækjar- götu. en þar sýnir hún um þessar mundir 70 landslagsmyndir og 7 afstraktmyndir. Um myndirnar segir hún i sýningarskrá: „Abstrakt- myndir mínar á þessari sýningu eru unnar á ýmsum timabilum ævi minnar. Landslagsmyndirnar eru frá þessu ári og unnar hér heima og á ferðum mínum ... Eins og þau Ijóð sem ég orti. verða myndir mínar til eftir langa þróun — þær eru reynsla mín og líf.“ Orfáar sýningar eftir á ySnjó “ NÚ FARA að verða .síðustu forvöð að kynna sér forvitni- legan áfanga á höfundarferli Kjartans Ragnarssonar í leikritinu „Snjó“, sem l>j<jð- leikhúsið sýnir um þessar mundir. Kjartan fer nýjar leiðir í þessu verki og fjallar um alvarlega hluti, spurningar um líf og dauða, en kunnuglegri gamansemi bregður þó fyrir. Leikurinn gerist í þorpi á Austfjörðum og vofir snjó- flóðahættan yfir, en gagnvart hinni hinstu spurningu gera persónurnar upp hug sinn um afstöðuna til lífsins. Leikstjóri er Sveinn Ein- arsson og leikmyndin er eftir Magnús Tómasson. Með hlut- verkin fara Rúrik Haraldsson, Erlingur Gíslason, Briét Héð- insdóttir, Pétur Einarsson og Lilja Þorvaldsdóttir. Næstu sýningar á Snjó verða í dag, laugardaginn 1. nóvember, og miðvikudaginn 5. nóvember. á Kjarvalsstöðum „Síðasti bærinn í dalnum“ - í Regnboganum um helgina UM HELGINA verða tvær sýn- ingar í Regnboganum á kvik- myndinni „Siðasti bærinn i daln- um“. Hin fyrri verður i dag kl. 15 og hin síðari á morgun, sunnu- dag, á sama tíma. Á þessu ári eru liðin 30 ár síðan kvikmyndin var frumsýnd, en myndina gerði Óskar Gíslason eftir sögu Lofts Guðmundssonar rithöfundar. Aðalhlutverk leika Þóra Borg, Valdimar Lárusson, Friðrikka Geirsdóttir, Valur Gústafsson, Jón Aðils og Erna Sigurleifsdóttir. Um síðastliðna helgi efndi Óskar Gíslason til afmælissýninga á kvikmyndinni og var aðsókn svo mikil, að ákveðið var að bæta við sýningum þeim, sem verða nú um helgina. Óskar Gislason. Á MÁNUDAG, 3. nóvember, verða haldnir kammertónleikar á kaffistofunni á KjarValsstöðum og hefjast þeir kl. 20.30. Flytjend- ur á þessum tónleikum verða Bernard Wilkinson flautuleikari, Maria Vericonte fiðluleikari, Stephen King víóluleikari og Guðrún Sigurðardóttir sellóleik- ari. Flutt verða verk eftir Mozart og Debussy. Efnisskrá tónleikanna er eftir- farandi: W. A. Mozart: Flautukvartett í C-dúr K 631. W.A. Mozart: Dúett í G-dúr fyrir fiðlu og víólu K 423. Eftir hlé. C. Debussy: Syrinx fyrir ein- leiksflautu. W.A. Mozart: Flautu- kvartett í D-dúr K 285. Stephen King, Maria Vericonte, Guðrún Sigurðardóttir og Bernard Wilkinson. ÞJÓÐLEIKIIÚSIÐ:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.