Morgunblaðið - 01.11.1980, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.11.1980, Qupperneq 31
HVAÐ ER AD GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 31 MYNDLIST: Mexikanskur arki- tekt sýnir í Eden í DAG opnar mexíkanskur arki- tekt, José Luis Lopez Ayala, sýningu á myndum eftir sig í Eden i Hveragerði. Ayala segir í fréttatilkynningu til blaðsins að hann hafi orðið fyrir miklum áhrifum af list í kirkjum og klaustrum í landi sínu. Hann segir: „I þessum kirkju- myndum er teikningin gróf og hlutföllin röng — það sem máli skipti var að tjá sig með þeirri tækni sem fyrir hendi var. Svipað geri ég í myndum mínum. Ég hef einnig orðið var við mikla lífsgleði á íslenskum skemmtistöðum og túlkað hana í myndum mínum. — Jafnframt sýni ég vatnslitamynd- ir frá fyrstu árum myndsköpunar minnar — af mexíkönskum sveita- þorpum sem ég er mjög hrifinn af.“ Sýning Ayalas stendur í tvær vikur. José Luis Lopez Ayala við eitt verka sinna. Gylfi Gröndal Hjörtur Pálsson Þorsteinn frá Hamri Jón úr Vör Þorsteinn Valdimars- Elísabet Erlingsdóttir son Fjölnir Stefánsson Þorkell Sigurbjörns- Sigfús Halldórsson son Tónlistar- og Ijóða- vaka í Kópavogi í TILEFNI af 25 ára afmæli Kópavogskaupstaðar á þessu ári efnir Norræna félagið í Kópavogi til tónlistar- og Ijóðavöku á morg- un i Hamraborg 11, og hefst samkoman kl. 20.30. Lesin verða ljóð eftir skáld búsett í Kópavogi nú og fyrr. Þessi skáld lesa sín eigin lóð: Gylfi Gröndal, Hjörtur Pálsson, Þor- steinn frá Hamri og Böðvar Guð- laugsson. Ljóð skáldanna Gunnars Egg- ertssonar, Jóns úr Vör og Þor- steins Valdimarssonar lesa þau Hugrún Gunnarsdóttir, Hjálmar Ólafsson og Gunnar Valdimars- son. Elísabet Erlingsdóttir syngur við undirleik Kristins Gestssonar lög eftir tónskáld úr Kópavogi: Eftir Fjölni Stefánsson lög við þjóðvísur og Þorkel Sigurbjörns- son lög við ljóð Þorsteins Valdi- marssonar. Lög Sigfúsar Halldórssonar verða leikin og sungin. Allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. ÞESSA mynd tók Emilía i Naustinu á fimmtudagskvöld- ið, þegar Ragnhildur Gisla- dóttir kom þar fram ásamt þeim Haraldi Þorsteinssyni bassaleikara og Magnúsi Kjartanssyni, sem lék undir á pianó. Þau koma næst fram i Naustinu annað kvöld. Mhl. hefur það eftir áreiðanlegum heimildum. að ætlunin sé að lifga upp á stemmninguna i Naustinu og gefa ungum tón- listarmönnum um leið kost á þvi að troða upp með list sina á nýjum vettvangi. Verða slíkar skemmtanir haldnar á fimmtudagskvöldum og sunnudagskvöldum. Þá má geta þess, að Naustið býður upp á svokallaða fjölskyldu- rétti í hádeginu á sunnudög- um á hæfilegu verði og eru allar veitingar ókcypis fyrir börn. MYNDLIST: Valgarður Stefánsson í Galleri Háhól UM ÞESSAR mundir stendur yfir í Gallerí Háhóli á Akureyri sýning Valgarðs Stefánssonar. Þar sýnir hann 58 myndir, flest- ar málaðar með pastellitum en einnig nokkrar oliukritarmynd- ir. Valgarður Stefánsson er fæddur á Akureyri 1946 og starfar sem birgðavörður við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd- listarnám hefur hann mest stund- að á sjálfs sín vegum, en einnig notið tilsagnar móður sinnar, Ragnheiðar Valgarðsdóttur, sem er mvndlistarkennari. — Ég er að leita að farvegi í mínum verkum, tek áhættu og prófa nýja liti, sagði Valgarður, — en ég held nú að það sé einhver samhljómur í þesum myndum, sem ég sýni í Háhóli. Ég geri það oft að taka skissur þegar ég er á ferð. Síðan rifja ég þetta upp þegar heim er komið og mála landslagið eins og ég sé það í endurminningunni. Sýningu Valgarðs Stefánssonar í Gallerí Háhóli lýkur annað kvöld. „Hér leynast töfrar“, ein mynda Valgarðs Stefánssonar i Galleri Háhóli. MYNDLIST: Finnskur grafíklista- maður í Norræna húsinu FINNSKI grafíklistamaðurinn Pentti Kaskipuro sýnir grafík- myndir í anddyri Norræna húss- ins og stendur sýning hans út nóvembermánuð. Pentti Kaskipuro er fæddur 1930 í Helsinki, þar sem hann stundaði nám í grafíkdeild lista- háskólans finnska. Hann hefur kennt list-grafík við listiðnaðar- háskólann í Helsinki og frá 1974—1979 var hann listprófessor. Hann var útnefndur listamaður ársins á listahátíðinni þar 1979. Pentti Kaskipuro hefur haldið fjölda sýninga og eins verið með í samsýningum í flestum löndum Evrópu, einnig Ameríku, Indlandi, Ástralíu og Japan, og hefur fallið í skaut fjöldi verðlauna fyrir verk sín. Yfir 50 listasöfn víðs vegar í heiminum hafa keypt verk hans. Grafíksýningin verður opin á venjulegum opnunartíma hússins, Ein af myndum finnska grafiklistamannsins Pentti Kaskipuro, sem frá 9—19 allan nóvembermánuð. um þessar mundir sýnir í anddyri Norræna hússins. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: 112. sýning á Ofvitanum ANNAÐ kvöld verður 112. sýning á OFVITANUM eftir Þórberg Þórðarson í leikgerð og leikstjórn Kjartans Ragn- arssonar. Leikritið var sýnt fyrir fullu húsi í allan fyrravetur og af aðsókn í haust er ljóst a verkið verður á fjölunum enn um sinn enda samdóma álit gagn- rýnenda og áhorfenda að ótrúlega vel hafi tekist að búa sögu meistarans í leikbúning, það eru þeir Jón Hjartarson og Emil Gunnar Guðmunds- son, sem fara með hlutverk Þórbergs í leiknum. Úr Ofvitanum: Jón Hjartarson og Emil Gunnar Guðmundsson i hlutverki Þórbergs og Lilja Þór- isdóttir í hlutverki Elskunnar hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.