Morgunblaðið - 01.11.1980, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
45
Tj ^7
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MANUDEGI
if
Við erum nú bara
fólk eins og þið
eins heppilegur fyrir okkur gamla
fólkið. Þá vil ég biðja sjónvarpið
að hafa íþróttaþætti og popp
síðast á dagskránni,' svo að við
gömlu hróin og barnabörnin okkar
fáum okkar skammt fyrst og
getum svo hallað okkur. í þessu
sambandi er ég t.d. með í huga
uppáhaldið mitt: Dýrin mín stór
og smá. Maður heldur varla út,
hvað þá blessuð börnin, að bíða
svona eftir myndinni. Að lokum
þetta: Jökull Jakobsson var og er
minn uppáhaldshöfundur. Ég ent-
ist ekki til að horfa á nema part af
myndinni á sunnudaginn, en fólk
hefur sagt mér að Jökull hafi verið
óþekkjanlegur þarna. Er ekki nóg
að hafa bíóin full af viðbjóði.
Getum við ekki einbeitt okkur að
því að gera það sem er jákvætt og
hefur góð áhrif á okkur sem
manneskjur.
Borga bændur
þetta gjald?
Torfi ólafsson hringdi og
kvaðst hafa spurst fyrir um sýslu-
vegasjóðsgjald í dálkum Velvak-
anda fyrir skemmstu, en ekkert
svar fengið. Sumarbústaðaeigend-
ur eru látnir greiða þetta gjaid, og
ég spyr að nýju: Hvað um bændur
sem eiga íbúðir í Reykjavík eða
öðrum bæjarfélögum? Borga þeir
samsvarandi gjald? Borgar Hall-
dór E., sem kom þessu á, sambæri-
legt gjald til Garðabæjar?
Góður hugur
og atlæti
Sigurður Guðjónsson hringdi
og vildi koma á framfæri þakklæti
sínu til lækna og annars starfs-
fólks Kleppspítalans og Berg-
iðjunnar. — Hér á maður engu
öðru að mæta en góðum hug og
atlæti allra sem hér vinna. Ég hef
engu við það að bæta, en vil taka
það fram að ég er sjálfstæðismað-
ur.
Landsbyggðarkona 3754—
2768 skrifar:
„Velvakandi góður!
Með von um að réttir aðilar lesi
þessar línur skrifa ég þér. Hvers
skyldum við eiga að gjalda, þessir
blessuðu aumingjar, sem búum úti
á landsbyggðinni og glápum
stundum á sjónvarp, höfum við
ekki sama rétt og þeir sem búa í
þéttbýlinu.
Síðastliðið föstudagskvöld, 24.
okt. 1980, ætlaði fjölskyldan að
horfa á sjónvarpskvikmyndina,
sem var síðust á dagskránni, en
viti menn: Þegar mesti spenning-
urinn var kemur snjór á skerminn.
Við bíðum þolinmóð, en ekkert
kemur. Rennur þá upp fyrir okkur
að þetta er ekki bilun heldur er
búið að taka eina endurvarpsstöð-
ina út. Það hefur líklegast átt að
reka okkur í rúmin.
En hvernig skyldi svo standa á
þessu? Er það kannski af því að
við greiðum ekki hærra afnota-
gjald en þið þarna fyrir sunnan?
Við hringjum suður í sjónvarp í
fávizku okkar og spyrjum hvernig
standi nú eiginlega á þessu. Jú,
þeir sögðu okkur, blessaðir engl-
arnir þar, að þetta væri algerlega
á valdi Pósts og síma.
Ef þetta væri
i eina skiptið
Er til of mikils mælst að þeir
sem eiga að sjá um þessi mál (ég
geri ráð fyrir að þeir séu á
launum) kynni sér dagskránna eða
fylgist með því hvort hún stenst
eða ekki. í þessu tilviki varð
umræðuþátturinn, sem var á und-
an heldur langur, og fyrir það
misstum .við endinn á myndinni.
En þetta væri nú allt gott og
blessað ef þetta væri í eina skiptið
sem við missum af endinum, en
svo var nú aldeilis ekki. Þetta var
í þriðja eða fjórða skiptið á ekki
löngum tíma, sem ein endur-
varpsstöðin var tekin út of
snemma. Þið þarna fyrir sunnan
getið kallað þetta röfl í okkur
landsbyggðarfólkinu, en við erum
nú bara fólk eins og þið og höfum
sennilega meiri áhuga fyrir
þokkalegum sjónvarpsmyndum,
þar sem við höfum ekki úr mörg-
um kvikmyndahúsum að velja.
Beztu kveðjur og þökk fyrir
birtinguna."
til baka. Þessi eina kæra var út
af grindunum við ljónabúrið,
vegna ljónsbitsins fræga. Úr
þessu var bætt snarlega og byggt
upp heljarmikið víravirki fyrir
framan búrið, þá var orðið ör-
uggt að enginn gesta safnsins
gæti farið inn til ljónanna og
látið þau bíta sig.
Og nú hefurðu kært enn einu
sinni. (Mikið hefurðu gaman af
þessu.) Að þessu sinni vegna
þess að snæuglan í Sædýrasafn-
inu var fóðruð á lifandi dýri. Það
atvik skeði einu sinni vegna
misskilnings milli starfsmanns
og verkstjóra.
Hvernig skyldu annars uglur
og önnur villt dýr borða úti í
náttúrunni Þar er enginn til að
drepa fórnarlömbin fyrir þau.
Dýrunum líður vel
eins og sjá má
Að síðustu vil ég fá að minnast
á kyrkislönguna, vegna Indíönu
Antonsdóttur og annarra sem
hafa velt þessu fyrir sér.
Kyrkislangan borðar ekki
nema lifandi fæðu. Svo það er
rétt að lifandi kjúklingar og
hvítar rottur eru settar inn til
hennar. En það hefur alltaf verið
gert eftir lokun á kvöldin og
tekið út aftur á morgnana fyrir
opnun. Hins vegar hefur slangan
ekkert étið síðan hún kom til
landsins, því hún er að skipta um
ham. Meðan á því stendur étur
hún ekkert í 5—6 vikur.
Og eitt orð enn til Jórunnar: í
guðanna bænum farðu að fá þér
nýtt áhugamál. Hvernig væri að
fara að hugsa um velferð dýra
almennt sem lítið eða ekkert er
hugsað um? Dýrin í Sædýrasafn-
inu eru undir eftirliti góðs dýra-
læknis og góðs starfsfólks. Dýr-
unum þar líður vel, eins og sjá
má á útliti þeirra.
Hvernig væri að fá að heyra
frá einhverjum hinna fjölmörgu
fastagesta Sædýrasafnsins, sem
koma þangað einu sinni (eða
oftar) í hverjum mánuði til að
fylgjast með dýrunum og komast
í snertingu við náttúruna. Það
eru sem betur fer ekki allir sem
líta eilíft á hinar (ímynduðu)
dökku hliðar tilverunnar."
fyrir 50 árum
„ÞAÐ kom í ljós i íyrra að
elsti maður heimsins myndi
vera Tyrki, Metusalem Zaro
Agha að nafni og væri hann
156 ára gamall. Þegar
Bandarikjamenn fréttu þetta
voru menn sendir til Tyrk-
lands til að fá öldunginn til
að takast á hendur ferð
vestur yfir hafið. Hann var
fluttur vestur og þar sýndur
fyrir peninga. Var Metusal-
em gamli hinn ernasti og fór
þar allra sinna ferða. En svo
fór þó nú um daginn að er
öldungurinn var á gangi á
Broadway í New York, að bíll
ók á hann og beið hann þar
bana. Metusalem hafði barist
i tyrkneska hefnum árið
1821. Hann eignaðist 11 kon-
ur á lifsleiðinni, en missti
þær allar. Ilann sagði að sér
hefði þótt vænst um þriöju
konuna, en sú sjöunda falleg-
ust en jafnframt málgefnust
M
„Sigurður Jónsson skóla-
stjóri hefur ásamt nokkrum
mönnum öðrum tekið sér
fyrir hendur að vinna að þvi
að bæjarbúar taki höndum
saman til að koma i veg fyrir
að börn séu úti á götum fram
eftir öllu kvöldi. Er sá ósiður
landlægur hér, sem kunnugt
er...“
Öllum œttingjum mínum og vinum, nær og fjær,
sem heibruöu mig meÖ heimsóknum, kveðjum og
gjöfum á áttrœðisafmœli minu 30. september sl.,
sendi ég mínar bestu kveðjur og þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
ÁSTA PÁLSDÓTTIR.
STYKKISHÓLMI.
BAZAR
Bazar Blindrafélagsins veröur haldinn aö
Hamrahlíð 17 í dag 1. nóv. kl. 2.00. Mikiö
vöruúrval, s.s. prjónles, jólavörur, fatnaður,
kökur.
Okkar vinsæla skyndihappdrætti.
Styrktarfélagar.
Basar — Basar
Kökur, munir og lukkupokar aö Hallveigarstööum kl.
2 sunnudag. Foreldra- og styrktarfélag
heyrnardaufra.
Bifreiðaeigendur athugið
Höfum opiö alla laugardaga.
Bón- og þvottastöðin hf.
Sigtúni 3. Sími 14820.
, Fjölskyldu-
skemmtun með
Gosa
-í hádeginu alla sunnudaga
Njótið ánægjulegs málsverðar með allri fjölskyldunni
í Veitingabúð Hótels Loftleiða.
Gosi verður á staðnum og skemmtir sér og bömunum.
Nú kynna skátar starfsemi sína á göngum hótelsins og halda
skemmtun á skáta vísu í Krystalssal. Auk þess koma fram
heimsfrægir tékkneskir listamenn, m. a. töframaður og
harmoníkuleikari.
M atseðill:
Sveppasúpa kr. 700
Ofnsteikt lambalæri með bemaisesósu kr. 4.700
Steikt smálúðuflök með rækjum kr. 3.250
Rjómaís með ávöxtum kr. 1.050
Fyrir bömin:
1/2 skammtur af rétti dagsins 6—12 ára,
frítt fyrir böm yngri en 6 ára.
Auk þess: Gosaborgari m/frönskum kartöflum kr. 1.200
Nórasamloka m/frönskum kartöflum kr. 850
Verið velkomin
HOTEL LOFTLEIÐI
Vertingabúð