Morgunblaðið - 12.11.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
Davíð Oddsson bon?arfulltrui a einum al premur vinnustaðalundum sínum í gær.
Davíð á vinnustaðafundum
DAVÍÐ Oddssun formaður
borKarstjórnarflokks sjálfsta^ð-
ismanna hefur að undanfornu
heimsótt vinnustaði í Reykja-
vík. rætt við starfsfólk þar ok
svarað spurningum. eins ok
þejjar hefur verið skýrt frá í
MorKunblaðinu. í Kær heimsótti
hann starfsmenn Kassagerðar
Reykjavíkur. Bor)íarverkfra“ð-
in«s (>k Heklu hf.
Að sögn Sveins H. Skúlasonar
framkvæmdastjóra Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaKanna í Reykja-
vík, hafa fundirnir tekist vel, og
víða orðið fjörugar umræður að
loknu framsöguerindi Davíðs um
borgarmál. Er ætlunin að halda
fundahöldum þessum áfram og
mun Davíð meðal annars heim-
sækja Faxaskála í dag.
Fjöldi sáttafunda í gær og í dag:
Fá yfirmenn á far-
skipum tilboð frá
skipafélögunum?
- Samkomulag tókst milli Hitaveitu Suðurnesja
og vélstjóra, sem borið verður undir aðila í dag
ALLMARGIR sáttafundir
voru í Rær haidnir hjá
sáttasomjara ríkisins ok
tókst samkomulaR í kjara-
doilu vólstjóra og Ilita-
voitu Suðurnesja. som bor-
ið vorður undir fund vél-
stjóranna í dag. Vélstjórar
GUNNAR Th. Gunnarsson, sem
slasaðist alvarlega í bílslysi í
Dýskalandi á föstudaginn. lést á
sjúkrahúsi í fyrradag af völdum
áverka er hann hlaut i slysinu.
Áður hafði Gunnar gengist undir
heilaskurðaðgerð. en ekki tókst
að bjarga lífi hans.
Kona Gunnars, Steinunn Ax-
fjörð, slasaðist minna og er nú
talin úr lífshættu að því er
Þorsteinn Ingólfsson í utanríkis-
ráðuneytinu tjáði Morgunblaðinu
í gær. Börn þeirra tvö, sem einnig
voru í bifreiðinni er slysið varð,
sluppu minna meidd.
Gunnar starfaði áður sem lög-
reglumaður í Reykjavík, en hafði
að undanförnu starfað við skipafé-
lag í Vestur-Þýskalandi. Slysið
mun hafa orðið með þeim hætti,
að Gunnar missti stjórn á bifreið
sinni af ókunnum ástæðum, og
skall hún á tré við vegarkantinn.
Gunnar heitinn var 25 ára að aldri
er hann lést.
á Suóurnosjum. som starfa
hjá Hitaveitunni, höfðu
boðað verkfall frá or moð
næstkomandi mánudoRÍ.
I»á var í sær sáttafundur
moð fluKÍreyjum. hljóm-
listarmönnum o>? bóka-
Korðarmönnum. Fundur
Gunnar Th. Gunnarsson.
Steinunn og börnin tvö eru nú á
batavegi, og eru aðstandendur
fjölskyldunnar komnir til Þýska-
lands til þeirra.
hókaKorðarmanna stóð frá
klukkan 14 til 18 og var
skipzt á skoðunum. on
okki mun hafa gengið sam-
an í deilunni. Fundur er
aftur hoðaður í dag klukk-
an 16.
í dag klukkan 09 er einnig
boðaður sáttafundur með Verka-
lýðsfélaginu Rangæingi og verk-
tökum við Hrauneyjafoss og á
sama tíma hefst einnig fundur
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins vegna yfirmanna á far-
skipum. Er þess jafnvel vænzt að
skipafélögin muni gefa farmönn-
um tilboð á fundinum í dag.
Yfirmenn á farskipum hafa boðað
yfirvinnubann frá og með 17.
nóvember. Þá verða einnig í dag
sáttafundir með vörubifreiða-
stjórum í Arnes- og Rangárvalla-
sýslum og ennfremur er samn-
inganefnd Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis boðuð á sáttafund.
o
INNLENT
Lést af slysför-
um í Þýskalandi
Aðalfundur Varðar
haldinn í kvöld
AÐALFUNDUR Landsmálafé-
lagsins Varðar í Reykjavík verð-
ur haldinn í kvöld. Fundurinn er
haldinn í Sjálfstæðishúsinu Val-
höll við Háaleitishraut. og hefst
hann klukkan 20.30. Á daKskrá
eru venjuleK aðalfundarstörf. ok
auk þess mun Geir Hallgrímsson
formaður Sjálfsta>ðisflokksins
flytja ræðu.
Rétt til fundarsetu eiga allir
Varðarfélagar, en þeir eru sjálf-
stæðismenn í hinum 12 hverfafé-
lögum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík og einnig sjálfstæðis-
menn með beina aðild að félaginu
sjálfu.
Uppstillingarnefnd fyrir aðal-
fundinn var nýlega kjörin, en í
henni eiga sæti þau Ingibjörg
Rafnar, Óskar Friðriksson og
Björgólfur Guðmundsson.
Nefndin hefur þegar skilað sam-
eiginlegu áliti, og gerir hún að
tillögu sinni að Ragnhildur Helga-
dóttir verði kjörin formaður, en
Gunnar
Gunnarsson
í MorKunblaðinu í Kær birt-
ist auKlýsinK um upplestur
Gunnars Gunnarssonar á
verki eftir hann í veitinKa-
húsinu Hlíðarenda. Með
auKlýsinKunni var birt
mynd af Gunnari skáldi
Gunnarssyni. sem lézt. eins
ok kunnuKt er. fyrir hálfum
áratug.
Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem Gunnari Gunnarssyni
hefur verið ruKlað saman
við nafna hans ynKri. en
MorKunhlaðinu þykir samt
ástæða til að leiðrétta þenn-
an misskiIninK <>K biðjast
afsökunar á mistökunum,
þótt óþarft ætti að vera.
fráfarandi formaður, Óskar Frið-
riksson, gefur ekki kost á sér til
endurkjörs. Tillögur uppstillinga-
nefndar um stjórnarmenn eru
þessar: Ester Guðmundsdóttir,
Gunnar Hauksson, Gísli Jó-
hannsson, Gústaf B. Einarsson og
Júlíus Hafstein. í varastjórn gerir
uppstillingarnefnd að tillögu sinni
að kjörnir verði þeir Bjarni
Ólafsson, Kristinn Jónsson og
Sveinn Jónsson.
F jármálaráðherra:
Ákvörðun
um samtíma-
skatta í vetur
RAGNAR Arnalds, fjármálaráð-
herra, skýrði frá því í framsögu
fyrir fjárlagafrumvarpi 1981, að
Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkis-
skattstjóri hefði fengið leyfi frá
störfum næstu mánuði til „að
undirbúa tillögur um staðgreiðslu-
kerfi, á grundvelli fyrirliggjandi
gagna, og er það von mín að
frumvarp um staðgreiðslukerfi
verði samþykkt á Alþingi í vetur."
Ráðherra sagði þess þó ekki að
vænta að samtímaskattur geti
komið til framkvæmda fyrr en að
tveimur árum liðnum frá ákvörð-
un Alþingis.
r
Is hamlar nu
loðnuveiðum
REKÍS hamlar nú loðnuveiðum á
miðunum 60 — 80 mílur norður af
Horni. í gærkvöldi áttu skipin
orðið mjög erfitt með að athafna
sík. en í fyrrinótt Kátu þau veitt í
„islausum polli“ á sva>ðinu. Und-
anfarið hefur verið heldur rólegt
yfir loðnuveiðunum. en aflinn frá
upphafi vertíðar er nú orðinn um
290 þúsund tonn. Síðan á laugar-
dag hafa eftirtalin skip tilkynnt
Loðnunefnd afla:
Laugardagur: Seley 430,
Grindvíkingur 600, Sæberg 610,
Húnaröst 580, Hafrún 580, Fífill
640, Örn 580, Magnús 530, Huginn
580.
Sunnudagur: Skarðsvík 620,
Gígja 700, Þórður Jónasson 490,
Jón Finnsson 600, Bergur 480,
Sæbjörg 300, Eldborg 1400.
Mánudagur: Súlan 800, Albert
500, Víkurberg 500, Gullberg 600.
Þriðjudagur: Skírnir 440, Þórs-
hamar 540, Helga II 300, Seley 270,
Hrafn 550, Svanur 500, Hákon 630,
Örn 550.