Morgunblaðið - 12.11.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
3
Unnið að viðKerð á vinnupöllunum i Ka-r.
Þriggja tonna þungi hvíldi á vinnupallinum:
Efsta gólfið lét
undan og féll niður
TVEIR mannanna fimm. sem slös-
uðust í fyrradaK er vinnupailur
hrundi við Kamla BúnaðarfélaKs-
húsið (Iðnó), eru enn á sjúkrahúsi,
en hvoruKur er þó talinn í lífs-
hættu. Hinir þrír fenKU að fara
heim að lokinni rannsókn ok
aðhlynninKU eftir slysið.
Þórir Oddsson hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins sagði í samtali við
Morgunblaðið síðdegis í gær, að
rannsókn væri enn ekki lokið á
orsökum slyssins, en svo virtist sem
of mikill þungi hefði verið á efsta
gólfi vinnupallanna. Hefði það slig-
ast undan þunganum og fallið niður
í gegnum neðri gólfin. Mennirnir
fimm voru allir staddir á efsta gólfi
pallanna þegar það lét undan. Þar
hafði einnig verið komið fyrir
tveimur búntum af bárujárni, og
ennfremur voru á pallinum leifar
brunavarnarveggs sem brotinn
hafði verið niður, og lágu múr- eða
steypubrot á vinnupallinum er
hann hrundi. Þórir sagði að búið
væri að vigta þann þunga sem hefði
verið á pallinum er hann lét undan,
og hefði það reynst vera um þrjú
tonn alls.
Um staðsetningu manna á pallin-
um, gerð hans eða hugsanlega
missmíði, kvað Þórir enn of
snemmt að kveða upp úr með, en
unnið væri að rannsókn málsins,
sem fyrr segir.
Geir Hallgrimsson um efnahagsstefnu stjórnarinnar:
Efnahags- og ráðherra-
nefndir hef ja störf, hætta
störfum og hefja störf á ný
- en einu efnahagsaðgerðirnar eru stöðug gengislækkun
„ÞAÐ EINA sem eftir
ríkisstjórnina liggur á
vettvangi efnahagsmála
er að hækka verðmæti
Bandaríkjadollars. í ís-
lenzkum krónum mælt,
um 40—50%. Þetta eru
hcnnar einu efnahaRs-
ráðstafanir,“ sagði Geir
IlallRrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, í
umræðu um gjaldmiðils-
hreytingu í Samcinuðu
þinjíi í gær.
„Efnahagsnefndir og
ráðherranefndir hefja
störf til stefnumótunar á
sviði efnahagsmála, hætta
störfum og hefji störf á ný
en ekkert gerist. Ráðleysið
Geir HaHgrímsson.
og dáðleysið er allsráðandi.
Vinstri stjórnin 1978—79
kleip 8 vísitölustig af verð-
bótum launa og enn var
höggvið í sama knérunn
með Ólafslögum í apríl
1979. En verðbólgan æðir
áfram hraðar en nokkru
sinni. Ég spyr því ráðherra:
Hvað verður gert, hvern
veg og hvenær til að koma
verðbólgu niður og tryggja
árangur af ráðgerðri mynt-
breytingu um áramót?"
Ólafur Jóhannesson, sem
gegnir embætti viðskipta-
ráðherra í fjarveru Tómas-
ar Árnasonar bað þing-
heim bíða svara unz Tómas
væri heimkominn. Svör
gætu væntanlega komið
frá fyrstu hendi nk. þriðju-
dag.
Sjá nánari frásögn
bls. 12.
hvílíkur munur
Ajax þvottaefni losar úr bletti og óhreinindi strax í forþvotti.
Það er sama hvort um er að ræða hvítan, mislitan eða mjög
viðkvæman þvott, sama hvaða hitastig er notað eða þvotta-
stilling. Með Ajax skilar árangurinn sér 1 tandurhreinum öfc
blettalausum þvotti. [
\j:iv la^íreyéandi
|noH:iiTni l>rii all;iii |»oll
Ajax
skilar tniHliirlimiiu