Morgunblaðið - 12.11.1980, Side 5
Fundur SVS
um atburð-
ina í Póllandi
SAMTÖK um vestræna samvinnu
Kangast í dag íyrir fundi um
alþjóðaverkalýðsmál, með sér-
stöku tilliti til atburðanna og
ástandsins i Póllandi.
Fundurinn hefst klukkan 17.30,
og er hann haldinn í Þingholti
Hótels Holts. Frummælandi verð-
ur Edwald J. McHale, sem er
aðalráðgjafi bandarísku upplýs-
inga- og menningarmálastofnun-
arinnar í verkalýðsmálum.
Allir áhugamenn um umræðu-
efnið eru velkomnir á fundinn.
Jólafundur
Samtaka
sykursjúkra
JÓLAFUNDUR Samtaka sykur-
sjúkra í Reykjavík verður haldinn
i Átthagasal Hótel Sögu i kvöld.
12. nóvember. og hefst kl. 20.30. Á
fundinum mun Þórir S. Guðbergs-
son segja frá kynnisför sinni til
Kaupmannahafnar og sýna lit-
skyggnur. Vísnavinir munu
skemmta með söng og hljóðfæra-
slætti. Þá mun Guðrún Iljaltadótt-
ir flytja erindi um fæðuval sykur-
sjúkra og svara fyrirspurnum en
siðan verða almennar umræður.
Á fundinum verða jólakort og
jólapappír til sölu eins og undan-
farin ár en þessi sala hefur verið
helzta fjáröflunarleið samtakanna
til þessa. Þeir sem ekki geta mætt á
fundinn, en vilja leggja lið við
söluna, eru beðnir að snúa sér til
gjaldkera samtakanna. Á fundinum
verða veitingar — hlaðborð með
smurðu brauði og pönnukökum.
Verð er kr. 3.100 á mann en hálft
gjald fyrir börn innan 12 ára
aldurs.
Ný hafskipa-
bryggja
á Hornafirði
Iiöfn í Hornafirði. 11. nóvrmtM’r 1980.
SKEIÐSFOSS er nú hér að lesta
saltsíld, en þetta er í fyrsta skipti
sem skip leggst að nýrri hafskipa-
bryggju, sem byggð var á síðasta
sumri. Með tilkomu bryggju þessar-
ar hefur skapast aðstaða til að hægt
verði að vinna samtímis að af-
greiðslu á þremur fragtskipum í
einu.
Skipstjórinn á Skeiðsfossi kvaðst
í samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins, vera mjög ánægður með
þessa nýju hafnaraðstöðu.
— Gunnar
Mikill fall-
þungi dilka
Stykkishólmi, 11. nóv. 1980
SLATRUN er nýlokið hjá Kaup-
félagi Stykkishólms. Slátrað var
um 4 þúsund f jár. sem er talsvert
minna en síðastliðið ár. Fall-
þungi dilka var hins vegar mjög
hár, eða 15,9 kg að meðaltali, sem
er um 2J> kg hærri en í fyrra.
Þyngsti dilkurinn kom frá
Bjarnarhöfn, í Helgafellssveit, 30
kg. Þessir bændur höfðu hæsta
meðalvigt dilka: Daníel Njálsson
Breiðabólsstað 17,03 kg, Magnús
Guðmundsson Gríshóli 16,72 kg og
Daníel Jónsson Dröngum 16,69 kg.
INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
5
Ríkisstjórnin:
Landsvirkjun hefur
fengið 90,7% hækkun
MORGUNBLAÐINU barst síð-
degis i gær svohljóðandi yfirlýs-
ing frá ríkisstjórninni:
„Fram hefur komið frá Lands-
virkjun gagnrýni á að fyrirtækið
hafi ekki fengið taxtahækkanir í
samræmi við óskir sínar.
Því skal tekið fram að með
þeirri hækkun um 9% sem heimil-
uð var um síðustu mánaðamót
hefur Landsvirkjun að öllu sam-
anlögðu fengið hækkun á heild-
söluverði sínu á raforku til al-
menningsrafveitna sem nemur
90,7% af verðinu sem í gildi var í
upphafi þessa árs.
Reykjavík. 11. nóv-
ember 1980.“
Birtu úr guðshúsinu slær á drungalegt hausthúmið. —
Myndina tók Svavar A. Jónsson at Hjarðarholtskirkju í
Dölum vestur fyrir skömmu.
Magnús L. Sveinsson um samúðarverkbanniö:
Erkki Rautio
Brahms, og Erkki Rautio leikur 6.
sólósónötu Bachs. Auk þess leika
þeir Divertimento eftir Matti
Rautio, bróður Erkki Rautio, sem
er einn af þekktustu tónskáldum
Finnlands í dag.
Miðar á tónleikana eru seldir í
kaffistofu Norræna hússins.
Sellótónleikar í
Norræna húsinu
FINNSKI sellóleikarinn Erkki
Rautio og sonur hans. píanóleik-
arinn Martti Rautio, halda tón-
leika í Norræna húsinu kl. 20.30 i
kvöld, 12. nóvember.
Erkki Rautio er fæddur 1922 í
Helsinki og hlaut sína fyrstu
menntun í sellóleik þar. Að loknu
námi við Síbelíusarakademíuna
hélt hann áfram námi hjá selló-
snillingum eins og Enrico
Mainardi og Pierre Fournier.
Hann kom fyrst fram opinberlega
1956. Erkki Rautio hefur farið
tónleikaferðir víða um lönd og
hvarvetna hlotið mikla viðurkenn-
ingu fyrir tónlistarflutning sinn.
Hann hefur einnig leikið inn á
hljómplötur. Sonur hans, Martti
Rautio, hefur stundað tónlistar-
nám í Helsinki og Moskvu.
Á tónleikunum í Norræna hús-
inu í kvöld leika feðgarnir m.a.
nokkur helztu sellóverk tónbók-
menntanna, s.s. Arpeggione-són-
ötu Schuberts og 2. sellósónötu
„Mun hafa alvar-
legar afleiöingar”
„l>AÐ er mjög alvarlegt, að
boðað skuli til samúðarverk-
banns gegn VR-fólki, þegar
félagið er nýbúið að undirrita
kjarasamning á breiðum
grundvelli,“ sagði Magnús L.
Sveinsson formaður Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur í
samtali við Morgunblaðið í
gær, er hann var spurður um
viðbrögð félagsins við samúð-
arverkbanni VSÍ gegn
VR-fólki í prentiðnaðarfyrir-
tækjum.
„Hefði ég átt von á þessu, er
augljóst, að ég hefði hikað við að
undirrita kjarasamninginn hinn
27. október síðastliðinn, því að það
gerði ég í góðri trú um að það
þýddi, að okkar fólki yrði ekki ýtt
út í verkbann nokkrum dögum
seinna," sagði Magnús og bætti
við: „Ef litið er til þess, þegar til
átaka hefur komið á vinnumark-
aðinum, hefur VR verið mjög
hliðhollt blöðunum og prentiðnaði
og gefið undanþágur til þess að
fyrirtækin gætu starfað áfram.
Þetta eru því kaldar kveðjur, sem
hljóta að hafa ófyrirsjáanlegar
afleiðingar síðar meir.“
Er Morgunblaðið ræddi við
Magnús L. Sveinsson hafði VR
ekki formlega borizt boðun sam-
úðarverkbannsins, en þegar hún
bærist, sagði Magnús, að stjórn
VR myndi taka hana fyrir.