Morgunblaðið - 12.11.1980, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
Þetta gerðist
1554 — Brezka þingið kemur aftur
á kaþólskri trú.
1003 — Landráðaréttarhöldin
gegn Sir Walter Raleigh hefjast í
Winchester, Englandi.
1812 — Her Napoleons Bonaparte
kemur til Smolensk á undanhald-
inu frá Moskvu.
1893 — Durand-samkomulagið um
landamæri Afghanistans og Ind-
lands undirritað.
1918 — Karl I keisari leggur niður
völd í Austurríki, sem lýsir yfir
sameiningu við Þýzkaland.
1921 — Ráðstefna um takmörkun
vígbúnaðar hefst í Washington.
1927 — Leon Trotsky rekinn úr
sovézka kommúnistaflokknum og
Jósef Stalin verður einvaldur.
1933 — Kosningasigur nazista í
Þýzkalandi.
1937 — Japanir taka Shanghai.
1941 — „Ark Royal“ sðkkt við
Gíbraltar — Rússar stöðva sókn
Þjóðverja í útjöðrum Moskvu.
1944 — Þýzka herskipinu „Tirpitz"
sökkt.
1948 — Hideki Tojo og aðrir
striðsleiðtogar Japana dæmdir til
dauða.
1956 — Janos Kadar meinar SÞ að
senda fulltrúa til Ungverjalands.
1976 — Fyrstu formlegu viðræður
Bandaríkjanna og Víetnams frá
Svíþjóð:
falli Saigon í París.
Afmæli. Gerhard von Scharnhost,
þýzkur hermaður — (1755—1813)
— Dr. Sun Yat Sen, kínverskur
stjórnmálaleiðtogi (1866—1926) —
Grace furstafrú af Monaco (1929
Andlát. 1035 Knútur II konungur
Danmerkur og Englands — 1202
Knútur VI Danakonungur — 1595
John Hawkins, sæfari — 1671
Thomas Fairfax, hermaður.
lnnlent. 1035 d. Knútr kgr ríki —
1906 Blaðamannaávarpið birt —
1929 d. Bogi Th. Melsteð - 1958
Brezk herskip hóta að sökkva
„Þór“ norður af Bjargtöngum —
1963 Ólafur Thors forsætisráð-
herra segir af sér — 1%4 d. Ólafur
Friðriksson — 1%7 Flatey á
Skjálfanda leggst í eyði — 1857 f.
Magnús Helgason skólastjóri —
1891 f. Elínborg Lárusdóttir —
1903 f. Bodil Begtrup.
Orð dagsins. Samgöngur hafa
batnað mikið á síðari árum, en
staðirnir til að heimsækja eru
nokkurn veginn þeir sómu — Don
Herold, bandariskur rithöfundur
(1889-1966).
Kratar leggja fram
sparnaðartillögur sínar
Frá GuAfinnu Raicnarsdóttur. fréttaritara
Mbl. i Stukkhólmi. 10. nóvember.
Jafnaðarmannaflokkurinn
sænski lagði á föstudag íram
sparnaðartillögu sem í flestum
atriðum eru frábrugðnar sparn-
aðartillögum þeim, sem ríkis-
stjórn Thorbjörns Fálldins lagði
fram fyrir skömmu. í tillögu
sinni gera jafnaðarmenn ráð
fyrir breyttu skattaálagi, hærri
sköttum á hálaunafólk með hærri
tekjur en 100 þúsund krónur
sænskar og lægri sköttum á
tekjur undir 100 þúsund krónum.
Jafnframt vilja þeir fella niður
vísitölubindingu á sköttum og
segja hana eingöngu skapa aukna
verðbólgu. Með sparnaðartillögu
sinni gera jafnaðarmenn ráð fyrir
7% verðbólgu á næsta ári og 7%
launahækkunum í komandi samn-
ingum. Með þvi ætti kaupmáttur
launþega með kaup allt að 100
þúsund krónur, að verða óskertur
eru jneðtaldar segja jafnaðar-
menn.
I tillögum ríkisstjórnarinnar er
gert ráð fyrir, að verðbólgan verði
7% en kaup hækki um 11%.
jafnaðarmenn vilja einnig auka
skattafrádrátt á sparifé og koma á
almennun sparnaðarfrádrætti,
þúsund krónum sænskum fyrir
einstakling og tvö þúsund krónum
fyrir hjón. Þeir gera einnig ráð
fyrir verðstöðvun á matvæli frá 1.
janúar 1981 sem gæti varað í hálft
til eitt ár og hækkun ellilífeyris
um 1%.
Olaf Palme, leiðtogi jafnaðar-
manna fór hörðum orðum um
tillögur ríkisstjórnarinnar, um aö
fella niður vísitölutryggingu eftir-
launa. „Við erum reiðubúnir að
berjast til þrautar um eftirlaun-
in“, sagði hann og bætti við:
„Fyrsta verk okkar þegar við
komust aftur í stjórn verður að
rifta ákvörðun núverandi stiórnar
eftirlaunafólki óskertan kaup-
mátt.“ Thorbjörn Fálldin, forsæt-
isráðherra hefur vísað á bug
gagnrýni jafnaðarmanna og segir
að stjórniniji sé vel kunnugt um
allar afleiðingar sparnaðaráætl-
ananna. Bæði fyrir eftirlaunafólk
og aðra. Hann gagnrýndi jafnað-
armenn um að krefjast þess, að
vísitölubinding falli niður af
sköttum um leið og þeir vilja hafa
hana áfram á eftirlaunum. Jafn-
aðarmenn gagnrýndu flest atriði í
sparnaðaráætlunum stjórnarinn-
ar og sögðu að alþjóða reynsla
hefði margsýnt, að samdráttarað-
gerðir væru til einskis nýtar þegar
leysa ætti efnahagsvandamál.
„Vissulega er þörf á að spara á
vissum sviðum," sagði Kjell Olof-
Feldt efnahagsráðunautur jafnað-
armanna. „Það þýðir ekki bara að
stara á rekstrarhalla ríkisins.
Fyrst og fremst verður að vinna ð
því, að skapa atvinnumöguleika
fyrir alla og ráða niðurlögum
verðbólgunnar."
. .. fyrir þá sem vilja
aðeins það besta.
J J O
r/tt f - - rr»
r? ^ iiíill fw...
Portið Akranesi — Eplið ísafirði — Álfhóll Siglufirði — Cesar Akureyri —
Hornabær Hornafirði — Eyjabær Vestmannaeyjum — M.M. h/f. Selfossi.
^[□a
jáfiSm. HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
LAUGAVEG 66 SÍMI25999
Sænski kommúnistaflokkurinn
lagði einnig fram sínar tillögur til
lausnar efnahagsvandanum á
föstudag. Þeir leggja til að útgjöld
til hermála verði minnkuð og
sömuleiðis styrkir til fyrirtækja.
Einnig vilja þeir stöðva hleðslu 11.
og 12. kjarnorkuveranna.
Blaðamenn
í Finnlandi
boða verkfall
Helsinki. 11. nóvember,
írá Ilarry Granborg fréttaritara Mbl.
BLAÐAMENN í Finnlandi hafa
boðað verkfall írá og með
fimmtudegi, morgundeginum.
Slitnað hefur upp úr viðræðum
þeirra við vinnuveitendur, og er
deila þeirra nú í löndum ríkis-
sáttasemjara, sem mun freista
þess að koma á málamiðlun.
Verkfallið nær ekki til frétta-
manna útvarps og sjónvarps.
Verkfall vélstjóra á skerja-
garðsferjunum hefur nú varað í
þrjár vikur og samúðarverkföll
hafa brotist út hjá öðrum opinber-
um fyrirtækjum. Til að mynda
ganga ekki ferjur milli Helsinki og
Travemunde í V-Þýzkalandi vegna
samúðarverkfalla. Verkfallið var
boðað er vinnuveitandinn hafnaði
kröfum vélstjóranna um sömu
iaunahækkanir og aðrir skipverj-
ar höfðu náð fram.
Súluborvélar
Staaröir 16, 20 og 25 mm.
0
ÞÓRp
•ARMÚLATI