Morgunblaðið - 12.11.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
15
Frá umræðum i iranska þinginu — Khalkali. klerkur, i ræðustól.
Jan Mayen:
Stuttur f undur
Rússa og Norðmanna
Frá Jan Erik Laure.
fréttaritara Mbl. í Osló. 11. nóvember
VIDRÆÐUNEFNDIR Noregs or
Sovétrikjanna komu i dag saman
til fyrsta fundar síns um Jan
Mayen-svapðið. Sá fundur stóð
ekki len«i — aðeins í 10 mínútur
ok eniíar áþrcifanlegar samn-
inKaviðræður þjóðanna fóru
fram. Aðeins formleK kynninK-
Sovéska viðræðunefndin verður
hér í Osió þar til á laugardag. „Við
vitum ekki enn hvað Sovétmenn
hafa hugsað sér að ræða um
varðandi Jan Mayen," sagði Jan
Evensen, formaður norsku samn-
inganefndarinnar í samtali við
Morgunblaðið. Norðmenn hafa áð-
ur sagt, að þeir muni ekki veita
Sovétmönnum nein forréttindi í
landhelgi Jan Mayen. Viðræðu-
nefndir landanna munu hittast
aftur á fimmtudag.
Nordsat:
Finnar og Svíar
tregir í taumi
Frá Ib Björnbak. fréttaritara Mbl. i
Kaupmannahöfn. 11. nóvember.
ÓVISSA ríkir enn hvort Svíar og
Finnar eru reiðubúnir til að taka
þátt i Nordsat-áætluninni en hins
vegar hefur þó ekkert hinna
norrænu landa sagt beinlinis nei
við áætluninni. Danska rikis-
Skálmöld
í Bulawayo
Bulawayo. Zimbabwe, 11. nóv. — AP.
HÓPAR skæruliða sem fylgja
Robert MuKabe forsætisráðherra
og Joshua Nkomo innanríkisráð-
herra að málum börðust sín á
Veöur
víða um heim
Akureyri 6 skýjaó
Amsterdam 10 skýjað
Aþena 18 skýjað
Berlín 1 snjókoma
BrUssel 10 skýjað
Chicago 6 heiöskirt
Feneyjar 16 alskýjaö
Frankfurt 5 skýjað
Færeyjar 4 skýjað
Genf 3 skýjaö
Helsinki -2 heiðskirt
Jerúsalem 23 heiðskírt
Jóhannesarborg 24 skýjaó
Kaupmannahöfn vantar
Las Palmas 22 alskýjað
Lissabon 18 rigning
London 8 rigning
Los Angeles 20 skýjað
Madrid 15 skýjað
Malaga 15 rigning
Mallorca 19 skýjað
Miamí 28 skýjað
Moskva -3 skýjaö
New York 10 skýjað
Osló 2 snjókoma
París 6 heiðskírt
Reykjavtk 8 súld
Ríó de Janeiro 36 skýjað
Rómaborg 12 heiöskírt
Stokkhólmur -2 heiðskírt
Tel Aviv 25 heiðskirt
Tókýó 18 heiðskírt
Vancouver 0 heiöskirt
Vínarborg 3 heiöskírt
milli i útjarðri Bulawayo í gær ok
í fyrradaK- Fréttir í dag herma
að um 43 manns hafi látist og
a.m.k. þrjú hundruð manna særst
i hardogunum. Að soKn foringja i
her Zimbabwe linnti bardöKun-
um siðari hluta dagsins i gær
eftir að Nkomo ok MuKabe höfðu
gefið út skipanir.
Bardagarnir brutust út er menn
Nkomos reyndu að hleypa upp
fundi stuðningsmanna Mugabes á
svæði stuðningsmanna Nkomos.
Börðust skæruliðarnir með vél-
byssum, stórskotaliðsbyssum og
eldflaugum. Eru þetta verstu
óeirðirnar sem brotist hafa út í
Zimbabwe milli stuðningsmanna
Nokomos og Mugabes síðan landið
fékk sjálfstæði í apríl sl. Hundruð
manna flúðu frá svæðunum kring-
um Bulawayo og lögreglan um-
kringdi bardagasvæðin til þess að
koma í veg fyrir að fleiri bættust í
hóp hinna stíðandi afla.
Um 3.000 menn úr skæruliða-
herjum Mugabes og Nokomo hafa
verið í búðum í Bulawayo undan-
farið. Skæruliðahóparnir tveir
börðust saman í borgarastyrjöld-
inni sem endaði með sjálfstæði
Zimbabwe. Síðan hefur verið kalt
milli þessara hópa og hefur áður
komið til bardaga.
Christopher ræddi
við Beneyahia
stjórnin ræddi í daK um Nordsat-
áætlunina <>k eftir fundinn sagði
Lise ÖsterKaard. menntamála-
ráðherra Dana. að danska ríkis-
stjórnin ynni að því að fá
Nordsat-áætlunina í gegn.
Danir hafa lýst áhuga á því, að
jafnframt Nordsat-gervitungli fái
þeir að koma upp rás í danska
sjónvarpinu, þegar efnahagslegar
ástæður gefa tilefni til. Hins
vegar er ljóst, að nokkur ár munu
iíða áður en Danir fá rás tvö.
Norðmenn eru fylgjandi Nord-
satáætluninni og eru staðráðnir í,
að náist ekki samstaða um sam-
norrænan gervihnött þá muni þeir
sjálfir koma eigin gervitungli á
braut umhverfis jörðu til að sjón-
varpa efni.
Það er vitað að Islendingar hafa
áhuga á, að koma á samnorrænu
sjónvarpi og þannig rjúfa einangr-
un sína.
Hins vegar er áhugi Svía og
Finna ekki jafn ljós. Hin Norður-
löndin hafa sýnt Tele-X áætlun-
inni sænsku heldur lítinn áhuga.
Sænska stjórnin hefur þegar varið
140 'milljónum danskra króna í
áætlunina, sem í raun er mjög
svipuð áætlun og Nordsat. Tele-X
er ákaflega þýðingarmikil séð frá
sjónarhorni Finna og Svía því það
fjármagn sem rennur til hennar,
kæmi iðnaði í þessum löndum
ákaflega vel. Hins vegar hefur
Lise Östergaard sagt, að ekki komi
til greina að velja Tele-X umfram
Nordsat. Hvorki ríkisstjórn Finn-
lands né Svíþjóðar hafa beinlínis
hafnað Nordsat-áætluninni. Víst
er, að málið verður rætt þegar
menntamálaráðherrar norrænu
landanna koma saman þann 21.
nóvember og eins þegar forsætis-
ráðherrar landanna koma saman í
Kaupmannahöfn þann 26. nóvem-
ber.
AlKeirsborK. 11. nóvember. — AP
WARREN Christopher. aðstoðar-
utanrikisráðherra Bandaríkj-
anna sna'ddi í dag með Mohamed
Benyahia. utanríkisráðherra Al-
sír og sögðu heimildir. að Christ-
opher hafi skýrt afstöðu bandar-
ískra stjórnvalda til krafna ír-
ana um framsal Banda-
ríkjamannanna 52 sem nú eru i
haldi í íran. Heimildir frá Al-
geirsborg segja, að alsírsk stjórn-
völd muni koma skilahoðum
áleiðis til íran. Því var alfarið
hafnað af alsirskum embattis-
mönnum, að irönsk sendinefnd
væri á leiðinni til Algeirsborgar.
Christopher skýrði Benyahia
frá örðugleikum stjórnvalda í
Bandaríkjunum til að verða við
kröfum íranskra stjórnvalda. Það
eru einkum tvö atriði sem nefnd
hafa verið — örðugleikar banda-
rískra stjórnvalda til að láta af
hendi eigur Reza Pahlavi, fyrrum
keisara til íran og að stjórnvöld
geta ekki haft áhrif á mál, sem nú
eru fyrir bandarískum dómstól-
um.
Ekki hefur verið gefið uppi
hvenær bandariska sendinefndin
heldur áleiðis til Bandaríkjanna.
Þá eru engin teikn á lofti um
beinar samningaviðræður Banda-
ríkjanna og íran. Talsmaður ír-
anska þingsins sagði í dag, að
engin svör hefðu borist frá Banda-
ríkjunum, eða Alsír við kröfum
við framsali gíslanna.
ERLENT
Evrópumeistari
í pípureykingum
Amsterdam. 10. nóvember. — AP.
YFIR 300 meðlimir virðulegs
félagsskapar frá 13 þjóðlöndum
komu i gær saman til fundar i
Amsterdam. Þeir voru ekki að
ræða um Efnahagsbandalagið
eða efnahagsmál. Fundarsalur
þeirra var mettaður reyk —
allir reyktu þeir pipu og i lokin
útnefndu þeir sigurvegara —
Evrópumeistarann i pipureyk-
ingum fyrir árið 1980.
Titillinn féll í skaut Christian
Dellavia, frá Sviss. Hann gat
látið 3 grömm af tóbaki endast í
samfellt 2 klukkustundir og 26
mínútur.
Þó Dellavia hafi verið út-
nefndur Evrópumeistari var það
þó ekki hann sem lengst tókst að
halda glóð í pípu sinni. Það tókst
Japana nokkrum — eða 5 mínút-
um lengur. Hann hins vegar var
ekki gjaldgengur í keppninni um
Evróputitilinn.
KIENZLE
Úr og klukkur
hjá fagmanninum.
WIKA
Allar stæröir og geröir.
<& (3(q)
Vesturgotu 16.simi 13280
Lestunar- áætlun
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næst-
unni sem hér segir:
ANTWERPEN:
Arnarfell 20/11
Amarfell 4/12
Arnarfell 18/12
ROTTERDAM:
Arnarfell 6/11
Arnarfell 19/11
Arnarfell 3/12
Arnarfell 17/12
GOOLE:
Arnarfell 17/11
Arnarfell 1/12
Arnarfell 15/12
LARVÍK:
Hvassafell 10/11
Hvassafell 24/11
Hvassafell 8/12
Hvassafell 22/12
GAUTABORG:
Hvassafell 11/11
Hvassafell 25/11
Hvassafell 9/12
Hvassafell .23/12
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell 12/11
Hvassafell 26/11
Hvassafell 10/12
Hvassafell 24/12
SVENDBORG:
Hvassafell 13/11
Mælifell 17/11
Dísarfell 25/11
Hvassafell 27/11
Hvassafell 11/12
HELSINKI:
Helgafell 28/11
Dísarfell 23/12
GLOUCESTER MASS:
Jökulfell 19/11
Skaftafell 6/12
HALIFAX KANADA:
Skaftafell 7/11
Jökulfell 21/11
Skaftafell 8/12
1SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101