Morgunblaðið - 12.11.1980, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
HÖGNI HREKKVÍ SI
v/(Ð fMfcóTANN'-.1'
Ast er...
... að hlæja allt-
af að gömlu
bröndurunum
hans.
TM Reg. U.S. Pat. Otf. — all rlghts reserved
* 1979 Los Angetea Times Syndicate
Með
morgunkaffinu
COSPER
i hofum fengið skipun um að spara eins ok frekast er unnt i
h'ikbúninjfakostnaði!
Þróunarkenningin:
Ævarandi eign
mannkynsins
Kristján Jóhannesson. Hafnar-
firði, skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Fyrir nokkru birtist í Velvak-
anda grein eftir tvo unga menn,
Finn Lárusson og Harald Ólafs-
son, þar sem þeir gera athuga-
semd við greinarstúf konu frá
Akureyri, Sóleyjar Jónsdóttur.
Finnst mér grein þessara ungu
manna sérlega vel skrifuð og
skemmtileg og um leið óvanalegt
að heyra álit svona ungra manna á
þessum fræ^um. Eins og ég sagði,
er það ekki oft, að ungir menn láti
sig svona efni skipta og er slíkur
áhugi og athafnasemi mjög gleði-
rík og mættum við fá meira af svo
góðu.
„Með Darwin var grafin
sköpunarsajja Biblíunnar“
En Adam var ekki lengi í
Paradis, og það leið ekki á löngu
þar til birtist grein í Velvakanda
eftir lækni frá Akureyri, Reyni
Valdimarsson, og ræðst hann með
offorsi á þessa ungu menn. Hann
finnur þeim allt til foráttu, þeir
eru ungir „fulltrúar íslenskrar
skólaæsku" þeir „gaspri í ungæð-
ishætti", heilabú þeirra séu lítil,
þeir séu „fjandmenn Skaparans"
o.s.frv.
Ég veit að þessum ungu mönn-
um verður ekki svarafátt en mig
langar til að stappa í þá stálinu og
t.d. langar mig til að minna þá á
hvað einn af okkar bestu læknum
Kristján Jóhannesson.
og vísindamönnum, þekktur um
aliar jarðir fyrir vísindastörf sín,
sagði einmitt um þessi efni:
„Með Darwin var grafin sköpun-
arsaga Biblíunnar."
Frjómáttur ei-
lífrar æsku
Einn af frægustu vísinda-
mönnum Breta lét einu sinni svo
Dásamlegt að geta
séð yfir Sundin
Paul V. Michelsen skrifar:
„Mig langar til að þakka Ævari
R. Kvaran fyrir hans greinagóðu
ábendingu um byggingu SÍS sem
fyrirhugað er að reist verði við
Sundin. Ég er sjálfur búinn að búa
í Hveragerði í 48 ár og þar er ekki
mikið útsýni, en nú er ég búsettur
efst í Breiðholtinu og get ekki lýst
því hve dásamlegt það er að geta
séð yfir sundin og fylgst með
litbrigðum fjallanna hér í kring-
um mig. Það er eins og opnast hafi
nýr heimur fyrir mér og ég get
setið tímunum saman við glugg-
ana, bæði í suður og horft í átt-til
Bláfjalla og þar í kring, og svo í
norðurglugga og horft á alla
dýrðina á sundunum og í kring,
Esjuna, Skarðsheiðina og alla leið
til Akraness. Gaman er líka að sjá
öll skipin sigla inn og út sundin og
fylgjast með því sem þar er að
gerast.
Ilvað mundu afkom-
endur okkar segja?
Ég skil mæta vel að íbúar á
þessu svæði séu óhressir við þá
tilhugsun að fá slíkt stórhýsi
þarna. Þetta er mál allra borgar-
búa og vona ég að aldrei komi til
að þessi bygging eða aðrar ámóta
verði byggðar á svona stöðum. Ég
tek undir það með Ævari að
óvanaleg fegurð er yfir bæjar-
stæði Reykjavíkur og við megum
ekki eyðileggja hana. Við eigum
þarna og víðar á okkar fagra landi
svo yfirþyrmandi fegurð og við
megum ekki skemma það sem Guð
hefur skapað. Hvað mundu afkom-
endur okkar segja við slíkum
óhæfuverkum?
Ég vona að borgarstjórn sjái að
sér og hugsi sitt mál betur. Bestu
kveðjur til allra er hugsa um
fegurð lands okkar."
Athugasemd Velvakanda
Frá því að Paul skrifaði bréfið
hefur það gerst að fallið hefur
verið frá byggingu umrædds stór-
hýsis. Bréfritari getur því glaðst
með öðrum unnendum fagurs út-
sýnis yfir farsælum lyktum í
þessu máli.
Svar við fyrir-
spurn Kristins
Magnússonar
um Sálmabókina
Sigurbjörn Einarsson skrifar:
„Sú sálmabók íslensku kirkj-
unnar, sem nú er í notkun, var
gefin út 1972. Hún hefur verið
endurprentuð síðan eftir þörfum
og verður svo áfram þangað til
lögmæltir aðilar taka hana til
endurskoðunar. Viðbætir við
Sálmasöngbók kom út 1976. Nýja
sálma má senda til Biskupsstofu.
Þeir verða þá geymdir með gögn-
um Sálmabókar til athugunar á
sínum tíma. Ný sálmalög má
einnig senda þangað eða til söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar,
Freyjugötu 24, Reykjavík. Ný lög
má alltaf kynna og er það æski-
legt. Þau geta komist í nýja útgáfu
Sálmasöngbókar, ef þau þykja til
þess fallin".
2$NiripiiwM&foíiib
fyrir 50 árum
Bæjarstjórnarfundur í gær-
kvöidi var langur, og bar þar
ýmislegt á góma. Var mikið
talað um almenningsbifreið-
ir, og rannsókn á því. hvort
eigi væri tiltækilegt. að koma
hér á föstum biiferðum fyrir
almenning. ba'ði um bainn og
eins til úthverfanna. einkum í
Sogamýrarhverfið. Var að
lokum samþykkt tillaga frá
Einari Arnórssyni að fela
veganefnd að rannsaka málið
ýtarlega, og hafa lokið þeim
rannsóknum áður en gengið
yrði frá fjárhagsáatlun bæj-
arins fyrir næsta ár.
- O
„Byltingarafmæli. 1 dag eru
13 ár liðin síðan Bólsjevikka-
byltingin í Rússlandi brautst
út. — Minnast kommúnistar
hér i bænum afmælis þessa
með kvöldskemtun í Iðnó.
Kensla fellur niður i Menta-
skólanum. Ma-lt er. að ríkis-
stjórnin hafi komið því svo
fyrir, að frí verði einnig í
(iðrum ríkisskólum . . .“