Morgunblaðið - 12.11.1980, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980
31
Shilton fyrir rétt
Gamla kcmpan Jimmy Green-
hoíf. hefur nú Kengið til liðs við
3. deildar lið Blackpool. þar sem
Alan Kamli Ball er við stjórnvöl-
inn. Greenhoff á að baki litríkan
feril með Birminiíham. Leeds.
Stoke. o>? síðast Manchester Utd.
Ilann var einn af þessum leik-
mönnum sem hatnaði með aldrin-
um. en það er frekar óvenjuleBt
þe«ar framherjar eiga í hlut.
Greenhoff hefur átt við þrálát
meiðsl að stríða síðustu misserin
Fram sigraði
meistara
Laugdæla
FRAM kom heldur betur á óvart
í 1. dcild íslandsmótsins i hlaki.
er liðið vann tfóðan sijíur á
íslandsmeisturum síðasta keppn-
istímabils. UMFL. Sigraði Fram
3—0 ok urðu lokatölur hverrar
hrinu 15—9, 15—10 or 15—8.
Fram er nýliði í 1. deild og
árangur þessi því athyglisverður.
Þá sigraði Þróttur ÍS 3—0,
15—1, 15—4 og 15—10. Hafði
Þróttur algera yfirburði og virðist
liðið sterkt um þessar mundir.
Þá má geta þess, að ÍS sigraði
Þrótt 3—2 í 1. deild kvenna og ÍBV
sigraði Samhygð 3—0 í 2. deild
karla.
Biak
og fyrir ári leit út fyrir að hann
yrði að leggja skóna á hilluna
þeirra vegna. En hann náði sér á
strik og lýkur væntanlega ferli
sínum í Blackpool.
Aston Villa hefur gengið allt í
haginn það sem af er þessu
keppnistímabili. Liðið er nú efst í
1. deild og hafa forráðamenn
félagsins greitt leikmönnum háar
aukafjárhæðir fyrir hvern sigur
sem unnist hefur. Þetta er stór
biti, þegar liðið vinnur flesta leiki
sína, en til þess að standa straum
af kostnaðinum, hefur félagið sett
alla varaliðsmenn félagsins á
sölulista!
Brian Clough þykist alltaf vera
að styrkja lið sitt Nottingham
Forest og hann skiptir oft um
leikmenn eins og meðalmenn
skipta um sokka. Nú hefur hann
allan hug á að kaupa þá Steve
Daley frá Manchester City og
Steve Williams frá Southampton.
En til þess að afla aura til
innkaupanna, þarf hann að selja
2—3 leikmenn. Ekki er ljóst hverj-
ir það verða, en ef menn þekkja
Clough rétt, á það eftir að koma á
óvart hverjir fara.
Clough komst auk þess heldur
betur í fréttirnar fyrir skömmu.
Þá lýsti hann því yfir í biaðavið-
tali, að hann væri að hugsa um að
hætta afskiptum af knattspyrnu
og leggja stjórnmál fyrir sig.
Sagði Clough að það hefði verið
orðað við sig að gefa kost á sér
sem þingmaður fyrir Verka-
mannaflokkinn í næstu kosning-
um og væri hann alvarlega að
íhuga málið.
Peter Shilton, hinn 30 ára gamli
landsliðsmarkvörður Englands,
verður dreginn fyrir rétt í vikunni.
Ákæran er ölvun við akstur og
ógætilegur akstur. Það var blásið
út í ensku æsifréttablöðunum
fyrir skömmu, er Shilton ók á
staur, á flótta undan eiginmanni
viðhaldsins. Með viðhaldið í fram-
sætinu hjá sér.
Keegan og Brooking
í landslið Englands
KEVIN Keegan og Trevor Brook-
ing taka stöður sínar i enska
landsliðinu í knattspvrnu á nýj-
an leik. eftir nokkuð hlé vegna
meiðsla. „Það er ánægjulcgt að fá
nokkra reynda karla í hópinn á
ný. vonandi er þess ekki langt að
bíða að þeir Ray Wilkins og
Trevor Francis nái sér af meiðsl-
um sínum og komi inn í landslið-
ið á ný,“ var haft eftir Ron
Greenw»H)d. landsliðseinvaldi
Englands. er hann tilkynnti hóp-
inn fyrir komandi landsleik við
Sviss. Ilópinn skipa þessir:
Ray Clemence Liverpool, Peter
Shilton Forest, Joe Corrigan Man.
City, Viv Anderson Forest, Phil
Neal og Phil Thompson Liverpool,
Dave Watson Southampton, Ken
Sansom Arsenal, Mick Mills og
Terry Butcher Ipswich, Bryan
Robson WBA, Glenn Hoddle Tott-
enham, Terry McDermott Liv-
erpool, Trevor Brooking West
Ham, Graham Rix Arsenal, Steve
Coppell Man. Utd, Tony Woodcock
Köln, Garry Birtles Man. Utd,
Kevin Keegan Southampton,
Laurie Cunningham Real Madrid,
Eric Gates og Paul Mariner Ips-
wich.
Leikur Englands og Sviss fer
fram á Wembley þann nítjánda
þessa mánaðar og er leikurinn
liður í undankeppni HM. Er leik-
urinn geysilega mikilvægur fyrir
Englendinga, sem töpuðu síðasta
leik sínum í riðlinum og mega alls
ekki við öðru slíku áfalli.
Harald Sehumacher 26 ára
gamall landsllðsmarkvörður
Vestur-Þýskalands hefur
gert nýjan 5 ára samning
við FC Köln. Samningurinn
tryggir Ilarald í kringum 25
milljónir króna í árslaun.
Kurt Welzl austurríski
landsliðsmaðurinn sem leik-
ur með AZ ’67 i Iloliandi er
nú markaha-stur i 1. deild-
inni þar með 14 mörk eftir
10 umferðir. Á siðasta
keppnistimabili skoraði
Welzi 13 mörk.
• Það er óvfst hvort Joachim Deckarm. handknattleiksmaður-
inn þýski, sem varð fyrir slysi i leik i Ungverjalandi 30. mars
1979 geti verið viðstaddur þegar heimsliðið og lið hans
Gummersbach leika ágoðaleik í Dortmund 23. nóv. næstkom-
andi. Allur ágóði af leiknum rennur til Deckarm sem liggur
lamaður á endurhaTingarstofnun. Enginn Norðurlandaleik-
maður var valinn í heimsliðið. en Daninn Anders Dahl Nielsen
verður varamaður. Með Deckarm á myndinni er formaður
Gummersbach.
AMERISKUR
'ATNAÐUR
ÚTSÖLU-
STAÐIR:
Háskólabolir (sweat- shirts),T-skyrtur, trimmgallar ofl.,ofl.
Verslunin Hamraborg, Kópavogi.
Verslunin Eik, Hafnarfirði.
Kaupfélag Suðumesja, Keflavík.
Verslunin Traffic, Keflavík.
Verslunin Aldan, Sandgerði.
Verslunin Mídas, Hveragerði.
Kaupfélag Ámesinga, Selfossi.
Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli.
Versl. Steina og Stjána, Vestmannaeyjum.
Kaupfélag Skaftfellinga, Vík í Mýrdal.
Versl. Friðriks Friðrikssonar, Þykkvabæ.
Kaupfél. A-Skaftfellinga, Höfn Homafirði.
Kaupfél. Stöðfirðinga, Stöðvarfirði.
Kaupfél. Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði.
Verslun Gunnars Hjaltasonar, Reyðarfirði.
Verslun Elíasar Guðnasonar, Eskifirði.
Kaupfél. Fram, Neskaupstað.
Kaupfél. Héraðsbúa, Egilsstöðum.
Kaupfél, Vopnfirðinga, Vopnafirði.
Kaupfél. Þingeyinga, Húsavík.
K.E.A., Akureyri.
Verslun G. Fanndal, Siglufirði.
Verslunin Sparta, Sauðárkróki.
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi.
Versl. Sigurðar Pálssonar, Hvammstanga.
Versl. Einars Guðfmnssonar, Bolungarvík.
Verslun Einars og Kristjáns, ísafirði.
Verslunin Ljónið, Isafirði.
Verslun Ara Jónssonar, Patreksfirði.
Verslunin Gmnd, Grundarfirði.
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgamesi.
Verslunin Bjarg, Akranesi.
Verslunin Osk, Akranesi.
Sportversl. Sparta, Ingólfsstræti.
Verslunin Útilíf, Glæsibæ.
Vinnufatabúðin, Hverfisgötu.
Vinnufatabúðin, Laugavegi.
Adam, Laugavegi.
Herrahúsið, Bankastræti.
Herrahúsið, Aðalstræti.