Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
258. tbl. 68. árg.
MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980
Prontsmiðja Morsunhlaðsins.
La'tfdarbóla hvíttafli allt hoíuóhnrkarsvatfið i gærdatt og
mikil hálka skapaði vanda í umfcrðinni. Bifrciðir scm ckki
voru þcim mun hctur úthúnar lctu illa að stjórn. Myndina tók
Emilía Björtx af cinum hílnum scm þurfti að fá aukaorku þótt
hjólin sncrust á fullri fcrð.
Öryggismálaráðstefnan í Madrid:
Yígbúnaður Rússa á sér
ekki sinn líka í sögunni
- honum verður svarað á viðeigandi hátt,
sagði fulltrúi Bandaríkjanna
Madrid. 18. nóv. AP.
MAX Kampelmann. fulltrúi í
bandarisku sendinefndinni á ör-
yKKÍsmálaráðstefnunni i Madrid,
sagði í Kær, að „vÍKbúnaður
Suvétríkjanna ætti sér engan líka
i söKunni*4, og að Bandaríkja-
menn væru staðráðnir i að efla
Gífurlegar
silfurnám-
ur finnast
í Svíþjóð
Stokkhólmi. 18.nóv. AP.
SÆNSKA námafyrirtækið Boli-
den tilkynnti i dag, að fundist
hefðu silfurnámur, þa>r mestu
sem um gæti í Vestur-Evrópu.
Talsmaður fyrirtækisins sagði,
að námurnar væru við Dammsjö
á Grapenberg-sva>ðinu skammt
frá lledemora í Dölunum og að
þar væru a.m.k. fimm milljónir
rúmlesta af silfurgrýti. sem tæki
um 25 ár að vinna.
Óunnið er silfrið metið á 364
milljarða ísl. kr. en talsmaður
fyrirtækisins, John Dahlfors,
sagði að sú tala væri ofætluð
vegna mikils framleiðsluk. 'tnað-
ar. Ur einni auðugustu silfui námu
í Svíþjóð, Sala-námunni, voru
unnin 500 tonn frá því á 14. öld og
fram á þá 20., en talið er að úr
Dammsjö-námunni megi vinna
1000 tonn. Þar er silfurinnihaldið
200 gr í tonni en 120—130 þar sem
best gerðist áður.
hermátt sinn enda væri það besta
tryggingin fyrir heimsfriði.
Kampeimann sagði að Banda-
ríkjamenn væru þó reiðubúnir að
taka þátt i „eðlilegum og sann-
gjörnum“ viðræðum um eftirlit
með vopnaframleiðslu.
í ræðu sinni, sem er sú harðorð-
asta sem enn hefur verið flutt á
öryggismálaráðstefnunni, sagði
Kampelmann, að vestræn ríki og
Sovétríkin „færðust óðfluga nær
beinum hernaðarátökum", og væri
um að kenna útþenslustefnu Sov-
étríkjanna. Hann sagðist tala
fyrir munn stjórnar Carters og
væntanlegrar stjórnar Ronald
Reagans.
Sovétmenn svöruðu í dag ræðu
Kampelmanns og neituðu því ein-
dregið að hernaðarleg ógnun staf-
aði af Sovétríkjunum. Fulltrúi
þeirra, Leonid Ilyichev, sagði að
Afganistanmálið mætti leysa ef
önnur ríki hættu að hlutast til um
það.
Griffin Bell, formaður banda-
rísku sendinefndarinnar á örygg-
ismálaráðstefnunni, sagði í dag í
viðtali, sem haft var við hann í
fundarhléi, að ef Ronald Reagan
ætlaði sér að eiga samskipti við
Sovétmenn þó að þeir neituðu að
ræða Afganistanmálið, færi hon-
um líkt og bandamönnum fyrir
síðasta stríð. „Það yrðu mistök,
sem jöfnuðust á við Múnchenar-
för Chamberlains," sagði hann og
bætti við: „Það hófst ailt í einu
landi."
„Fjórmenninga-
klikan**:
Réttarhöld-
unum sjón-
varpað um
gervihnött
Peking. 18. nóv. — AP.
í DAGBLAÐI alþýðunnar
sagði í daK. að fyrirhujíað
væri að sjónvarpa frá rétt-
arhöldunum yfir „fjór-
mcnnintfaklíkunni" í
KOgnum Kcrvihnött. Ekki
var nánar jjrcint frá því
hvenær þau hæfust cn tal-
ið er að mjöK sc farið að
styttast í þau.
Embættismenn utanríkisráðu-
neytisins í Peking sögðu í dag, að
stuðningsmenn „fjórmenninga-
klíkunnar" í Shanghai hefðu vopn-
að 35.000 manns og lagt á ráðin
um uppreisn eftir að fjórmenn-
ingarnir voru handteknir árið
1976. I ákæruskjali, þar sem
greint er frá ávirðingum fjór-
menninganna og „klíku Lin
Piaos", segir að áhangendur
þeirra hafi ætlað að ná á sitt vald
helstu stjórnstöðvum í Shanghai,
stærstu borg í Kína, og hvetja
síðan til verkfalla og óeirða um
gervallt landið. Það vekur athygli,
að ekkju Maó heitins er ekki gefið
að sök að hafa tekið þátt í þessari
uppreisnartilraun en nöfn hinna
þriggja eru nefnd.
Þó að fyrirhugað sé að sjón-
varpa frá hluta réttarhaldanna
verða þau lokuð erlendum frétta-
mönnum en hins vegar verða
viðstaddir um 800 fulltrúar frá
ýmsum héruðum og samtökum í
Kína.
Skrípamyndir af fjórmenningunum voru hafðar mjög i frammi eftir
handtöku þeirra.
Rússar fara ránshendi
um auðlindir Afgana
— og jafnvel safngripir fara sömu leið
Islamabad. 18. nóv. AP.
RÚSSNESKA innrásarliðið í
Afganistan hefur flutt til Rúss-
lands úraníummálm og gim-
steina. sem meta má til margra
milljóna dollara. án þess að
greiða fyrir það gra-nan eyri.
Þessar upplýsingar eru hafðar
eftir afgönskum emhættis-
manni. sem nýlega flúði landið.
„Það er greinilega stefna
Rússa að láta greipar sópa um
afgönsk náttúruauðæfi, gim-
steina og jafnvel safngripi,"
sagði Abdul Latif Aurah, fyrrv.
ráðuneytisstjóri í afganska
námamálaráðuneytinu. I viðtali,
sem haft var við hann, sagði
hann, að jarðgasi væri dælt eftir
leiðslum til Sovétríkjanna en
afganskir embættismenn vissu
þó ekki hve mikið það væri „því
að mælirinn er handan rússn-
esku landamæranna".
Aurah, sem um 18 ára skeið
starfaði fyrir afgönsk stjórn-
völd, kom til Pakistan seint í
október en vildi ekki ræða við
fréttamenn fyrr en kona hans og
fjölskylda hefðu náð þangað
líka. I viðtalinu sagði hann, að
hæðardrag í Kandahar í suð-
austur Afganistan, sem ríkt
hefði verið af úraníummálmi,
hefði verið jafnað við jörðu og
flutt til Sovétríkjanna. Einnig
sagðist hann hafa orðið vitni að
því þegar mikill uppgröftur, sem
innihélt lapis lazuli, dimmbláan
gimstein, var fluttur úr geymsl-
um stjórnvalda til Rússlands.
Aurah sagði, að allt starf
Rússanna, sem kölluðu sjálfa sig
„ráðgjafa“, miðaði að því einu að
auðvelda þeim aðgang að afg-
önskum náttúruauðlindum. „í
tuttugu ár hafa þeir verið við
„vísindarannsóknir" í landinu og
þeir vita nákvæmlega hvar þeir
eiga að bera niður," sagði Abdul
Latif Aurah.