Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 17 Þessi mynd var tekin af TF Rán nýverið, er starfsmenn Landhelgisgæslunnar voru við björgunaræfingar. Giftusamleg björg- unaraðferð á TF Rán „Þyrlan reyndist betur en nokkur hafði þorað að vona,“ sagði Sigurður Árnason sem var skipherra í ferðinni HIN NÝJA bYRLA Landhelgisgæzlunnar, TF Rán, fékk sannkallaða eldskirn í gær. Þyrlan sótti mjög veikan mann að Hornhjargsvita í Látravík á Ströndum. þrátt fyrir að veður væri mjög slæmt og skyggni lélegt. Þyrlan flutti manninn, sem starfað hefur i afleysingum sem vitavörður að Ilorni um tíma, til ísafjarðar þar sem hann dvelur nú á sjúkrahúsi staðarins. Maðurinn varð mjög veikur árla dags í gær og var fljótlega beðið um aðstoð. Vegna veðurs komst þyrlan ekki í loftið í Reykjavík fyrr en kl. 2 síðdegis, en mikill viðbúnaður var viðhafður, þar sem ekki þótti öruggt að þyrlan kæm- ist í Látravík vegna veðurs. Varðskipið Ægir hélt áleiðis til Isafjarðar þar sem menn úr slysa- varnafélaginu Skutli höfðu undir- búið að fara með lækni, snjósleða og þotur til hjálpar. Ekki var talið mögulegt að ná manninum sjóleið- ina við Látravík og því reiknað með að sigla þyrfti í Hornvík og sækja manninn landleiðina þaðan, en það er um tveggja tíma ganga yfir erfiða vegleysu. Ef þurft hefði að sækja manninn á þennan hátt hefði mjög líklega tekið um tólf Hildudalur, 18. okt. LEIKFÉLAGIÐ Baldur frumsýndi Skugga Svein á laugardaginn fyrir fullu húsi og við mjög góðar undirtektir leikhúsgesta. Leik- stjóri var Kristján Jónsson. Undir- leik annaðist Sigurjón Daníelsson. Sýningin var endurtekin á sunnu- dag, sömuleiðis fyrir fuilu húsi og klukkustundir að koma honum til byggða. Þá var björgunarlið varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli einnig í viðbragðsstöðu. Þyrlan fór frá Reykjavík kl. 14, eins og fyrr segir, og lagði leið sína yfir Dragháls, Borgarfjörð, Hrútafjörð og fór síðan með ströndum við Hornstrandir. Veður var norðaustan 30—35 hnútar og skyggni mjög lélegt. Þyrlan lenti að Horni um kl. 15.30 og stóð þar við í um 10 mínútur en hélt síðan með sjúklinginn til Isafjarðar og lenti þar kl. 15.59. Segja má, að þetta hafi verið fyrsta prófraun nýju þyrlunnar, og luku áhafnarmeðlimir lofsorði á flughæfni hennar. Þyrlan var á ísafirði í nótt og fyrirhugað var að við mjög góðar undirtektir. Fyrir- hugað er að ferðast með sýninguna tii nærliggjandi staða. Togarinn Sölvi Bjarnason landaði í gær 140—150 lestum eftir tæplega viku útiveru. Aflinn var mestmegn- is þorskur og grálúða, u.þ.b. 30 tonn. Páll hún kæmi til Reykjavíkur á ný nú í morgun, ef veður leyfir. Fréttaritari Mbl. á ísafirði, Úlf- ar Ágústsson, ræddi við Sigurð Árnason skipherra a lsafirði síð- df gis í gær, er hann var nýkominn úr hinu frækilega björgunarflugi. Sigurður sagði, að þeir hefðu flogið yfir landið og komið yfir í Hrútafjörð, flogið síðan meðfram landinu að Horni. Veður hafi verið norðaustan 30—35 hnútar og skyggni allt niður í núll, en mest einn til tveir kílómetrar. „Ferðin gekk vel út að Horni, en þegar við áttum eftir 2—3 sjómílur þá var skyggnið aðeins 50—100 metrar, en við hittum á bjartara við Horn og gátum lent þar, stoppuðum í 10 mínútur og tókum sjúklinginn um borð, en hann var mjög þjáður af hjartatilfelli og hafði verið það síðan snemma um morguninn. Við ákváðum að fljúga frekar vestur um til ísafjarðar en suður eða norður um. Maðurinn gat sjálfur gengið um borð, en var í súrefnis- gjöf á leiðinni til ísafjarðar þar sem sjúkrabíll beið hans og flutti á sjúkrahús staðarins." Sigurður skipherra sagði, að þyrlan hefði reynst mun betur en þeir hefðu nokkurn tíma þorað að vona og hann tók fram að flug- mennirnir hefðu verið einvala lið. Mbl. hafði samband við Tómas Jónsson lækni á sjúkrahúsinu á ísafirði síðari hluta kvölds í gær og spurðist fyrir um líðan manns- ins. Hann sagði að líðan hans væri eftir atvikum, hann væri ekki í lífshættu, en næsti sólarhringur myndi skera úr um hvernig hon- um heilsaðist. Þá sagði Tómas mjög mikilvægt að unnt væri að köhia hjartasjúklingum hið fyrsta á sjúkrahús og að í þessu tilfelli hefði mjög vel til tekist. Bíldudalur: Skugga-Sveinn hlaut góðar undirtektir Moonistar á íslandi haf a 5 menn í starf i MOONISTAR á íslandi, sem kalla samtök sín „Samtok heimsfriðar og sameiningar”. hafa 5 manns í fullu starfi. að því er Bryndis Ásgeirsdóttir á skrifstofu samtak- anna i Reykjavík sagði í samtali við Mhl. í gær. Fyrirliði MtMinist- anna hér á landi er norskur og heitir Halvor Kai Iversen. Hann var ekki til staðar er haft var samband við samtökin í gær. Bryndís sagði að starfsemi sam- takanna væri ekki í líkingu við það sem sýnt var í sjónvarpsþætti um Moonista sl. mánudagskvöld. „Ég verð nú að segja eins og er, að ég er nýkomin frá Englandi og ég kann- aðist ekki við það sem fram kom í þættinum, ekki að öllu leyti. Við förum auðvitað út á götur og seljum, en ég hef aldrei gert slíkt undir fölsku yfirskyni. Þegar ég sel, það gerum við hér líka, segi ég alltaf fyrir hvaða starf það er og ég er ekkert feimin við að segja fólki að ég sé Moonisti. Ég er stolt af því. Þetta er ekkert til að skammast sín fyrir. — En er mikil leynd yfir starfi Moonista hér? „Ég vil ekki segja það. Ég hef heldur ekki kynnst því að svo sé annars staðar í heiminum. — Eru samtökin fjársterk hér- lendis? „Ég veit nú ekki hvað ég á að segja. Þeir peningar sem við eigum eru þeir sem vinnum okkur inn. Við Moon og kona hans, Hak Jak Ilan. erum bara með bát sem við gerum út og svo erum við vinnandi fólk.“ — Eru Moonistar á íslandi heilaþvegnir? „Það fer alveg eftir því hvaða skilning hver og einn leggur í orðið heilaþvottur. Ég skil það þannig að það sé eitthvað niðurbrjótandi, geti ekki verið uppbyggjandi. Eftir þeim skilningi er ég ekki heilaþveg- in. En ef það er að losna við neikvæðan hugsunarhátt og fleira þannig, þá er hægt að segja að það hafi farið fram hreinsun á hugsun- um hjá mér.“ Hópvigsla í hjónahand hjá Moonistum. lljónavígslurnar fara fram i Seoul í Kóreu. Kóngsdóttirin vinsæl í Alþýðuleikhúsinu ALÞÝÐULEIKIIÚSIÐ hefur nú sýnt leikritið „Kóngsdóttirin em kunni ekki að tala" um skeið og ávallt fyrir fullu húsi. Má ekki á milli sjá hvort fullorðnir eða btirn eru í meirihluta á sýningunni jafnvel þótt svo eigi að heita að leikritið sé harnaleikrit. Flugleiðafrumvarpið samþykkt samhljóða í Neðri deild í gær ar. FRUMVARP um fjárhagsstuðn- ing við Flugleiðir hf. var sam- þykkt sem lög frá neðri deild Alþingis í gær með 34 sanibl jóða atkvæðum. Breytingartillögur Vilmundar Gylfasonar höfðu áð- ur allar verið felldar. en þær gengu meðal annars i þá átt að allir starfsmenn Flugleiða hefðu jafnan atkvæðisrétt við stjórn- arkjör, án tillits til hlutafjáreign- Samkvæmt hinu nýja frumvarpi er ríkisstjórninni heimilt að auka hlutafjáreign ríkissjóðs í fyrir- tækinu upp í 20%, ríkinu er heimilt að veita allt að 12 milljón- um Bandaríkjadala til að bæta rekstrarfjárstöðu fyrirtækisiTis, heimild er til niðurfellingar lend- ingargjalda af Atlantshafsfluginu á Keflavíkurflugvelli. Aðstoð ríkissjóðs við Flugleiðir hf. er háð ýmsum skilyrðum, og hefur stjórn fyrirtækisins þegar fallist á þau. Meðal þeirra er að aðalfundi fyrirtækisins skal flýtt, starfsmannafélagi Arnarflugs skal gefinn kostur á að kaupa meirihluta hlutabréfa í Arnar- flugi, bókhald vegna Atlantshafs- flugsins skal vera eins afmarkað- ur og kostur er, senda skal ríkis- sjóði ársfjórðuhgslega yfirlit um fjárhag félagsins og fleira. Hin nýju lög gera ráð fyrir því, að Atlantshafsfluginu verði haldið áfram þar til í október á næsta ári að minnsta kosti, þannig að full- reynt verði, hvort ekki verði unnt að koma því á réttan kjöl á ný eftir erfiðleikatímabil vegna margvíslegra aðstæðna. Þetta er ævintýri; kóngssynir fára af stað til að leita að máli handa kóngsdótturinni sem þeir elska báðir; en hún er mállaus og heyrir ekki 'neitt. Þeir Alfreð og Vilfreð lenda í allskyns ævintýrum og ógöngum í leit sinni að máli handa henni og spurningin er hvor þeirra fær hana fyrir konu í lokin. I sýningunni er sögukona, sem segir frá gangi mála jafnóðum, bæði á talmáli og táknmáli, auk þess sem hún útskýrir mun þess að vera heyrnarlaus og heyrandi. Einnig er brugðið á látbragðsleik til að koma sögunni til skila. Ákveðið er að hafa tvær sýn- ingar næstkomandi sunnudag kl. 3 og kl. 5 þar sem erfitt er um vik að hafa barnasýningar í miðri viku. Miðasala er í Lindarbæ alla daga milli kl. 5—7 e.h.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.