Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 5 Verkfall bankamanna: Aðeins 5% starfs- manna fá undanþágu „BANKARNIR mc>ía, þremur döKum áður en verkfall skellur á, senda skrá yfir starfsmenn, sem hljóta mcga undanþágu til starfa að ákveðnum þáttum bankaþjón- ustunnar. Þessir starfsmenn meKa. að hámarki, vera 5% af starfsliði og mejía siðan aðeins vinna að ákveðnum þáttum. Þá mesa hankastjórar og aðstoðar- bankastjórar sinna störfum sin- um,“ saKði Vilhelm G. Kristins- son, framkvæmdastjóri Sam- bands islenzkra hankamanna, er Mbl. spurði hann í Kirr, hvort Fjölskyldu- bingó í Garðabæ FJÖLSKYLDUBINGÓ verður haldið i Kirkjuhvoli. nýja safnað- arheimilinu í Garðabæ nk. sunnu- dag og hefst það kl. 16. Allur ágóði af bingóinu rennur til að fullgera safnaðarheimilið. J.C. Garðar og Braeðrafélag Garðakirkju standa að bingóinu og verður margt eigulegra muna á vinningaskrá. einhverjar undanþágur yrðu veittar. ef til verkfalls banka- manna kemur, en þcir hafa boðað verkfall 3. des. nk. „Þetta eru þrenns konar verk- efni, sem undanþágan er veitt til,“ sagði Vilhelm. „I fyrsta lagi nauð- synleg öryggisvarzla, þ.e. varzla á verðmætum, þá nauðsynleg af- greiðsla til að standa við skuld- bindingar við erlenda aðila, þ.e. greiðslu á erlendum ábyrgðum og greiðslu vaxta og afborgana af erlendum lánum. Þá erlend lán sem bankarnir sjálfir hafa tekið, eða eru í ábyrgð fyrir. Ennfremur störf við greiðslur vaxta og af- borgana af skuldum íslenzka ríkisins. I þriðja lagi eru störf við erlendan póst, síma og telexþjón- ustu.“ Vilhelm sagði, að aðrar undantekningar væru ekki heimil- aðar og væri það málefni bank- anna sjálfra hvernig staðið yrði að afgreiðslu annarrar þjónustu. Skv. upplýsingum sem Mbl. afl- aði sér í gær er enn ekki vitað hvernig staðið verður að innlendri bankaþjónustu, ef til verkfalls kemur, en eins og að ofan greinir eru undanþágur aðeins veittar vegna erlendrar bankaþjónustu og nauðsynlegrar öryggisgæzlu. Samband íslenzkra tryggingafélaga: r __ Atelur Tímann f yrir æsingaskrif MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frétt frá Samhandi islenzkra tryggingafélaga: Vegna fréttar á forsíðu í dagblað- inu Tímanum, laugardaginn 15. þ.m. með fyrirsögninni „Missa tvö stór tryggingafélög starfsleyfi sín?“ átelur stjórn Sambands íslenskra tryggingafélaga slík æsingaskrif, þar sem umrædd vátryggingafélög era gerð tortryggileg í augum almennings, og geta slík skrif haft ómæld áhrif á hag þeirra. í reglugerð um könnun á gjald- hæfi og greiðsluhæfi vátrygginga- félaga nr. 466/1977, er kveðið á um að Tryggingaeftirlitið fari yfir út- reikninga á gjaldþoli og greiðslu- þoli vátryggingafélaga. Ef Trygg- ingaeftirlitið hefur einhverjar at- hugasemdir fram að færa er við- komandi vátryggingafélagi gefinn kostur á að svara slíkum athuga- semdum. Þá fyrst er komið að því hvort vátryggingafélagið þurfi að gera einhverjar ráðstafanir. Öll slík upplýsinga- og skoðanaskipti eru trúnaðarmál á milli Tryggingaeft- irlitsins og viðkomandi vátrygg- ingafélags. Meðan mál eru í slíkri umfjöllun er það óeðlilegt að Tryggingaeftir- litið ræði þau í fjölmiðlum. f HEIMSMETABÓKINNI er meðal annars að finna mynd af Jóhanni Svartdælingi sem er hávaxnasti fslendingur sem vitað er um. Við hlið hans stendur Magnús Finnson blaðamaður sem er 1.83 m á hæð. Heimsmetabókin komin á íslensku í annað sinn Islenskt efni bókarinnar aukið BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg- ur hefur nú sent frá sér Heims- metabók Guinness. Er þetta i annað skiptið sem bókin kemur út á islcnsku. hún var fyrst gefin út hérlendis árið 1977. Efni nýju bókarinnar er að verulegu leyti nýtt en mesta breyt- ingin er þó sú að íslenskt efni bókarinnar hefur verið aukið. Er getið íslenskra hliðstæðna við þau met sem bókin telur upp í mörgum tilfellum og einnig íslenskra sér- stæðna. Þá er myndaefni bókar- innar algjörlega nýtt og í bókinni eru mun fleiri myndir en í þeirri fyrri. Auk þess að Islands sé getið í sérköflum koma Island eða fslend- ingar þó einnig við sögu þegar um heimsmet er að ræða. í bókinni er það t.d. að finna að ekki hefur verið gefið meira verð fyrir fugls- ham en það sem Náttúrufræði- stofnun íslands gaf fyrir geirfugl- inn árið 1971, að Vigdís Finnboga- dóttir sé fyrsti og eini kvenforseti heims sem kjörinn hefur verið með þjóðkjöri og að heimsmet í plötu- snúningi hafi Bretinn Mickie Gee sett í Reykjavík. Heimsmetabók Guinness hefur nú komið út á fjölmörgum tungu- málum og segir í tilkynningu frá Erni og Örlygi að hún muni vera mest selda bók heims að Biblíunni undanskilinni. Bókinni er skipt í tólf kafla og eru kaflaheitin: Maðurinn, lífheim- urinn, jörðin, heimur og geimur, heimur vísindanna, listir og dægradvöl, mannvirki, afreksverk manna, íþróttir, leikir og tóm- stundaiðkanir. Fremst í bókinni er einnig að finna kafla sem ber heitið alsíðustu fréttir. Ritstjórar íslensku útgáfunnar eru þeir Örnólfur Thorlacius og Steinar J. Lúðvíksson. Bókin er prentuð hjá Redwood Burn Ltd. í Bretlandi en sett og umbrotin í prentstofu G. Benediktssonar. Hún er 352 blaðsíður að stærð. Góð sala í Cuxhaven SIGURÐUR Þorleifsson GK 256 seldi 60.9 tonn í Cuxhaven í gær fyrir 41.5 milljónir króna, meðal- verð á kíló 681 króna. sem er mjög gott. Mest var af ufsa í afla Sigurðar Þorleifssonar, en einnig var nokkuð af þorski. Framundan eru margar sölur fiskiskipa í Englandi, en á morgun selur Ljósfari væntanlega síld í Hirtshals og Hilmir II á föstudag. Hausthappdrætti Sjálfstæðisflokks: Vinnings- númerin DREGIÐ var í hausthappdrætti Sjálfstæðisflokksins hjá borg- arfógetanum í Reykjavík 15. nóvember sl. Upp komu eftirtalin vinn- ingsnúmer: Nr. 32393 Toyota Carina DL fólksbifreið, Nr. 16989 SONY myndsegul- bandstæki. Eigendur ofantaldra vinn- ingsmiða framvísi þeim í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll, Háaleitisbraut 1. Sjálfstæðisflokkurinn þakkar öllum þeim fjölmörgu, sem þátt tóku í stuðningi við flokkinn með kaupum á happdrættismið- (FréttatilkynninK frá Sjálfstæðis- flokknum. Hirt án áhvrgðar.) Sýning Brim- ars á Dalvík BRIMAR Sigurjónsson heldur málverkasýningu í ráðhúsinu á Dalvik þessa dagana. Sýningin er í anddyri ráðhúss- ins á tveimur hæðum og er opin á opnunartíma hússins. Yfir 40 myndir eru á sýningunni, sem er fyrsta opinbera sýning Brimars, en hann er innfæddur Dalvíking- ur. vetrartískan 1980/1981 Austurstracti 10 sími: 27211

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.