Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 Hrafnhildur Sigurð- ardóttir — Minning Fædd 3. ágúst 1939. Dáin 9. nóvember 1980. Hrafnhildur er dáin. Við þá helfregn setti mig hljóða og mér varð hugsað til þess mikla örlagavefs sem líf vort er. Ung kona sem enn hafði ekki lokið móðurhlutverki sínu er hrif- in á brott frá heimili sínu og þá ekki síður frá því skapandi list- ræna afli sem að í henni bjó og hún hafði enn ekki haft tíma né ástæður til að vinna að nema í litlum mæli. Hrafnhildur Sigurðardóttir var fædd í Reykjavík 3. ágúst 1939. Foreldrar hennar voru hjónin Valgerður Laufey Einarsdóttir og Sigurður Sólonsson múrari, en hann er nú Iátinn. Hún sleit barnsskónum í faðmi ástríkrar fjölskyldu og er hún óx upp stóð hugur hennar til þess að nema hið fagra og listræna sem hendur kvenna hafa um aldaraðir skapað á Islandi. Arið 1955 hleypti hún svo heim- draganum aðeins sextán ára göm- ul og settist í Húsmæðraskólann á Isafirði, þessum gamla menning- arbæ umluktum háum vinalegum fjöllum, sem eins og vernda íbú- ana fyrir umheiminum og um langan aldur hefir fjörðurinn veitt bæði innlendum og erlendum fiskiskipum skjól fyrir veðurofsa og hafróti. Margur sjómaðurinn hefur einnig notið þarna læknis- hjálpar og aðhlynningar og það er ekki trútt um að þarna hafi Hrafnhildi opnast hulinn heimur er hún leit skipaflotann í vari eftir óveðursnótt. I skólanum opnaðist henni nýr heimur, hún stundaði námið vel og af þeim áhuga og natni sem að henni var eiginlegur, þó var ein námsgrein sem að hreif hana öðrum fremur, það var vefnaður. Þegar skólanum var lokið um vorið og hún stóð með prófskír- teinið sitt í höndunum ákvað hún að verða vefnaðarkennari eða bara læra að vefa. Vefa jafnvel listaverk. Mennirnir þenkja en guð ræður. Hún stóð með örlagaþráðinn og byrjaði að vefa. Maðurinn sem hún unni var kominn með lífið sjálft. Frekara nám varð að bíða. Hrafnhildur Sigurðardóttir og Guðmundur Yngvason voru gefin + Maöurinn minn og bróðir okkar, PÁLL STEINSSON, Háteigsvegi 11, andaðist í Landakotsspítala 17. nóvember. María Jónsdóttir, og systkini hins látna. + Maöurinn minn, GUDBRANDURJÖRUNDSSON, frá Vatni, lést í Landspítalanum 17. nóvember. Ingiríður E. Ólafsdóttir. Maöurinn minn, EIRÍKUR SIGURÐSSON, fyrrverandi skólastjóri, Hvannavöllum 8, Akureyri, andaðist í Landspítalanum 17. nóvember. Jónína Steinþórsdóttir. + Alúöarþökk tyrir alla vinsemd í sambandi viö andlát og útför, GUDRUNAR ÞORBJORNSDOTTUR. Ingveldur Guömundsdóttir. + Meö þakklæti fyrir auösýnda samúö við fráfall og jaröarför systur mlnnar, JÓHÖNNU ÍSLEIFSDÓTTUR. F.h. vandamanna. Marta í. Ólafsdóttir. + Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, RAGNAR JÓNSSON, Stórholti 26, sem lést í Borgarspítalanum 12. þ.m. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Magnúsína Bjarnadóttir, Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Jóhannes Noröfjörð, Pálína Aóalheiöur Ragnarsdóttir, Oddur Halldórsson, og barnabörn. saman í hjónaband 21. desember 1957. Fæðingarhátíð frelsarans var framundan, þegar allt hið góða um víða veröld er leyst úr læðingi. Allt er hreint og fágað og sorinn úr sálunum víkur fyrir bænarorð- um. A þessum grundvelli var hjúskapur þeirra byggður, gagn- kvæmum kærleika og trausti sem entist þeim til hinstu stundar. Hrafnhildur var skapföst og dugleg og þegar kom til orða að Guðmundur maður hennar færi í iðnnám stuttu eftir brúðkaup þeirra, fannst henni það sjálfsagt og studdi hann eftir mætti, þó að það yrði til þess að þau myndu hafa minna fyrir framan hend- urnar og yrðu að búa þrengra. Allt blessaðist þetta vel og þegar að hann lauk fjögurra ára málara- námi, höfðu þau eignast þrjá myndarlega drengi. Hrafnhildur var góð húsmóðir og nærgætin móðir. Glaðlyndi hennar aflaði henni einnig margra góðra vina og oft var glatt á hjalla í góðra vina hópi. Eins og aðrir Islendingar urðu þau að byggja yfir sig og leggja nótt við dag í mörg ár á meðan að erfiðleikarnir voru sem mestir. Börnunum fjölgaði og það bættust tvær dætur í hópinn, svo að nú voru þau orðin fimm börnin á ellefu árum. Sigurður Theodór sem kvæntur er Elsu Sveinbjörns- dóttur, Guðmundur Rúnar, Yngvi Óðinn, Jóhanna Kristín og Laufey Valgerður. En heilsa Hrafnhildar var ekki eins góð og skyldi, þó glapti það fyrir okkur hve hún var alltaf lífsglöð og viðmót hennar fjörlegt. Heimilið var samofið af smekkvísi þeirra beggja og list- rænum hæfileikum Hrafnhildar sem komu fram í öllu er hún handlék. Fyrir þremur árum ákváðu þau að flytja um stundarsakir út til Svíþjóðar með menntun drengj- anna í huga. En sjálf ætlaði Hrafnhildur að láta gamlan draum rætast. Drauminn sem hana dreymdi forðum í Hús- mæðraskólanum á ísafirði og aldrei hafði vikið frá henni þó svo að hann hafi oft' blundað. Hún ætlaði að læra vefnað. Hún settist á skólabekk út í Svíþjóð, lærði tungumál og í tvo vetur var hún búin að stunda nám í vefnaði með ágætis einkunn og góðum vitnis- burði í listrænni tjáningu og vandvirkni. Þau höfðu í upphafi ákveðið að vera aðeins í tvö ár og þá hefðu þau átt að koma heim í sumar. En Hrafnhildur sem svo lengi hafði beðið eftir þessu tækifæri að geta sest á skólabekk og noti menntun- ar við sitt hæfi, gat ekki slitið sig frá hugðarefnum sínum. Þau frestuðu því heimferðinni um eitt ár og hún hlakkaði til vetrar- starfsins í skólanum eins og börn- in hlakka til jólanna. En það syrti í álinn því að áður en að sumarið var liðið var hún vistuð helsjúk á spítala og átti þaðan ekki afturkvæmt. Læknar og hjúkrunarlið gerðu það sem í þeirra valdi stóð. Vefnaðarkennarinn heimsótti hana og þakkaði henni fyrir ógleymanlegar samverustundir í skólanum. Hún hefur lokiA við orlaKavefinn. Mennirnir þenkja en Ruð ræður. Blessuð sé minning hennar. Innilega samúð votta ég eigin- manni hennar og börnum, móður hennar og öðru venslafólki. Guð blessi ykkur öll. Hulda Pétursdóttir. Það var sumarið ’57 að ég ásamt frænku minni var að versla í „Gefjun" í Austurstræti. Ung stúlka, með mikið svart hár, afgreiddi okkur. Ég tók sérstak- lega eftir stúlkunni sakir þess að hún var bæði falleg og hafði sérlega hlýlegt viðmót og hýrt. Ég hafði orð á þessu við frænku mína þegar við komum út á götuna. Hún sagði þá svo ánægð „Já, þetta er kærastan hans Gumma." Þannig hófust kynni okkar Hrafnhildar. Okkur varð vel til vina. Hrafnhild- ur var hrein og bein í samskiptum sínum við fólk. Hún var greind og ákaOtgii .vjOkwBi, . Hún var glaðlynd og einstakur gestgjafi. Það er reyndar ekki hægt að tala um heimili þeirra nema tala um þau bæði í einu því þau voru svo samhent í öllu. Hrafnhildur var fædd í Reykja- vík 3.-8. ’39, dóttir hjónanna Valgerðar Laufeyjar Einarsdóttur saumakonu og Sigurðar Sólons- sonar múrarameistara. Hrafnhildur var elst þriggja barna og eina dóttirin og ólst upp við mikið ástríki. Hún hafði mikið yndi af handavinnu. Hrafnhildur ; var í Húsmæðraskóla ísafjarðar veturinn ’56—57. Þar bundust vináttubönd sem aldrei rofnuðu. Þar kynntist hún ungum og mynd- arlegum sjómanni og þau gengu í hjónaband 21.12. ’57. Ungi maður- inn var Guðmundur Yngvason ættaður úr Reykjavík og undan jökli. Þau voru sérlega fallegt par bæði hávaxin og dökkhærð og um alla hluti voru þau samhent. Hrafnhildur varð fyrir þeirri þungu sorg að missa föður sinn á besta aldri, þá var hún nýgift og Sigurður sonur þeirra hjóna nokk- urra mánaða gamall. En Guð- mundur miðlaði konu sinni þá eins og jafnan síðan af styrk sínum og kærleika, enda hafði hann sjálfur misst föður sinn sviplega tveimur árum áður. Fyrstu hjúskaparárin voru erfið hjá ungu hjónunum. Guðmundur fór í iðnnám, lærði húsamálun. Þau voru í leiguhúsnæði, en voru heppin, gátu verið lengi á sama stað. Hrafnhildur var ekki vel frísk en flíkaði því ekki og var ætíð glaðsinna. Gummi vann myrkranna á milli til að sjá fjölskyldu sinni farborða meðan á náminu stóð. Þegar hann lauk sveinsprófi höfðu þau eignast þrjá drengi. Þau festu kaup á íbúð í Hafnar- firði og voru alsæl. Ég man að ég var að vorkenna Hrafnhildi að hafa enga eldhús- innréttingu, en hún brosti bara og sagði: „Hann Gummi minn kemur með innréttinguna þegar hann getur, það liggur ekkertá," þá var fjórða barnið á leiðinni, stúlka var það sem þau höfðu lengi þráð og tveimur árum seinna eignuðust þau aðra stúlku, því eins og Hrafnhildur sagði „það er svo gott að eiga systur". Hrafnhildur saumaði falleg tjöld fyrir kassana í eldhúsinu og saumaði dúka, heklaði dúllur og platta. Blómin hennar voru alltaf svo falleg. íbúðin í Köldukinn varð of lítil þegar börnin voru orðin fimm. Þau réðust í að byggja raðhús við Miðvang. Oft var Hrafnhildur lasin en alltaf var áhugi hennar fyrir handavinnu jafnmikill. Hún fór að læra að vefa ... Lífsbaráttan var hörð og þau voru orðin þreytt á baslinu og sköttunum og datt þeim í hug að flytja til Svíþjóðar. Hrafnhildur sagði að Gummi gæti slakað á og farið að vinna 8 stunda vinnudag, sem aldrei tækist hér og hann sagði að hún gæti lært meira í sambandi við vefnað. Sumarið ’78 lögðu þau af stað á vit ævintýr- anna. Þau settust að í Finspánga í Svíþjóð og undu hag sínum vel þar til Hrafnhildur veiktist nú á haustdögum og barðist hetjulega við válegan sjúkdóm, sem á nokkr- um vikum braut niður þrek henn- ar og viðnám. Hrafnhildur fór í vefnaðarskóía og hafði mikla ánægju af náminu. En alltaf þráði hún samt landið sitt og ættingja og vini heima og að vori ætluðu þau heim. Nú er hún komin heim, þó að á annan hátt en ætlað var. Ég og fjölskylda mín vottum Gumma, börnunum, móður Hrafnhildar, bræðrum og öðru venslafólki innilega samúð. Guðlaug P. Hraunfjörð. Sigurvegarar i hausttvímenningi Bridgeklúbbs Akraness. Ilall dór Sigurbjörnsson til vinstri og Vigfús Sigurðsson. Sigríðar Ólafsdóttur og Hall- dóru Kolka sem hlutu 779 stig. Staða næstu para: Jóhann — Jón 760 Valdimar — Sigrún 757 Kári — Jón 73p Ólafur — Jón 735 Næsta keppni verður hrað- sveitakeppni sem hefst í kvöld kl. 19.45. Spilarar eru beðnir að mæta tímanlega og taka með sér gesti. Bridgedeild Húnvetninga Fimm kvölda tvímenningi er lokið hjá deildinni með sigri Brldge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON Bridgeklúbbur Akraness Lokið er 4 umferðum í haust- sveitakeppni félagsins, en 10 sveitir taka þátt í keppninni. Staða efstu sveita: Sveit stig Þórðar Elíassonar 75 Alfreðs Viktorssonar 73 Guðmundar Bjarnasonar 59 Halldórs Sigurbjörnss. 56 Arna Bragasonar _ 50

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.