Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 11 ekki máli. Það er annað sem skiptir miklu meira máli — og verra. Og það er hvaða stefna virðist vera að mótast hjá þessu flugfélagi. Mér hefir alltaf leiðst menn, sem eru uppfullir af belgingi og monti. Menn sem eru með sífellt sjálfshól. Það má vera að einhverjum finnist þetta sniðugt, mér finnst það bera vott um vanþroska. Þannig hælast þeir Arnarflugsmenn enn um í blöðunum, að þeir hafi „gert alla alþjóðlega leigusamninga fyrir Flugleiðír undanfarin tvö ár“, og miklast af sinni „yfirgripsmiklu markaðsþekkingu". Það er hreint og beint hlægilegt að sjá þessa menn vera að grobba yfir því að hafa „séð um“ pílagrimaflugssamninga Flug- leiða og láta sem margra ára reynsla og persónulegur kunnings- skapur Loftleiðamanna og við- skiptaaðila í langan tíma hafi hér engan þátt átt í málinu. Sannleikurinn er sá, að þegar Flugleiðir keyptu meiri hlutann í Arnarflugi gerðu þau með sér samn- ing, illu heilli, þar sem svo var kveðið á um, að Arnarflug ætti að sjá um leiguflugssamninga Flug- leiða. Þetta þýddi það, að upp á alla slíka samninga þurftu forráðamenn Arnarflugs að skrifa — og hljóta líka sína „commission" fyrir, hvort sem nú þeir eða einhverjir aðrir höfðu raunverulega komið samning- um á og unnið alla undirbúnings- vinnuna. Þessi samningur, sem Flugleiðir gerðu við Arnarflug á sínum tíma og leiddi það m.a. af sér að Arnarflug flaug allt sólarlanda- flugið sl. sumar sem Flugleiðir höfðu áður flogið, virðist hafa verið meir en lítið óhagstæður Flugleið- um, því það er eins og að grennslast fyrir um mannsmorð að fá að sjá þennan samning. Svo virðist sem Flugleiðir hafi gert meira en að bjarga Arnarflugi frá því að fara á hausinn haustið 1978 sbr. þessa klausu í „Flugfréttum": „Komið hefur í ljós að áhættufé Arnarflugs hf. þurfti að auka, og starfsemi félagsins með tvær flugvélar var mjög áhættusöm, ef um engan stuðning væri að ræða frá stærra flugfélagi." Eins og ég sagði, þá er eins og Flugleiðir hafi gert meira en að bjarga Arnarflugi, því að nú hælast Arnarflugsmenn yfir því (meðan Flugleiðir eru mjög illa staddar) að rekstrarafkoman sé svo góð, að þeir vilji losna við Flugleiðir, sem séu orðnar einskonar dragbítur á þá sjálfa. Það er eins og maðurinn sagði: „Sjaldan launar kálfur ofeldi." Enda hafa Flugleiðir nú loks lýst því yfir, að framvegis ætli þær sjálfar að annast sitt leiguflug. Þá hef ég áður bent á það, að. forstjóri Arnarflugs fór með hrein | ósannindi, þegar hann lýsti því yfir, j að þeir Arnarflugsmenn hefðu vel j getað leigt sína eigin vél til Guate- mala í vetur leið, en ekki tímt því af vorkunnsemi við Flugleiðir. Hin „yfirgripsmikla markaðsþekking" forstjórans dugði hins vegar ekki til1 þess að útvega verkefni á mesta annatíma ársins fyrir aðra B-727 vél Flugleiða, sem stóð verkefnalaus í Keflavík mestallt sl. sumar. Þetta barnalega grobb er nú svo sem allt í lagi, ef ekki kæmi annað og alvarlegra til greina að auki. í Þjóðviljanum 16. nóv. sl. lýsa „starfsmepn" Arnarflugs því yfir á sinn venjulega sjálfumglaða hátt, að velgengni Arnarflugs byggist fyrst og fremst á „samstöðu starfsfólks og sveigjanleika í rekstri. Flug- menn Arnarflugs fljúga t.d. jöfn- um höndum á stórum þotum f millilandaflugi — og á minni flugvélum i innanlandsflugi (let- urbr. höf).“ Má það furðu gegna að menn, sem teljast eiga ábyrgir gerða sinna, skuli láta annað eins frá sér fara í þeirri von að vinnuveitendunum geðjist að því. Sá háttur að flug- menn hlaupi af einni vélartegund yfir á aðra er löngu af lagður hjá öllum alvöruflugfélögum. Þannig er t.d. ekki tekið í mál, öryggisins vegna, að menn fljúgi jöfnum hönd- um á B-727 og B-707 sem eru þó mjög áþekkar vélagerðir, hvað þá heldur að verið sé að hlaupa á milli jafnólíkra flugvéla og B-720 og einhverra tveggja hreyfla skrúfu- véla, sem notaðar eru í inna'dands- fluginu og eru þar að auki reknar við allt önnur skilyrði veðurfarslega og einnig að öllu öðru leyti við miklu frumstæðari og ólíkari skilyrði en tíðkast í millilandaflugi. Svona galgopatal er fullkomlega ábyrgð- arlaust og vara ég flugfarþega við að sætta sig við slík vinnubrögð, jafnvel þótt einhverjum misvitrum ráðherra þyki það gott og blessað. Góðir farþegar Við ykkur, og aðra viðskiptavini Flugleiða, sem eruð hinir raunveru- legu vinnuveitendur og launagreið- endur okkar flugmanna Flugleiða, vil ég segja þetta: — Þótt ykkur og ölium almenningi kannski líka, hafi stundum gramist við okkur flug- mennina, þegar við höfum þurft að grípa til verkfallsaðgerða eða hót- ana um slíkt til þess að ná fram vissum kröfum, þá megið þið ekki gleyma því, að þær kröfur hafa oft gengið út á það að breyta vinnuregl- um þannig að til aukins öryggis flugsins mætti telja, aukins öryggis bæði áhafna og farþega. Varðandi hinn þáttinn, þ.e. kaupgjaldskröfur, vísa ég til þess, sem ég hefi áður sagt um það hér að framan. Hvernig litist mönnum á það, ef við, sem nú fljúgum B-727 tækjum upp á því að fljúga Fokkerunum einnig? Fyrir nú utan það, hvað þetta gengi í berhögg við öryggisreglur, myndi það kosta fjölda annarra flugmanna vinnuna. Nei, ég þykist geta fullyrt að svona ábyrgðarlausri vitleysu fengist eng- inn flugmaður, hvorki hjá Loftleið- um né Flugfélaginu, til að taka þátt í. Mig langar einnig til að benda á það, að nú á þessum síðustu og verstu tímum flugfélaga víða um heim fer sú tilhneiging sífellt vax- andi að ganga lengra og lengra í sparnaði. Og nú er svo komið að flugmönnum þykir þessi stefna vera gengin of langt. Eitt það nýjasta, sem flugfélögin hafa fundið upp á til að spara, er að fækka mönnum í flugstjórnarklefanum úr þrem í tvo. Þessu hafa IFALPA, alþjóðasamtök flugmanna sem telja um 56000 flugmenn, sem og EUROPILOT, sérstök samtök flugmannafélaga í Evrópu, alfarið lagst gegn og telja að með þessu sé öryggi flugsins skert verulega. Þessa dagana hafa flugmenn, t.d. austurrískir, belgískir og hollenzkir, svo e-ð sé nefnt, farið í eða boðað mótmælaaðgerðir gegn þessari til- högun. Franskir flugmenn fengu því áorkað, að flugfélög þar í landi hættu við að kaupa vélar, sem gerðar voru fyrir tvo í stjórnklefa, og stærsta flugfélag Bandaríkjanna „United Airlines" fljýgur með þrjá í stjórnklefa B-737, sem annars er miðaður við tvo. Eg vil vekja athygli almennings á þessum málum og vona, að væntan- legir ferðamenn og við, flugmenn Flugleiða, eigum samleið í að sporna gegn því, að þessi öryggisskerð- ingarstefna nái fram að ganga hér á landi. Mér er ekki grunlaust um, að ákveðið flugfélag hér á landi sé þegar farið að mæna eftir kaupum á B-737. Ég segi aðeins, gætið vel að öllu. Skilyrði ríkis- stjórnarinnar Eins og ég sagði hér á undan fer ríkisstjórnin fram á það við Flug- leiðir, að þær gefi „starfsfólki" Arnarflugs kost á að kaupa hluta- bréf Flugleiða í Arnarflugi. Mér finnst rétt að benda á, að nú er verið að athuga í fullri alvöru, hvort flugmenn Flugleiða (sem áður störf- uðu hjá F.í.) vilji ekki bjóða í þessi bréf. Sömuleiðis finnst mér ekki nema sjálfsagt, að einhverjir aðrir hagsmunahópar sýni þessu áhuga. Þótt Arnarflug virðist vera eitt- hvert sérstakt „baby“ samgönguráð- herra, þætti mér gaman að sjá hann eða einhvern annan í ríkisstjórninni rökstyðja það, að fyrirtæki sem hún (ríkisstjórnin) er að styrkja fjár- hagslega og heimta að selji e-ð af eigum sínum, megi ekki selja á sem hæstu verði. Ég vil svo aðeins að lokum undirstrika það, að enda þótt ein- hverjir flugmenn séu svo hræddir við sína vinnuveitendur, að þeir láti hafa sig út í vinnuaðgerðir sem ganga á öryggisatriði, þá þurfa viðskiptavinir og forráðamenn Flugleiða engan kvíðboga að bera fyrir því, að flugmenn þess fyrir- tækis láti slíkt henda sig, og heldur ekki því, að fullur skilningur sé ekki fyrir hendi á erfiðleikum þeim, sem nú er við að glíma. Þakka birtinguna. „Grims saga trollaraskálds44 Ný bók eftir Asgeir Jakobsson BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá. Ilafnarfirði, hefur gefið út bók- ina „Gríms saga trollaraskálds“ eftir Ásgeir Jakobsson. I fréttatilkynningu frá útgef- anda segir m.a.: „Ásgeir Jakobs- son er þaulkunnugur sjómönnum, veiðum og lífinu um borð í fiski- skipum á hafi úti. Hann er landskunnur fyrir skrif um sjáv- arútvegsmál og fyrir hinar miklu bækur sínar um Einar Guðfinns- son, útgerðarmann á Bolungarvík og Tryggva Ófeigsson, skipstjóra og útgerðarmann í Reykjavík. í þeim bókum fjallar hann um báta- og togaraútgerð, veiðar og mið, verkun sjávarafla og vinnubrögð í landi. I „Gríms sögu trollara- skálds" er það hins vegar háset- inn, hinn óbreytti liðsmaður um borð, sem segir sögu sína. Sú saga er sérstæð og óvenjuleg, það er Ásgeir Jakobsson saga um þríeinan mann: skáld, dára og hausara. Saga Gríms trollaraskálds er heimildarsaga. Hún er ekki aðeins saga skáldsins, dárans og hausar- ans, hún er einnig saga stríðstog- aranna okkar, sem voru of gamlir eins og „Kynbomban", of hlaðnir eins og „Dauðinn á hnjánum", of valtir eins og „Tunnu-Jarpur“. Hún er saga um græðgina miklu, óvættinn öllumverri; saga um at- vinnuhórur, hjáverkahórur og stríðsdrykkinn tunnuromm; saga um horfinn heim, sexhundruð- mannaheim engum líkan í millj- ónaheiminum, einangraðan heim á hafi úti, framandi jafnvel eigin þjóð. Hún er saga horfinna manna, togarajaxlanna gömlu, manngerðar, sem aldrei verður framar til á þessum hnetti; saga horfinna skipa, tuttugu og tveggja kolakyntra ryðkláfa, sem öfluðu meira verðmætis á styttri tíma en nokkur önnur íslenzk skip sömu stærðar, skipa, sem aldrei framar sjást á sjó.“ Snyrtivöru- verzlunin Evíta opnar að Laugavegi 41 EVÍTA, ný hárgreiðslu- og snyrtivöruverzlun, hefur tekið til starfa við Lauga- veg 41. Eigendur verzlunar- innar eru Lára Davíðsdótt- ir og Hildur Backman. í verzluninni fæst allt það nýjasta sem lítur að hár- lagningu, klippingu, perm- anenti o.fl. ral aj ‘t u r, / axi/ri lacj PANTANIR ÓSKAST STAÐFESTAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.