Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 Þessi mynd var tekin, er unnið var að slokkvistarfinu í «ær. Ljósm. Mbl. Júlíus. Eldur um borð í Morgunstjömunni ELDUR kom upp um borð í Morjíunstjörnunni SÁ 45 um klukkan hálf fimm í kot. Slökkvilið var kallað til ok gekk því jjreiðlejía að slökkva eldinn. Ekki urðu slys á mönnum. Morgunstjarnan, sem er í eigu útgerðarfélagsins Fram- ness hf. Grundarfirði, er í slipp í Bátanausti við Gelgju- tanga og var verið að logsjóða í lúkar, þegar neisti féll í olíubrák undir gólfi með áð- urgreindúm afleiðingum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, skemmdir urðu nokkrar. Rannsókn mín hefur leitt í ljós að QUIK fæst í lítilli dós, stærri dós og ennþá stærri dós. Með súkkulaði kveðju • Bctuu Súkkulaðisérfræðingur Rikisútvarp: Fjárlagatillögurnar lækk- aðar um 851,5 millj. króna „LÆKKUNIN frá fjárlagatil- lögum okkar og niðurstöðum fjárlagafrumvarpsins nam 9%. þ.e. 306 millj. kr. til hljóðvarps og 545,5 millj. til sjónvarps. Þá munar okkur tilfinnanlega um að missa tollatekjurnar, sem teknar voru af okkur 1977. Upphæð þeirra nemur einum milljarði í ár.“ sagði Hörður Vilhjálmsson, er Mbl. spurði hann, hver niðurskurður hefði orðið á fjárlagatillögum Ríkis- útvarpsins í gerð fjárlaga- frumvarpsins. en eins og fram kom í frétt Mbl. i gær verður rekstrartap stofnunarinnar á þessu ári um einn milljarður, ef ekki fæst breyting á fjár- lagafrumvarpinu hvað varðar Ríkisútvarpið í meðförum fjár- veitinganefndar og alþingis. Hörður sagði, að Ríkisútvarpið myndi fara fram á það við fjár- veitinganefnd að áðurnefndar tollatekjur fengjust endurheimtar og einnig niðurskurðurinn frá fjárlagatillögunum. Tollatekjurn- 24 íslenzk fyrirtæki á sýningu i Færeyjum Frá Jógvani Arge, fréttaritara Mbl. I Færeyjum, 17. nóv. „NOKKRIR þátttakend- anna hafa fengið góð sam- bönd og aðrir hafa fengið betri upplýsingar um fær- eyska markaðinn á ís- lenzku vörusýningunni í Þórshöfn,“ segir Gunnar Kjartansson fulltrúi hjá Útflutningsmiðstöð iðnað- arins. 24 íslenzk fyrirtæki tóku þátt í sýningunni í stærstu verzlunarmiðstöð Færeyja, SMS í Þórshöfn. Sumir þeirra hafa fengið pantanir, t.d. húsgagna- og sápufram- leiðendur, en aðrir hafa ekki beinlínis fengið pantanir, en sambönd sem gætu leitt til samvinnu í framtíðinni. Gunnar Kjartansson sagði aðspurður, að árangur sýningarinnar hefði ekki getað verið betri. Hann sagði, að einnig mætti líta svo á að sýningin yrði til þess að Islendingar tækju þátt í vörusýningum sem haldnar eru hvert ár í íþróttahöllinni i Þórshöfn í Færeyjum. Borun lokið í Bjarnarflagi Vogum. Mývatnssveit, 18. nóv. GUFUBORINN Jötunn er að Ijúka við að bora holu i BjarnarflaKÍ. Um hádeKÍð var holan orðin um 1970 metra djúp. Áætlað er að hora rúmlega 2.000 metra niður og gæti það orðið í kvöld. Að borun lokinni verður Jötunn tekinn niður og fluttur niður fyrir Fagraneshóla, sem eru neðan við hraunið milli Reykjahlíðar og Grímsstaða. Þar mun hann síðan bíða eftir næsta verkefni. Vonast er til að þessi hola í Bjarnarflagi eigi að geta orðið álíka öflug og síðasta hola, sem boruð var þar. Kristján ar eru fengnar af aðflutnings- gjöldum sjónvarpsviðtækja og loftnetum. Var sá tekjustofn nýtt- ur til uppbyggingar dreifikerfis sjónvarps og litvæðingarinnar á sínum tíma. Þá sagði Hörður að með fjárlagatillögum stofnunar- innar hefði verið reiknað með MAGNÚS og Jóhann, ásamt raí- magnsfiðluleikaranum Graham Smith halda tónleika i Mennta- skólanum við Hamrahlið i kvöld. Á efnisskrá verða lög af nýút- kominni hljómplötu þeirra félaga SVOIILJÓÐANDI fréttatilkynn- inK barst frá utanríkisráðuneyt- inu i gær: „Eins og kunnugt er af fréttum var forseta Guinéa-Bissau, syst- urríki Cabo Verde (Grænhöfða- eyja) steypt af stóli sl. laugardag. Við völdum tók Joao Bernardo Vieira, herforingi. Hann var áður forsætisráðherra hjá Luis Cabral, forseta, sem settur var í stofufang- elsi. Vieira er forystumaður bylt- ingarráðs, sem hefur m.a. lagt áherslu á það að hætt skuli við fyrirhugaða sameiningu Guinéa- Bissau og Cabo Verde. Á ríkisstjórnarfundi í Cabo Verde sl. laugardag var valdaránið fordæmt og m.a. gerður fyrirvari um réttarstöðu Cabo Verde. Eins og kunnugt er, hefur Að- rekstrarafgangi upp á 130 millj. kr. og hefði verið fyrirhugað að nýta rekstrarafganginn til niður- greiðslu á hallarekstri undanfar- inna ára. „Við vonumst aðeins til að alþingismenn taki mál þetta til jákvæðrar afgreiðslu," sagði Hörður í lokin. ásamt eldra efni og nýju, óút- komnu. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og eru þeir opnir almenningi meðan húsrúm leyfir. stoð íslands við þróunarlöndin beitt sér fyrir umfangsmiklu þróunarverkefni á Cabo Verde. Árni Halldórsson, vélstjóri, Hall- dór Lárusson, skipstjóri og Magni Kristjánsson, sem starfar nú sem útgerðarstjóri, dvelja á Cabo Verde ásamt fjölskyldum sínum. Spurningar vöknuðu í ljósi síðustu atburða hvort starfs- eða dvalar- aðstaða íslendinganna hefði eitt- hvað breyst. Samkvæmt upplýs- ingum sendiráðs íslands í París mun ekki talið að svo sé og líðan íslendinganna er góð. Allt mun vera með kyrrum kjörum í höfuð- borg Cabo Verde, Mindelo, og Mindelo, og samkvæmt fréttum frá París eru nú engin átök í Guinéa Bissau og Cabo Verde. Kommúnistar og fasistar á Alþingi? VIÐ UMRÆÐUR á Alþingi í gær gerðist það m.a. að Vil- mundur Gylfason kallaði alþýðubandalagsmenn komm- únista og gerði að umtalsefni afstöðu þeirra til atvinnulýð- ræðis, sem hann taldi koma fram í atkvæðagreiðslu um Flugleiðafrumvarpið. Skömmu síðar kom Garðar Sigurðsson, einn þingmanna Alþýðubanda- lagsins, í ræðustól og gcrði grein fyrir atkvæði sínu, þegar verið var að greiða atkvæði um einn lið Flugleiðafrumvarpsins og sagði á þá leið að fyrst fasistinn Vilmundur Gylfason. segði nei, segði hann já. Albert Guðmundsson kom að þessu loknu í ræðustól og óskaði þess að Garðar endurtæki um- mæli sín og hvort það væri rétt sem sér hefði heyrst, að hann hefði kallað einn samþingmanna sinna fasista. Væri svo, bæri forseta að víta Garðar fyrir þessi ummæli. Vilmundur Gylfa- son kvaddi sér þá hljóðs og sagðist vera af sjómannaþjóð, sem ekki léti sér bregða þó ýmis stór orð féllu. Minnti Vilmundur á að hann hefði kallað alþýðu- bandalagsmenn kommúnista og hefði Garðar aðeins verið að svara fyrir sig. „Ég skil Garðar vel,“ sagði Vilmundur og lauk þar með umræðum um kommún- ista og fasista á Alþingi í gær. Þessi mynd var tekin af þeim félögum fyrir utan Hamrahlíðarskólann nú nýverið. Magnús, Jóhann og Graham með tónleika Líðan íslendinga á Grænhöfðaeyju góð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.