Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 Ilöfundar: EkíU Ólafsson. Ólaf- ur Ilaukur Símonarson o« I>ór arinn Eldjárn. Tónlist: EkíII Ólafsson og Þurs- arnir Lýsing: Daniel Williamsson Dansar: Þórhildur Þorleifsdótt- ir Búningar: Guörún Haraldsdótt- ir Leikmynd: Steinþór Sigurðsson Leikstjóri: Stefán Baldursson LR: Austurbæjarbíó Á blómatímabilinu þegar rokkið var ferskt og safamikið blómstrðu söngleikir, Hárið, Jes- ús Kristur Súperstar, Óli. Langt er síðan pg nú miga menn á sviðið og hrækja til að fá athygli áhorfenda. Af er ferskleikinn, því má ætla að endurvakning rokksöngleikjanna sé til lítils nema til komi samfarir á sen- unni eða eitthvað ámóta frum- legt. Höfundar Grettis varast þá gryfju. Þeir eru trúir upprunan- um og vilja ná til áhorfenda með ómenguðu rokki, skáldskap og bröndurum. Ekki tókst þetta burðuglega í upphafi verksins þá Grettir húkir í Breiðholtinu, var þar þó einn ljós punktur er Tarsan — í ágætum meðförum Eggerts Þorleifssonar — þusti inn á sviðið. Hélt maður að verkið væri á leið inn í félags- fræðilegt vandamáladrama. Setti raunar að manni langvar- andi geispa í stíl sumra kollega, en þá birtist Atli viðskiptafræð- ingur og hans hyski með fé- græðgina lekandi úr munnvikun- um. Og nú færist fjör í leikinn. Grettir — gufa úr Breiðholtinu, breytist í ljónfagran Disco- Gretti. Brandararnir fjúka einn af öðrum er auðhyggjumenn tæknivæða Gretti og færa þenn- an forna kappa til nútímalífs. Ljósin blika, músikin hækkar og myrkvast vandamálasvið. Áhorfendur klappa og eru albún- ir að kasta blómum á senu þá faðir Grettis gerist api, en skyndilega man annar höfundur verksins eftir því að móðir Grettis er heimavinnandi hús- móðir og nær ekki Sóknartaxta. Þessi höfundur treður því aríu um uppþvott, ryksugun, skó- burstun og matseld inn í verkið. Áhorfendur hætta við að kasta blómunum, sumir geyspa, aðrir klóra sér í nefinu, einn snýtir sér af þrítugasta bekk. En loks lýkur höfundur bæn sinni, hann hefir ekki syndgað gegn málstaðnum, við þeytumst aftur út í ærslin með Gretti vaðandi disco-vit- leysuna í mitti og ekki minnkar spennan er Glámur sjónvarps- draugur ryðst fram á skerminn. Gerast áhorfendur þess albúnir Grettir (Kjartan Ragnarsson) hittir gengið eftir að hann er orðinn frægur. í baksýn: Soffia Jakobsdóttir og Andri örn Clausen. Lelkllst eftir ÓLAF M. JÓHANNESSON Atli (Harald G. Haraldsson) syngur Auglýsingasögn Grettisþátta sjónvarpsins. að kyssa klæðafald listamann- anna en þá kemur annað frið- þægingarkast. Vondi viðskipta- fræðingurinn fer í heimsókn til foreldra sinna með það illa markmið að fá þau til að setjast fyrir framan sjónvarpið, salur- inn fyllist af hnerrum og einn áhorfandinn veltir fyrir sér hvort höfundar — þessir bráð- hnittnu orðsmiðir — séu haldnir pólitískri niðurfallssýki sem hægt sé að setja upp í reglulegt línurit sem síðan megi beita á verk þeirra, féllu þeir í framtíð- inni þannig fremur undir þjóð- hagsstofnun, enda þá öll verk unnin í þjóðarhag af sönnum þjóðlistamönnum. Ég vona að svo verði ekki enda skáldfákurinn of óstýrilátur í brjósti þessara ungu manna til að láta að tamningu einslitrar svipu. Datt mér í hug þegar leikararnir gengu fram á sviðið og tóku við hlýju og áköfu klappi áhorfenda, hvort við Islendingar værum nú ekki búnir að eignast fyrirtaks revíusmiði, stæðum máski frammi fyrir nýrri gullöld þessarar listgreinar. Vona ég til guðs að svo verði. Að einhvers- staðar komi glufa í hinn gráa múr sjónvarpsins sem lykur æ fastar um landsmenn. Ekkert jafnast á við þá safaríku snert- ingu við tal og tóna sem revían býður uppá. GRETTIR DISCO- Þó sýndust mér margir sem steinrunnir á sýningunni. Flögr- aði að manni hvort sumt af þessu fólki ætti ekki afturkvæmt úr imbakassanum. Hvað um það ég ætla ekki að víkja hér að tónlist Grettis svo veigamikill þáttur sem hún er. Þá fer ég ekki nánar í frammistöðu einstakra leikara, því þar reyndi mjög á sönginn, vil þó minnast á Kjart- an Ragnarsson, sem náði litróf- inu í persónu Grettis allt frá því hann húkir í Breiðholtinu áhugalítill unglingurinn þar til hann gefur mömmu og pabba blokkina sem þau búa í og fer þar að fordæmi Prestleys, enda súperstjarna. Jú og ekki má gleyma Guðrúnu Gísladóttur í hlutverki aðstoðarstúlku kvik- myndaleikstjórans, varð þar ein sjónvarpsþulan Ijóslifandi fyrir augum áhorfenda. Harald G. Haralds kom líka á óvart, sýndi nýja hressilega hlið á leikper- sónu sinni, einnig Ragnheiður Steinþórs sem sæt diskópía þó í þéttara lagi væri. Hlutverk Sig- urveigar Jónsdóttur var eins og áður er sagt, runnið úr Sókn- arkvennakomplex annars texta- höfundar, píslarvættissvipurinn á andliti hennar var þó nokkuð sannfærandi miðað við að hún var hvorki í frystihúsi né hjá SS. Jón Sigurbjörnsson fengi ör- ugglega vinnu hjá Sædýrasafn- inu. Það er raunar aðeins eitt fyrir utan predikunartóninn sem skyggir á þessa stórskemmtilegu sýningu, ónákvæm lýsing og afhverju þessa sparsemi í notk- un disco-effekta.? Og hvers eiga ballettstelpurnar hjá Þjóðleik- húsinu að gjalda? Eru ekki dansar eins og þarna eru framd- ir kjörnir til að lyfta undir þessar vesalings forsómuðu stúlkur sem slíta í sér sinarnar upp í Þórscafé á sunnudags- kvöldum í örmum Halla, Ladda og Jörundar. Ég veit ekki hvort Ragnar Arnalds hefur tekið eftir þessu á sýningunni. Ingvar Gísla sá ég hvurgi en forsetanum sem þarna sat hefir vafalaust þótt oskemmtilegt að sja fjársvelti síns gamla leikhúss birtast í snautlegri umgjörð Grettis. En því miður heldur hún ekki um ríkiskassann. Aldraðir koma saman í tilefni afmælis Endurhæfingarstöðvarinnar. útvega sjúkraþjálfara og tókst sendiráðinu að ráða sjúkraþjálf- ara til tveggja ára frá háskóla- sjúkrahúsinu í London. Fyrsti sjúkraþjálfarinn kom þaðan í október 1978, en þegar sá næsti átti að koma 6 mánuðum síðar kom í ljós að fyrirvaralaus and- staða hafði komið upp hjá Há- skólasjúkrahúsinu við því að næsta stúlka kæmi. Heilsuræktin fékk þá Rann- sóknarlögreglu ríkisins í lið með sér til þess að upplýsa þau óeðli- legu vinnubrögð sem lágu að baki synjuninni og er málið nú komið í hendur lögmanns Heilsuræktar- innar, Inga R. Helgasonar." Jóhanna sagði að lokum að Heilsuræktinni hefði nú boðist sjúkraþjálfari frá þriðja landinu og vonaðist hún til að geta búið svo um hnútana að vinnufriður yrði tryggður í framtíðinni. Jóhanna Tryggvadóttir, stjórnarformaður Heilsuræktarinnar: „Hvers eiga aldr- aðir að gjalda?44 Endurhæfingardeild Heilsu- ræktarinnar í Glæsiba* er 1 ára um þessar mundir. í Heilsu- ræktinni fer fram tvíþætt starfsemi, annarsvegar almenn heilsurækt og svo endurhæfing fyrir ellilifeyrisþega. Leyfi tií þess að reka þessa endurhæf- ingardeild fékkst 1971 og síðan 197fi hafa eldri borgarar getað nýtt sér þjónustu endurhæf- ingardeildarinnar ókeypis. Á hlaðamannafundi. sem Jó- hanna Tryggvadóttir, stjórn- arformaður Heilsuræktarinn- ar, hoðaði til vegna afmælisins sagði hún að endurhæfingar- deildin hefði átt í sífelidum erfiðleikum með að veita þá þjónustu. sem húsnæði og ta*kjahúnaður gera mögulega, vegna óskiljanlegrar óvildar Féiags íslenskra sjúkra- þjálfara í garð endurhæfingar- deildarinnar. „Stjórn Heilsuræktarinnar fékk leyfi frá félagsmálaráðuneytinu 1976 til þess að ráða sjúkraþjálf- ara frá Danmörku til endurhæf- ingardeildarinnar og starfaði hann í 6 mánuði eins og samning- urinn við hann sagði til um. Samið hafði verið um 5 ára samstarf við danska yfirsjúkraþjálfarafélagið en því miður gat ekki orðið af áframhaldandi ráðningu á starfs- kröftum af óskiljanlegum ástæð- um. Þá snéri Heilsuræktin sér til Bretlands og leitaði aðstoðar ís- lenskra stjórnvalda til þess að ná samningum við sjúkraþjálfara þar. Sendiráðinu í London var þá falið að aðstoða stofnunina í að Jóhanna Tryggvadóttir, stjórnarformaður Heilsuræktarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.