Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 32
y ^SÍminn á afgreiöslunni er
83033
^Síminn á afgreiðslunni er
83033
JMargonblnbib
MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980
422 þús-
und kr.
fást fyrir
1 kg af
æðardúni
VERÐ á a'íiardúni hofur ha'kkaú
mj<>K ört á hcimsmarkaöi sl. ár
og er heimsmarkaðsverA á einu
kílói af hreinsuóum islenzkum
dúni nú 1.425 vestur-þýzk mörk
eða 422 þús. 513 kr. ísl. Fyrir
u.þ.h. ári var verðið um G50 mörk
eða 192 þús. 725 kr. og er hér
miðað við útflutningsverð.
l>etta kom m.a. fram á fjöl-
mcnnum aðalfundi /Eðarræktar-
félatts Islands. sem haldinn var
sl. lauftardag.
Að sögn Árna G. Péturssonar,
ráðunauts Búnaðarfélagsins í æð-
arrækt, voru á milli 50 til 60
manns á fundinum en um 270
manns eru í félaginu og væru það
bæði æðarræktendur og áhuga-
menn.
Arni sagði að mikill hugur hefði
verið í mönnum á fundinum og
væri sívaxandi viðkoma vargfugls
og minks þyrnir í augum þeirra.
Hann sagði einnig, að íslenzkur
dúnn væri sá verðmætasti á
heimsmarkaðinum, og því væri
hér um að ræða arðbæra atvinnu-
grein, því fyrirséð væri að dúnn-
inn myndi hækka í verði með ári
hverju. Framleiðsla á dúni hér-
lendis nemur í ár um 2.000 kg. en
að sögn Arna var hún mest um
4.000 kg. þegar bezt lét á öldinni.
Núverandi formaður Æðarrækt-
arfélagsins er Olafur E. Ólafsson.
í.jósm. Mhl. KÖE ok Krlstján.
Sigurður Helgason forstjóri FlugleiÖa:
„Fögnum afgreiðslu
málsins á Alþingi“
„VID fögnum því að afgrciðsla
þessa máls á Alþingi skuli vera
komin í höfn og vonum að eftirleik-
urinn verði í samræmi við það. en
nú er framkvæmdin eftir og þar
kemur til mat á veðhæfni eigna
Flugleiða í samhandi við þau íán
sem heimilt er að taka samkvæmt
lögunum.“ sagði Sigurður Helga-
son forstjóri Flugleiða í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Sigurður kvað það ávallt matsat-
riði hver veðhæfni eigna væri, en
hann kvað stjórn Flugleiða hafa
tekið ákvörðun í málinu í þeirri trú
að félagið fengi þessa fyrirgreiðslu.
„Við erum löngu komnir á fulla
ferð með allt sem heitir flug á
Atlantshafinu og árangurinn sem
við erum að ná er í samræmi við það
sem við reiknuðum með í nýtingu og
farþegafjölda."
Um 30% samdráttur hjá Elkem:
Oðrum ofni Járnblendi-
félagsins verður lokað
ELKEM, norska fyrirta'kið, sem
hefur með sölu á framleiðslu
íslenzka járnhlendifélagsins að
gera. hefur ákveðið að minnka
framleiðslu sina á járnblendi,
ferro-silicon. um 30%, vegna
hinnar slæmu stöðu á markaðin-
um um þessar mundir. Þetta
kemur fram í frétt tímaritsins
„Metal Bulletin" i siðustu viku.
Þar segir, að þegar hafi verið
ákveðið að loka öðrum ofni verk-
smiðju Islenzka járnblendifélags-
ins og einum ofni hjá norska
fyrirtækinu Fiskaa Verk, auk þess
sem framleiðsla verði mjög dregin
saman hjá öðrum verksmiðjum
fyrirtækisins.
„Sú ákvörðun, að loka öðrum
ofni verksmiðjunnar á Islandi,
hlýtur að hafa verið erfið með
tilliti til þess, að fyrri ofn verk-
smiðjunnar var tekinn í notkun á
miðju ári 1979 og sá síðari fyrr á
þessu ári. Lokun-ofnsins gerir það
að verkum, að framleiðsla verk-
smiðjunnar verður ekki nema 25
þúsund tonn í stað 50 þúsund
tonna,“ segir ennfremur í frétt-
inni.
Þá segir, að Elkem hafi fyrr
lokað einum af fjórum stærstu
ofnum Fiskaa Verk-verksmiðj-
unnar og lokun ofnsins að þessu
sinni muni minnka framleiðslu
fyrirtækisins um 12 þúsund tonn.
Þá eru þessar fréttir mjög
athyglisverðar fyrir þær sakir, að
enn eru í gangi viðræður Elkem
við Union Carbide, um kaup El-
kem á Union Carbide.
Fyrsta ófærð vegna snjóa virðist árlega koma bifreiðaeigendum i opna
skjöldu. að sögn lögreglunnar. Bifreiðar eru illa undir vetrarakstur
húnar og sannaðist þetta enn á ný i gær. Þrátt fyrir að liðið sé undir lok
nóvembermánaðar varð mikið umferðaröngþveiti á höfuðborgarsvæðinu
og ástæðan í flestum tilfellum illa búnar bifreiðar. Stærri myndin var
tekin i Kópavogi um miðjan dag i gær, en frá kl. hálf þrjú til klukkan
fimm var vegurinn frá Kringlumýrarbraut i gegnum Kópavog og
Garðabæ og allt til Hafnarfjarðar ein samfelld keðja, bíll við bil. Mikið
var einnig um smáárekstra vegna hálkunnar og lögreglan hafði víða i
nógu að snúast í gærkvöldi vegna kvartana um að börn gerðu sér að leik
að hanga aftan i bifreiðum. Báðu lögrcglumenn Mbl. að brýna fyrir
börnum og foreldrum þeirra að slikt væri hættulegur leikur.
Frækilegt björg-
unarafrek á nýju
þyrlunni í gær
TF RÁN, hin nýja þyrla Landhelg-
isgæzlunnar, og áhöfn hennar, Þór-
hallur Karlsson flugstjóri, Björn
Jónsson flugmaður og Sigurður
Árnason skipherra, unnu fra'kilegt
Skerðing kaupgjalds-
vísitölunnar yfirvofandi
björgunarafrek í gær, er þeir sóttu
mjög veikan mann að Hornbjargs-
vita í Látravík á Ströndum við
mjög erfið skilyrði. Maðurinn, sem
gegnt hefur vitavarðarstarfi í af-
leysingum. hafði fengið hjartaáfall
og að sögn Tómasar Jónssonar
læknis við sjúkrahúsið á ísafirði í
gærkvöldi var líðan hans þá eftir
atvikum.
Maðurinn veiktist mjög illa árla
dags í gær og var þá beðið um
aðstoð. Vegna veðurs komst þyrlan
ekki í loftið í Reykjavík fyrr en kl. 14
og var einnig mikill viðbúnaður hjá
Slysavarnadeildinni Skutli á ísa-
firði. Varðskipið Ægir hélt áleiðis
ef marka má ummæli viðskiptaráðherra, sagði Karvel Pálmason
KARVEL Pálmason túlkaði um-
ma'li Tómasar Árnasonar, við-
skiptaráðherra, um samræmdar
efnahagsráðstafanir i tengslum
við gjaldeyrishreytingu. á þá leið,
að stefnt væri í skerðingu umsam-
inna kjaraatriða ASÍ-fólks. Pétur
Sigurðsson sagði og sýnt, af um-
mælum ráðherra, að hugað væri að
frekari skerðingu sjómannakjara
um fiskverð.
Tómas Árnason, viðskiptaráð-
herra, sagði í Sameinuðu þingi í
gær að samræmdar efnahagsráð-
stafanir, í tengslum við gjaldmiðils-
breytingu, væru enn í umfjöllun
ríkisstjórnar. Þær yrðu hins vegar
lagðar fyrir Alþingi strax og full-
búnar væru. Það væri hins vegar
persónulegt mat sitt að þær þyrftu
að grípa á öllum verðmyndunar-
þáttum, þar á meðal verðbótum
launa, fiskverði o.fl.
Pétur Sigurðsson lagði og fram á
Alþingi í gær fyrirspurn til forsæt-
isráðherra, svohljóðandi: „Munu
fulltrúar 40 þúsund launþega, sem
mæta til ASÍ-þings 24. nóvember,
fá skýrðar fyrirhugaðar ráðstafanir
ríkisstjórnarinnar, sem boðaðar
voru í stefnuræðu forsætisráðherra
að fylgja mundu í kjölfar mynt-
breytingarinnar?“.
Sjá nánar á þingsiðu bls. 18.
til Isafjarðar og var ákveðið að
halda þaðan með björgunarlið og
lækni sjóleiðis til Hornvíkur og fara
síðan á snjósleðum og þotum yfir í
Látravík eftir manninum.
Þyrlunni tókst á giftusamlegan
hátt að lenda í Látravík þrátt fyrir
erfiðar aðstæður og komast þaðan
til ísafjarðar og var maðurinn
kominn á sjúkrahúsið þar laust eftir
klukkan fjögur síðdegis í gær.
Sjá bls. 17.