Morgunblaðið - 21.11.1980, Side 1
32 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
260. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Klíkan fyrir
rétt í Peking
„FJÓRMENNINGAKLÍKAN“ i Kína og sex aðrir sakhorningar
voru leiddir fyrir rétt í dajj og hlýddu. ásamt 35 dómurum og 880
sérstaklega hoðnum áheyrnarfulltrúum. á ákæru. þar sem þau og
bandamenn þeirra eru sökuð um að hafa ofsótt rúmlega 31.800
manns, þar á meðal Liu Shao-chi forseta, „til dauða“.
Fjórmenningaklíkan og sex aðrir sakborningar komu fyrir rétt í Peking í gær og ætti því að kallast
timenningaklíkan hér eftir. Talið frá vinstri: Wu Faxian. Jiang Qing. Huang Yong Sheng, Chen Boda og
Wang Ilongwen.
Kaþólskur f ulltrúi
í pólsku stjórnina
Varsjá. 20. nóvember. AP.
PÓLSKA stjórnin mun væntan-
lega skipa kaþólskan mann vara-
forsætisráðherra. samkvæmt
heimildum í Varsjá í dag. Sú
ráðstöfun á sér enga hliðsta'ðu í
kommúnistariki.
Samkvæmt heimildunum verður
Jerzy Ozdowski, þingmaður kaþ-
ólsku leikmannasamtakanna Znak
síðustu tvö kjörtímabil, skipaður í
stöðuna á morgun. Hann yrði fyrsti
fulltrúi kaþólskra samtaka til að
gegna áhrifamiklu embætti í
stjórninni, síðan kommúnistar
komu til valda.
Skipun kaþólsks manns í svo
valdamikið embætti mundi marka
tímamót í sambúð ríkis og kirkju.
Stjórnin hefur skorað á kirkjuna,
verkalýðshreyfinguna Samstöðu og
fleiri hópa að leggja fram aðstoð til
að leysa efnahags- og þjóðfélags-
vanda Pólverja.
Tveggja daga fundur pólska
þingsins, Sejm, hófst í dag og búizt
er við, að hann leiði til matvæla-
skömmtunar. Leon Klonica land-
búnaðarráðherra sagði, að pólskur
landbúnaður gæti ekki „fyllilega
mætt þörfum þjóðarinnar fyrr en
eftir fimm ár“.
Jagielski varaforsætisráðherra
gagnrýndi Samstöðu fyrir að van-
treysta velvilja yfirvalda, á stund-
um tillitslausar, fljótfærnislegar
kröfur, slitnar úr tengslum við
veruleikann, og tilraunir til að
berja í gegn kröfur, án tillits til
möguleika hagkerfisins. Hann
taldi, að óábyrg öfl tækju höndum
saman með Samstöðu og varaði við
misbeitingu verkfallsréttar.
Klonica sagði, að kartöfluupp-
skeran hefði verið 18 milljónum
lesta minni en áætlað hefði verið,
kornuppskeran 3,2 milljónum lesta
minni og sykurreyrframleiðslan 6,5
milljónum lesta minni.
„Gagnbyltingarklíkur Lin Piao
og Jiang Qing færðu ósegjanlegar
hörmungar yfir landið og þjóð-
ina,“ segir í ákærunni, sem er
20.000 orð. Tilkynnt var, að réttar-
höldin færu fram í tvennu lagi —
annars vegar gegn Jiang Qing,
ekkju Mao formanns, öðrum úr
fjórmenningaklíkunni og Chen
Boda, fyrrum ritara Maos, og hins
vegar gegn hermönnum úr „Lin-
klíkunni".
I ákærunni segir, að það hafi
verið yfirlýstur tilgangur Lin að
koma nýrri valdastétt til valda.
Klíka hans hefði gert tilraunir til
að steypa stjórninni og splundra
ríkinu eftir misheppnað samsæri
um að myrða Mao og gera herbylt-
ingu, líklega með stuðningi Rússa.
Jiang Qing og nokkrir aðrir
sakborningar grétu stundum, að
sögn kínverskra fréttamanna.
Herlæknir aðgætti hjartslátt
Zhang Chunqiao úr fjórmenn-
ingaklíkunni. Jiang Qing virtist
öruggust þeirra og bar höfuðið
hátt. Sjö mínútna kvikmynd frá
réttarhöldunum var sýnd í sjón-
varpi.
Akæruatriðin eru þessi: Tilraun
til að steypa stjórninni og
splundra ríkinu. Meiða, myrða,
varpa sök á og ofsækja fólk og
reka skrumáróður í gagnbylt-
ingarskyni. Skipuleggja og stjórna
gagnbyltingarklíkum. Þvinga
fram játningar með pyntingum og
setja fólk ólöglega í varðhald.
Meðal 17, sem sagt er að hafi
verið ofsóttir til dauða, eru Liu
forseti, Peng Teh-huai marskálk-
ur og Ho Lung, annar frægur
herforingi.
Leitað hjá
Samstöðu
Varsjá. 20. nóv. AP.
LÖGREGLA leitaði í skrifstofu
Samstöðu í Varsjá í dag og lagði
hald á leyniskjal um haráttu
gegn andsósíalískum skjolum að
sögn sjónarvotta. Þetta mun vera
í fyrsta sinn að lögregla fer inn í
skrifstofu hreyfingarinnar síðan
hún var viðurkennd.
Héraðsstjórinn í Czestochowa,
Miroslaw Wierzbicki, sem bannaði
Samtöðu til bráðabirðga í síðustu
viku, hefur verið settur af og
ellilífeyrisþeginn Zdislaw Soluch
skipaður í hans stað.
íran vill réttaj*höld
gegn forseta Iraks
frmarfnrA ftrrir nririri nnóAro ríl/io
Glæpir Rússa
í Kabul aukast
I.slamahad. 13. nóv. AP.
FRÉTTIR frá Kahul herma. að
glæpir sovézkra hermanna hafi
aukizt í Afghanistan að undan-
förnu og vestrænn fulltrúi sagði í
dag að meðal fórnarlambanna
væru Rússahollur afghanskur
embættismaður og fjölskylda
hans.
Hópur sovézkra hermanna rudd-
ist inn á hcimili embættismanns-
ins fyrir viku og myrti hann, konu
hans og þrjár dætur, en sonur
þeirra slapp af því hann faldi sig.
Sovézkir liðsforingjar, sem afgh-
önsk lögregla kallaði á vettvang,
skutu á ruplandi hermenn og
særðu tvo þeirra banvænum sárum
í húsinu.
Embættismaðurinn starfaði í
lagadeild innanríkisráðune.vtisins
og er úr hinum Rússaholla armi
stjórnarflokksins. Hann var ný-
kominn úr ferð sem hann fór til
Mekka með hópi pílagríma og
stjórnaði. Afghönskum „stiga-
mönnum" var kennt um árásina.
Margar kvartanir hafa borizt
um sovézka hermenn sem hræði
óbreytta borgara þegar útgöngu-
bann er í gildi, hafi í frammi
morð-hótanir og fremji rán. Stræt-
isvagnastjórar í Kabul efndu til
verkfalls fyrir einnu viku til að
mótmæla því að sovézkir hermenn
skutu strætisvagnastjóra og þrjá
farþega til bana.
Sovézkir hermenn sem eru á
verði á þjóðvegunum sem liggja
frá Kabul hafa stöðvað einkabíla
og flutningabíla og rænt pening-
um, úrum og öðrum verðmætum.
Við þessa nýju hættu bætist hætta
af skæruliðum sem stundum
heimta sinn „vegatoll".
Beirút. 20. nóvember. Al’.
FORSÆTISRÁÐIIERRA írans. Mohammed Ali Rajai. krafðist
þess í dag að Saddam Hussein íraksforseti yrði leiddur fyrir
alþjóðlegan dómstól fyrir stríðið gegn írökum og fengi dóma.
Rajai kvaðst hafa komið þessari
kröfu á framfæri við Olof Palme
sérlegan sendimann SÞ, „sem vildi
vita hvaða tillögur við hefðum fram
að færa til að binda endi á þetta
stríð“. Rajai kvaðst hafa sagt, að
málið snerist um árás Iraka, sem
yrði að taka alvarlega. Aður hefur
Rajai hvatt til þess, að Hussein
verði ákærður fyrir stríðsglæpi eins
og leiðtogar nazista í Núrnberg.
Palme ræddi áður við Abolhassan
Bani-Sadr forseta og byrjun frið-
artilrauna hans lofar ekki góðu.
„Við getum ekki hugleitt nokkrar
friðartillögur meðan íraskt herlið
er í Iran,“ sagði Bani-Sadr. Iranska
fréttastofan segir, að gíslamálið
hafi ekki verið rætt.
í Washington staðfesti Edmund
S. Muskie utanríkisráðherra, að
Bandaríkin hefðu samþykkt í
grundvallaratriðum skilyrði írana
fyrir frelsun gíslanna, en gaf í skyn
að ágreiningur ríkti um fram-
kvæmdina. Talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins varaði við „of miklum
æsingi".
Utanríkisráðherra Kúbu, Isidoro
Malmierca, er einnig í Teheran í
friðarferð, fyrir hönd óháðra ríkja.
Hvorki íran né írak hafa hafnað
áætlun hans í fimm liðum, sem á að
geta leitt til viðræðna um vopnahlé.
íranir segja, að skothríð úr loft-
varnarbyssum hafi afstýrt loftárás
íraka á hina helgu borg Qom,
annarri meintu tilrauninni til
þessa. Mannfall í liði beggja í sex
daga bardögum við Abadan, Sus-
angerd og Mehran er sagt komið
yfir 2.200. íranar segjast hafa náð
nokkrum hæðum við Mehran, Sar-
E-Pol-E-Zahab og Gilan Gharb á
norðurvígstöðvunum.
Upplýsingaráðherra Omans sagði
í dag, að landið hefði „full yfirráð
yfir Hormuz-sundi og mundi ekki
leyfa lokun þess. Hann sagði, að
varnir sundsins væru sama og
varnir Omans.
Olof Palme (til hægri) ræðir við forsætisráðherra írans. Ali Rajai (til vinstri). Hinir mennirnir á myndinni
eru ekki nafngreindir.