Morgunblaðið - 21.11.1980, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 21.11.1980, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980 mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmirr^c- f)*9mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmammmmi^mmmmmmmmm Engin ráðskonulaun eftir 45 ára sambúð A lést hinn 19. október 1975. Hann var ókvæntur og barnlaus, en hafði verið í sambúð með konunni B í 45 ár er hann lést. Einu lögerfingjar hans voru fimm systkinabörn hans sem öll bjuggu í Noregi. B óskaði eftir uppskrift og virðingu eigna dán- arbúsins og reyndust eignirnar vera helmingur neðri hæðar íbúðarhúss, innbú og peninga- innistæður í bönkum. Innbúið var selt á opinberu uppboði, en helming íbúðarinnar keypti fóst- urdóttir þeirra A og B með samþykki skiptafundar. Hinn 25. janúar 1976 lést B, sambýliskona A. Einkaerfingi hennar var alsystir hennar C og óskaði hún eftir uppskrift eigna dánarbús B. Reyndust hreinar eignir dánarbúsins vera kr. 435.810.-. B virðist hafa litið svo á að eignir bús A hefðu verið sameign hennar og A, þar sem þau höfðu búið saman í 45 ár, og ætlað sér að hafa uppi kröfur um helming búsins, ef hún kæmist að sam- komulagi við erfingja A í Noregi, en annars ráðskonulauna. Hún lést síðan, en C hélt áfram kröfunni. Ekki var komist að samkomulagi við erfingja A í Noregi um að litið yrði á bú A sem félagsbú A og B, og hóf C þá málssókn á hendur erfingjum A. Var tryggingafræðingur fenginn til að reikna út ráðskonulaun B í þau 45 ár sem hún bjó með A. Kröfur og málsástæður Kröfur C voru þær aðallega að úrskurðað yrði að dánarbú A greiddi þá upphæð sem trygg- ingafræðingurinn hafði reiknað sem ráðskonulaun B, auk vaxta og málskostnaðar. Til vara var krafist annarrar lægri fjárhæð- ar ásamt vöxtum og málskostn- aði. Erfingjar A gerðu þær dóm- kröfur, að með öllu yrði hrundið kröfum sóknaraðila í málinu og Frá Hæstarétti Umsjón ELÍN PÁLSDÓTTIR að honum yrði gert að greiða málskostnað. Kröfur C voru byggðar á þeim málsástæðum að B hefði haldið fram rétti sínum er hún lifði og ekki fallið frá honum er hún lést. Ávallt hefði það legið fyrir að krafa yrði gerð um ráðskonulaun ef eigi næðust samningar um skiptin við erfingja A, þar sem þetta séu einu úrræði sambýlis- konu til að eignast hlutdeild í eigum sambýlismanns við sam- búðarslit eða andlát, þegar eign- ir séu á hans nafni, svo sem venjulegt sé. Vitnað var í hæsta- réttardóm í 35. bindi bls. 843 þar sem kröfu sambýlismanns um að verða talinn sameigandi í eign- um sambýliskonu var hafnað, en honum dæmd laun úr búinu. Nefndir voru fleiri dómar í þessa átt. Þá taldi C að sambýlisform- ið yrði æ algengara og réttur konu gróflega fyrir borð borinn ef sambýlismaður fengi einn þá fjármuni sem þau bæði hefðu aflað á sambúðartímanum sem oft varaði árum saman. Sýknukrafa erfingja A var byggð á því að ekki hefði mynd- ast kröfuréttur sóknaraðila á hendur varnaraðila um ráðs- konulaun úr búi A. B hefði ekki gert neinn samning við A meðan bæði lifðu og heldur ekki gert reka að því að krefja dánarbú hans um ráðskonukaup áður en hún lést. Með öllu væri óvíst að hún hefði nokkurn tíma haft uppi slíkar kröfur, þótt hún hefði lifað. Af þessu leiddi að dánarbú B ætti ekki rétt til að fá úr hendi varnaraðila greiðslur, sem byggðu á rétti til ráðskonu- launa. I þeim hæstaréttardóm- um sem C hefði vitnað í, væri krefjandinn sjálfur upphafs- maður um málssókn og væri málið þegar af þeirri ástæðu ósambærilegt við úrlausnarefnið i þessu máli. réttar I niðurstöðu sinni sagði skiptaréttur m.a. að C hafi í fyrstu hugleitt að hafa uppi kröfur á grundvelli sameignar- sjónarmiða, en horfið frá því og hefði síðan krafið dánarbú A um ráöskonulaun. Kröfu þeirri hefðu varnaraðilar mótmælt, og yrði því úrskurðað um réttmæti hennar svo sem krafist hefði verið. Þar sem A og B hefðu ekki gengið í hjúskap, giltu eigi um fjármál þeirra lög nr. 20/1923 um réttindi og skyldur hjóna né hefði B öðlast lögerfðarétt eftir A samkvæmt lögum 8/1962. Ekki hefði fundist erfðaskrá í búinu. Það hefði ekki komið fram í málinu að B hefði verið ráðin til A í upphafi sem ráðskona og hefði B ekki þegið laun frá A. Samkvæmt því var talið ólíklegt að B hefði ætlast til sérstakra fjárgreiðslna er hún hóf sambúð með A, og virðist ekki hafa búið á heimilinu sem launþegi. Senni- lega hafi sambúð þeirra orðið B til fjárhagslegs hagræðis, og við uppskriftagerð eigna dánarbús B hafi komið í ljós að hún hafi haft sérgreindan fjárhag. Þau hafi ekki átt börn saman og hafi því heimilishaldið ekki verið svo þungt að A hafi þurft á heimilis- aðstoð að halda, enda yrði ekki séð, að heimilishaldið hafi verið léttara við sambýlið. Með tilliti til aðstæðna, að því leyti sem upplýst hafi verið í málinu, bæri að líta svo á að sóknaraðili ætti ekki rétt til fjárgreiðslna úr dánarbúi A fyrir vinnu B í þágu heimilisins. Málskostnaður var látinn niður falla. Niðurstaða Hæstaréttar I dómi Hæstaréttar sagði m.a. að þau B og A hefðu haft sameiginlegt heimilishald um 45 ára skeið og verið barnlaus. Uppskriftir á búum þeirra veittu vísbendingu um að þau hafi átt nokkrar eignir hvort um sig. Ekkert hafi komið fram um það í málinu, að B hafi litið á sig sem ráðskonu A. Hefði hún sjálf ekki haft, svo sýnilegt væri, uppi launakröfur á hendur honum eða búi hans vegna starfa á heimili þeirra. „Þegar þetta er virt, þykir bera að staðfesta hinn áfrýjaða úrskurð að niðurstöðu til.“ Málskostnaður fyrir Hæsta- rétti var látinn falla niður. Snjórinn er alltaf vinsæll hjá yngri kynslúðinni, enda býður hann upp á að notuð séu hvers kyns farartæki til að flýta för niður brekkurnar. Ljósm. A.S. Umhverfis jörð- ina á 45 mínútum Norræn kvikmyndahátíð í Los Angeles: Islenzku myndirnar fá góðar viðtökur Frá SÍKurjóni SÍKhvatssyni. fréttaritara Mbi. í Los Angeles. NÚ STENDIIR yfir skandinavísk kvikmyndahátíð í Banda- ríkjunum. liún liófst í New York í lok október og þaðan var haldið til I.os Angeles. Kvikmyndahátíðinni lýkur í Chieago í lok mánaðarins. Norðurlandaþjóðirnar standa saman að kvikmyndahatíðinni til kynningar á norranni kvikmynda- gerð. Norrænar myndir eru nánast óþekktar í Bandaríkjunum ef myndir Ingmar Bergmans eru undaskildar. Stöðugt í lífshættu HÖRPUUTGÁFAN á Akranesi hefur sent á markaðinn nýja bók eftir enska rithöfundinn Gavin Lyall og nefnist hún „Stiiðugt í lífshadtu". Þýðandi er Skúli Jensson. Þetta er sjounda bókin. sem kemur út á íslen/.ku eftir Lyall. í umsogn utgáfunnar um iiókina segir m.a.: í þessari nýju bók sinni fer Gavin I.yall á kostum. Hér er allt á fullri ferð. Æsispennandi og ógnvekjandi atburðir fylla síður bókarinnar. I ritdómum um bækur Lyalls segir m.a.: „Bækur eins spennandi og þessi eru sjaldgæfar." — The Daily TeleRraph „Miskunnarlaus og grípandi ... frábær ritleikni." tp4;6,— New York Times „Látið mig vita þegar út kemur skáldsaga sem er meira spennandi en þessi." — P.G. Woodhouse Bókin er 203 bls. Hún er prentuð í Prentverki Akraness hf. og bundin í Bókfelli hf. Stöðugt i iífshoettu AÐ UNDANFÖRNU hafa bræðurn ir Ilalli og Laddi unnið að gerð nýrrar hljómplötu ásamt Tómasi Tómassyni og hefur hún hlotið nafnið Umhverfis jörðina á 45 mínútum. Eins og nafnið bendir til er þarna um ferðaplötu að ræða. Bræðurnir taka sér far með loftbelg og hyggjast fljúga umhverfis hnöttinn. Fyrsti viðkomustaðurinn er Færeyjar, þar sem Halli og Laddi þiggja skerpu- kjöt, tevatn og brauð af þarlendum. Síðan fljúga bræðurnir yfir til Kaupmannahafnar, þeir flækjast um Evrópu, koma við í Sovétríkjunum og enda loks í Japan. Þá eru hrakningarnir orðnir slíkir að þeir pakka saman loftbelgnum og taka Flugleiðaþotu beinustu leið heim. Allir textar á plötunni Umhverfis jörðina á 45 mínútum eru eftir Halla og Ladda. Einnig á Laddi tvö lög plötunnar — hin eru erlend. Hljóð- færaleikarar á plötunni voru Ásgeir Óskarsson trommuleikari, Þórður Árnason gítarleikari, Kristinn Svav- arsson, sem lék á saxófóna, Magnús Ingimarsson lék á píanó og harmón- ikku, nafni hans Kjartansson lék á sömu hljóðfæri að viðbættum trompett. Öðrum hljóðfærum ber Tómas Tómasson áhyrgð á. Hann stjórnaði einnig upptökum líkt og á flestum fyrri plötum Halla og Ladda og sá einnig um útsetningar. Umhverfis jörðina á 45 mínútum er gefin út af Hljómplötuútgáfunni hf. og er þriðja LP platan, sem út kemur á þessu ári. Fréttatilkynning Fulltrúar frá N’orðurlanda- þjóðunum komu til Bandaríkj- anna til að kynna og ræða stöðu kvikmyndagerðar. Þeirra á með- al eru Jorn Donner, forstöðu- maður sænsku kvikm.vndastofn- unarinnar, og Erik Borge frá norsku kvikmyndastofnuninni. Frá íslandi koma þeir Ágúst Guðmundsson, Hrafn Gunn- laugsson og Knútur Hallsson. Þeir kynna myndir Islands, Land og syni og Óðal feðranna. Boð til heiðurs hinum norrænu kvikmyndagerðarmönnum var haldið í húsakynnum banda- rísku kvikmyndaakademíunnar. Þar var frumsýnd nýjasta kvik- mynd Bergmans, „From the Life of the Marionette". Almennar sýningar hófust á föstudag með sýningu á Óðali feðranna. Þar var Hrafn Gunn- laugsson viðstaddur og var hann kynntur af íslenzka konsúlnum í Los Angeles, Höllu Linker. Auk þess að myndir þeirra Hrafns og Ágústs hafa verið sýndar, þá hafa þeir félagar haldið fyrir- lestra í helztu skólum borgar- innar. Þeir hafa fengið mjög góðar viðtökur og allir hafa lokið lofsorði á kvikmyndir þeirra. M.a. sagði hið þekkta tímarit Variety um mynd Ágústs Guðmundssonar, að hún lofaði góðu sem frumraun ungs leikstjóra og að kvikmyndun Sigurðar Sverris Pálssonar gerði land, sem virtist óaðlað- andi, heillandi og fallegt. Auk þess sagði blaðið, að leikur væri góður. Háskúlablað UCLA, LA Bruin, lauk lofsorði á Óðal feðranna og sagði, að hér væri á ferðinni myrul, sem ætti erindi í kvikmyndahús um allan heim. Ekki er vafa bundið, að hátíðin er kvikmyndagerð á Norður- löndum til framdráttar, þótt auðvitað sé ljóst, að það tekur lengri tíma en nokkrar vikur að kynna þessa listgrein á Norður- löndum hér vestra. Svölurnar selja jólakort SVÖLURNAR, félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja, er að hefja sölu jólakorta og rennur allur ágóði til líknarmála eins og verið hefur. Félagið er um þessar mundir að afhenda námsstyrki kennurum og öðrum leiðbeinendum vangefinna og málhaltra, samtals að upphæð 2,5 milljónir króna. Næsta við- fangsefni félagsins er að kaupa hjálpartæki fyrir fólk, sem er algerlega hreyfihamlað. Jólakort félagsins í ár eru með nokkuð öðru sniði en tíðkast hefur, gerð úr rauðum pappa, þríhrotin og lokast með innsigli félagsins. Er gert ráð fyrir að utanáskrift komi beint á pappann, þannig að umslög eru óþörf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.