Morgunblaðið - 21.11.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
15
Tékkóslóvakar
takmarka ferða-
lög til Póllands
Pra«, 20. nóv. — AP.
TÉKKÓSLÓVAKAR settu í daj? á
nýjar gjaldeyrishömlur, sem
miða að þvi að draga úr ferðalög-
um til Póllands, að því er heim-
ildir innan raða bankamanna
greindu frá.
Engin opinber tilkynning hafði
síðdegis verið gefin út, en þeir sem
spurðust fyrir um málið fengu þau
svör að gjaldeyrir fyrir ferðamenn
til Póllands fengist aðeins þriðja
hvern mánuð. Sams konar aðgerðir
munu hafa gengið í gildi í Póllandi
í dag í sama skyni. Austur-Þjóð-
verjar hafa bannað einstaklings-
ferðir Pólverja til landsins nema
viðkomandi hafi skriflegt heimboð
frá aðilum í Austur-Þýzkalandi.
Austur-Þjóðverjar og Tékkóslóvak-
ar hafa verið hvað harðskeyttastir
í gagnrýni sinni á þá framvindu
mála sem hefur orðið í verkalýðs-
Carter og
Schmidt
hittust
Washington, 20. nóv. — AP.
HELMUT Schmidt, kanzlari
Vestur-Þýzkalands hitti i dag
Jimmy Carter. Bandarikjaforseta
i Hvíta húsinu og var fundur
þeirra nokkru áður en Carter og
Ronald Reagan áttu siðan með sér
fund.
Carter og Schmidt stilltu sér upp
fyrir ljósmyndara í skrifstofu
Carters og hófu síðan viðræður, en
engin tilkynning hefur verið birt
um fundinn, þegar þetta er ritað.
Muskie, utanríkisráðherra og
Genscher, utanríkisráðherra
Vestur-Þýzkalands héldu tveggja
stunda fund með sér fyrr í dag.
málum í Póllandi eins og alkunna
er.
Þá segir í annarri frétt frá Prag
að Gustav Husak, forseti Tékkó-
slóvakíu hafi gefið námaverka-
mönnum, sem vinna skammt frá
pólsku landamærunum, fyrirheit
um að bæta lífskjör þeirra. Flokks-
málgagnið Rude Pravo skýrði frá
þessu í dag. En tekið er fram að
Husak hafi krafizt þess af verka-
mönnum að þeir sæju til þess að
framleiðslan ykist í sama híutfalli.
Veður
Akureyri -2 snjókoma
Amsterdam 14 skýjað
Aþena 18 skýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Berlín 5 skýjað
BrUssel 10 heiðskírt
Chicago 8 skýjað
Denpasar, Bali 32 skýjað
Dublin 15 rigning
Frankfurt 9 rigning
Faereyjar vantar
Genl 10 heiöskírt
Helsinkí -3 heiöskírt
Hong Kong 25 heiðskirt
Jerúsalem 21 skýjað
Jóhannesarborg 21 skýjaó
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Lae Palmas 22 alskýjað
Lissabon 15 skýjað
London 15 skýjað
Loa Angeles 24 heiðskírt
Madrid 16 sólskin
Malaga vantar
Mexicoborg 23 heíóskírt
Mallorca 19 heiðskirt
Míami 22 heiðskirt
New York 5 heiðskírt
Osló -1 snjókoma
Paría 13 sólskin
Reykjavík 2 skýjað
Perth 27 heiðríkt
Rómaborg 18 heiðrikt
Frá setningu ólympíuskákmótsins á Möltu i gærdag, f.v. Friðrik Ólafsson, forseti FIDE, Maria
Chiburdanidze, heimsmeistari kvenna i skák. og forsetar skáksambands Möltu. Simamynd AP.
Ólympíuskákmótið hófst á Möltu í gær:
ísland sigraði Luxemborg
í fyrstu umf erðinni 3 ¥2 — ¥2
Múltu. 20. nóvember, írá írétta-
ritara Mbl. Margeiri Péturssyni.
Ólympíuskákmótið á Möltu var
sett i dag og tefldi íslenzka
karlasveitin i fyrstu umferð við
Luxemborgara og úrslit urðu
þau, að Helgi ólafsson, Margeir
Pétursson og Jóhann Hjartarson
unnu sinar skákir. en Jón L.
Árnason gerði jafntefli.
Kvennasveitin tefldi við sveit
Bandaríkjanna, sem er mjög öflug.
Sigurlaug tapaði sinni skák, en
Áslaug og Ólöf eiga ennþá mögu-
leika á að ná jafntefli, en þeirra
skákir fóru í bið.
Allar aðstæður eru mjög bág-
bornar. Keppendum hefur verið
holað niður í íbúðir víðs vegar um
William Simon
Alexander Haig
Frank Sinatra
Reagan fer að skipa
í stöður um helgina
Washington 20. nóv. AP.
UM ÞESSA HELGI er búizt við að Ronald Reagan, kjörinn forseti
Bandarikjanna fari að skýra frá skipan í ýms meiriháttar
ráðherraembætti og önnur trúnaðarstörf er hann tekur við
embætti forseta. Heimildir AP-fréttastofunnar greindu frá því í
kvöld að William Casey verði að likindum yfirmaður CIA,
bandarísku leyniþjónustunnar. Þá muni Reagan hafa ágirnd á að
William French Smith. lögmaður hans, verði dómsmálaráðherra
og að William Simon muni hverfa aftur til gamals starfs og verða
fjármálaráðherra.
í fréttum segir að enn séu
deildar meiningar um embætti
utanríkisráðherra en harðlínu-
menn eru sagðir styðja Alexand-
er Haig, fyrrum hershöfðingja
og yfirmann Atlantshafsbanda-
lagsherja, en hófsamari aðilar í
búðum Reagans eru hlynntir því
að George Shultz fái embættið.
John Tower, öldungadeildar-
þingmaður frá Texas er enn
talinn líklegastur varnarmála-
ráðherra. Hann og Reagan hitt-
ust í dag, en ekkert var um
viðræður þeirra sagt.
í fréttum er og sagt að Jacob
Javits, fyrrv. öldungadeildar-
þingmaður frá New York muni
verða boðið að verða aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum ellegar sendiherra í
■Israel.
Loks er frá því greint að
skemmtikrafturinn Frank Sin-
atra muni stjórna veizlu þeirri
sem haldin verður eftir að Reag-
an hefur tekið við embætti. Mun
hann og setja saman dagskrá
með tónlist og dönsu'm. Sinatra
kvað sér með þessu sýndan
mikinn heiður og myndi hann
leggja sig allan fram.
Reagan hitti í dag Jimmy
Carter forseta í fyrsta skipti
síðan forsetakosningarnar fóru
fram. Hann átti einnig fund með
Edward Kennedy. Hann hefur
verið í Washington síðustu daga,
en býr sig undir að snúa aftur til
Kaliforníu um sinn.
borgina, töluvert langt frá skák-
staðnum, og í mörgum þeirra er
ekki rennandi vatn, svo eitthvað sé
nefnt. Sumar sveitir, sem fengið
hafa verstu íbúðirnar eru þegar
fluttar inn á hótel á eigin vegum,
t.d. ungverska sveitin, sem vann
mótið síðast. Hvað varðar íslenzku
sveitina þá höfum við þrjár þriggja
herbergja íbúðir, þannig að mjög
rúmt er um okkur, en þær eru mjög
illa þrifnar og ekki sérlega aðlað-
andi.
Öll þessi vandamál hafa mætt
mjög mikið á Friðriki Ólafssyni,
forseta FIDE, sem t.d. gekk á fund
ferðamálaráðherra Möltu í morgun
til að kvarta yfir hinum slælega
aðbúnaði keppenda.
Skákstaðurinn sjálfur er um 400
ára gamall spítali, sem nýlega var
gerður upp, og er sjálfur skáksalur-
inn ágætur. Hins vegar gengur allt
á afturfótunum á neðri hæðinni,
þar sem matsalur keppenda er.
Yfir 80 sveitir eru komnar til
leiks og verður það að teljast mjög
gott. Af sérfræðingum eru Rússar
og Ungverjar taldir' sigurstrang-
legastir, sérstaklega beinast augu
manna að Rússum, því t.d. keppir
Adorjan ekki að þessu sinni fyrir
Ungverja, en hann er eins og
kunnugt er einn þeirra alsterkasti
skákmaður. Rússarnir eru með
stigahæstu sveitina, en Ungvegar
fylgja þeim fast á eftir. íslenzka
sveitin er í tólfta sæti, sem er
sennilega það hæsta sem hún hefur
komist á móti sem þessu. Sem
dæmi um það hversu rússneska
sveitin er sterk má nefna að
Spassky og Petrosjan komust ekki í
hana, voru ekki taldir í nægjan-
legri æfingu, annars er sveitin
skipuð þeim Karpov, Polugavesky,
Tal, Geller, Balasef og Kasparov.
Mótinu verður síðan haldið áfram á
morgun.
Jarðskjálítar
í Himalaya
Nýju Dolhi 20. nóv. - AP.
ALLSNARPIR jarðskjálftar
urðu í konungsríkinu Bhutan i
Ilimalaya og nokkrum austur-
ríkjum Indlands. árla fimmtu-
dags.
Vitað er að nokkrir slösuðust í
Gangtok, höfuðborg Sikkims,
skammt frá Bhutan, en ekki er
talið að manntjón hafi orðið.
Verulegar skemmdir urðu á hús-
um á jarðskjálftasvæðinu. Jarð-
skjálftinn mældist 6,5 á Richter-
kvarða. Mikill ótti greip um sig,
þegar fyrsti kippurinn kom. Stóð
hann í 45 sekúndur. Fólk þusti
fáklætt út úr húsum sínum út á
götur Gangtok, sem er 600 km
norður af Kalkútta. Hafðist fólk
síðan við úti það sem eftir lifði
nætur.
Þetta gerðist 21. nóvember
1569 — Danski herforinginn Dani-
el Rantzau fellur við Varberg.
1806 — Napoleon Bonaparte gefur
út Berlínar-tilskipanirnar og lýsir
yfir hafnbanni á Bretlandi.
1818 — Ráðstefnunni í Aachen
lýkur.
1855 — Svíar ganga í bandalag
með Bretum, Frökkum og Tyrkjum
gegn Rússum.
1877 — Thomas A. Edison tilkynn-
ir að hann hafi fundið upp hljóð-
rita.
1918 — Uppgjöf þýzka herflotans
fyrir Bandamönnum.
1938 — Súdetahéruðin í Tékkósló-
vakíu innlimuð með valdi í þýzka
Ríkið.
1944 — Moskvu-ráðstefnunni lýk-
ur.
1955 — Setningarfundur Bagdad-
bandalagsins, síðar CENTO, í Bag-
dad.
1956 — Allsherjarþingið vítir Sov-
étríkin fyrir aðgerðir gegn Ung-
verjalandi.
1962 — Kínverjar samþykkja
vopnahlé á landamærunum að
Indlandi.
1967 — Miklar stúdentaóeirðir
brjótast út í Egyptalandi.
1975 — Stjórnirnar í Víetnam-
ríkjunum samþykkja sameiningu.
1976 — Sýrlenzki herinn lýkur við
að hernema Líbanon.
1977 3000 taldir af í felliþyl á
strönd Suðaustur-Indlands.
1979 — Múgur ræðst á sendiráð
Bandaríkjanna í Islamabad.
Afmæli. Carlo Fragoni, ítalskt
skáld (1692-1768) - Voltaire,
franskur heimspekingur (1694—
1778).
Andlát. 1682 Claude Lorrain, list-
málari — 1695 Henry Purcell,
tónskáld — 1811 Heinrich von
Kleist, skáld, framdi sjálfsmorð —
1916 Franz Josef Austurríkiskeis-
ari — 1942 J.B.M. Hertzog, her-
maður og stjórnmálaleiðtogi.
Innlent. 1823 f. síra Arnljótur
Ólafsson — 1836 d. Þorvaldur
Böðvarsson prófastur — 1878 f.
Guttormur J. Guttormsson skáld
— 1917 d. Tryggvi Gunnarsson
bankastjóri — 1931 Fyrsta leikrit-
ið flutt í ísl. útvarpinu — 1939
Brezkt herskip stöðvar „Esju“ —
1975 d. Gunnar Gunnarsson rithöf-
undur.
Orð dagsins. Ennþá hefur enginn
heimspekingur getað afborið tann-
pínu með jafnaðargeði — William
Shakespeare (1564—1616).