Morgunblaðið - 21.11.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980 5 Landsfundur Alþýðubandalagsins Lúðvik Jósepsson. fráfarandi formaóur AlþýðubandalaKsins. setur landsfundinn á Hótel Loftleiðum i gær. Fundarstjórar voru kosnir Sisurjón Pétursson, Reykjavik og Soffia GuÖmundsdóttir, Akureyri og fundarskrifarar Álfheiður Ingadóttir, Reykjavík, Torfi Sigtryggsson, Akureyri og Pétur Reinhartsson, Reykjavík. Ljósm. Mbl. Emilía. Fjárhagsáætlun Alþýðubandalagsins: 37,6 milljónir króna 1981 NIÐURSTÖÐUTÖLUR fjár- hansáætlunar Alþýðubandalags- ins fyrir árið 1981 eru 37,6 milljónir króna, sem er hækkun um tæpar 10 milljónir króna frá fjárhaKsáætlun yfirstandandi árs. í yfirliti yfir rekstrarkostnað Alþýðubandalagsins fyrstu 10 mánuði þessa árs, sem lagt var fram á landsfundi flokksins í gær, kemur fram, að af 27,8 milljóna króna áætluðum tekjum hafa 17,2 milljónir innheimzt, en gjöld sama tímabils eru 20 milljónir króna. Tekjur „frá þingfloicki Alþýðu- bandalagsins" eru þó meiri í októberlok, en áætlun gerði ráð fyrir, eða rétt röskar 9 milljónir króna, en voru áætlaðar fyrir allt árið 7,5 milljónir króna. Af áætl- uðum 10 milljóna króna skatti — tekjur frá þing- flokknum meiri en áætlun þessa árs gerir ráð fyrir Alþýðubandalagsfélaganna höfðu 2,5 milljónir verið greiddar í lok október, frá styrktarmannakerf- inu höfðu komið 4,3 milljónir af 7 áætluðum á árinu, tekjur af „laun- uðum trúnaðarstörfum" námu 891 þúsund krónum í októberlok, en eru áætlaðar 2,3 milljónir króna í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs. Þá eru í yfirlitinu „aðrar tekjur" upp á 420 þúsund krónur, en eru áætlaðar ein milljón í fjárhags- áætlun fyrir allt árið. Þeir gjaldaliðir, sem í október- lok eru komnir fram úr fjárhags- áætluninni, eru húsnæðiskostnað- ur, sem þá er orðinn 1.425 milljón- ir króna, en er í fjárhagsáætlun- inni 1.275 milljónir króna fyrir allt árið, og almennur skrifstofu- kostnaður, sem er orðinn 411 þúsund krónur, eða 111 þúsund krónur umfram fjárhagsáætlun. Af gjöldum í fjárhagsáætlunum eru laun langstærsti liðurinn. Þau eru 13,6 milljónir króna af 27,8 milljónum þessa árs og 22 milljón- ir af 37,6 milljónum á fjárhags- áætlun næsta árs. Tekjuáætlun næsta árs hljóðar upp á 12,5 milljónir í skatta Alþýðubanda- lagsfélaganna, 8 milljónir frá styrktarmannakerfinu, 3,5 millj- ónir af launuðum trúnaðarstörf- um, 13 milljónir frá þingflokkin- um og 600 þúsund krónur eru „aðrar tekjur". „Sjálfstæði frá Flug- leiðum okkar takmark“ „VIÐ sjáum í raun og veru ekkert athugavert við það. þótt aðrir aðilar komi inn í myndina." sagði Halldór Sigurðsson. sölustjóri Arnarflugs. er Mbl. innti hann álits á þeirri hugmynd, sem fram kom í grein í Mbl. í gærdag, að flugmenn Flugleiða i Félagi ís- lenzkra atvinnuflugmanna. hygð- ust bjóða í hlutabréf Flugleiða í Arnarflugi á móti starfsmanna- félagi Arnarflugs ef til þess kæmi, að Flugleiðir seldu þau. „Það sem við leggjum áherzlu á, er að verða sjálfstæðir og óháðir Flugleiðum, en það er eina leiðin til þess að rekstrargrundvöllur félagsins verði tryggður. Við höf- um engan áhuga á því, að Arnar- flug hverfi hreinlega inn í Flug- leiðir, sem myndi þýða það, að allt starfsfólk Arnarflugs myndi missa atvinnu sína,“ sagði Hall- dór. Þá kom það fram í samtali við Halldór, að áður en Flugleiðir eignuðust meirihlutaaðild í Arn- arflugi, hafði Arnarflug um 60% af öllu leiguflugi fyrir íslenzku ferðaskrifstofurnar. — „í dag er allt leiguflug fyrir ferðaskrifstof- urnar á hendi Flugleiða, enda Farmanna- og fískimannasambandið: F ormannaráðstef na haldin um FARMANNA- og fiskimanna- samhandið efnir um helgina til formannaráðstefnu. þar sem til umfjollunar verður fiskveiði- stefna næsta árs og launakjör fiski- og farmanna, að sögn Ing- ólfs Stefánssonar, hjá Farmanna- og fiskimannasambandinu. Það kom fram hjá Ingólfi, að sambandið hefði í fyrradag tekið við kröfugerð Landssambands ís- helgina lenzkra útvegsmanna, þar sem m.a. er farið fram á skerðingu skiptaprósentu til handa sjómönn- um um 1%, auk ýmissa krafna um aðrar stóvægilegar breytingar á samningum. Ingólfur kvaðst hins vegar ekki geta farið nánar út í þessar kröfur þar sem enn hefði ekki verið fjallað ítarlega um þær. Það yrði hins vegar gert á næstu dögum. sömdu þeir um það við flugmenn sína á sínum tíma, að þeir sætu einir að öllu leiguflugi," sagði Halldór ennfremur. Fólk hættir að koma út ÁKVEÐIÐ hefur verið að hætta útgáfu á vikuhlaðinu Fólk frá 19. nóvember. Meginástæðan er sú að blaðið hefur ekki mætt þeim arð- semiskröfum. sem Frjálst framtak gerir til tímarita sinna. en auk þess reyndust ýmis vandkvæði á því. að gefa út vikublað i sambýli við sérritin. Þó að ekki hafi orðið tap á útgáfu Fólks, svo nokkru nemi. er ekki séð að hagnaður geti orðið í náinni framtíð. með núverandi út- gáfuformi. segir í frétt frá Frjálsu framtaki. Þá segir ennfremur: Fólk kom fyrst út í desemher 1979 og hefur komið út vikulega síðan, nema hálfsmánaðarlega í júlí, þegar sumarleyfi stóðu sem hæst. Ritstjóri Fólks var frá byrjun Óli Tynes og starfar hann áfram hjá Frjálsu framtaki, sem framkvæmdaritstjóri allra sérritanna. Á sínum tíma var ákveðið að ráðast í útgáfu Fólks, þar sem ýmsir framleiðsluþættir voru ónýttir, auk þess sem talið var að rúm væri fyrir vikulegt skemmtiblað með mörgunt myndum. Utbreiðsla blaðsins bendir til að svo sé, þó að ekki henti Frjálsu framtaki að gera átak, sem þarf til að blaðið verði arðvænlegt, eins og nú standa sakir. DÖMUALULLARDRAGT Satínfóörað pils. Litir: drapp, grátt, Ijósgrátt, camel, blátt, brúnt. Stærðir: 36-42. Hönnun: Margrét Sigurðardóttir. Verð 88.900 g.kr. 889.- nýkr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.