Morgunblaðið - 21.11.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
19
LjÓNmynd Mbl. Gudfinnur.
Sirry opnar í Grindavík
Sirry, ný verslun, var opnuð í Grindavík í sl. viku, en eÍKendur
hennar eru Sigriður Wrðardóttir ok Björgvin Vilmundarson. Á
boðstólum í hinni nýju verzlun verða aðallega Kjafavörur,
húsgögn, leikföng og ritföng.
A kassa-
bíl fyrir
Hvalfjörð
ÚTIVISTARFÉLAGIÐ Flækjufót-
ur á Akranesi. sem starfandi er í
/Eskulýðsheimilinu Akranesi.
hyggst fara fyrir Hvalfjörð á
kassahíl í dag.
Áætlað er að ferðin taki um 20 til
25 tíma og ef allt gengur að óskum
verður þarna sett glæsilegt ís-
landsmet, ef ekki heimsmet í
kassabílaakstri. Þetta er
fjáröflunarleið fyrir félagið sem
hyggst fara öræfaferð næsta
sumar. Við höfum látið áheitamiða
ganga og undirtektir hafa verið
mjög góðar. Skátafélagið á Akra-
nesi á kassabílinn og hefur lánað
félaginu hann endurgjaldslaust.
Fréttatilkynning
Næg mjólk þó fram-
leiðslan hafi minnkað
FRAMLEIÐSLURÁÐ landhúnaö-
arins hefur látið kanna hver sé
þörf fyrir mjólk og rjóma á
markaði í Reykjavík til loka
desemhermánaðar og hefur kom-
ið i Ijós að neyslumjólkurþörfinni
verður fullnægt á framleiðslu-
svæði Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík á þessum tíma. en hins
vegar þurfi að flytja 50 til 60
þúsund lítra af rjóma i desember
að norðan til Reykjavíkur.
í frétt frá Framleiðsluráði seg-
ir, að nokkurs misskilnings hafi
gætt í umræðum að undanförnu
um minnkandi mjólkurfram-
leiðslu og hugsanlegan skort á
mjólkurvörum í Reykjavík og því
sé nú upplýst um könnun þessa.
Segir í fréttinni, að rjóminn, sem
flytja þarf að norðan í desember,
sé svipað magn og hefur verið
flutt til Reykjavíkur að meðaltali
síðustu 12 ár á þessum árstíma.
Undirritað var í gær samkomulag
milli Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík og mjólkurbúanna
norðanlands um þessi viðskipti og
segir að unnið sé að góðu skipulagi
flutninganna og að miðað við
eðlilegt veðurlag og samgöngur
Höín, 15. nóvembor 1980.
í DAG var lokið við að tengja heitt
vatn við fyrsta áfanga hitaveit-
verði öllum þörfum syðra full-
nægt. Segir að lokum að ekkert
bendi til þess, að ekki verði unnt
að sinna þörfum markaðarins í
vetur þótt mjólkurframleiðslan
hafi minnkað, sú minnkun muni
fyrst og fremst koma niður á
smjör- og ostagerð og leiði til
minni útflutnings osta.
unnar á Höfn og nú er verið að
prófa kerfið. í þessum áfanga eru
47 hús og nokkur þeirra eru stórir
notendur. svo sem fiskvinnslu-
stöðvar, verzlun og verkstæði.
Nokkur hús hafa þegar verið
tengd og reyndist þar g«»ður hiti.
Eftir að heita vatnið hefur verið
lagt f götunar. geta húseigendur
sjálfir séð um að tengja hús sin.
Annar áfangi verður væntanlega
tilbúinn til tengingar eftir hálfan
mánuð, en þar er um að ræða um
100 hús. Einnig verður þriðji
áfangi þá tilbúinn að hluta.
Það er Hafnarhreppur, sem á og
rekur dreifikerfið, en það hefur
verið í byggingu á þessu ári.
Fjarhitun hf. hefur annazt veituna.
Fyrsti áfangi var unninn af Bygg-
ingafélaginu hf. á Höfn, en annar
og þriðji áfangi af Vélverki sf.,
Höfn.
Rafmagnsveitur Ríkisins eiga og
reka kyndistöðina, en hún er í
tengslum við dieselrafstöð hér og
notar varma frá kælivatni og
afgási, einnig er svartolíuketill sem
varaaflgjafi.
Þegar Höfn tengist raforkukerfi
landsins, munu dieselvélarnar
þagna, en þá verður rafskautsketill
settur upp í kyndistöðinni til
orkuframleiðslu.
— Gunnar.
Stykkishólmur:
Minni skemmdir
en á horfðist
SAGT VAR frá því í Mbl. í gærdag,
að kaffistofa í Skelfiskvinnslu Sig-
urðar Ágústssonar í Stykkishólmi
hefði skemmzt mikið þegar bjarg
úr grunni viðbótarbyggingar
sjúkrahúss Stykkishólms sprakk
inn í hana. Þetta er ekki alls kostar
rétt, því við frekari athugun kom í
ljós, að skemmdirnar voru mjög
óverulegar. Fréttaritari Mbl. sagði
að vanir sprengjumenn hefðu verið
þarna við vinnu og hefði verið um
algert óhapp að ræða.
Siglufjörður:
Gúmbjörgunarbáti
stolið úr trillu
SÍKlufirói. 20. nóvember.
NORÐ-AUSTAN stórhrið hefur
geisað hér i allan dag, þannig
að vart sér út úr augum, en það
er bara gott hljóð i fólki.
Einn togara okkar, Sigluvíkin,
landaði í dag 120 tonnum af
góðum þorski.
Hér komu tvö flutningaskip í
vikunni til að taka fiskimjöl,
ísnesið, sem tók mjöl fyrir Júgó-
slavíumarkað og Svanurinn, sem
tók mjöl fyrir Englandsmarkað.
Þá má geta þess, að fyrir
skömmu var stolið gúmbjörgun-
arbáti úr trillu hér í höfninni, en
verðmæti slíks báts er um ein
milljón króna.
— Fréttaritari
Fimm hús í bygg-
ingu á Hofsósi
Bæ. Ilöfóaströnd. 20. nóvember.
ÞÓ NÚ sé orðið vetrarlegt hér, þá
er þó ekki mikill snjór, og i
Dölum og Austur-FIjótum er
jarðlaust til beitar. Frá 25. októ-
ber til 11. nóvember sl. var
einmunatíð hér, sannkallað
sumarveður. Þá voru byggð hús
og margt lagfært til væntanlegr-
ar vetrarkomu. Víðast hvar er
sauðfé þó á húsi, en á nokkrum
stöðum liggur það við opnar dyr
á fjárhúsum.
Mjólkurframleiðsla er talin i
lágmarki ennþá, en kjarnfóður-
gjöf hefur þó aukizt.
Lionsmenn hafa haldið sitt ár-
lega konukvöld hérna á Hofsósi,
ennfremur hafa þeir skemmt öldr-
uðu fólki og var sú skemmtun
mjög vel sótt þrátt fyrir óhag-
stætt v'eður. Þess má geta í
sambandi við skemmtun eldra
fólksins, að þar var tekin mynd af
Sigurði Þorvaldssyni frá Sleitu-
stöðum, sem nú er 97 ár^ gamall
og léttur í spori og beinn í baki.
Með honum á myndinni voru fimm
fyrrverandi nemendur hans frá
barna- og unglingaskóla, allt fólk
komið yfir sjötugt.
Fimm hús eru í byggingu á
Hofsósi og var góðviðriskaflinn í
október og nóvember sannkallaður
happatími fyrir húsbyggjendur.
Þann 16. nóvember sl. var haldið
hér á Hofsósi mikið afmælishóf,
er Bergur Baldvinsson varð 60 ára.
Hann hefur í mörg ár starfað við
útkeyrslu á olíu, sérstakur greiða-
maður og hjálpfús við alla. Fjöl-
menni heimsótti hann með árnað-
aróskum og gjöfum.
Aðeins einn bátur er nú gerður
út héðan frá Hofsósi og er hann á
línuveiðum um þessar mundir.
Hann hefur aflað mjög sæmilega
þótt langsótt sé.
Lokið við tengingu
fyrsta áfanga hita-
veitunnar á Höfn