Morgunblaðið - 21.11.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
3
„ÞRÁTT fyrir það sem áunnist
heíur á stuttum valdatíma rikis-
stjórnarinnar ríkir nú nokkur
óvissa um stöðuna i islenskum
stjórnmálum. Rikisstjórnin hefur
nauman þinKmeirihluta: fram-
undan er veruleg verðhólxu-
skriða sem óhjákvæmileKt er að
stemma stigu við. Innan rikis-
stjórnarinnar hafa komið fram
krófur um einhliða skerðinKU
verðbóta á Iaun.“ ÞannÍK er að
orði komist í dröKum að stjórn-
málaályktun landsfundar Al-
þýðubandalaKsins, sem hófst i
gær.
I drögunum segir, að Alþýðu-
bandalagið hafni algjörlega
stefnu, sem miðar að einhliða
skerðingu verðbóta. Það hafni enn
sem fyrr kauplækkunarleiðinni,
en hvetji til skipulegrar sóknar til
að treysta undirstöður íslensks
efnahagslífs og tryggja mann-
sæmandi lífskjör fyrir almenning
í landinu. Það sé unnt um leið og
sigrast sé á óðaverðbólgunni en til
þess þurfi „vilja og samstöðu
róttækra og framsækinna afla í
þjóðfélaginu, ekki síst í röðum
launafólks". Alþýðubandalagið
telji nauðsynlegt, að gripið verði
til víðtækra efnahagsaðgerða. „í
þeim efnum ber að leggja höfuð-
áherslu á að haft verði strangt
taumhald á verðlagsþróuninni í
landinu, ýmist með beinum stöðv-
unaraðgerðum eða mjög nákvæm-
um eftirlitsaðgerðum. I þeim efn-
um leggur Alþýðubandalagið al-
veg sérstaka áherslu á nauðsyn
þess að fylgst verði vandlega með
þróun innflutningsverðlags," segir
í drögunum.
Þar segir einnig, að vonir standi
til þess „að með nýgerðum kjara-
samningum hafi að mestu tekist
að vinna upp þá kjaraskerðingu,
sem orðin er síðan Ólafslög voru
sett“. Þar eru vaxtahækkanir og
„takmarkalaust innflutnings-
frelsi" nefnd sem dæmi um efna-
hagsúrræði „sem hafa gert illt.
verra".
í drögunum að stjórnmálaálykt-
un segir: „Komið hefur verið í veg
fyrir umsvif af völdum hersetunn-
ar og aukna erlenda stóriðju."
Fyrir fundinum liggja alls kyns
gögn um „utanríkis- og þjóðfrels-
ismál“ og segir í einu þeirra, að
nauðsynlegt sé að hefja einskonar
hræðsluáróður gegn herstöðinni
og taka upp „gjörbreyttar bar-
áttuaðferðir" herstöðvaandstæð-
inga.
Sáttatillaga
um helgina?
ÞESS ER vænzt. að sáttanefnd
ríkisins í kjaradeilu hankanna og
Sambands islenzkra banka-
manna leggi fram sáttatillögu
um helgina. Verður þá að fara
fram allsherjaratkva>ðaKreiðsla
meðal bankamanna um tilloKuna.
Samkvæmt lögum um kjara-
samning bankamanna hefur
sáttasemjari ríkisins heimild til
þess að fresta boðuðu verkfalli
bankamanna hinn 3. desember
næstkomandi til 18. desember.
Verður þá að leggja fram sáttatil-
lögu. Tillagan er felld, ef 50%
bankamanna eða fleiri hafna
henni, en skoðast samþykkt ef
kjörsókn nær ekki 50% eða ef
fleiri hafna henni.
Bandariski flugherinn hefur birt þessa Ijósmynd af tveimur Phantom-þotum frá KeflavíkurfluKvelli
ásamt sovézkri könnunarflugvél af Körðinni TU-95 („Bear“) nálæKt íslandi. P'IuKherinn birti cinnÍK
nærmyndir af sovézkri skyttu í skotturni sínum aftast í fluKvélinni. FluKherinn seKÍr að myndirnar
hafi verið teknar í septembrr sl. af R. Diaz yfirliðþjálfa.
Veruleg verðbólguskriða framundan:
Kraf a um einhliða skerðingu
verðbóta í rikisstjórninni
— úr drögum að ályktun Alþýðubandalagsins
Rjúpan slapp
en rebbi lá
(íeitaskarði. A-llunavatns-
sýslu. 20. nóvcmber.
SVO bar við fyrir skömmu
siðan. að ungur maður hér í
sýslu axlaði hyssu sína einn
morgun ok hugðist skjóta sér
rjúpur í jólamatinn. Hóf hann
KönKii ok Kekk fyrst upp svo-
nefndan Sauöadal. þar til hann
sá rjúpnahóp cinn álitleKan.
Þarna taldi maðurinn álitlega
veiði og skreið sem hann mátti
þar til hann komst í viðunandi
færi. Lagði hann nú byssu sína
til miðs og skaut. Við skotið kom
styggð á rjúpurnar og flugu þær
burtu allar sem ein og voru úr
sögunni.
Af veiðimanninum er það að
segja, að hann vildi kanna hvert
skotið hefði farið og gerði hann
því vettvangsrannsókn. Við
rannsóknina kom í ljós, að skotið
hafði drepið ref, sem virtist hafa
veriö þarna í svipuðum erinda-
gjörðum og veiðimaðurinn. Vissi
hvorugur af öðrum. Þykir full-
víst, að veslings refurinn hafi
fallið fyrir voðaskoti. Það fylgir
og sögunni, að eftir þetta slysa-
skot, hafi veiðimaðurinn gert sér
ferð niður að Svínavatni og þar
hafi honum tekizt að skjóta gæs,
sem verða mun jólagæs á hans
heimili í ár.
— Ágúst.
SEJJUM UPP
HATIÐAR
SVIPINN
Menntamálaráðherra
Svíþjóðar í heimsókn
Menntamálaráðherra Svíþjóð-
ar. Jan-Erik Wikström, og kona
hans, frú Inger Wikström, koma
i heimsókn til íslands sunnudag-
inn 23. nóvember nk. og dveljast
hér til þriðjudags.
Þau munu hitta forseta íslands
að máli, heimsækja Háskóla ís-
lands, Landsbókasafn, Þjóðskjala-
safn, Þjóðminjasafn, Listasafn ís-
lands og Stofnun Árna Magnús-
sonar.
Frú Inger Wikström heldur
píánótónleika í Norræna húsinu á
mánudagskvöld. Frú Wikström er
þekktur píanóleikari og hefur
haldið hljómleika víða um lönd.
Jan-Erik Wikström var bók-
menntaráðunautur og síðar for-
stjóri Gummessons forlagsins ár-
in 1961—1976, en hefur verið
menntamálaráðherra síðan 1976;
þingmaður 1970—1973 og síðan
1975. Hann er fyrsti varaformaður
í flokki sínum, Folkpartiet.
Rannsóknarlögregla rikisins:
Takmörkun á ferða-
frelsi „sölumanna44
Rannsóknarlögregla ríkis-
ins hefur óskað eftir því, að
ferðafrelsi þriggja manna, er
tengjast umfangsmiklu fjár-
málamisferli, verði takmark-
að fram til fyrsta apríl næst-
komandi.
Hér er um að ræða
„sölumannamálið" svo-
nefnda, sem nú er fulirann-
sakað hjá Rannsóknarlög-
reglunni, en það var sent
ríkissaksóknara hinn 6. þessa
mánaðar.
Verði Sakadómur Reykjavíkur
við tilmælum Rannsóknarlögreglu
ríkisins um úrskurð er hefti ferða-
frelsi mannanna þriggja, munu
þeir ekki hafa leyfi til að fara af
landi brott á umræddu tímabili.
Innanlands eru þeir á hinn bóginn
frjálsir ferða sinna.
Málið er mjög umfangsmikið, og
fylla málsskjölin sex stórar möpp-
ur auk fylgiskjala.
í tæka tíó
Nýr litur á stofuvegg, eóa skálann, seturnýjan svip á heimilió
EFNI-Hin viðurkenda VITRETEX plastmálning.
Glært lakk á tréverkió frískar það upp
og viðarlitaö lakk gef ur pví nyjan svip.
EFNt cuprinol GOODWOOD’polYurethanelakk.
Éíl
*GOODWOOD: Glæsileg nýjung frá Cuprinol ætluð á húsgögn,
gluggapósta, hvers konar annað tréverk og þilplötur. 3 áferðir í glæru:
glansandi, hálfmatt og matt. 6 viðarlitir, sem viðarmynstrið
sést í gegnum. Dósastærð: allt frá '/* lítra.
GOODWOOD SPECIAL: Grjóthörð nýjung frá Cuprinol.
Sérstaklega ætlað á parkett og korkgólf.
) S/ippfé/agið Má/ningarverksmiðja Sími 33433