Morgunblaðið - 21.11.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
23
Jarðfræði — og jökla-
rannsóknir í vísinda-
tímaritinu Jökli
NÝLEGA eru út komnir tveir
árxangar af timaritinu Jökull,
sem nú er gefið út sameÍKÍnleKa
af Jöklarannsóknafélaginu ok
JarófræóafélaKÍnu. betta eru 28.
oíí 29. árgangur tímaritsins,
fyrir árin 1978 og 1979. FélöRÍn
hafa átt í fjárhagslegum erfið-
leikum við að koma þessu tíma-
riti út síðustu árin, en úr rættist í
fyrra vegna skilnings stjórn-
valda á nauðsyn þess, að í þessu
gósenlandi jarðvísinda sé gefið út
visindalegt tímarit i jarðfræði,
sem Kjaldgengt sé á alþjóðavett-
vangi, enda kostnaður við það
ekki mikill miðað við það fjár-
magn. sem raunverulega er veitt
hér til jarðfræðirannsókna ár
hvert.
Jökull er að miklu leyti á
erlendum málum, aðallega ensku,
en útdrættir úr greinunum á
íslensku og nokkuð er alltaf af
greinum alþýðlegs efnis á ís-
lensku.
• Hörfun jökla
Aðalritstjóri 28. árgangs var
Helgi Björnsson, jöklafræðingur.
Meðal efnis í þeim árgangi er
ritgerð eftir Skúla Víkingsson,
jarðfræðing, um hörfun jökuls
síðasta jökulskeiðs af suðurhluta
Skagafjarðarhéraðs og ritgerð eft-
ir konu hans, Ingu Kaldal jarð-
fræðing um hörfun jökulsins af
hálendinu norður af Hofsjökli.
Einnig má nefna grein eftir Kjart-
an Thors jarðfræðing um botn-
gerð í sunnanverðum Faxaflóa og
grein eftir tvo erlenda jarðvís-
indamenn, G. Schönharting og K.
Strand Pedersen, um segulmæl-
ingar á gabbrói í Geitafelli í
Hornafirði.
sigurjón Rist birtir að vanda
töflu yfir lengdarbreytingar ís-
lenskra jökla, en hann hefur haft
yfirumsjón með þeim síðan Jón
Eyþórsson leið. Helgi Björnsson
birtir fróðlega töflu um flatar-
málsrýrnun íslenskra jökla síðan
um 1940 samkvæmt mælingum á
gervitunglamyndum, en mæling-
arnar framkvæmdi Richard S.
Williams, amerískur sérfræðingur
í fjarkönnun, sem sérstaklega
hefur lagt sig eftir könnun á
íslandi.
Magnús Hallgrímsson verk-
fræðingur sér um íslenskt efni í
Jökli og er í þessu hefti m.a.
frásögn af skíðaferð suður yfir
Sprengisand veturinn 1925, eftir
L.H. Múller, frásögur af jöklaferð-
um og varúðarreglur vegna snjó-
flóða.
• Nýjungar um jarð-
íræði Islands
Árgangurinn 1979 hefur nokkra
sérstöðu. Svo er mál með vexti, að
sumarið 1980 var haldið í París
alþjóðaþing jarðfræðinga, sem
kemur saman fjórða hvert ár. I
sambandi við þetta þing ákváðu
Frakkar að efna til fræðsluferða
til allra landa í Vestur-Evrópu.
Var farið fram á það við íslenska
jarðvísindamenn, að þeir skipu-
legðu og stjórnuðu tveimur ferð-
um um Island og semdu að auki
yfirlitsrit um jarðfræði landsins,
er tillit tæki til allra nýjustu
rannsókna á því sviði, en þekking
á jarðfræði Islands hefur stórauk-
ist og skoðanir á myndun þess
gjörbreytst síðan hliðstætt yfirlit
var tekið saman í sambandi við
alþjóðaþing jarðfræðinga í Kaup-
mannahöfn 1960. Varð úr, að þetta
nýja yfirlitsrit yrði árgangur Jök-
uls, prentaður í talsvert stærra
upplagi en venjulega, og að Frakk-
arnir fengju filmu af ritinu í
offset til sinna afnota. Ritstjóri
þessa árgangs Jökuls var Kristján
Sæmundsson jarðfræðingur. Full-
yrða má, að þetta rit sé besta
yfirlitsritið, sem nú er völ á um
nýjungar í jarðfræði íslands. Það
er samið af mörgum úr hópi
færustu jarðvísindamanna lands-
ins, og borist hafa fregnir af því,
að það hafi þótt bera af flestum
þeim yfirlitsritum um önnur lönd
Vestur-Evrópu, sem fram voru
lögð á þinginu í París. Ritið er á
ensku og sumt af efninu e.t.v.
nokkuð strembið fyrir leikmenn,
en í Jökli eru allítarlegir útdrættir
úr hverri grein á íslensku, sem
auðskildir eiga að vera áhugafólki
og er þegar farið að nota þessa
útdrætti við jarðfræðikennslu í
menntaskólum.
Eftirfarandi skrá yfir greinar
og höfunda þessa heftis gefur
hugmynd um efni þess:
Leó Kristjánsson: Landgrunnið
kringum ísland. Kristján Sæ-
mundsson: Yfirlit um jarðfræði
Islands. Sigurður Þórarinsson og
Kristján Sæmundsson: Eldvirkni
síðan sögur hófust. Sigurður Þór-
arinsson: Gjóskutímatal og beit-
ing þess á íslandi. Páll Einarsson
og Sveinbjörn Björnsson: Jarð-
skjálftar á íslandi. Leifur A.
Símonarson: Um loftslagsbreyt-
ingar á íslandi. Ingvar Birgir
Friðleifsson: Jarðhiti á íslandi.
Sveinn Jakobsson: Um bergfræði
íslands. Helgi Björnsson: Jöklar á
íslandi.
Þetta sérhefti er hægt að kaupa
(eins og raunar aðra þá árganga
Jökuls, sem ekki eru uppseldir) í
Bókabúð Snæbjarnar í Hafnar-
stræti 4.
(Frótt frá stjórn
JoklarannsóknafólaKs tslands)
Ný bók frá Erni og Örlygi:
Kólumbus og sigurinn
á hinu ósigranlega
KÓLUMBUS og sigurinn á hinu
ósigranlega, nefnist nýútkomin
bók frá Bókaútgáfu Arnar og
Örlygs. Bók þessi er i bókaflokki
er fjallar um frömuði landafunda
og frömuði sögunnar. Ilafa áður
komið út sex bækur í þeim flokki
um þá Francis Drake, Living-
stone, Lewis og Clarke, kaptein
Scott, Magellan og Nelson. Bókin
um Kólumbus er eftir Felipe
Fernández Armesto, en ritstjóri
bókaflokksins er sir Vivian Fuchs,
og ritar hann inngang bókarinn-
ar.
I bókaforlagskynningu segir svo
um hina nýútkomnu bók:
Bókin um Kólumbus fjallar um
eitt mesta landkönnunarafrek sög-
unnar, og er í bókinni rakið hversu
Kólumbus leitaði bakhjarls kon-
unga við hirðir Portúgals og Spán-
ar, sagt frá siglingum hans, m.a. til
Islands, en hingað mun Kólumbus
hafa komið árið 1477. Greint er frá
fjórum siglingum hans yfir Atl-
antshafið og háskum þeim er
slíkum siglingum fylgdu. Einnig er
greint frá hversu andstaða manna
og skilningsleysi knúðu hann vit-
firringu nær og hvernig hann fann
létti i nýjum dáðum eða með því að
loka sig inni í hugarheimi dul-
hyggju og eigin þráhyggju.
Bókin um Kólumbus er prýdd
fjölda mynda, bæði litmynda og
svarthvítra, en kápumynd bókar-
innar er þekkt andlitsmynd af
Kólumbusi, eftir málverki sem er í
Uffizi listasafninu í Flórens.
Þýðing bókarinnar er eftir Krist-
ínu R. Thorlacius, en umsjón með
íslensku útgáfunni hafði Örnólfur
Thorlacius. Bókin er sett og filmu-
unnin í Prentstofu G. Benedikts-
sonar, en offsettprentun texta og
mynda er unnin hjá Fakenham
Press Limited, Fakenham, Norfolk.
Söngskólinn í Reykjavík
MIÐNÆTURSKEMMTUN
Söngskólans í Reykjavík
Hvað er svo glatt sem
„góðra vina fundur"
í Háskólabíói
í kvöld 21. 11. kl. 23.15
________SÍÐASTA SINN________
Einsöngvarar, píanóleikarar og Kór Söngskólans
í Reykjavík ásamt Hljómsveit Björns R. Einars-
sonar.
Sviösetning Sigríöur Þorvaldsdóttir.
Kynnir Guömundur Jónsson.
Miöasala í dag frá kl. 4 í Háskólabíói
PEYSOTQT1 tlRVAT J
•'MMOI
LAUGAVEGI 47 SÍM117575
6.154