Morgunblaðið - 21.11.1980, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
25
fclk í
fréttum
Eins og að
lenda í f angelsi
+ ÞETTA er afbrýðisami unnustinn,
Benno Bellenbaum, sem trúlofaður er
hinni fögru Gisellu Brum frá Vest-
ur-Berlín, sem krýnd var fegurðar-
drottning í „Ungfrú Alheimur" —
fegurðarsamkeppninni á dögunum.
— Næsta dag afsalaði hún sér
drottningartitlinum. Hafði sagt
blaðamönnum, að kaerastinn Benno,
sem er 52ja ára ljósmyndari og býr í
Hollywood, hefði mislíkað þetta til-
stand allt stórlega og orðið óham-
ingjusamur á þeirri sömu stundu, því
afsalaði hún sér titlinum. — Myndin
af Benno var tekin er hann ræddi við
blaðamenn á heimili sínu þar vestra
um þessa uppákomu. Þau hafa búið
þar saman í 6 mánuði og gifting sögð
á döfinni. Móðir Gisellu sem er 67
ára og býr í V-Berlín, hafði ekki
heldur verið ánægð með það að dóttir
hennar var kjörin fegurðardrottning.
— Og kærastinn Benno hafði sagt í
blaðasamtali að hér fylgdi böggull
vissulega skammrifi því á vissan hátt
mætti jafna því við fangelsisvist að
lenda í svona. Aldursmunurinn á
Gisellu hinni fögru og Benno ljós-
myndara er 33 ár, hún er 19 ára.
Mál Biönku
og Micks
+ ÞÁ HAFA lögfræðingar máls-
aðila í skilnaðarmáli þeirra
Biönku Jagger og rokkstjörn-
unnar Mick Jagger náð sam-
komulagi varðandi greiðslu fé-
bóta Micks til þessarar fyrrum
eiginkonu sinnar. Lögfræð-
ingarnir vildu þó ekki gefa
upplýsingar um hve háa fjárhæð
er að ræða. Kunnugir fullyrtu að
Bianka þyrfti ekki að hafa
áhyggjur af peningum, hún
myndi verða vel efnuð kóna.
Þessi mynd er tekin af henni í
London fyrir nokkrum dögum.
— Og myndin af rokkkónginum,
sem er búinn að koma sér upp
nýju skeggi, var tekin vestur í
New York fyrir skömmu. Mála-
rekstur þessi hefur nú staðið
nær eitt ár, en hann hófst
skömmu eftir skilnað þeirra. —
Dómstóll í London dæmdi
Biönku nokkru eftir skilnaðinn í
bætur 670.000 sterlingspund,
sem er nú í ísl. krónum nærri
einum milljarði. En þegar frá
leið taldi hún þessa upphæð ekki
vera í eðlilegu hlufalli við tekjur
rokkkóngsins. Gerði hún þá aðra
aðför að bankainnistæðum hins
fokríka Mick og hækkaði kröfur
sínar þá allverulega. — Það eru
þessar fjárkröfur, sem nú hefur
tekist að sættast á.
Bianka og Mick eiga níu ára
gamla dóttur, Jade að nafni.
Helmut og hans menn
+ ÞESSI fréttamynd var tekin er Helmut Schmidt kanslari V-Þýskalands, gekk á fund forseta landsins,
Karls Carstens, til að kynna fyrir honum hið nýja ráðuneyti sitt. — Forsetinn er fremst til vinstri (að
sjálfsögðu) — en Schmidt kanslari er í hópnum, lengst til vinstri. Eina konan í ríkisstjórninni Antje
Huber er æskulýðsmálaráðherra.
Falleg mæðgin
í Amsterdam
+ ÞÓ HÉR sé fyrst og fremst
fjallað um fólk 1 fréttum slæðast þó
stundum með myndir úr heimi
dýranna og jafnvel stundum af
fuglum. sem eru í fréttum. Þessi
AP-fréttamynd var tekin fyrir
skömmu í dýragarðinum í Amster-
dam. — Hér eru að leik tigris-
mseðgin af svonefndu Síberíu-tigris-
dýrakyni. Hún er kölluð Kristin, sú
gamla. sem tekur soninn hans taki
en hann er 6 vikna gamall.
Gæslumennirnir i dýragarðinum
hafa ekki ákveðið hvað hann skuli
kallaður.
HLJÓMTÆKJADEILD
tsLjð KARNABÆR
y*®*" LAUGAVEGI 66 SÍMI 25
25999
Utsolustaöir Karnabær Laugavegi 66 —
Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavik
Portiö Akranesi — Epliö isatiröi —
Alfhóll Siglufiröi — Cesar Akureyri —
Hornabær Hornafiröi—MM h'f Selfossi
- Eyjabær Vestmannaeyjum ,
Manuela Wiesler
t lei/cur á Hliðarenda, ásamt Snorra Érni
Snorrasyni sunnudagskvöld 23. 11.
/ Matseðill kvöldsins er saminn af Manuelu: \
Forréttur: „Ifa Pram/a“ Milliréttur: „A ’Kristna" Aðalréttur: „Kalis“
Desert: „Bananar Finale“
V y
Borðhald hefst kl. 20.00.
Borðapantanir i síma 11690.
~gl Opið 11.30-11.30 og 18.00-22.30.
V _____________________/
MÍr'k'k'k'k /
vvvvvv
Ávallt um
helgar
V
^ i
Vkkkkkyi-
Mikið fjör
LEIKHÚS
KjPLWRinn
%
Fjölbreyttur
matseðill
að venju
Opið
18.00—0.30.
Boröapöntun
sími 19636
Ath.
laugardagur
UPPSELT
Leikhúsgestir velkomnir á undan og eftir sýningu.
Pantið borð tímanlega. Hinn vinsæli píanóleikar'
Carl Bilich leikur fyrir matargesti.
Kjallarakvöldveröur kr. 6.000.-
Fjölbreytt danstónlist.
Komiö tímanlega. Aöeins rúilugjald.