Morgunblaðið - 27.11.1980, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.11.1980, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 Albert endurflytur tillöguna um fr jálsan innflutning símtækja EINS (>K Ketið var í MorKunblaðinu | í K»‘r skýrði samKonKuráðherra frá því í umræðum á ÁlþinKÍ í fyrradaK. að hann hyKðist K?fa frjálsan inn- ílutninK ok sölu símtækja, sem Landsíminn hefur haft einkaleyfi á. Hér er um að ræða mál. sem Albert Guðmundsson. alþinKÍsmaður flutti á 100. AlþinKÍ. 1978 til 1979 scm þinKsályktunartillöKU. Albert ætlar nú að endurflytja tillöKuna ok verður henni dreift í þinKÍnu í daK. TillaKa Alberts fjallaði um að samKönKuráðherra breytti reKluKerð um einkarétt Landssímans á inn- flutninKÍ símtækja ok búnaðs þeim tilheyrandi ok Ksefi hann frjálsan. Jafnframt að sú deild, sem hefði með þessi störf að Kera °í? útveKun varahluta, uppsetninKU á síma o.fl. verði felld niður. EinnÍK að síma- mannaskólinn, sem væri í höndum Landsímans verði laKður niður ok símvirkjun Kerð að námi við iðn- skóla. Albert saKði í samtali við Mbl. að huKSun sín væri að sími yrði sem hvert annað heimilistæki, en Land- síminn sæi um aðveituframkvæmdir sem' aðrar þjónustustofnanir með vatn ok rafmaKn. Með þessu kvað Albert mikið fjármagn sparast hjá Landsímanum og kvað hann þessa fjármuni eiga að nota til þess að fullkomna símakerfið um land allt og koma sjálfvirku kerfi í allar sveitir. Albert Guðmundsson kvaðst nú endurflytja tillöguna í tilefni ummæla ráðherra. Albert lýsti því jafnframt að frelsi í þessum málum gæti leitt til þess að innlendir aðilar sæju sér hag í því að framleiða símtæki hér innanlands og væri það iðnaður, sem verið gæti hvar sem er á landinu. Erlendur Björnsson sýslumaður látinn Líkan af kvikmynda- og veitingahúsinu, sem rís i Breiðholti. Inngangurinn í kvikmyndahúsið er til hægri og til vinstri er inngangurinn i veitingahúsið. Ljósm. A.S. Bíó og veitingahús í Breiðholti FRAMKVÆMDIR við grunn kvikmynda- og veitingahúss í Mjóddinni í Breiðholti eru að hefjast. Árni Ó. Samúelsson, for- stjóri Nýja Bíós í Keflavík, sagði í samtali við Mbl. í gær, að stefnt væri að því, að kvikmyndasýn- ingar hefjist í húsinu eftir um tvö ár. Á neðri hæð hússins verður veitingahús og standa nú yfir samningar við eigendur veitinga- hússins Hollywood um það. Hvor hæð er röskir 1000 fermetrar. í kvikmyndahúsinu verða fjórir salir með sætum fyrir 1001 áhorfanda. Stærsti salurinn verð- ur fyrir 526 manns, annar fyrir 237, sá þriðji fyrir 139 og í fjórða salnum verða 99 sæti. Árni sagði ljóst, að hann gæti ekki notað sama nafn á kvikmyndahúsið i Breiðholti og hús sitt í Keflavík, þar sem Nýja Bíó væri fyrir í Reykjavík, en hvað kvikmynda- húsið að Álftabakka 8 kæmi til með að heita sagði hann óráðið enn. Hann vildi engar tölur nefna varðandi kostnaðinn við bygging- ERLENDUR Björnsson sýslumaður NorðmýlinKa og bæjarfógeti á Seyð- isfirði andaðist á Landakotsspitala í gær. 69 ára að aidri. Erlendur Björnsson fæddist að Orrastöðum í Torfulækjarhreppi, Austur-Húnavatnssýslu 24. sept- ember 1911, sonur Björns Eysteins- sonar bónda þar og Kristbjargar Pétursdóttur. Hann lauk stúdents- prófi frá MA 1934 og lögfræðiprófi frá HÍ 1939. Hann var bæjarstjóri á Seyðisfirði 1939 til 1953 en það ár var hann skipaður sýslumaður Norður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðisfirði. Því embætti gegndi hann til dauðadags. Á árunum 1944 til 1953 var hann oft settur bæjar- fógeti um tíma. Erlendur Björnsson gegndi mörgum trúnaðarstörfum á Seyðisfirði, var bæjarfulltrúi í 6 ár og forseti bæjarstjórnar um skeið, sat í yfirkjörstjórn Austurlands- kjördæmis o.fl. Eftirlifandi eiginkona Erlends er Katrín Jónsdóttir. Allgóð rækjuveiði í Djúpi og Húnaflóa Rækjumið í Öxarfirði lokuð og litil atvinna á Kópaskeri RÆKJUVEIÐAR hafa gengið ágætlega í haust í ísafjarðardjúpi, Húnaflóa og Arnarfirði, en á síðastnefnda staðnum fóru veið- arnar seint af stað. Úr Öxarfirði er ekki sömu sögu að segja, en rækjumiðin þar hafa nú verið lokuð í réttan mánuð vegna seiða- gengdar og er atvinnuástand því bágborið á Kópaskeri. Samninganefnd bankanna: Aðgerðir vegna orðróms um launagreiðslur? „ÞAD HEFUR engin ákvörðun1 verið tekin um að breyta neinu í þessum útborgunarmálum,“ sagði Guðmundur Hjartarson, Seðlabankastjóri, í samtali við Mbl. í gærkvöldi, en Benedikt E. Guðbrandsson, formaður starfs- mannafélags Landsbankans og fulltrúi i samninganefnd banka- manna, sagði í gær, að samninga- nefndin hefði vegna orðróms um breytingar á launagreiðslum 1. Hreinsað til i prentsmiðjunni að loknu slökkvistarfi l.josm. Mbl. Kristján Bruni í Hólum _ÞAÐ er ekki hægt að nefna neinar tölur. en Ijóst er, að tjónið er gifurlegt ok mjöK tilfinnan- leKt.“ sagði Þórólfur Daníelsson f ram k væm dast jóri pren tsm iðj- unnar Hóla í viðtali við Mbl. í K8T. en er starfsmenn Hóla mættu til vinnu í gærmorKun voru sal- arkynni verksmiðjunnar full af reyk og eldur logandi í vél í hókbandssal. Reykskemmdir urðu talsverðar á framleiðslu og vélum prentsmiðjunnar. Slökkvilið var kvatt á vettvang laust fyrir kl. átta í gærmorgun, og samkvæmt upplýsingum slökkvi- liðsins gekk slökkvistarf greiðlega. Eldur logaði í einni vél en mikill reykur hafði breiðst út um alla prentsmiðju. „Starfsfólkið leggur á það alla áherzlu að koma framleiðslunni sem fyrst af stað aftur, og ég geri mér vonir um að stöðvunin verði sem stytzt," sagði Þórólfur. Hann sagði að mikið hefði verið af bókum í vinnslu í prentsmiðjunni, bækur á öllum stigum framleiðsl- unnar, mest jólabækur. Væru þær svo til allar ónýtar og einnig varð tjón á vélum og borðum. desember óskað eftir yfirlýsingu frá bönkunum um að laun yrðu greidd, eins og samningar segja til um. Slik yfirlýsing hefði sér vitanlega ekki komið frá neinum banka, nema Alþýðubankanum. Benedikt sagði, áð óvissu gætti hjá félagsmönnum vegna orð- rómsins. „Við íhugum að grípa til aðgerða, ef þessi mál verða ekki á hreinu, þegar kjörfundur hefst klukkan 10 í fyrramálið og einnig hugleiðum við að krefjast opin- berrar rannsóknar á því, hvort þarna er um að ræða þvingun í skjóli fjárvalds til að hafa áhrif á niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar," sagði Benedikt. Sveinn Sveinsson, formaður samninganefndar bankamanna, sagði hins vegar í samtali við Mbl. í gær, að sér vitanlega væri þetta ekkert mál, þar sem ekkert hefði verið rætt um það að greiða ekki mönnum, eins og samningar segja til um, og launaútreikningar 1. desember væru komnir í tölvu- vinnslu með óbreyttu formi. Mbl. spurði Guðmund Hjartar- son, hvers vegna samstarfsnefnd bankanna hefði ekki orðið við óskinni um yfirlýsingu varðandi launagreiðslur og kvaðst hann ekkert vilja um það segja, en ítrekaði að engin ákvörðun hefði verið tekin um að breyta ein- hverju í þeim efnum. Bankamenn fá greidd laun fyrirfram og 1. desember á að koma til útborgunar „þrettándi mánuðurinn". Atkvæðagreiðslu bankastarfs- manna um sáttatillögu lýkur á morgun, en verkfalli þeirra var frestað til 8. desember. í ísafjarðardjúpi eru veiðar leyfð- ar í öllu Djúpinu sem stendur, en þrjú innstu svæðin voru lokuð til 14. nóvember. Aflabrögð hafa verið ágæt, en talsvert um smá rækju í aflanum. í ísafjarðardjúpi er leyfi- legt að veiða 2400 tonn á vertíðinni. Miðin í Arnarfirði voru opnuð í byrjun nóvember, en veiðar byrjuðu þó ekki fyrr en 21. nóvember. Þar er leyfilegt að veiða 550 tonn á vertíð- inni. Rækjuveiðar hafa gengið ágætlega í Húnaflóa i vetur, en bátar frá Hólmavík, Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd stunda þessar veið: ar. Aflahámark er 1700 tonn. í Öxarfirði var ákveðið að leyfa Kópa- skersbátum að veiða 300 tonn í vetur, en Húsvíkingar hafa ekki rækjuleyfi í vetur. Veiðarnar byrj- uðu í byrjun október, en afli var tregur og vegna seiðagengdar var miðunum lokað í lok október og hafa þau nú verið lokuð í mánuð. Reglu- lega er fylgst með ástandinu á miðunum og athugun, sem gerð var í vikunni gefur ekki ástæðu til bjart- sýni. Fimmta rækjuveiðisvæðið er Berufjörður, en 3 bátar frá Djúpa- vogi hafa leyfi til að veiða 60 tonn þar í vetur. í Akureyrarblaðinu Degi er greint frá atvinnuástandi á Kópaskeri og þar segir m.a. í fréttabréfi frá Kópaskeri: „Það ætlar að hafa æði mikil áhrif að rækjan hefur brugðizt í vetur. Einn bátanna fer út stöku sinnum til að prófa. Til þessa hefur árangur verið mjög slæmur og því hafa bátarnir legið í höfn. Einn báturinn byrjaði með línu, en þá spilltist tíð og því hefur lengi ekki verið um neinn afla að ræða. Héðan eru gerðir út fjórir bátar og gerir Sæblik út tvo þeirra. Ef ekki rætist úr þessu má alveg eins gera ráð fyrir, að einn ágætur bátur verði seldur héðan. Af þessum sökum er kort um atvinnu. Að vísu hefur það bjargað nokkru, að fólk hefur verið að pakka saltfiskinum frá sumrinu. Atvinnu- horfur hjá starfsfólki Sæbliks eru því ekki bjartar, svo ekki sé talað um framtíð fyrirtækisins. Hins vegar er ekki sömu sögu að segja t.d. af þeim mönnum, sem stunda bygginga- vinnu. Á því sviði er nóg að gera og má segja að fólk á Kópaskeri hafi það ágætt. Að sjálfsögðu erum við bjartsýn á að við munum fleyta okkur yfir þessa erfiðleika.“ Margfalda út- f lutning sinn á bobbingum FYRIRTÆKIÐ Oddi á Akur eyri hefur í ár selt um 200 h<>bbinga til útlanda og einnig 150 millibobbinga, en í ár framleiöir fyrirtækið tæpiega 3 þúsund bobbinga. Á næsta ári gera forráða- menn fyrirtækisins ráð fyrir að selja 1500—2000 bobbinga til útlanda. Jóhannes Kristjánsson, framkvæmdastjóri Odda áætlar söluverð 200 bobbinga um 20 milljónir króna og samkvæmt því má gera ráð fyrir 200 milljónum króna fyrir 2 þúsund bobbinga. Hjá Odda starfa nú 90 manns. Gunnar Schram, fyrrum ritsímastjóri, látinn GUNNAR Schram fyrrum rit- simastjóri í Reykjavík lést í Borgarspitalanum i gærmorgun. 83 ára að aldri. Hann var fæddur í Reykjavík 22. júní 1897. Hann hóf störf sem símritari í Reykjavík árið 1915 og var varð- stjóri við símann 1918—1924. Þá hóf hann störf sem símstöðvar- stjóri á Akureyri og síðustu starfsár sín var hann ritsíma- stjóri í Reykjavík. Gunnar Schram var formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur árin 1921—24, sat í íþróttaráði Akureyrar 1930—40 og var í mörg ár formaður Golfklúbbs Akureyr- ar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.