Morgunblaðið - 27.11.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980
23
Landsfundur Alþýðubandalagsins:
Ný sókn í her-
stöðvamálinu
LANDSFUNDUR Alþýðubandalagsins um siðustu helgi samþykkti
útgáfu fræðslurits úm herstöðvamálið og skipulagningu ferða
erindreka um landið til að kynna málstað herstöðvaandstæðinga,
vinna að stofnun héraðsnefnda þeirra og undirbúningi þjóðarat-
kvæðagreiðslu um herstöðvamálið. Þá samþykkti landsfundurinn. að
fulltrúar Alþýðubandalagsins skyldu hefja viðræður við aðra flokka
um bann við staðsetningu AWACS-flugvéla hér á landi. bann við
flutningi og geymslu kjarnorkuvopna og að Keflavíkurútvarpið verði
Sérstök ályktun var gerð um
þessi atriði, en í stjórnmálaálykt-
un landsfundarins er því beint til
„herstöðvaandstæðinga í öllum
stjórnmálaflokkum, að þeir taki
nú höndum saman og hefji nýja
sókn í baráttunni fyrir brottför
hersins og varðveislu friðarins."
Þá segir í stjórnmálaályktun
fundarins að Alþýðubandalagið
vilji leita „víðtækrar samstöðu í
baráttunni fyrir brottför hersins
og úrsögn íslands úr NATO“ og á
samstarfsvettvangi Norðurlanda
verði að taka upp umræðu um
friðlýsingu Norðaustur-Atlants-
Fyrirlestur
um mannspeki
Rudolf Steiner
OSKAR Borgman Hansen docent
og deildarstjóri við heimspeki-
deild Háskólans i Árósum heldur
almennan fyrirlcstur í stofu 201 i
Árnagarði föstudaginn 28. nóv-
ember kl. 20.30.
Fyrirlesturinn nefnir hann:
Hvað er antroposofi, og fjallar um
heimspeki Rudolf Steiner.
Frá dómsmála-
ráðuneytinu
EINS og fram hefur komið i
fréttum hefur formaður íslands-
deildar Amnesty International
snúið sér til ráðuneytisins vegna
máls Frakkans Patrick Gervas-
onis.
Framangreint erindi er nú til
athugunar í ráðuneytinu ásamt
öðrum þáttum þessa máls.
(Frétt frá dómsmálaráðu-
neytinu).
Hafnarfjörður:
Hver sá vörubíl
bakka á staur?
MÁNUDAGINN 27. október sl.
varð sá atburður á mótum Skjól-
vangs og Sævangs í Hafnarfirði að
stórri vöruflutningabifreið með
aftanívagni var bakkað á ljósa-
staur. Á aftanívagninum var app-
elsínugulur gámur. Það eru til-
mæli Rannsóknarlögreglunnar í
Hafnarfirði að ökumaður bifreið-
arinnar gefi sig fram svo og kona,
sem sá atburðinn og hringdi til
Rafveitunnar í Hafnarfirði og
tilkynnti hann.
Athugasemd
frá FIA
KRISTJÁN Egilsson formaður Fé-
lags isl. atvinnuflugmanna hafði
samband við Mbl. og óskaði eftir að
taka fram eftirfarandi: Vegna
fréttar í Morgunblaðinu í gær og
fyrradag um sáttatillögu Gunnars
G. Schram vill Félag íslenzkra
atvinnuflugmanna taka fram, að
sáttasemjari óskaði eftir að ekki
yrði fjallað um tillöguna í fjölmiðl-
um fyrr en að atkvæðagreiðslu
lokinni. Félagið mun verða við
tilmælum sáttasemjara. Þar af
leiðandi hefur FÍA ekki sett fram
athugasemdir sínar.
hafsins og stofnun kjarnorku-
vopnalauss svæðis á Norðurlönd-
um.
Ýmsar tillögur voru lagðar fram
á landsfundinum um herstöðva-
málið, m.a. frá Alþýðubandalag-
inu í Reykjavík um undirbúning
að sókn í herstöðvamálinu í þeim
tilgangi að koma því á ný inn í
þungamiðju stjórnmálaumræð-
unnar og frá Alþýðubandalagsfé-
laginu á Akureyri um upplýsinga-
herferð til undirbúnings þjóðar-
atkvæðagreiðslu um herstöðva-
málið.
Ólafur Ragnar Grímsson flutti
á landsfundinum framsöguræðu
um sjálfstæðismál og kom þar
m.a. inn á „stöðvunarvald" Al-
þýðubandalagsins í ríkisstjórn
„gegn frekari stríðsuppbyggingu í
landinu" og ræddi um nauðsyn
„samfellds málflutnings“ og „efl-
ingu nýrrar samfylkingar, sem
nær ekki aðeins til okkar félaga og
fámennu hugmyndahópanna aftan
við Alþýðubandalagið, heldur
einnig tií þeirra þúsunda, sem
fylgja Framsóknarflokknum og
Alþýðuflokknum og jafnvel Sjálf-
stæðisflokknum í öðrum málum,
en krefjast ásamt okkur brottfar-
ar hersins." Þjóðaratkvæða-
greiðslu sagði Ólafur ótímabæra
fyrr en ljóst væri, að sú samfylk-
ing væri komin, sem gæti tryggt
sigur. „Þjóðaratkvæðagreiðsla
getur aldrei haft tilgang í sjálfu
sér. Hún er aðeins lokatæki til að
staðfesta langvarandi sóknar-
göngu,“ sagði Ólafur Ragnar.
------------------\
Kynntu þér
nýjan heim
gólfdúka frú
GAFSTAR
Fjölbreytt munstur.
Fleiri litir.
Aukin þægindi.
Breidd 2m-2,75m-
Siðumúla15 simi 3 30 70
V__________________________/
FINLUX verksmiðjurnar hafa um árabil
verið í forystu með framleiðslu á litsjón-
varpstækjum og nú hefur þeim tekist
fyrstir allra að framleiða Ijtsjónvarp sem
ekki eyðir meiri straum en venjuleg Ijósa-
pera, sem einnig þýðir, lengri endingu
tækisins.
FINLUX litsjónvarpstækin eru öll meó
sjálfvirkum stöðvaleitara (Automatic Search
Tuning), sem aðeins er í dýrari gerðum ann-
arra tegunda. Sjálfvirkur stöövaleitari er
ekki eingöngu til að leita uppi stöðvar,
heldur einnig til að halda útsendingu í
bestu stillingu .
FINLUX litjónvarpstækin eru þau einu á
markaðnum, þar sem fjarstýringin er
fáanleg við þau seinna.
VERÐ STAÐGR.VERD STRAUMTAKA
20" 799.500,- - 759.500.- 40 — 55 w.
22" 869.000,- - 825.000,- 40 — 55 w.
26" 999.000,- - 949.000.- 70 — 85 w.
BORGARTÚNI 18
REYKJAVÍK SlMI 27099
SJÓNVARPSBÚDIN
keiMur áfostndqg i n 14
mmrnmmmmmmmmmmmmmmmmmmm