Morgunblaðið - 27.11.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980
29
Suður-Grænlendingar vildu fá að verzla
í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli
Nuuk, Grænlandi, 24. nóvember.
FRÍHAFNAR-verslunina á Kefla-
víkurfluKvelli hefur borið á góma
í danska fjármálaráðuneytinu i
Kaupmannahöfn. Umræðuefnið
var ekki rekstur Fríhafnarinnar,
heldur krafa Suður-Grænlendin>?a
um rétt til verslunar í Keflavik.
hagstæðum reglum bandalagsins
um kaup og innflutning ferða-
manna á tollfrjálsum varningi inn-
an aðildarríkjanna. Tollverðir á
Kastrup-flugvelli hafa ekki viljað
flokka vöruinnkaup Grænlendinga
við millilendingu á Keflavíkur-
flugvelli frá Narssarssuaq undir
þessar reglur, en þess skal getið, að
Konunglega Grænlandsverslunin
rekur einnig fríhafnarþjónustu á
flugvellinum í Narssarssuaq. Frí-
hafnarverslunin á Keflavíkurflug-
velli nýtur hinsvegar mikillar hylli
Grænlendinga.
Staðið hefur í stappi um þessi
mál nokkurn tíma. Hafa Suður-
Grænlendingar nú komið mótmæl-
um sínum á framfæri gegnum J.
Motzfelt, formann grænlensku
landstjórnarinnar, en hann er nú
staddur í Kaupmannahöfn og hefur
ráðuneytið fallist á leiðréttingu
mála.
Þeir Grænlendingar, sem hafa
viðkomu á Keflavíkurflugvelli, geta
því framvegis nestað sig til jafns
við norðanmenn á leið sinni til
„Kongens Köbenhavn". — SiKurjón
PRENTMYNDAGERD
AÐAUSTRETI • SlMARs 17152- 17355
Þótt Grænlendinga greini á um
veru sína í Efnahagsbandalagi
Evrópu, hafa þeir þó notið góðs af
Umræðu-
fundur um örygg-
is- og varnarmál
VERKALÝÐSBLAÐIÐ og Komm-
únistasamtökin elna til umræðu-
fundar um öryggis- og varnarmál
þriðjudaginn 2. desember nk.
Fundurinn er haldinn í tilefni
fullveldisdagsins og vegna þess að
margar spurningar um islensk
öryggismál hafa vaknað eftir því
sem heimsfriður gerist ótryggari.
Fundurinn hefst kl. 20.30 í kjall-
arasal Hótel Heklu v/Rauðarárstíg.
Meðal frummælenda verða Þór-
arinn Hjartarson, sem fjallar um
vígbúnað risaveldanna, Ari T. Guð-
mundsson, sem ræðir um íslenska
valkosti í öryggismálum og úrsögn
úr NATO og Baldur Guðlaugsson,
sem mun reifa aðildina að Atlants-
hafsbandalaginu og landvarnir.
Pallborðsumræður fara fram og
verður fyrirspurnum svarað. Þátt-
takendur eru m.a. Jón Baldvin
Hannibalsson, Jón Sigurðsson, Árni
Hjartarson, Bragi Guðbrandsson,
Ari T. Guðmundsson og Baldur
Guðlaugsson.
(Fréttatilkynning)
styttist í
Urban Cowboy-
„daginn“
Næstu daga hefjast sýningar á Urban Cowboy í
Háskólabíó, tímamótamynd í tísku og tónlist, og
þá veröur mikiö um dýröir.
JÓNATAN
GARÐARSSON
veröur í diskótekinu og leikur
Country-tónlist af miklum móö.
LAUKSÚPA
Á LÍNUNA
Viö bjóöum öllum gestum lauksúpu
í kvöld.
SPAKMÆLI DAGSINS:
Það eyðist sem af er tekið.
Sjáumst heil.
islandsmótið í handknattleik
Mætum allir i höllina
og hvetjum okkar liö til sigurs í kvöld.
HéraÖsskákmót KR
Vegna leiks KR og Þróttar í kvöld veröur héraös-
skákmóti KR frestað fram á næsta fimmtudag 4. des.
kl. 20:00. Tilkynnið þátttöku hjá húsveröi KR í síma
18177.