Morgunblaðið - 27.11.1980, Blaðsíða 40
Síminn á afgreiöslunni er ^ #•«» ^
83033 Mtrémttpwpnp
JH«r0imblnbib
Sími á ritstjórn og skrifstof":
10100
JMvreunblnbib
FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980
Eggjaskort-
ur er nær
dregur jólum
„EGGJANEYSLAN hcfur aukist
þaö mikiö að vikuskammturinn
duuar okkur ekki. I»ví ákváöum
við að skammta hverjum kaup-
anda 20 egg sem viö álitum all
þokkaleKan skammt.“ sagði Jón
Magnússon verslunarstjóri í Mat-
ardeildinni í samtali viö Mbl.“
Jón sagði að eggjaneysla væri
alltaf mikil á þessum tíma árs en
á sl. ári heföi ekki komið til
skömmtunar vegna mikils fram-
boðs á eggjum. Sagði hann að
framboð væri ekki eins mikið í ár
og því yrði örugglega eggjaskortur
er liði nær jólum.
Enn lækkar
síldarverð
VERÐ það. sem fékkst fyrir
ísaða síld í Hirtshals í gær var
lægra en áður á vertíðinni.
Kap II seldi 109,1 tonn fyrir
34.9 milljónir króna, meðalverð á
kíló 320 krónur eða 3,26 kr.
danskar. Guðmundur RE seldi
162,7 tonn fyrir 47,8 milljónir,
meðalverð 294 krónur eða 2,99 kr.
danskar. Grindvíkingur seldi
161.9 tonn f.vrir 44,3 milljónir
króna, meðalverð á kiló 274
krónur eða 2,79 kr. danskar.
Meðalverð Grindvíkings er það
lægsta, sem fengizt hefur í sölum
íslenzku skipanna í Oanmörku til
þessa. Bezta verðið fékk Pétur
Jónsson hins vegar á dögunum,
5,20 krónur danskar fvrir kíló, og
sama skip fékk 5,10 í annarri
söluferð. I dag selja Arnarnes og
Sæbjörg í Danmörku.
Lítið selt
af vetrar-
rækjunni
MJÖG erfiðlega hefur gengið að
selja pillaða rækju í helztu mark-
aöslöndunum undanfarið og að
auki hefur fengizt lágt verð fyrir
ra'kjuna. Mest öll framleiðsla
síðasta sumars er seld. en hins
vegar framleiða verksmiðjur nú
að mestu leyti á lager.
Fyrri hluta sumars féll rækja
mjög í verði eða um 20%, en síðan
hefur verið um óverulega lækkun
að ræða. Vandinn er hins vegar sá,
að neyzla á pillaðri rækju hefur
dregizt saman í markaðslöndunum
m.a. vegna versnandi lífskjara. A
sama tíma er um verulega aukn-
ingu í veiðum og framleiðslu að
ræða og hafa Norðmenn undirboð-
ið Islendinga. Þeir eru stórir á
mörkuðunum og ráða mestu um
verðin þannig að varla er um
annað að ræða, en að fylgja þeirra
verði.
Guðmundur Sigvaldason jarðfræðingur efnagreinir gassýnishorn i húsi Norrænu eldfjallastöðvarinnar við
Mývatn i ga’rkvöldi. en samkvæmt efnasamsetningu lofttegunda má spá i gang mála í iðrum jaröar.
(Símamynd Mhl. Raunar Axelsson). ...
Varnargarður byggð-
ur um Kröfluvirkjun
Metverð fyrir
lélegan fisk
ÞRÁTT fyrir lélegan fisk fékk
Haukafellið frá Hornafirði sér-
staklega gott verð fyrir afla sinn í
Englandi í gær. Skipið seldi 33,4
tonn fyrir 33,9 milljónir króna í
Grimsby, meðalverð 1016 krónur á
hvert kíló. Að mati umboðsmanna
fór fiskurinn í 3. gæðaflokk. Þá
seldi Ottó Wathne 39,8 tonn í
Fleetwood í gær, meðalverð 981
króna á kíló, 1. gæðaflokkur.
Frá hlaöamanni Mhl.
Árna Johnsen i Mývatnssveit.
ÁKVEÐIÐ var í gær að hefja
hyggingu varnargarðs við stiiðv-
arhús Kröfluvirkjunar vegna
hugsanlegrar hættu af hraun-
flóði niður skarðið íyrir norðan
virkjunina. Samkvæmt upplýs-
ingum Einars Tjörva Elíassonar.
yfirverkfræðings Kröfluvirkjun-
ar. verður hafist handa við hygg-
ingu garðsins í dag og verður það
gert með því að hækka veginn við
verksmiðjuna um 2 metra á hálfs
kílómeters kafla.
Fyrir skömmu var lokið við að
hækka varnargarðinn milli byggð-
arinnar í Reykjahlíðarhverfinu og
Bjarnarflags, en þar eru Kísiliðj-
an og Steypustöðin. Skarð var í
varnargarðinum þar sem vegurinn
lá í gegn. Bjarnarflag er talið
hættusvæði í umbrotunum á
svæðinu og er Kísiliðjan byggð
þvert á sprungu. Framan af í
jarðhræringunum á Mývatns-
svæðinu fylgdu eldsumbrot ofan-
jarðar ekki alltaf umbrotahrinun-
um en í undanfarin skipti hefur
verið um sprunguvirkni að ræða
með hraungosi. Hætta á hraun-
gosi er þó ekki talin meiri í
Bjarnarflagi en á öðrum stöðum á
þeim 25 km langa hluta sprung-
unnar, sem hefur sýnt gosvirkni.
Lauslega áætlað er Bjarnarflag 1
kílómetri í þvermál.
Samkvæmt fjölmörgum mæl-
ingum á fyrri eldgosahrinum hafa
ávallt liðið 3—4 klukkustundir frá
því að mælar hafa sýnt landsig og
þar með hraunrennsli, þar til
hraun hefur brotizt upp á yfirborð
jarðar. Nokkuð góður tími á því að
vera til þess að hefja varnarað-
gerðir til að tryggja öryggi fólks.
Landris er nú orðið meira en
áður og sem dæmi um mestu
gliðnun nú má nefna að á sprungu,
sem er um 1 kílómetra frá Kröflu-
virkjun er gliðnunin 0,8 mm á dag
að sögn Hjartar Tryggvasonar,
sem annast skjálftamælingar.
Þetta þýðir 32,8 cm á ári eða 32,8
metra á öld. Þessi sprunga hefur
gliðnað um 75 cm síðan 1976.
Forysta ASÍ til næstu
4 ára kjörin í dag
FORYSTA Alþýðusambands íslands verður í dag kjörin á
ASÍ-þingi til næstu fjögurra ára. Samkvæmt tillögum um
lagabreytingar. sem fyrir þinginu liggja. á að kjósa forseta ASÍ.
tvo varaforseta og 12 miðstjórnarmenn. Samkvæmt dagskrá
þingsins eiga kosningarnar að fara fram á tímabilinu 17.30 til 10.
Svo sem að líkum lætur var í
gær mikið um að vera meðal
forystumanna stjórnmálaflokk-
anna innan ASI og allir ræddu við
alla um hvert valdajafnvægi ætti
að vera í miðstjórn næstu 4 ár.
Grunur lék á að Alþýðubandalagið
væri að freista þess að ná samn-
ingum við Framsóknarflokkinn og
óháða á þinginu, um myndun
meirihluta í miðstjórn, 8 menn af
15. Þegar þetta fréttist, gerðu
alþýðuflokksmenn Alþýðubanda-
laginu tilboð um 5 menn í mið-
stjórn ef þeir fengju 4, en sam-
kvæmt upplýsingum, sem Morg-
unblaðið fékk í gær munu alþýðu-
bandalagsmennirnir ekkert hafa
tekið undir það.
Sjálfstæðismenn, sem verið
hafa klofnir í afstöðu til annarra
flokka, urðu ókvæða við fréttum
af þessu tilboði alþýðuflokks-
manna og gaf þetta tilboð þeim
sjálfstæðismönnum byr, sem verið
hafa hallir undir samstarf við
Alþýðubandlagið. Menn þóttust
nú sjá, að alþýðuflokksmönnum
væri ekki treystandi. Fullyrtu
sjálfstæðismenn, að þeir hefðu
fengið upplýsingar um það frá
alþýðuflokksmönnum, að Karl
Steinar Guðnason og Óskar Hall-
grímsson, sem gert höfðu Alþýðu-
bandalaginu tilboðið, að það hefðu
þeir gert umboðslausir.
Allt virtist enn óljóst í þessum
málum í gærkveldi. Fundur var
boðaður í kjórnefnd þingsins
klukkan 17.30, en honum var
frestað að ósk alþýðuflokksmanna
til klukkan 23 í gærkveldi.
Forsetaframboð stóðu þannig í
gær, að í framboði eru Ásmundur
Stefánsson fyrir Alþýðubandalag-
ið, Björn Þórhallsson fyrir Sjálf-
stæðisflokkirin og Karvel Pálma-
son fyrir Alþýðuflokkinn. Þá er
Guðmundur Sæmundsson, fulltrúi
Einingar á Akureyri, sem sagður
er frambjóðandi „órólegu deildar-
innar" í Alþýðubandalaginu í
framboði til forseta. Magnús
Geirsson, sem beðinn hefur verið
um að gefa kost á sér í starfið,
mun ekki ætla að gefa kost á sér.
Sjá fréttir af ASÍ-þingi á bls.
16 og viðtal við Björn Jónsson,
forseta ASÍ á bls. 3.
5 milljónir fyrir
tonn af hörpudiski
MJÖG gott verð hefur undan-
farið fengizt fyrir unninn
hörpudisk og eftirspurnin er
mikil. Fyrir eitt tonn af hörpu-
diski fást nú 4.5—5 milljónir
króna í Bandaríkjunum. en það
er þó breytilegt eftir umbúðum
og fleiru.
Óttar Yngvason sagði í sam-
tali við Mbl. í gær, að staðan á
þessum markaði hefði verið
þannig fyrir um hálfu ári, að
mjög erfitt hefði verið að selja
hörpudisk. Síðan hefði orðið
mikil breyting og á skömmum
tíma í sumar hefði verðið hækk-
að um 25—30%, en hörpudiskur-
inn er einkum seldur til Banda-
ríkjanna, Frakklands og Spánar.
Hann sagði að vaxandi áhugi
væri fyrir skelfiskveiðum og
vinnslu, en núna er hörpudiskur
unninn hjá 8 verksmiðjum á 9
stöðum. Leyfilegt aflamagn er
rösklega 10 þúsund tonn, en
reikna má með að það þýði
rúmlega þúsund tonn í fullunnri
vöru. Óttar sagði, að mörgum
virtist sem miðin þyldu meiri
veiði. Hann sagði, að bátarnir
fengju yfirleitt 2—7 tonn af
skelfiski á dag, en algengt er að 4
menn séu á hverjum báti.
Sigurlíkur
gegn Noregi
ÍSLENZKA skáksveitin á
Ólympíuskákmótinu á Möltu
tefldi í ga‘r við Norðmenn.
Þremur skákum lauk — Ingi R.
Jóhannsson sigraði Sande örugg-
lega á 4. borði, Margeir Pétursson
gerði jafntefli við Hön á 3. borði
eftir að hafa átt í vök að verjast
lengst af. Helgi Ólafsson tapaði
fyrir Helmers á 1. borði. Skák
Jóns L. Árnasonar og Heim fór í
bið. Jón er peði undir en þrátt
fyrir það eru vinningslíkur hans
megin.
Önnur helstu úrslit: Ungverja-
land — England 2—1 og biðskák,
Svíþjóð — Búlgaría 2 '/2 — '/2 og
Svíar eiga líkast til unna biðskák.
Sovétríkin — Holland 3—1, Júgó-
slavía — Bandaríkin 3—1.
íslenzka kvennasveitin tefldi við
Nýja-Sjáland og vann 2—1.