Morgunblaðið - 27.11.1980, Síða 15

Morgunblaðið - 27.11.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 15 Þess vegna eru hlutafjárbreyt- ingarnar i raun spurningin um það hvort Arnarflug lifir eða deyr. Öryggismál Hápunktur greinar Kjartans er ráðlegging til farþega að fljúga ekki með Arnarflugi vegna þess að flugmenn félagsins fljúgi fleiri en einni tegund flugvéla. Þetta er siðlaus ráðlegging og ber vott um þröngsýni höfundar. Þegar Arnarflugi var úthlutað flugleiðum Vængja sálugu, þá komu flugmenn félagsins saman til þess að ræða þá starfsskiptingu sem æskileg væri milli innan- og utanlandsdeildar félagsins. Flestir af utanlandsmönnunum höfðu reynslu í innanlandsflugi hér og þekktu því málin vel. Niðurstaðan varð sú að rétt væri að blanda flugmönnum þessara deilda sam- an. Þjálfun var aukin og ýmis tækniatriði samræmd. Reynslan sýndi að einmitt vegna þess hversu ólíkar þessar flugvélateg- undir eru og ytri skilyrði önnur varða þessi starfsskipting auð- veld. Þessi reynsla að fljúga 2 ólíkum tegundum flugvéla ætti ekki að vera Flugfélagsflug- mönnum með öllu ókunn. Eg veit ekki betur en Flugfélagsmenn fljúgi yfir 30 ára gamalli tveggja hreyfla DC-3 flugvél fyrir sand- græðsluna á sumrin. Einhver hlýt- ur munurinn að vera á henni og nýju 727 þotunni. Auk þess hef ég séð Flugfélagsflugmenn fljúga eins hreyfils einkaflugvélum en þó dettur mér ekki í hug að letja farþega að fljúga með Flugleiðum. Raunir flug- mannsins Kjartan gerir svo lítið úr sér að kasta grjóti að forstjóra Arnar- flugs, Magnúsi Gunnarssyni. Þetta er kannski ekki undarlegt þegar haft er í huga að velgengni Arnarflugs hefur fyrst og fremst byggst á dugnaði hans og fram- sýni. Guatemalasamningurinn var gerður af Magnúsi og mér leikur forvitni á að vita hvaðan Kjartan hefur það að Guatemalabúar hafi ekki viljað Boeing 720. Arnar- flugsmenn voru þar ári áður með þá flugvél og voru heimamenn svo ánægðir að þeir leituðu til okkar aftur. Magnús leigði þeim þá 727-100 en síðan hefur ekkert í þeim heyrst. Kjartan tók ekki þátt í samningagerðinni heldur starf- aði þar tímabundið sem flugmað- ur. Mér finnst það einnig ódrengi- legt af Kjartani að væna Magnús um verkefnisleysi B-727 flugvélar- innar í sumar. Ég held að ef Magnús hefði ráðið ferðinni þá hefði sú véi farið á söluiista löngu fyrr en raun varð á og á meðan þessar vélar voru enn seljanlegar. Nú er hins vegar markaðurinn fullur af alls konar flugvélum og líklega hægt að fá 727-100 flugvé!- ar í kippum á útsölu. Mér er heldur ekki kunnugt um að Flug- félagsmenn hafi boðið einhverja kjaraskerðingu eða vinnutíma breytingu til að gera 727 leigu boðlegri á erlendum mörkuðum. Hins vegar veit ég ekki betur en nú sé áhöfn skipuð Flugfélags- mönnum í Guineu og er það einnig samningur sem Magnús færði þeim Flugfélagsmönnum á silfur- fati en hefur litlar þakkir þegið fyrir. Lokaorð Nú bregður svo við að í Morgun- blaðinu 22. nóvember er þess getið að 44 flugmenn í FÍA núverandi starfsmenn Flugjeiða, og fyrrver- andi starfsmenn Flugfélags ís- lands vilji kaupa hlutabréf í Arn- arflugi. Er þetta ekki dæmigert fyrir þennan eiginhagsmunahóp? Þegar lyktin eftir þá er orðin svo vond í þeirra fjósi að ekki dugar lengur að halda fyrir nefið, þá á að hefja nýja sókn á Arnarflug, í von um húsaskjól. Við getum reyndar veið stoltir yfir þeirri yfirlýsingu þeirra, að þeir telji Arnarflug góða fjárfestingu. Auðvitað finnst mér það öfugmæli og ekki bera vott um áðurnefnda „common sensinn" hans Kjartans að fjárfesta í félagi með „óöruggum flugmönnum, röngum flugvélategundum og auk þess hafandi forstjóra sem gerir enga samninga." Það skildi þó aldrei vera að Flugfélagsflugmenn sjái glætu í þessu öllu. Að lokum langar mig að gefa Flugfélagsflugmönnum nokkur heilræði þó ekki væri nema til að launa þau gullkorn sem Kjartan Norðdal gefur farþegum Arnar- flugs. 1. Einbeitið ykkur að því að sam- eina títtnefndan starfsaldurs- lista og koma á innbyrðis ein- ingu meðal flugmanna Flug- leiða. 2. Gefið samstarfsmönnum ykkar vinnufrið. Það vinna fleiri hjá Flugleiðum en flugmenn, og hafa margir orðið að líða fyrir sérvisku ykkar og ósveigjan- leika. 3. Hagsmunir vinnuveitenda og vinnuþega fara oftast saman og því er óhætt að slaka á ýmsum þeim kröfum sem þið hafið fengið framgengt (t.d. með því að afsala vínarbrauðunum góðu). 4. Ef þið eigið peninga aflögu og hafið áhuga að gerast eigendur í flugfélagi þá veit ég um flugfélag sem stendur ykkur nær en Arnarflug og þarf á aðstoð ykkar að halda. Með þökk fyrir birtinguna. Gunnar Þorvaldsson, flugmaður hjá Arnarflugi. Eldur í spilavíti Reno ojf Las Veífius, Nevada, 24. nóv. - AP. ELDUR kviknaði á fyrstu hæð í stóru spilaviti, Harrash Club, i Reno i gær, sunnudag. Á efri hæð hússins er hótel og voru allir gestir þess fluttir á brott. Að sögn yfirvalda er ekki vitað til þess að neinn hafi slasast. Eldurinn kviknaði í eldhúsi og náði slökkvilið fljótlega tökum á honum. Enn er ekki búið að kanna skemmdirnar. Eins og kunnugt er var mikill eldsvoði í Grand Hotel í Las Vegas sl. föstudag. 83 létust og yfir 500 slösuðust. Stjórnarformaður hótelsins, Fred Benninger, sagði frétta- mönnum í dag að það hefði verið lán í óláni að eldvarnakerfi hússins virkaði ekki. Hann sagði að ef viðvörunarkerfið hefði farið í gang hefðu gestirnir þotið út á ganga og fengið reykeitrun. Kvað hann það hafa orðið mörgum til bjargar að þeir héldu sig inni á herbergjum sínum. NYBUÐ OSTABUÐIN BITRUHAUSIZ verður opnuð fimmtudaginn 27. nóvember, kl. 9. A BOÐSTOLUM: Allir íslensku ostarnir, á einu bretti, ostakex í úrvali og áhöld fyrir osta. ÞJONUSTA: Hægt verður að kaupa ostapinna og ostabakka ef pantað er með hálfs dags fyrirvara. 0STAKYNNING: Fyrstu tvo dagana mun standa yfir ostakynning frá kl. 9-18. Verið velkomin í nýju Ostabúðina okkar. ^ Osta og smjörsalan. 4—r. -r , , ,—\ r1—** ■—"i f *—• U .““t T******. T —— 3 ! *-*wrp—• !(■ *—, l-Ja4§. ^ ath.gengiö innað vestanveröu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.