Morgunblaðið - 27.11.1980, Síða 20

Morgunblaðið - 27.11.1980, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 21 JttwgtnilrlfifrUÞ Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Atvinnuöryggi og bætt lífskjör Nítján þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þings- ályktunartillögu um stefnumótun í stóriðjumálum. Tillagan felur í sér ítarlega könnun á hagkvæmni framleiðslugreina, sem til álita koma á sviði orkufreks iðnaðar, sem og hugsanlegrar samvinnu við erlenda aðila á sviði tækni, markaðsmála og fjármögnunar stóriðju. Þingkjörin nefnd skal annast þessa könnun og gera tillögur — á grundvelli hennar — um stóriðjuframkvæmd- ir, sem hagkvæmt þykir að stofna til. Tillögurnar skulu ná til eignaraðildar fyrirtækja, fjármögnunar, orkuöflunar, orkuverðs og annarra rekstrarskilyrða. Þjóðarbúskapur og lífskjör almennings hafa til skamms tíma fyrst og fremst hvílt á verðmætasköpun í sjávarútvegi og landbúnaði. Stofnstærð nytjafiska og söluhorfur búvöru benda hinsvegar til að afrakstursgeta þessara undirstöðuatvinnuvega sé þegar fullnýtt. Þeir verða áfram um ófyrirsjáanlega framtíð hornsteinar í þjóðarbúskapnum. Hætt er þó við að þeir möguleikar, sem á þeirra sviði bjóðast í náinni framtíð til verðmætaaukningar, verði fyrst og fremst nýttir með aukinni tækni og véivæðingu. Þau atvinnutækifæri, sem tryggja eiga afkomu milli 20 og 30 þúsund viðbótareinstaklinga á íslenzkum vinnumarkaði fram til nk. aldamóta, þarf því að bróðurparti að sækja til þeirra möguleika sem þriðja auðlindin, orkan í fallvötnum, býr yfir, þar á meðal í tengslum við orkufrekan útflutningsiðnað. Framtíðaratvinnuör- yggi vaxandi þjóðar og sú aukna verðmætasköpun, sem bera á uppi sambærileg lífskjör og nágrannar búa við, hlýtur að verulegum hluta að þurfa að hvíla á enn ónýttum orkumöguleikum. Fyrir forgöngu sjálfstæðismanna fóru landsmenn inn á þessa braut með álveri og síðar var járnblendiverksmiðjan byggð, sem veita miklum fjölda fólks atvinnu og leggja til um 18% útflutningsverðmætis okkar. Sú reynsla sem þegar er tiltæk á þessum vettvangi kallar á nýjar stóriðjuframkvæmdir. Þingsálykt- unartillaga sjálfstæðismanna á að varða veginn í sókn þjóðarinnar til bættra lífskjara. Helzta úrtöluaflið í þessari lífskjarasókn, sem hefja verður, er Alþýðubandalagið, sem illu heilli hefur verið leitt til öndvegis í orku- og iðnaðarráðuneyti. Hrafnkell Jónsson, Eskfirðingur á landsfundi Alþýðubandalagsins, sagði atvinnumála- stefnu þess byggjast á rányrkju, offjárfestingu í fullnýttum atvinnugreinum, innflutningshöftum, undanlátssemi launafólks og íhaldssemi. Víst er að þröngsýni Alþýðubandalagsins tryggir sízt af öllu atvinnuöryggi eða verðmætasköpun, er borið gæti uppi bætt lífskjör. Að því miðar hinsvegar sú stefnumótun, sem sjálfstæðis- menn berjast fyrir. Bundið slitlag á hringveginn Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur lagt fram á Alþingi tillögu um 12 ára áætlun um lagningu bundins slitlags á hringveginn og vegi til allra þéttbýlisstaða í landinu. Tillagan spannar þrjá verkáfanga að þessu marki sem og hvern veg þá skuli fjármagna með árlegum framlögum úr vegasjóði og byggðasjóöi, innflutnings- gjaldi af bifreiðum og happdrættislánum. Þessi tillaga er mjög tímabær því á engu sviði erum við jafn vanþróaðir sem í vegagerð þrátt fyrir ýmis myndarleg átök þar. Engin þjóð í V-Evrópu er jafn aftarlega á merinni í varanlegri vegagerð. Mun fámennari þjóð en við, Færeyingar, hefur fyrir löngu skotið okkur ref fyrir rass í þessu efni. Hér við bætist að fáar framkvæmdir eru jafn hagkvæmar, þjóðhagslega séð, og varanleg vegagerð. Hún er að visu dýr í stofnkostnaði en skilar sér undrafljótt aftur til þjóðarbúsins í verulega minna vegaviðhaldi, lengri endingu ökutækja, minni viðhaldskostnaði þeirra og minni eldsneytiskostnaði. Vegakerfið er æðanet samfélagsins, bæði atvinnulífsins og félagslegra samskipta. Það gegnir því mikilvægu hlutverki. Sú verkáætlun um varanlega vegagerð sem sjálfstæðismenn vilja móta á Alþingi íslendinga á því verulegan hljómgrunn meðal þjóðarinnar, enda arðsöm og á að njóta forgangs sem slík. Rœtt við fulltrúa á Alpýðusambandspingi • i GRÉTAR HANNESSON: Erfitt fyrir fólk að láta enda ná saman GRÉTAR Hannesson, einn þing- fulltrúa Verslunarmannafélags Reykjavíkur, kvaðst nú sitja Alþýðusambandsþing í annað skipti. Við spurðum hann fyrst álits á nýgerðum kjarasamning- um. — „Eg er þeirrar skoðunar að launþegar geti ekki vel við unað. Launin eru of lág, og þessi viðbót sem felst í samningunum er ekki nægileg leiðrétting. — Alla vega á ég erfitt með að skilja hvernig verkafólk getur lifað af launum sínum, og sjálf- ur á ég í erfiðleikum með að láta enda ná saman hjá fimm manna fjölskyldu." Grétar kvað það vera lág- markskröfu að sínu mati, að ríkisstjórnin sýndi verkalýðs- hreyfingunni þann trúnað, að leggja efnahagstillögur sínar fyrir ASÍ-þingið. Erfitt væri fyrir þingið að taka nokkrar ákvarðanir fyrr en eftir að þær tillögur lægju fyrir. Færi síðan svo, sem margir væru hræddir um, að um áramót verði gerðar efnahagsráðstafan- ir sem skerða laun, sagði Grétar að boða yrði til aukaþings Al- þýðusambandsins til að ræða ný viðhorf. Sagði hann það skoðun sína að verkalýðshreyfingin yrði að grípa til harðra viðbragða ef til slíkra ráðstafana kæmi. Grétar var að lokum spurður álits á flokkapólitík á Alþýðu- sambandsþingum: „Hér skiptir flokkspólitík óneitanlega miklu máli, en þó er hún minna áberandi en var á þinginu 1976 að mínum dómi. Ég er hins vegar ekki reiðubúinn til að kveða upp úr með, hvort hún er yfirleitt til góðs eða ills hér á þessum samkomum." GUÐRÚN THORARENSEN: Uggandi vegna komandi efna- hagsráðstafana „ÉG álít nú að betur hefði mátt takast til með samningana, ekki Guðrún Thorarensen frá Eyrarbakka. síst með tilliti til þess, hve lengi var búið að standa í samninga- þófi,“ sagði Guðrún Thorarensen frá Verkalýðsfélaginu Bárunni á Eyrarbakka. Guðrún kvaðst nú sitja Alþýðusambandsþing í fyrsta skipti. „Sérstaklega fannst mér að láglaunafólkið, þeir lægst laun- uðu, hefðu þurft að fá meira í sinn hlut,“ sagði Guðrún enn- fremur. „Það er ljóst að heldur hefur sigið á ógæfuhliðina í kjaramálum hin síðari ár, og auðvitað kemur það verst við þá er minnst hafa launin. Verka- lýðshreyfingin hefur átt í varn- arbaráttu að undanförnu, sem raunar má segja um alla hennar baráttu, barátta verkafólks fyrir bættum launum er og hefur alltaf verið varnarbarátta." Guðrún kvaðst bera nokkurn. ugg í brjósti vegna komandi efnahagsráðstafana ríkisstjórn- arinnar. „Þar verður að taka þannig á málum að launafólk haldi að minnsta kosti því, sem það hefur áunnið," sagði hún, „það má ekki láta höggva svo í lífskjörin að fólk geti ekki kom- ist af á launum sínum. Það verður verkalýðshreyfingin að sjá um, og bregðast við á viðeigandi hátt ef skerða á laun fólks í landinu. En margt fleira kemur til, en launin ein, og margt má gera sem ekki síður gæti bætt kjör fólks en launahækkanir. Nefni ég sem dæmi, að styðja ætti við bakið á þeim sveitarfélögum sem vinna að uppbyggingu á hitaveitum og öðrum þjóðþrifa- fyrirtækjum. Þar vinnst tvennt, upphitunarkostnaður lækkar og meira verður eftir hjá fólki af ráðstöfunarfé, og svo er hið þjóðhagslega mikilvægi ekki síðra." GUNNAR ÞÓRÐARSON: Tal um vinveitta ríkisstjórn má ekki verða til að skerða kjörin „Mér virðist helst, að það sé ríkisstjórnin sem við eigum í höggi við, en ekki vinnuveitend- ur,“ sagði Gunnar Þórðarson formaður Sjómannafélags ís- Gunnar Þórðarson ísafirði firðinga. Gunnar er togara- sjómaður, og hefur stundað þá vinnu í þrjú ár. — Við spurðum Gunnar hvað hann ætti við með því, að sjómenn ættu í höggi við ríkisstjórnina. „Það sem ég á við“ sagði Gunnar, „er það, að ein helsta forsenda þess að okkur tókst að ná samningum fyrir vestan, var sú, að til komu ákveðin loforð frá ríkisstjórninni. Við þau hef- ur hins vegar ekki verið staðið. Ég get nefnt sem dæmi, að lofað var lækkun olíusjóðsgjalds, og Steingrímur Hermannsson sendi skeyti inn á samninga- fund, þar sem hann kvaðst myndu beita sér fyrir því að gjaldið yrði lagt niður. Skömmu síðar gerðist það svo að gjaldið var stórlega hækkað eins og menn vita. Þannig hafa nú loforðin verið efnd á þeim bæ. — Rétt er þó að taka fram, og þakka sérstaklega, stóran áfanga sem náðist í félagsmála- pakka, og mun koma til góða verði vel við hann staðið." — Þið hafið samið sér á Vestfjörðum. — Hvers vegna semjið þið ekki með Sjómanna- sambandinu? „Ástæðan er fyrst og fremst sú, að við búum við sérstakar aðstæður vestra. Þar er dýrara að lifa, sem best sést á því að við verðum að greiða söluskatt af flutningskostnaði á vörum, svo eitt dæmi sé tekið. Þetta, ásamt því að útgerðin hér er tiltölulega vel sett, hefur valdið því að við teljum okkur geta krafist hærri launa, og höfum náð betri sam- ningum en Sjómannasamband- ið.“ — Hvað líst þér á fyrirhugað- ar efnahagsráðstafanir? „Það er alveg ljóst að ríkis- stjórnin hafði ekki áhuga á að leggja tillögur sínar fyrir þingið, og mér býður í grun að eini tilgangur þeirra tafa sem orðið hafa á birtingu þeirra sé sá, að ljúka þinginu af áður. En verði gripið til einhverra þeirra ráð- stafana er feli í sér skerðingu á launum eða verðbótaþætti þeirra, þá verður verkalýðs- hreyfingin að grípa til viðeig- andi aðgerða. — Fordæmi þess er ef til vill að finna frá tímum annarra ríkisstjórna, og ætti að bregðast eins við, hvaða ríkis- stjórn sem er við völd. Sífellt tal um vinveitta ríkisstjórn svokall- aða, má ekki verða til þess að kjörin rýrni á valdatíma henn- ar.“ ÓLAFUR ÞÓR RAGNARSSON: Talað fyrir dauf- um eyrum ríkis- stjórnarinnar „MÉR líst ekki of vel á stöðuna í kjaramálum um þessar mundir, og ég er ekki yfir mig hrifinn af nýgerðum kjarasamningum" sagði Olafur Þór Ragnarsson, fulltrúi Sjómannafélags Reykja- víkur á Alþýðusambandsþing- inu. Ólafur hefur verið á sjó stanslaust frá 1959, en er nú kominn í land og vinnur hjá Landhelgisgæslunni, þar sem hann slasaðist á hafi úti fyrir nokkru og getur ekki sótt sjóinn síðan. Það gerðist í veiðiferð með togara, en lengst af hefur Ólafur unnið á varðskipunum. „Það er mín skoðun" sagði Ólafur Þór, „að ekki hafi verið brugðist á réttan hátt við breyttum vinnubrögðum Vinnu- veitendasambandsins. Þeim var ekki mætt með nýjum vinnu- brögðum á móti af okkar hálfu. Það kemur meðal annars til af því, að verkalýðshreyfingin er orðin of svifasein, og í og með vegna of mikillar miðstýringar. Hvað samninga sjómanna sér- staklega snertir, þá líst mér heldur ekki sérlega vel á þá. Unnið hefur verið að ýmsum sérákvæðum, en vinnuveitendur hafa ekki einu sinni viljað hlusta á þau, enn sem komið er að minnsta kosti. Að mínu áliti þarf að leggja aukna áherslu á sérkröfur í þessum samningum, frekar en hækkandi krónutölu launa. Þá verður einnig að knýja á um skattalækkun, en þar hefur verið talað fyrir daufum eyrum ríkisstjórnarinnar." — Hvað með fyrirhugaðar efnahagsráðstafanir. Átti að leggja þær fyrir þingið? „Já, skilyrðislaust. Þar tek ég heils hugar undir með Pétri Sigurðssyni, og vil að boðað verði til aukaþings er málin hafa skýrst eftir áramótin. Ef til þess kemur að ráðist verður að vísitölunni verður að grípa til harðra gagnaðgerða, og kemur þar margt til greina, bæði verk- föll og annað. Hafa verður í huga, að sama er hvaða ríkis- stjórn á í hlut, ekki verður liðið að gengið verði á launin. Sífellt verður erfiðara að lifa, og verka- fólk má ekki við neinum skakka- föllurn." PÉTUR A: MAACK: Háir þinginu, aö ekki liggja enn fyrir aðgerðir stjórnvalda „Þrátt fyrir allan þann tíma, sem fór í nýafstaðnar kjaravið- ræður, þá gera hinir nýju kjara- samningar ekki einu sinni svo vel að halda í horfinu, hvað þá að um lifskjarabót sé að ræða,“ sagði Pétur A. Maack, einn fulltrúa Verslunarmannafélags Reykjavíkur á ASI-þinginu. Pét- ur kvaðst nú sitja Alþýðusam- bandsþing í þriðja skipti. „Ég er því ekki ánægður með útkomuna úr hinum nýju kjara- samningum," sagði Pétur, „þó ef til vill megi verkalýðshreyfingin þó vel við una, að náðst skuli hafa samningar. Enginn hefur efni á því að vera lengi án samnings, hvað þá að fara í verkfall." Pétur vék einnig að væntan- legum efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar: „Ég er þeirr- ar skoðunar, fyrst ekkert liggur fyrir í þeim efnum enn, að ekki sé unnt að ganga frá nokkrum lausum endum. Allt starf þings- ins verður því háð þeim ann- mörkum, að ekki liggur fyrir hvað gert verður af hálfu ríkis- stjórnarinnar eftir röskan mán- uð. Þingfulltrúar hefðu þurft að vita með margra mánaða fyrir- vara, hvað ætti að gera, svo þeir gætu kynnt sér málin áður en hingað til þings er komið. En um ástæður þess að ríkisstjórnin lagði ekki tillögur sínar fram fyrir ASI-þingið veit ég ekki og kýs að hafa þar um fá orð. Það er hins vegar alveg ljóst, að hvorki ríkisstjórnin né laun- þegahreyfingin hafa efni á að grípa til svo róttækra aðgerða, sem að taka vísitöluna úr sam- bandi. Verði hins vegar eitthvað slíkt gert, verður að bregðast við á viðeigandi hátt, að vandlega athuguðu máli. En ummæli bankastjóra Alþýðubankans um að örvænting og vonleysi séu daglegir gestir á biðstofu hans, lýsa vel ástandinu í landinu núna. Þær efnahagsráðstafanir sem gerðar verða, verða að vera til þess að leiðrétta misræmið í kaupgjaldsmálunum en ekki til að auka á það.“ Pétur var að lokum spurður álits, á þeim miklu pólitísku áhrifum sem stjórnmálaflokk- arnir hafa á ASÍ-þingum. Pétur svaraði því til, að vafalaust væri ekki unnt að starfrækja verka- lýðshreyfingu án pólitísks ívafs. Innan Alþýðusambandsins væri þó of mikið gert af slíku, jafnvel svo að það stæði hinni faglegu baráttu fyrir þrifum. Hvað þetta varðaði sagði Pétur þó núver- andi þing ekki neitt frábrugðið fyrri þingum. RAFN ÓLAFSSQN: Lækkandi laun, en aukin skatt- og vaxtabyrði EINN fulltrúa Sjómannafélags Reykjavíkur á Alþýðusam- bandsþinginu er Rafn Olafsson. Hann sagðist nú sitja ASÍ-þing í fyrsta skipti, en hefði áður verið á Sjómannasambandsþingi. Sjó- inn hefur hann stundað allt frá því að hann byrjaði að vinna, eða í um það bil 20 ár, lengst af á hafrannsóknarskipum. Við spurðum hann fyrst hvernig honum litist á efnahags- og launamálin núna. „Það hefur nú að vísu ekki verið samið við okkur ennþá“ sagði Rafn, „en miðað við þá samninga, sem gerðir hafa verið í landi, þá virðist sem séu ekki einu sinni nægir til að halda í horfinu, hvað þá til að leiða til raunverulegrar kjarabaráttu. Það er tvímælalaust erfiðara að lifa núna, og kemur þar einnig til aukin skattbyrði og sívaxandi vaxtabyrði. Ríkisstjórnin hefði skilyrðis- laust átt að leggja tillögur sínar í efnahagsmálum fyrir þingið, enda virðist nú sem þeir hafi nógu lengi sofið á þessum hug- myndum sínum, eins og raunar mörgu öðru. En fari svo, eftir áramótin, að ákveðið verður að skerða á einhvern hátt verðbótavísitöl- una, þá verður að spyrna við fótum, launþegar geta ekki tekið því með þegjandi samþykki. Ég hef að vísu ekki tiltækt, til hvaða ráðstafana verður að grípa, verkföll eru alltaf neyðar- úrræði, en aðgerðirnar verða að vera nægilega harðar." Rafn var að lokum spurður, hvort mikill munur væri á þessu þingi og Sjómannasambands- þingi: „Já hann er mjög mikill. Hér er þetta allt mun stærra í sniðum og meiri hætta virðist mér á að mál kafni í nefnda- og pappírsflóði. Árangur verður því ekki eins mikill að ég held, til þess er samkoman einfaldlega orðin of stór.“ Si)?rlður Sigurðardóttir Reykjavik. SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR: Launþegar geta ekki verið ánægðir „ÞAÐ er langt frá því að laun- þegar geti verið ánægðir með efnahagsástandið eins og það er, og því fer fjarri að nýgerðir kjarasamningar nægi til þess að bæta upp þá lífskjaraskerðingu sem orðið hefur undanfarin ár,“ sagði Sigríður Sigurðardóttir, einn fulltrúa Verslunarmanna- félags Reykjavíkur á ASÍ-þing- inu. Hún situr nú Alþýðusam- bandsþing í annað sinn. „Það er ljóst“ sagði Sigríður, „að kaupmáttur fer nú rýrnandi, og kemur þar margt til. Nefna má lækkandi raungildi launa, en ekki síður stóraukna vaxtabyrði, og sívaxandi skattaálögur. Allt verður þetta til þess að fólk ber minna úr býturn." Sigríður sagði það skoðun sína, að ríkisstjórnin hefði skil- yrðislaust átt að leggja fyrir- hugaðar efnahagsráðstafanir sínar fyrir ASÍ-þingið. „Enginn veit raunverulega hvers vegna það var ekki gert, engin svör hafa raunverulega fengist við þeirri spurningu. Verði á hinn bóginn af því, eftir áramót, að kaupgjaldsvísi- talan verði tekin úr sambandi, þá verður verkalýðshreyfingin að snúast til varnar, enda eru forsendur nýgerðra samninga þá brostnar. Það er hins vegar erfitt að meta eftir á, hvort fara hefði átt út í harðari átök í nýliðinni baráttu. Ef til vill hefði náðst betri árangur, en þar verður einnig að hafa í huga að launafólk þolir ekki langt verk- fall, til þess eru kjörin of rýr.“ Sigríður var að lokum spurð, hvað hún hefði að segja um sína stétt sérstaklega, hvernig hún væri sett innan Alþýðusam- bandsins. Hún sagði verslunar- menn líklega vera „miðlungs- stétt" hvað tekjur snerti, en hefði áður fyrr verið í efri skalanum. Ein ástæða þess að nú væri stéttin verr í sveit sett hlutfallslega en áður, sagði Sig- ríður að væri sú, að of mikil áhersla hefði verið lögð á launa- jöfnun innan stéttarinnar. Allt- of lítið tillit væri nú tekið til starfsreynslu og þess tíma sem fólk hefði unnið á sama vinnu- stað.“ Fjórða þing BHM: Talsverður áhugi á verk- fallsrétti „ÞAÐ er talsverður áhugi á því að fá verkfallsrétt, en það er ekki búið að taka ákvörðun um það, hvort taka eigi upp viðræður við ríkið um verkfallsrétt fyrir BHM.“ sagði Guðríður Þorsteinsdóttir. fram- kvæmdastjóri Bandalags háskóia- manna, í samtali við Mhl. i gær. en á föstudaginn hefst fjórða þing BHM að Ilótel Loftleiðum og þar verða aðalmálin skattamál, kjara- mál og breytingar á samningsrétti BHM. Guðríður sagði, að BHM hefði staðið verkfallsréttur til boða, þegar BSRB fékk hann, en honum hefði þá verið hafnað, m.a. vegna þess að hann var tengdur skerðingum í lífeyrissjóðamálum, sem BHM gat ekki fallizt á og komu þá ekki til framkvæmda. Eins hefði BHM ekki getað fellt sig við bundinn samn- ingstíma í lögum, en nú hefðu forsendur breytzt, þar sem BSRB hefði náð því fram að gildistími samninga væri samningsatriði. Einnig nefndi Guðríður, að eins og mál hefðu verið lögð fram á sínum tíma hefðu undanþágur BHM- manna frá verkfallsrétti verið margar. BHM hefði því hafnað verkfallsréttinum þá, en nú væru ýmsar forsendur breyttar og þess vegna hefði mikið verið rætt um það, hvort nú væri tímabært að ná fram breytingum á samningsrétti BHM, m.a. var haldin sérstök ráð- stefna um samningsrétt launþega innan BHM í október sl. Þing BHM, sem stendur í tvo daga, sækja um 140 fulltrúar, en félagsmenn í BHM eru nú 4.640 í 20 félögum, þar af eru 2.000 ríkis- starfsmenn og tæplega 500 félags- menn, sem starfa sjálfstætt, en aðrir starfa hjá einkaaðilum, sveit- arfélögum og bönkum. Á þinginu verður kjörin stjórn BHM til tveggja ára. Formaður bandalagsins er Valdimar K. Jónsson, prófessor, og formaður launamálaráðs er Jón Hannesson, menntaskólakennari. Ragnar Arnalds, fjármálaráð- herra, mun ávarpa þing BHM að lokinni þingsetningu á föstudaginn. Konur ekki á sömu kjörum „ÞAÐ er alveg rétt, að náist ekki samkomulag í þessum kjarasamn- ingum, að starfsstúlkur í eldhúsum og mötuneytum bankans fari inn á starfskjör bankamanna, eins og karlmenn, sem starfa við svipuð störf hjá bankanum, þá munum við styðja við bakið á þeim á allan hátt við að fara í prófmál við bankann, t.d. með því að borga kostnað við slíkt," sagði Benedikt Þ. Guðbjarts- son, formaður Starfsmannafélajgs Landsbanka Islands, í samtali við Mbl. í gærkvöldi. 46 togaraáhafnir: Skora á ráðherra að setja reglu- gerð um jólafrí STJÓRNVÖLDUM barst í gær skeyti frá 46 togurum. þar sem skorað var á ríkisstjórnina að efna heit. sem gefið hefur verið sjómönn- um, um að í reglugerð verði sett. að þeir skuli eiga 3ja daga frí um jólin. Óskar Vigfússon, forseti Sjó- mannasambands Islands skýrði frá þessu á ASI-þingi í gær. Þessa kröfu sjómannanna sagði Óskar vera mik- ið réttlætismál, að sjómenn gætu verið heima hjá fjölskyldum sínum á jólunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.