Morgunblaðið - 30.11.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
3
Basar og kökusala
SKÁTAFÉLAGIÐ Kópar heldur
sinn árlega basar í dag aö Hamra-
borg 1, í Kópavogi, og hefst hann kl.
2 síðdegis. Jólasveinar selja lukku-
poka, og auk kökusölu verður þarna
á boðstólum margt eigulegra, hand-
unninna muna.
Hraðskákmót
SKÁKÞINGI Keflavíkur lauk fyrir
skömmu. Sigurvegari varð Haukur
Bergmann, en hann sigraði alla and-
stæðinga sína og hlaut 7 vinninga. I
öðru sæti varð Helgi Jónatansson
með 5 1/2 vinning og í þriðja sæti
hafnaði Pálmar Breiðfjörð með 4 1/2
vinning. Á sunnudag fer fram hrað-
skákmót Keflavíkur í Fjölbrautar-
skólanum í Keflavik og hefst það kl.
14.
Samkoma l.des
EINS og undanfarin ár halda stúd-
entar baráttusamkomu 1. des. nk. Að
þessu sinni er hátíðin helguð efninu
alþýðumenni ng-alþýöu menntun.
Sjálf dagskráin verður haldin í Fé-
lagsstofnun stúdenta og hefst kl. 14.
Þar verður m.a. á dagskrá söngur,
ljóðalestur, farandverkamenn flytja
ávarp, Tryggvi Emilsson les úr verk-
um sínum, „Frystihúsadísir" taka
lagið, „Keltar" flytja írska alþýðu-
tónlist og sýndur verður hluti úr
leikritinu Dags hríðar spor eftir
Valgarð Egilsson. Um kvöldið verður
útvarpað um klukkustundar þætti,
sem 1. desembernefndin hefur tekið
saman. Þátturinn er samansettur úr
blönduðu efni sem tengist efni dags-
ins og hefst kl. 21:15. Klukkan 22
hefst síðan í Sigtúni skemmtun stúd-
enta og stendur fram eftir nóttu.
Lýsing Liberation á því þegar
félagar OP 20 settust að í
íslenzka sendiráðinu í París
Frá önnu Niswls, fréttaritara Mbl. i Paris:
BLAÐAMAÐUR franska blaðsins Liberation fylgdist með frönsku
ungmennunum, sem komu i íslenzka sendiráðið hér i París á
fimmtudagsmorguninn og birti frásögn i blaði sinu. Hún fer hér á
eftir í lauslegri þýðingu. Fyrirsögnin var: „Gengið með hernaðar-
andstæðingum til friðsamlegrar atlögu frá sendiráði íslands til
lögreglustöðvar í 8. hverfinu í París.“
Klukkan er 11 á fimmtu-
dagsmorgun fyrir framan Hof-
man-breiðgötu 124, stað íslenzka
sendiráðsins í París. Lið sjón-
varpsmanna tekur myndir. Hvað
er á seyði á gangstéttinni? Hóp-
ur hernaðarandstæðinga, OP 20,
kemur stormandi og breiðir úr
borðum með áletrunum um
stöðvun hernaðarstefnu. í hvert
skipti, sem lögreglan hefur haft
afskipti af þessum hóp undan-
farið, hefur hann skilið eftir
marga metra af áróðursborðum.
Forvitnir vegfarendur fá ekki að
vita hvað OP 20 þýðir. Það
skiptir engu máli, leggjum
sendiráðið undir okkur.
Skrifstofurnar eru á 3. hæð,
hringið og gangið inn. Ég veit
ekki hvort einhver hefur hringt,
samt sem áður tóku 2—3 sendi-
ráðsstarfsmenn eftir hópnum. í
anddyrinu voru sjónvarpsmenn
enn að taka myndir og hópurinn
hló. Ljóshærð íslenzk stúlka
missti andlitið eitt augnablik og
spurði síðan blíðlega, hvað væri
eiginlega hér á seyði. Þeir sjö
mótmælendur, sem voru þar,
kröfðust þess að fá að tala við
sendiherrann. Við bíðum, sögðu
þeir. Sendiherrann, hr. Bene-
diktsson, er fjarverandi. 1. rit-
ari, hr. Gíslason, er upptekinn.
Mótmælendurnir sjö koma sér
fyrir. Þeir tóku ekki með sér
samlokur því þrír þeirra eru í
hungurverkfalli fyrir OP 20. í
staðinn lesa þeir. Þeir lesa guð-
spjöll friðarsinna og markmið
Mururoa—eyjar, sem er lítil
eyja í Kyrrahafinu, þar sem
Frakkar gera kjarnorku-
tilraunir. Hei, segir ein, vissuð
þið að Newsweek birti myndina
af bandarískum hershöfðingja,
sem falið var að drepa stjórn-
anda kjarnorkuheraflans ef ske
kynni að hann brjálaðist? Al-
mennur hlátur hópsins.
1. ritari kemur inn. Hernaðar-
andstæðingar útskýra fyrir hon-
um að Frakkland vilji þeim allt
illt og þeir hafi valið Island til að
biðja um pólitískt hæli. Stóru
bláu augun í hr. Gíslasyni verða
dreymin. Þá leggur hópurinn
enn meiri áherslu á það sem
hann vill. Þetta er friðsöm at-
laga þangað til stjórnvöld á
Islandi heyra í okkur, þangað til
franskt almenningsálit vill líta
við OP 20, segja þau. Hr. Gísla-
son hnyklar brýnnar. Jæja, svo
starf 1. ritara við sendiráð ís-
lands er orðið þung byrði. En af
hverju hafa þeir valið þessa litlu
eyju, sem þeir eru næstum því að
uppgötva í fyrsta skipti þarna í
sendiráðinu, á korti á veggnum?
Það er augljóst. Þar sem forseti
Islands er friðarsinni, engin
herskylda er á íslandi, hernaðar-
andstæðingar eru ekki áreittir,
nema að maður heiti Patrick
Gervasoni. Ungum frönskum
hernaðarandstæðingi, sem hefur
komið sér út úr frönskum lögum,
honum hefur verið sagt að koma
sér úr landi.
Hr. Gíslason er ekki ánægður.
Hann hringir, sendir telex og
hnyklar brýnnar. En hópurinn
gefst ekki upp, hann ætlar að
vera þarna alla nóttina ef með
þarf. Klukkan er 12.30, hópurinn
byrjar að örvænta. Tveir lög-
reglufulltrúar voru að koma úr
8. hverfi, síðan bættust 15 ein-
kennisklæddir við. ísland veldur
þeim sannarlega vonbrigðum.
Hópurinn endurtekur að sendi-
ráðið sé að gera mistök, sem ekki
yrði vel tekið á íslandi. Tómt
mál að tala um, klukkan er orðin
13. Nú erum við á lögreglustöð-
inni. Hópurinn sýndi enga and-
stöðu þegar lögreglan kom. Að
vísu vorum við hræddir í þessari
stöð, sem þekkt er fyrir hlýleg
mistök. Skilríki voru könnuð,
heimilisföng, hópurinn látinn
laus um klukkan 15. í bækur
lögreglunnar hefur bæst við enn
eitt mál, þeir eru þessu vanir.
OP 20 heldur áfram friðarstefnu
fyrir þá, sem mótmæla hernaði.
Énginn af þeim hefur hugsað sér
að fara í sumarfrí til íslands.
Kynning á OP 20: Þetta er
hópur ungra manna, sem vilja að
allir hafi rétt til að neita að fara
í herinn. Samkvæmt frönskum
lögum er hópurinn algerlega
ólöglegur.
,BótelS°g
4 fcVÖW
Til London
með Útsýn
Vikuferðir á laugar-
dögum. Helgarferðir
á fimmtudögum — 5
dagar.
Starfsmaður
Útsýnar,
Kristín
Hauksdóttir,
tekur á móti
farþegum á
flugvelli og
verður þeim
til aöstoöar
meöan á dvölinni stendur.
velur Uts
’'‘"í • --—i ------
Skíðaferöir
Kranskja Gora
— Kitz BUhel — Lech
14 daga ferðir m/gistingu
og Vz fæöi.
Kanaríeyjar
Brottför 19. des., 9. og 30. jan.,
apríl.
Florída — St.
Brottför alla laugardaga.
20. febr., 13. mars, 3. og 24.
Petersburg
LATIÐ FAGMENN ANNAST FERDINA
Farþegar aam gara faraeölaviðskipli sín hjó ÚT8ÝN — þótt þeir fari
J eigin vegum“ — fá ókeypis alla þjónustu varöandi hótelpantanir,
pantanir á framhaldsfarseólum, hvort sem er með flugvélum,
járnbrautum, áaatlunarbifreióum eóa skipum, mióa í leikhús eóa
tónleika, knattspyrnu- eóa íþróttaleiki, aógangskort á sýningar,
skíöalyttur, green fees o.þ.h. ÚTSÝN pantar einnig bflaleigubila og
aér um pantanir, og útskrift pappira vagna flutnings bifreióa
sjóMAis.
Farþeginn greiðir sama fargjald — Isegsta fáanlega fargjald á
hvarti flugleiö og meö hvaða flugfélagi sam er. Starfsfóik
ÚTSÝNAR miölar af þekkingu sinni og reynslu, gefur góö ráð og
leiöbeinir ferðamanninum um alla skipulagningu farðalagsins.
í krafti umsvifa sinna, reynslu og traustra
vidskiptasambanda getur Útsýn boöiö meira
úrval, betri kjör og fyrsta flokks þjónustu
fagfólks.
Feröaskrifstofan
Allar upplýsingar um fjölbreytta feröamöguleika veturinn 1980—1981
má sjá í nýútkominni Feröaáætiun Útsýnar.
UTSYIM
Austurstræti 17.
Sími 26611
og 20100.