Morgunblaðið - 30.11.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
21
Dynjandi
diskómnsik
Regnboginn: „Trylltir tónar“ („Can’t Stop the Music)
HÚN Maria Braun hefur
nú mátt færa sig um set i
Regnboganum, því nú hef-
ur bandariska kynbomban
Valerie Perrine lagt undir
sig A-salinn. ásamt friðu
föruneyti, í myndinni Can't
Stop the Music. Félagsskap-
urinn er ekki af verri end-
anum. eda hinn geysivin-
sæli songflokkur The Vill-
age People (Y.M.C.A. o.fl.).
Can't Stop the Music, er
söngva- og dansamynd í takt
við tímann, eins og Satur-
day Night Fever, Grcase,
Xanadu o.fl. Framleiðandi
myndarinnar, Allan Carr, á
hugmyndina að baki henni
og byggist hún einkum á
vinsældum og frumlegri
framkomu söngflokksins.
Kryddið er gamalkunnugt,
eða kynþokkafullt kvenfólk,
rómantík og stórfenglegar
sviðsetningar, búningar og
dansatriði. Ein vinsælasta
tízkusýningarstúlka í New
York (Perrine), er að hætta
störfum og lætur sér líða vel
í listamannahverfi borgar-
innar, Greenwich Village.
Þar unir hún sér einkum
með Jack (Steve Gutten-
berg), sem er upprennandi
lagasmiður og plötuþeytir í
diskóteki.
Svo farið sé fljótt yfir
sögu, þá koma smám saman
inní myndina hinir skraut-
legu meðlimir The Village
People, (Jack fer aftur á
móti með hlutverk Jaques
Morali, mannsins sem
stendur á bak við vinsældir
söngflokksins, en hann hef-
ur samið flest vinsælustu
lög hans). Perrine notar sína
fyrri frægð við að koma
hinum söngglöðu vinum sín-
um áfram og með ýmsum
hjálparmeðölum ná þau svo
sínu marki að lokum.
Allan Carr, framleiðandi
Can't Stop the Music, er
álitinn hálfgerður galdra-
karl þar vestra, en maðurinn
sem er rétt hálf-fertugur, er
umboðsmaður og ráðgjafi
stórstjarna eins og Ann-
Margret, Dyan Cannon,
Herb Alpert, Melinu Merc-
ouri og Tony Curtis. Carr
komst fyrst virkilega í
sviðsljósið, er hann „datt
niður á“ myndina Survive.
Hann lét endurklippa og
hljóðsetja þessa mexikönsku
mynd um harmleik sem
gerðist í Andesfjöllunum
fyrir nokkrum árum, og
framhaldið er ærið sögulegt,
því myndin sló allsstaðar í
gegn, hvar sem hún var sýnd
um lönd. Carr kom einnig
nokkuð við sögu The Deer
Hunter og Tommy, en
þekktastur er hann sjálfsagt
sem meðframleiðandi og
handritshöfundur Grea.se,
þriðju vinsælustu myndar
kvikmyndasögunnar.
Tæpast þarf að kynna
Valerie Perrine eða The
Village People fyrir lesend-
um. Perrine er glæsileg og
fögur leikkona sem er minn-
isstæð úr myndunum Lenny
og Slaughterhouse Five.
Gæti orðið einskonar Mae
West okkar tíma. (Blessuð”
sé minning hennar.) Hinir
íburðarmiklu meðlimir The
Village People sem fyrst
urðu vinsælir árið 1978, með
laginu Macho Man, ef ég
man rétt, eru: Felipe Rose,
sem í föðurætt var hálfur
Sioux- og hálfur Cherokee-
indjáni, og kemur jafnan
fram í fjöðrum skreyttum
stríðsgalla forfeðra sinna;
Alex Briley (Hermaðurinn),
Ray Simpson (mótorhjóla-
löggan), David Hodo (bygg-
ingarverkamaðurinn); Ran-
dy Jones og Glenn Hughes,
sem ætíð skartar klæðum
„leðurjakkatöffara". Litrík-
ur hópur, ekki satt?
Hin seiðmagnaða Valerie
Perrine i Can't Stop the
Music.
Can’t Stop the Music, er
glæný, var frumsýnd í
sumar í hinni glæsilegu
óperuhöll Sidney-borgar.
leikstjóri er Nancy Walker,
sem stjórnað hefur mörgum
sjónvarpsmyndum, komið
fram í nokkrum myndum og
leiksviðsverkum, en þetta er
frumraun hennar sem kvik-
myndaleikstjóra.
beir „þorpsbúarnir“ hafa iöngum þótt skrautlegir á sviði.
Alemendros.
A ekrunum miklu
Sæludagar í Háskólabíói
NÝHAFNAR eru sýningar
á Days of Heaven, eða
Sæludögum, i Háskólabíói.
sem er önnur mynd hand-
ritahöfundarins og leik-
stjórans Terrence Malick.
Hefur hún hvarvetna hlot-
ið ákaflega lofsamlega
dóma, likt og fyrsta verk
höfundar, Badlands.
(Reyndar hafði Malick áð-
ur skrifað handrit myndar-
innar Pocket Money.)
Sæludagar segir af far-
andverkafólki á sléttunum
miklu, rétt fyrir upphaf
fyrra stríðs. Chicago-bú-
arnir Bill (Richard Gere),
Linda systir hans (Linda
Mans) og ástkona Bills,
Abby (Brooke Adams), sem
ætíð kynnir sig sem systur
hans, halda hópinn og ráða
sig í hveitiuppskeru hjá
höfðinglegum Texas-bónda
(sem leikinn er af leikrita-
skáldinu Sam Shepard).
Verður hann fljótlega hug-
fanginn af Abby.
Þreytt og leið á flækingn-
um og baslinu leggja þau
þrjú á ráðin, og Abby giftist
bónda, þegar það spyrst út
að hann eigi skammt eftir
ólifað. En hann reynist
hinn hressasti og von bráð-
ar kemst hann á snoðir um
samband konu sinnar og
„bróður" hennar, Bill. Hér
glata flestir sakleysi sínu
og verður ekki lengra rak-
inn söguþráðurinn.
Sæludagar, var af mörg-
um talin besta bandaríska
mynd ársins 1978. Ekki
aðeins fyrir handrit og leik-
stjórn Malicks, né góðan
leik flestra annarra en Gere
eða tónlist Morricones,
heldur ekki hvað síst fyrir
hina rómuðu, ljóðrænu
snilldarkvikmyndatöku
Kúbumannsins Nestors Al-
emendros. (Sjá grein, ann-
ars staðar á síðunni.) Kom
það heldur engum á óvart
að hann hlaut Oscarsverð-
launin fyrir framlag sitt til
myndarinnar.
Ég vil hvetja alla þá sem
unna fagurri kvikmyndalist
að drífa sig sem fyrst í
Háskólabíó, og gera veg
Days of Heaven sem mest-
an hérlendis, því myndir af
hennar tagi þurfa mikla
aðhlynningu — eða þær
falla langt fyrir tímann.
Pottarim
Umsjón: SIGRUN
DAVÍÐSDÓTTIR
Þessa dagana eru að koma á
markaðinn ýmsar nýjar ostateg-
undir, svo það er ekki úr vegi að
hefja upp ostamál. Fyrst ber
merkan að telja rjómaostinn.
Fyrir ýmsa er hann engin nýj-
ung, því hægt er að búa til eigin
ost með því að sía sýrðan rjóma.
En það er vissulega þægilegt að
geta keypt öskju, þegar mikið
liggur við. Rjómaosturinn til-
búni er heldur þurrari en sá sem
fæst úr sýrða rjómanum. Hann
er bragðgóður, en helzt til þurr
fannst mér. Það eru þó vísast
byrjunarörðugleikar.
Ostur
Úr rjómaostinum má gera
margt gott. Hann er ljómandi
góður til að þykkja sósur, og þá
ætti hveiti að vera alveg um-
framt. Hann er geysigóður í
sæta og salta pæa, kökur og
krem. Ostakaka er mjög þekkt
víða, þar sem þessi ostur er
hefðbundinn mjólkurmatur. ít-
alir búa þannig til ostaköku með
þurrkuðum ávöxtum í, t.d. rúsín-
um og súkkati. Það er vert að
hafa þann möguleika í huga. Oft
er kakan bragðbætt með sítr-
ónusafa. Nýir ávextir þykja góð-
ir með og eru bakaðir í kökunni,
eða lagðir ofan á á eftir.
Hér kemur uppskrift að kremi
úr rjómaosti. Kremið hefur
þann kost, að það þarf ekki að
baka og er fremur fljótlegi. Þið
getið borið það fram sem búð-
ing, t.d. í skál fyrir hvern og
einn. Avextir eru góðir með, Ld.
vínberin sem fást nú svo góð. Þá
spillir ekki fyrir, að úrsteina þau
og leggja á botninn undir krem-
ið. Einnig er tilvalið að setja
kremið á milli svampbotna. Þið
látið það þá aðeins standa fyrst,
ca. 1 klst., áður en þið setjið það
á botninn. Látið það ekki ná
alveg út á jaðrana, svo það fljóti
ekki úr kökunni. En síðast en
skki sízt notið þið það í pæa-
botna. Uppskrift að slíkum fylg-
ir. Mulningsbotn er ljómandi
lausn. Nú má víða frá granola-
mylsnu frá Nutana. Hún er góð í
botn. En þá er það pæinn ...
Botninn:
2 dl haframjöl
2 dl heilhveiti
1 dl hveiti, helzt óhvittað
100 gr smjör
1 egg
1-3 msk púðursykur
1. Setjið mjölið á borð. Myljið
kalt smjörið saman við það
ásamt sykrinum. Þegar þetta er
orðið vel blandað, bætið þá
egginu í og hnoðið deigið. Ef þið
viljið ekki nota egg, getið þið
vætt í með vatni eða mjólk. En
vætan er til að deigið loði
saman. Ef þið hafið tíma, er gott
að deigið fái að jafna sig í um
30—60 mín. í kæliskáp.
2. Setjið ofninn á 225°.
3. Smyrjið form með lausum
botni eða sérstakt pæaform.
Þrýstið nú deiginu í formið.
Hafið ekki áhyggjur þó botninn
sé ekki eggsléttur. Það kemur
ekki að sök. Þrýstið deiginu vel
upp á barmana. Bakið nú botn-
inn í 15—20 mín., eða þar til
hann er fallega gullinn og
greinilega bakaður í gegn.
4. Þá er það kremið.
1 askja rjómaostur eða ostur
úr 2 dósum af sýrðum rjóma
1 egg
3-4 msk hunang
2'A dl r jómi
safi úr x/i sítrónu
Útbúið ost úr sýrðum rjóma
með því að setja rjómann í
kaffipappírspoka og láta standa
i um sólarhring, ef þið hafið
þann háttinn á.
5. Þeytið saman ostinn og
eggið, svo að osturinn verði
sléttur og kekkjalaus. Þeytið
hunangið saman við. Stífþeytið
rjómann. Blandið ostahrærunni
og rjómanum saman. Þeytið
safanum saman við. Látið nú
kremið standa í um 1 klst. í kæli.
Á þeim tíma stífnar það. Hellið
því svo hálfstífu í skelina. Látið
það standa í um 15 mín. og jafna
sig áður en þið berið kökuna
fram.
Ef þið berið ekki ávexti fram
með eða í kreminu, þá er alveg
tilvalið að brytja 3—4 gráfíkjur
saman við kremið. Stráið síðan
nokkrum valhnetum yfir, og
þarna hafið þið svellandi köku.
Hún er jafn góð með kaffi eða te,
eða sem eftirréttur.
Eins og þið sjáið, er kremið
sannkallað undrakrem, vegna
þess hve það er einfalt og hentar
við margs konar tækifæri og
með margs konar hráefni.
Ef þið viljið útbúa ósæta
köku, sleppið þið hunanginu, og
þeytið t.d. gráðaosti saman við.
Gráðaosturinn fæst nú sem bet-
ur fer aftur eftir nokkurra
mánaða hlé.
Meira af ostum
Cottage cheese er enskt heiti á
osti sem er víða þekktur. Nú
framleiðir KEA svona ost. Ég
kem nánar að honum síðar, en
það má nota hann líkt og
rjómaost. En athugið, að rjóma-
ostur er feitur, en það er þessi
ostur, sem er kallaður Kotasæla,
alls ekki. Prófið t.d. að nota
hann í kremið hér að ofan.
Reyndar er Kjúka gamalt ís-
lenzkt heiti á svona osti.
Osturinn Búri hefur einnig
bætzt í þennan fríða flokk. Sá er
feitur og mildur. Hann þykir
helzt minna á danskan rjóma-
Havarti. Hann er tilvalinn til að
bera fram sem eftirrétt eða
millirétt við hátíðleg tækifæri,
auk þess að nota hann sem
álegg. Ég er ekki í vafa um, að
allir ostaunnendur eiga eftir að
falla í stafi af hrifningu. Þetta
er hreint frábær ostur sem
framleiðendurnir á Húsavík
mega vera stoltir af.
Ekki má gleyma að í Reykja-
vík eru tvær ostabúðir. Önnur er
á Snorrabrautinni, gamalkunn,
en hin er ný, á Bitruhálsi. Það er
mjög gaman að verzla í þessum
búðum, því þar er hægt að fá að
bragða á ostunum og afgreiðslu-
stúlkurnar eru elskulegar. Það
er mun betra að kaupa osta í
stórum stykkjum, ef hægt er að
koma því við, því þannig er
osturinn bæði betri og ódýrari.
Osturinn er lifandi, og loftþéttar
plastumbúðir fara ekki vel með
hann.
V