Morgunblaðið - 30.11.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
23
i
laus. Blasa þá ekki við mér
allskyns smekkleysur svo ég missi
ráð og rænu næstu tímana. Það
eina sem gæti hresst mig er
pínulítil von um endurprentun, til
að mynda á heildarverkum, þar
sem mér gæfist kostur á lagfær-
ingum, leiðréttingum og útstrik-
unum.
Ætlaðirðu þér alltaf að
verða skáld?
— Skáld, anzi ertu kurteis.
Hvað áttu við? Að ætla sér að vera
skáld, það er fyrst og fremst
rómantísk hugsun. Það á lítið
skylt við raunveruleikann. Sumir
höfundar hafa þó tekið svona
ákvörðun og staðið við hana. En ég
er of raunsær í mér til þess — of
borgaralegur eða of mikill smá-
borgari eins og sumir myndu orða
það. Ég hef líka alltaf verið
bundinn á einn eða annan hátt.
Ég hef eiginlega aldrei haft ráð
á að lifa í draumum. Sumir geta
það ævina á enda. Þeir vakna
aldrei. Svoleiðis er til að mynda
mörgum pólitískum höfundi farið.
En þú fórst snemma að
skrlfa?
— Að fikta. Já, já. Arum saman
ekki nema stutta kafla, nokkrar
linur til þess að reyna að ná fram
ákveðnum blæ. En milli tektar og
tvítugs las ég eingöngu góðar
bækur, heimsbókmenntir, mest þó
norðurlandahöfunda. Alþýðubóka-
safnið, sem nú heitir Borgarbóka-
safn, var mér sannkölluð bókalind
á þeim árum. Þegar ég var barn
var kennd danska og enska í
Miðbæjarbarnaskólanum og mér
tókst furðu fljótt að verða staut-
fær í þeim málum. Síðar bættist
við þýzka og ég hafði gaman af
henni — allt þar til Hitler skepn-
an hleypti öllu í bál og brand. Þá
steinhætti ég að lesa þýzku og hef
týnt henni niður. En þessi mála-
kunnátta var mér lykill að góðum
bókum.
Ég minnist þess ekki — vissi að
minnsta kosti ekki af þvi — að
nokkur jafnaldra minna væri
haldinn svo ofsafenginni lestrar-
áráttu. Hver einasta frístund var
gripin, nótt sem nýtan dag — ég
lifði í tveimur heimum, vann á
daginn og las fram eftir. Ég var
eins og drykkjumaður. Tolstoy var
á við ginflösku, Jóhannes V. Jen-
sen eins og úrvals viskítegund,
Dostojevsky betri en kassi af
koníaki, Hamsun á borð við eðl-
asta burgundarvín.
Hafa bækur þessara hof-
unda haft áhrif á þig?
- Of lítil.
Hefurðu yfirleitt haft tíma
til að sinna ritstörfunum eins
og þig langaði til?
— Að sjálfsögðu ekki. Stundum
hef ég ekki snert á penna árum
saman. Ég hafði öðrum skyldum
að gegna og gat ekki farið öðruvísi
að. Ég sé óskaplega etir þeim
tíma, en sjálfsagt mega margir
hrósa happi.
—Og að lokum Jón, hvað er
framundan hjá þér núna —
fáum við að heyra meira af
Stjörnuglópum?
— Ætli það sé ekki nóg komið?
Ég hef varla tíma til þess, það eru
svo margar aðrar persónur sem
eru farnar að leita á. Mig langar
að sinna þeim.
— Sinna þeim? Hjálpa
þeim? Bjarga þeim? Drepa
þær?
— Nei. Umgangast þær og sjá
þær þroskast, mér er forvitni á að
sjá hvernig þeim gengur — hvort
þær verða skemmtilegar, örlög
þeirra góð eða sorgleg. Ég get
engri þeirra hjálpað en að sjálf-
sögðu færi ég ekki að drepa þær.
Það liggur í hlutarins eðli að ég
reyni að láta þær lifa sem lengst
og skiptir þá engu máli hvort þær
deyja í sögunni eða ekki.
- bó.
Háskólafyrirlestur:
Hagkvæm orkunotk-
un í sjávarútvegi
PRÓFESSOR Valdimar K.
Jónsson flytur fyrirlestur á
vegum Verkfræðistofnunar
Háskóla íslands þriðjudaginn
2. desember. Fyrirlesturinn
nefnist „Hagkvæm orkunotk-
un i sjávarútvegi14 og fjallar
um svartoliunotkun, siglingar-
hraða og rétta notkun á skrúf-
um m.a.
Fyrirlesturinn verður hald-
inn í húsi verkfræði- og raun-
vísindadeildar Háskóla Islands
við Hjarðarhaga í stofu 158 og
hefst kl. 17:15.
Þessi fyrirlestur er annar í
röð fyrirlestra til kynningar á
starfsemi Verkfræðistofnunar.
Næsta fyrirlestur heldur dr.
Þorgeir Pálsson, dósent, 22.
janúar 1981 og fjallar um tölvu-
kerfi íslensku flugstjórnar-
miðstöðvarinnar.
Selja spil tíl
styrktar öryrkjum
Byggðarlagsnefnd JC Vík, Reykja-
vík, hefur hafið sölu á öskjum með
kertum og spilum. Öskjurnar eru
ýmist með spilum fyrir sjónskerta
eða venjulegum spilum. Agóði af
sölu þessari á að renna til starfs í
þágu öryrkja, en utan á öskjunum
stendur slagorðið „í það minnsta
kerti og spil, öryrkjum í vil“ og
fylgja einnig ýmsar tölulegar upp-
lýsingar um hag öryrkja.
HLJÓWIPLÖTUÚTGÁFAN H.F. OG FLEIRI
TIL STYRKTAR FÉLAGASAMTÖKUNUM
VERND í HÁSKÓLABÍÓI
SUNNUDAGINN 7. DES. KL. 22.00