Morgunblaðið - 30.11.1980, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.11.1980, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 Rambað um verksmiðjusvæðið. Ásmundur A. Jóhannsson Stina í Kisiliðjunni gengur frá vinnu kl. 5 en þegar óvissuástand er þá er skilið við bókhaldið tiibúið tii skyndiflutnings. eftir gosið í haust sem var við ákaflega sérstæðar aðstæður, það var snjór yfir öllu, og ákveðin skýjahæð í bjartviðrinu sem endurkastaði eldsbjarman- um margfalt um himininn svo lesbjart varð um alla sveit um nóttina. Þetta var tignarlegt en um leið ógnvekjandi, en er ann- ars nokkuð að frétta af skjálfta- vaktinni?" „Nei, þetta kemur einhvern- tíma fyrir jól“ „A móti sífelldum fréttaflutninRÍ í útvarpi og sjónvarpiu Sveina Sveinbjörnsdóttir hús- móðir kvaðst vita lítið um þann viðbúnað sem ætti að vera ef eitthvað kæmi upp,“ þetta virð- ist vera svolítið pukurmál," sagði hún og taldi að enginn á staðnum væri hræddur við stöð- una. „Fyrir mitt leiti,“ sagði hún hins vegar, „er ég mjög á móti því að alltaf sé verið að ympra á þessu í útvarpinu og sjónvarpinu með sífelldum fréttaflutningi, það spilar fólkið upp. Ég sá gosið í sumar og hafði ekki áhuga á að sjá gosið í haust, fékk alveg útrás við að sjá hið tignarlega sumargos, en ég hef ekkert fundið það hjá fólki að það sé hrætt." „Nákvæm áætlun ef til hættuástands kemur“ „Það er búið að vinna upp nákvæma áætlun, sem hefur þróast í gegn um árin eftir því sem umbrotin hafa gerst og það var í rauninni fyrst hugsað til' enda á almannavarnafundi fyrir skömmu, því þá var í fyrsta skipti gert ráð fyrir brottflutn- ingi fólks ef til kæmi gos í Bjarnarflagi," sagði Arnaldur Bjarnason sveitarstjóri," það er byggt á skýrslum vísindamanna og mælitækjum sem eru í gangi. Um leið og landsig hefst lætur skjálftavaktin vita á símstöð og víðar, m.a. oddvita, sveitar- stjóra, lögreglu á Húsavík, sýslumann og lækni, en það er ávallt bakvakt á símstöðinni og boðunarhringing er í 6 útköllum. Eftir slíka hringingu er beðið eftir ótvíræðum upplýsingum um kvikuhlaup í norður eða til suðurs og ef hlaup reynist vera í suður er ákveðið að rýma Kísil- iðjuna og Léttsteypuna í Bjarn- arflagi. Þá yrðu lögregluliðar kallaðir út í sveitunum og þeir eiga að skrá fólk og hafa stjórn á umferð. Að undanförnu hefur verið unnið að ýmsum ráðstöf- unum, vegir hafa verið hækkað- ir, símakerfi endurtengt og símaskrá yfirfarin og talstöðv- arsamband á að vera vel tryggt. Skjálftavakt hefur verið sett á allan sólarhringinn, en það er föst vakt sem ekki þótti ástæða til að hafa áður.“ „Hvað um afstöðu íbúa al- mennt til þróunar þessara mála?“ „Það er mikið meiri spenna og hræðsla hjá fólki hér að undan- förnu eftir októbergosið sem var mikið sjónarspil, en fólk er ekkert að spá neitt óeðlilega í þetta, það er allt gert í öryggis- ráðstöfunum til þess að vera við öllu búin ef eitthvað kemur upp og almannavarnirnar eruí raun- inni ekkert annað en fólkið sjálft og það byggist allt á því að menn vinni saman að því að tryggja öryggi sitt á meðan þessar sér- stæðu aðstæður eru fyrir hendi. Það er hins vegar persónuleg skoðun mín að hér eigi ekki eftir að verða neinir alvarlegir at- burðir þannig að fólk verði í hættu, en að undanförnu hefur borið á því að fólk hafi farið af staðnum um skeið, t.d. hafa þrjár húsfreyjur farið tíma- bundið í burtu fyrir skömmu." „Keríið vill bíðau „Skapar þetta ástand vanda fyrir sveitarfélagið?" „Þetta ástand skapar mikla erfiðleika, því það skapar vantrú hjá þeim sem eiga að greiða götu okkar í kerfinu. Það er ljóst að halda verður mannlífi og at- vinnulífi hér gangandi á eðli- legan hátt, en ég get nefnt tvö dæmi um tregðu í afgreiðslu mála. Hér er vont vatn og heitt til neyslu og sömuleiðis veldur hitaveitan okkur verulegum vandræðum með útfellingum. Við höfum hugmyndir um var- anlegar bætur og fáum skilning í þeim efnum, en kerfið vill hins vegar bíða um sinn með fram- kvæmdir til lausnar. Þetta óvissa ástand hefur því efna- hagsleg áhrif á svæðið og til langs tíma geta þau áhrif orðið slæm. En nú eru menn farnir að sjá ákveðinn stíganda í þessu miðað við rannsóknir í gegn um árin og það dregur til úrslita. En þrátt fyrir ákveðna pressu býr fólk ekki við neina sálar- kreppu hér og allir ganga til sinna starfa og leikja eins og eðlilegt er.“ „Óþarílega svart málað á stundum*4 „Fyrir mína parta finn ég engan mun á því nú og þegar þetta var að byrja,“ sagði Krist- ján Þórhallsson frá Björk þegar við spjölluðum við hann á lag- ernum í Kísiliðjunni, „það getur verið að um einhverja hættu sé að ræða, en það bara veit það enginn. I jarðskjálftunum í upphafi þessara umbrota í árslok 1975 og ársbyrjun ’76 og einnig vorið 1978 brast oft mikið í mann- virkjum hér á svæðinu og reynslan hefur orðið sú að þótt jarðskjálftahrinurnar hafi orðið nokkuð langar þá hafa gosin verið mjög stutt, en mér finnst stundum málað óþarflega svart þótt allur sé varinn góður. ísland er eldfjallaland og ég treysti í þessum efnum á jarðvísinda- menn og tæki þeirra og víst eru ákveðnar aðgerðir til þess að skapa öryggi. Ég var á sínum tíma á móti byggingu varnar- garða, taldi slíkt barnaskap, en ef til vill getur það varið eitt- hvað ef til kemur." Jarðskjálftavirkni og hreyfing jarðskorpunnar Fyrst varð vart við eitthvað torkennilegt á Kröflusvæðinu sumarið 1975 þegar óeðlileg skjálftavirkni kom þar fram. Þá var farið að fjölga skjálftamæl- um og eftir að umbrotin byrjuðu hafa menn orðið að þróa tækn- ina og mæliaðferðir eftir því sem umbrotin hafa sagt til um. Til góða í þessu sambandi komu mælingar sem höfðu verið gerð- ar á svæðinu vegna byggingar Kröfluvirkjunar og rannsókna á háhitasvæðinu. Eftirlit hefur þó aðallega byggst á tveimur aðferðum, þ.e. að fylgjast með jarðskjálfta- virkni og hreyfingum jarðskorp- unnar. Vegna þess að fylgst var með hallamælingum kom í Ijós hall- inn á stöðvarhúsinu og þannig hefur hvert atriðið rekið sig af öðru. Skorpubreyting er bein afleið- ing af kvikurennsli, en í rauninni hafa verið þróaðar upp margar aðferðir til þess að fylgjast með gangi mála. Síritandi hallamælar sem smíðaðir hafa verið á Norrænu Eldfjallastöðinni, skipta mestu máli í þessum efnum varðandi hugsanlega hættu fyrir fólk og sem aðaltækni við að segja fyrir um hvenær umbrot eru byrjuð eða yfirvofandi eru jarðskjálfta- mælarnir og síritarnir. Jafnhliða fara fram ýmsar aðrar mælingar. Jarðvísindamenn til ráðuneytis „Landris segir til um kviku- rennsli neðanjarðar, hversu hratt það er og hvar. Þegar land rís t.d. við Leirhnjúk þá rennur hraun inn í hólfið, en þegar landið sígur þá verður kviku- hlaup annað hvort til norðurs eða suðurs eftir stefnu sprungu- sveimsins," sagði Karl Grönvold jarðfræðingur í samtali við Mbl. „Fyrstu fjögur árin hljóp allt hraun neðanjarðar í umbrota- hrinunum, en þó sáust mikil umbrot í Gjástykki. Á þessu ári hafa hins vegar komið eldgos í þremur umbrotahrinum. Hraun- ið getur hlaupið tugi kílómetra neðanjarðar, og ef eldgos hefur orðið nálægt kvikuhólfunum þá hefur liðið um það bil klukku- stund frá því að eldgos hefst frá því að órói kom fram á mælum, en nokkrar klukkustundir ef gosið hefur í ytri mörkum gos- svæðisins." Þegar órói byrjar eru jarðvís- indamenn almannavörnum til ráðuneytis, þeir meta hvenær hrinan er hafin og metið er hvenær atburðir kunni að ger- ast. Þetta hefur þó verið mjög mismunandi, stundum er vafi á ferðum, stundum ekki, en það er þarna sem veltur á mestu í því að vega og meta stöðuna. Svæðið sem er að rísa og síga er tugir kílómetra á lengd og landbreytingar eru vel merkjan- legar á sjálfu Mývatni, því þar verða yfirborðsbreytingar á vatni í kílómetra fjarlægð frá Leirhnjúk. Mest hætta aí hraungosi „En hver er aðalhættan?" „I þessu tilviki er mest hættan af hraungosi," sagði Karl Grön- vold, „ef um tiltölulega þunn- fljótandi hraun er að ræða, en miðjan á sprungusveimnum er um 25 km löng og þar er mest hættan á eldgosi. Syðst á þessu 25 km langa hættusvæði er í Bjarnarflagi, en mest hættan er þó við Leirhnjúk á miðju svæð- inu. í hverri hrinu eru líkur á öllum sveimnum, en hingað til hefur norðurendinn verið virk- astur, sem betur fer.“ „Hvenær er óvissan rnest?" „Mesta óvissan er að jafnaði fyrstu klukkustundirnar áður en ljóst er hvert stefnir. í júlí varð fljótlega ljóst að stefnan var norður, en óvissan getur verið meiri og það er ekki tryggt að stefna kvikuhlaupanna komi strax fram á mælum." „Er hægt að minnka óviss- una?“ „Það er hægt með því að reyna að þróa þessa tækni sem byggt er á eftir því sem mannskapur og fjármagn leyfir, en með meira fjármagni gætu verið til staðar aukin mælitæki sem myndu að öllum líkindum minnka óviss- una.“ Hallamælar í algjöru lágmarki „Er hægt að tala um ákveðna fjármagnsþörf í því sambandi?" „Þróunin er svo hröð í þessu síðan umbrotin hófust að það er alltaf spurning um að aðlaga sig þekkingunni. Við vitum ekki nú hvaða mælitæki eru best eða hvar er hyggilegast að staðsetja mæla eftir t.d. 4 mánuði, en síritandi hallamælar eru í al- gjöru lágmarki miðað við það að meta þarf stöðuna í óvissu- ástandinu þegar kvikuhlaup er byrjað." „Finnst þér eðlilegur gangur mála í samskiptum við fjöl- miðla?" „Fréttaflutningur af atburða- rásinni hefur verið ákaflega sundurlaus, mikið af sundur- lausum fréttum sem eru teknar úr samhengi. Að sjálfsögðu er áhugi fjölmiðla mestur þegar eitthvað dramatískt er að gerast og þá verður áherslan á hraða atburðarás, en þetta hefur greinilega valdið töluverðum misskilningi og hefur ekki gefið rétta heildarmynd. Að sjálf- sögðu er það vísindamönnum aðeinhverju leyti að kenna auk þess sem atriði eins og Kröflu- virkjun og allt í sambandi við hana fléttast inn í umræður um málið. Eitt af því sem manni verður ljóst við þetta er það hve samskipti fólks fara mikið fram í gegn um fjölmiðla, jafnvel innan stjórnkerfisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.