Morgunblaðið - 30.11.1980, Side 32

Morgunblaðið - 30.11.1980, Side 32
^Síminn á afgreiðslunni er 83033 3fl»r0iint>lnbit> f24 dagar | tiljóla <£>Ull vK: Laugavegi 35 SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 Mjólkur- verkfall á mið- nætti? Mjólkurbirgðir end- ast til þriðjudags ef til verkfalls kemur — VIÐ höfum ræðst við og gerum ráð fyrir að sitja á sáttafundi alla helgina, en það er ekkert komið á hreint i þessu máli og allra veðra er von, sagði Sigurður Runólfs- son formaður Mjólkurfræðinga- félagsins er Mbl. innti hann frétta af kjaramálum mjólkur- fræðinga, sem hafa boðað verk- fall frá miðnætti í nótt. I gær var unnið að því að fá mjólk til Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og verður hún töppuð á í dag og sagði Guðlaugur Björg- vinsson forstjóri, að birgðir myndu trúlega endast fram á þriðjudag og jafnvel miðvikudag, ef til verkfallsins kæmi. Hvorugur þeirra vildi spá neinu um gang viðræðna um helgina eða hvort til verkfallsins kæmi, en Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemjari sagði, að tíminn yrði vel notaður um helgina. Auk sáttafunda mjólkurfræð- inga og viðsemjenda þeirra hófust siðdegis í gær fundir með far- mönnum Jólarjúpan kostar 3.400 kr. MIKIÐ hefur veiðst af rjúpu í haust, mun meira en í fyrra, að sögn Garðars Svavarssonar kaupmanns i verzluninni Hjá Tómasi. Það verður því nóg af rjúpu fyrir þá fjölmörgu, sem ætla að hafa þær i jólamatinn. Garðar sagði að framboð af rjúpu hefði verið miklu meira í haust en hann hefði átt von á og kvaðst hann hættur að kaupa rjúpur af veiðimönnum. Verðið hefur verið ákveðið 3.400 krónur fyrir hverja rjúpu út úr búð en hamflett kostar hún 3.700 krón- ur. I fyrra kostuðu rjúpurnar 2.900 krónur og hefur verðhækk- unin því ekki haldið í við verð- bólguna. Sagði Garðar að verðið nú ákvarðaðist af framboðinu sem fyrr. Flokksráðs- og formannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins var sett að Hótel Esju fyrir hádegi í gær. Störfum ráðstefnunnar verður haldið áfram í dag og verður henni væntanlega lokið síðdegis. Myndin er tekin er Geir Hallgrimsson setti ráðstefnuna. Geir Hallgrimsson á flokksráðsfundi í gær: I>jóðarhcill krefst sam- stöðu siálf stæðismanna GEIR Hallgrímsson, for- maðnr Sjálfstæðisflokks- ins, sagði í ræðu við upp- haf flokksráðs- og for- mannaráðstefnu flokksins í gær, að málefnalegur ágreiningur um afstöðu til núverandi ríkisstjórnar ylli því, að sjálfstæðis- menn ættu nú ekki allir samleið. „Við getum ekki lokað augunum fyrir þess- um ágreiningi“, sagði Geir Hallgrímsson „og þessi fundur verður að taka afstöðu til ríkisstjórnar, stefnu hennar og starfa eins og allir slíkir fundir hafa gert. En það er engu að síður von mín, að leiðir allra sjálfstæðismanna liggi sem fyrst aftur sam- an.“ Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í ræðu sinni, að Sjálfstæðis- flokkurinn væri mikilvægari en persónulegur metnaður. Málefnin væru mönnum mikilvægari. Þjóð- arheill krefðist þess, að sjálf- stæðismenn berðust sameiginlega fyrir hugsjónum sjálfstæðis- stefnunnar. Geir Hallgrímsson sagði, að það væri íhugunarefni fyrir sjálf- stæðismenn, hvernig komið væri. Ástæðan gæti verið sú, að sjálf- stæðismenn hefðu of lengi beint sjónum inn á við. Sjálfsgagnrýni er nauðsynleg, sagði formaður Sjálfstæðisflokksins, en hún má ekki draga svo úr kröftum okkar við að berjast fyrir hugsjónum okkar og gegn andstæðingum okkar að við náum ekki fylgis- aukningu. „Áhrif flokks okkar eru ekki sem þau gætu verið í samræmi við kjörfylgi og kjör- fylgið ekki í samræmi við gildi stefnu okkar og þjóðarnauðsyn", sagði Geir Hallgrímsson enn- fremur. Sjá fyrri hluta ræöu Geirs Hall- grfmssonar á flokksráðs- og for- mannaráðstefnu á bls. 15. Fimm háhymingar veiddust i haust Verðmæti 145 millj. kr. NÚ ER nokkuð um liðið siðan vélbáturinn Guðrún frá Hafnar- firði hætti háhyrningaveiðum en alls veiddi hann fimm háhyrn- inga á sildarmiðunum fyrir aust- an og suðaustan land. Háhyrn- ingarnir fimm eru nú í laug i Sædýrasafninu þar sem þeir eru látnir jafna sig áður en þeir verða seldir úr landi. Veiðarnar hófust í byrjun október en gengu illa í fyrstu. Fyrsti háhyrningur- ASÍ skorar á Alþingi að af nema vísitöluskerðingu Olafslaganna ALÞÝÐUSAMBANDSÞING sam þykkti i kjaramálaályktun áskor- un á Alþingi um að „afnema þau ákvæði laga nr. 13/1979 (ólafs- laga), sem kveða á um skerðingu verðbóta á laun samkvæmt kjara- samningum frá 22. júní 1977“. í kjaramálaályktuninni segir: „Vísitölukerfið er vörn launa- fólks gegn verðbólgunni og sam- tökin hljóta í næstu kjarasamn- ingum að leggja áherzlu á að bæta kerfið, svo að umsaminn kaupmáttur verði betur tryggð- ur.“ „Barátta verkalýðshreyfingar- innar fyrir aukinni velmegun snýst ekki um krónur og aura, heldur aukinn kaupmátt," segir í ályktuninni. „Verðbólgan knýr hins vegar á um miklar kaup- hækkanir, því að augljóst er, að í 50% verðbólgu verður kaup að hækka um 50% til þess að halda óskertum kaupmætti... Draga verður úr víxlhækkunum verðlags og launa með raunhæfum aðgerð- um í verðlagsmálum. Takist að draga úr verðhækkunum, dregur jafnhraðan úr verðbótahækkunum launa, því að bætur reiknazt aðeins fyrir þegar áorðnar verð- hækkanir. Verðbætur eru því af- leiðing, en ekki orsök verðbólg- unnar." Þá er á það bent, að við óbreytt skert vísitölukerfi muni kaupmáttur fyrirsjáanlega falla um 1 til 2% á ársfjórðungi á samningstímanum, sem er til 1. nóvember næsta ár. Þá telur Alþýðusamband ís- lands brýnt, að nýir kjarasamn- ingar taki gildi 1. nóvember 1981 og til að fylgja því eftir mun verkalýðshreyfingin leggja mik- inn þunga og áherzlu á kröfuna um afturvirkni samninganna, ef síðar takast. Sú krafa miðar að því að koma í veg fyrir, að atvinnu- rekendur geti hagnazt á því að tefja samninga með endalausu þófi og undanbrögðum, líkt og í síðustu samningagerð. Alþýðu- sambandsþing leggur áherzlu á, að öllum undirbúningi verði hraðað, þannig að fullmótuð kröfugerð liggi fyrir í september ásamt ákvörðun um, hvernig staðið verði að samningum og felur miðstjórn að gangast fyrir formannaráð- stefnu í marz, þar sem meginlínur verði lagðar, bæði hvað snertir kröfugerð og hver vera skuli verkefnaskipting heildarsamtak- anna og einstakra landssambanda og félaga. inn veiddist 24. okt., annar 7. nóv., þriðji 10. nóv., og fjórði og fimmti 14. nóv. Söluverðmæti hvers háhyrnings er um 50 þús- und doilarar og fást því um 145 millj. kr. fyrir þessa fimm há- hyrninga. Að sögn Jóns Kr. Gunnarssonar, forstöðumanns Sædýrasafnsins, heilsast háhyrningunum vel í Sæ- dýrasafninu. Þeir eru byrjaðir að éta allir fimm en oft bregður þessum hvölum svo mikið við að vera fluttir úr sínu náttúrulega umhverfi að þeir hætta að nærast. Ekki vissi Jón hvernær háhyrn- ingarnir yrðu sendir úr landi en taldi að það yrði mjög bráðlega. Þá var Jón spurður hvernig slöngunni heilsaðist. Sagði hann að hún hefði komið til og væri byrjuð að nærast aftur. Slangan hætti að éta um skeið og höfðu menn þá áhyggjur af heilsufari hennar. Sagði Jón að það hefði stafað af því að slangan var að skipta um ham — um væri að ræða boa-kyrkislöngu frá Suður- Ameríku en slíkar slöngur skiptu um ham tvisvar eða þrisvar á ári og nærðust ekki á meðan á því stæði. Slöngur þessar geta orðið 4 til 5 metrar á lengd og orðið 15—20 ára gamlar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.