Tíminn - 08.07.1965, Síða 13
PIMMTUDAGUR 8. júlí 1965
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR
tfriKÉið
___13
Dregið í Evrópubikarkeppninni í knattspyrnu
Keflvíkingar mæta liðinu,
sem sló Manchester Ut. út!
Brasilíumenn sigursælir í Evrópuförinni
Landslið Brasiliu í kuattspyrnu
hefur að undanförnu verið á
keppnisferðalagi um Evrópu. Lið-
i» lék sinn fyrsta leik gegn Sví-
þjóð og fór leikurinn fram í Stokk
hólmi í síðustu viku. Brasilíumönn
um gekk ekki of vel með Svía en
sigruðu þó 2:1.
Annan leik sinn léku Brasilíu-
menn svo gegn Rússum og fór sá
STUTTAR
FRÉTTIR
Tveir leikir fóru fram í 2.
deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu s. 1. laugardag. f Kópa-
vogi léku Breiðablik og FH og
sigraði Breiðablik með 4:3, en
í fyrri umferðinni hafði FH
sigrað Breiðablik 8:0. Knatt-
spyrnan er óútreiknanleg a. m.
k. þegar Hafnfirðingar eiga í
hlut. — Á ísafirði léku heima-
menn gegn Vestmannaeying-
um og unnu 2:0. Framkoma
Vestmannaeyinga var ekki til
fyrirmyndar á fsafirði að sögn
fréttaritara blaðsins.
★ Frjálsíþróttamót ÍR fór
fram á Laugardalsvellinum í
fyrrakvöld í góðu veðri. Ár-
angur íþróttamanna var ekki í
samræmi við veðrið, ef undan-
skilinn er árangur Jóns Þ.
Ólafssonar í hástökki, en hann
stökk 2,05 metra.
★ Færeyska handknattleiks-
liðið Kyndill, sem hér dvelst á
vegum Hauka, lék sinn fyrsta
leik í fyrrakvöld og mætti þá
gestgjöfum sínum. Leiknum
lyktaði með sigri Ilauka 21:19.
í gærkveldi áttu Færeyingarn-
ir að leika gegn FH.
leikur fram í Moskvu um helgina.
Rússar, sem höfðu sigrað Dani
með 6:0 nýlega, máttu sætta sig
við að tapa 3:0 fyrir Pele og fé-
lögum.
Myndin hér að ofan er frá leik
Brasilíu og Svíþjóðar. Þarna reyn-
ir Pele að brjóta sér Ieið gegnum
sænsku vörnina, en fær heldur
óblíðar móttökur hjá sænsku varn
armönnunum — og kastast upp í
loft. (Ljósm. UPI).
Bræðurnir Óli B. og Guðbjörn Jónssynir.
BRÆDUR I
ELDLfNUNNI
Óli B. og Guðbjörn meö íslenzku Evrópuliðin
Alf-Reykjavík, miðvikudag.
f sambandi við dráttinn í Evr-
ópukeppninni náði ég tali af þjálf-
urum Keflavíkur og KR, bræðrun-
um Óla B. og Guðbimi, og bað
þá að segja álit sitt, en þeir verða
í eldlínunni næstu vikurnar við
undirbúning liða sinna fyrir keppn
ina.
Óli B. sagðist vera dálítið sleg-
inn yfir því að fá ungverska lið-
ið. „Við hefðum getað verið
heppnari í drættinum — og bezt
hefði verið, hefðum við fengið eitt
hvert Norðurlandaliðanna. En það
þýðir ekki að fást um það — nú
herðum við á æfingum og reynum
að gera okkar bezta, þegar við
mætum Ferencvaros.
Guðbjörn kvaðst vera ánægður
með mótherjana, sem KR fær.
„Ég hef trú á því, að okkur gangi
vel, a. m. k. fer ég aldrei með
lið inn á nema með það fyrir aug-
um að sigra. Ég hugsa, að þetta
norska lið sé sterkt, en KR-liðið
er líka sterkt og hefur verið að
sækja sig upp á síðkastið. Já, og
ekki er verra fyrir okkur, að við
leikum fyrri leikinn á heimavelli“,
sagði Guðbjörn að lokum.
- en KR norsku bikar-
meisturunum Rósenborg
Alf—Reykjavík miðvikudag.
Samkvæmt NTB-frétt, sem barst í dag, hafa lið verið dreg-
in saman í 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða og Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa. íslandsmeistararnir frá Keflavík
sendu þátttökutilkynningu í fyrrnefndu keppnina, og hafa
dregizt á móti ungverska lið'inu Ferencvaros frá Búdapest,
einu sterkasta knattspyrnuliði í Evrópu í dag, en þetta er
einmitt sama liðið og sló Manchester Utd. út í borgarkeppn-
inni fyrir skemmstu.
Bikarmeistarar KR taka þátt i Evrópubikarkeppni bikar-
hafa og hafa dregizt á móti norsku bikarmeisturunum Ros-
enborg frá Þrándheimi, en Rosenborg er í 2. deild. ■
Leikin er tvöföld umferð og
leika Keflvíkingar fyrri leik sinn
í Búdapest, en KR er heppnari,
því að þeir leika fyrri leik sinn
hér heima. Leikjum Keflavíkur
og ungverska liðsins á að vera
lokið fyrir 1. október, en leikjum
KR og norska liðsins fyrir 15.
október.
Ferencvaros
Ferencvárós frá Búdapest er
eitt sterkasta knattspyrnulið í
Evrópu um þessar mundir, og fá
því Keflvíkingar erfiða mótherja
Til marks um getu hins ungverska
liðs má minna á, að fyrir
skemmstu sló það Manchester
Utd., ensku meistarana, út í borg
arkeppninni. Liðin léku þrjá leiki.
Fyrsta leikinn vann Manchester
á heimavelli sínum 3:2, en annan
leikinn vann Ferencvaros í Búda-
pest 1:0. Leika varð aukaleik og
fór hann fram í Búdapest. Þann
leik vann Ferenvaros með 2:1,
og sló þannig út hina ensku mót-
herja sína.
Við ræddum lítillega við Haf-
stein Guðmundsson, formann I-
þróttabandalags Keflavíkur, en
hann hafði þá ekki frétt um mót-
herja Keflavíkur í keppninni. Haf
steinn sagðist ekki vera ánægður
að fá Ferencvaros, — og einnig
sagðist hann vera óánægður með
að Keflavík þyrfti að leika fyrri
leikinn ytra. Sagði Hafsteinn, að
reynt yrði að fá það í gegn, að
fyrri leikurinn yrði leikinn hérna
heima. Þá sagði Hafsteinn, að
Keflvíkingar hefðu sent þátttöku
tilkynningu með þeim fyrirvara,
að öll nauðsynleg leyfi fengjust
hér heima, þ.e. frá KSÍ, ÍSÍ og
ÍBR um lán á Laugardalsvellinum.
Rosenborg
Óhætt er að segja, að KR-ingar
hafi verið heppnari í drætti en
Keflvíkingar. Þeir mæta norska
2. deildar-liðinu Rosenborg frá
Þrándheimi, en Rosenborg er
norskur bikarmeistari. Má ætla,
að KR hafi möguleika á að sigra
þetta norska lið, — og það er
mikill kostur, að fyrri leikurinn
verður hér heima. Þetta er í
fyrsta skipti, sem íslenzkt lið tek
ur þátt í Evrópubikarkeppni bik
arhafa. Til gamans má geta þess,
að þátttaka í keppninni hefur
aldrei verið meiri en að þessu
sinni, og núna taka t.d. Rússar
þátt í henpi í fyrsta sinni.
Drátturinn
í Evrópukeppni meistaraliða
voru þessi lið dregin saman í
fyrstu umferð:
Lyn (Noregi)—Derry (N-írlandi)
Tirana (Albaníu)—Kilmamock
(Skotlandi), Drumcondra(Eire)—
Vorwaerts (A-Þýzkalandi), Búlg-
aríumeist.—D'jurgárden (Svíþj.),
Ferencvaros (Ungv.l.)—Keflavík
(íslandi), Cludelange (Luxemb.),
—Benfica (Porlúgal), Linz (Aust-
urríki)—Gornik (Póllandi) Parti-
san(Júgóslavíu)—Nantes (Frakk-
land), Apoel (Kýpur)—W. Brem-
en (V-Þýzkalandi), Dynamo Buka
rest (Rúmeníu)—B 1909 (Danm.),
F. Rotterdam (Holl.)—Real Madr.
(Spáni), P. Athen (Grikklandi)—
S. Wanderers (Möltu), Lausannes
(Sviss)—Sparta Prag (Tékkóslóv-
akíu), Anderlecht (Belgíu)—H.
Istanbul (Tyrklandi), HIK (Finn-
landi)—Manchester Utd (Engl.).
Núverandi Evrópumeistarar,
Inter Milan, sitja hjá í fyrstu um
ferð.
Og þá er það Evrópukeppni bik
arhafa:
KR(íslandi)—Rosenborg (Nor-
egi), Atletico Madrid (Spáni)—
Framhald á l4 síðu
Keflavík og
Fram í kvöld
Eftir hálfs mánaðar hlé
heldur 1. deildar keppnin
áfram í kvöld, og mætast
þá Keflavík og Fram á
Njarðvíkurvellinum. Þessi
leikur er mjög þýðingarmik
ill, því þama mætast neðstu
liðin í deildinni. Fram hef-
ur 3 stig og Keflavík 4 stig.
Verður fróðlegt að fylgjast
með viðureigninni, sem
hefst kl. 20.30.
Annað kvöld fer einnig
fram leikur í 2. deild og
mætast Víkingur og FH á
Melavellinum, hefst leikur-
inn kl. 20,30.