Morgunblaðið - 28.12.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1980
Jarðskjálftahrinan á Öxarfírði:
Sterkasti kippurinn mældist
5 stig á Richters-kvarða
Skjálftarnir mestir í fjölmiðlum
- segir Alfreð Jónsson í Grímsey
ALLMIKLA jarðskjálftahrinu gerði á öxarfirði á jólum og voru
upptðk skjálftanna 10 til 15 kílómetra suðaustur af Grimsey.
Sterkustu kippirnir mældust um 4,6 til 5 stig á Richter-kvarða og varð
skjálftanna mest vart í Grimsey, þar sem glamraði í hillum, en ekkert
tjón varð af. „Þessir skjálftar hafa verið mestir i fjölmiðlum,“ sagði
Alfreð Jónsson, fréttaritari Morgunblaðsins í Grímsey, „en þó má
segja að óhug setji að fólki, þegar jörðin svíkur, þvi að þá er ekki í
mörg hús að venda.“
Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að skjálft-
anna hefði fyrst orðið vart að
morgni jóladags, um klukkan 08,
sem fundust í Grímsey. Mesti
skjálftinn varð klukkan 11,37 og
var hann 4,9 til 5 stig á Richter-
kvarða. Aftur hófst jarðskjálfta-
hrina aðfararnótt annars i jólum á
milli klukkan 01 og 02 og aftur
milli 05 og 06. Voru skjálftarnir þá
á stærðargráðunni 4,6 til 4,7.
Þegar leið á daginn dró heldur úr
hrinunni og samkvæmt upplýsing-
um Alfreðs Jónssonar höfðu
Grímseyingar einskis orðið varir
síðan snemma á annan í jólum.
Ragnar kvað upptökin vera 10 til
15 km suðaustur af Grímsey, þar
sem væri gamalt jarðskjálfta-
svæði, sem lægi í beinu framhaldi
út af Öxarfirðinum, skáhallt norð-
ur. Ragnar kvaðst ekki hafa trú á
aö þar væri gosvirkni, en hann
kvað samband virðast vera milli
Versnandi færð vegna
hálku og éljagangs
MJÖG misjöfn færð er nú um landið og þar sem ekki er
ófært vegna snjóa er víða varasamt vegna hvassviðris og
hálku á vegum. Er búizt við versnandi færð vegna hálku
af völdum éljagangs víða um landið.
Hjá vegaeftirlitinu fékk Húsavikur, en ófært um Norð-
Mbl. þær upplýsingar í gær, að
fært væri um helztu vegi í
Árnes- og Rangárvallasýslum
og austur að Klaustri, en þar
fyrir austan hafði ekki tekizt
að moka vegna veðurs. Fært er
um Vesturland í Dali og mok-
að var á Snæfellsnesi í gær. Þá
var fært um nágrenni Pat-
reksfjarðar og ísafjarðar, en
fjallvegir á Vestfjörðum ófær-
ir. Fært var norður til Hólma-
víkur og um Norðurland til
Yíkingur leikur við
Lugi 18. og 25. jan.
NÚ liggur ljóst fyrir að íslandsmeistarar Víkings munu mæta
sænsku meisturunum Lukí i Evrópukeppninni i handknattleik
18. ob 25. janúar nk. Fyrri leikurinn verður i Laugardalshöll
sunnudaginn 18. janúar klukkan 20 og seinni leikurinn verður í
Lundi viku seinna.
Að sögn Hannesar Guð-
mundssonar stjórnarmanns -í
Víking var reynt að semja við
Lugi um að leika hér á landi 11.
janúar og ytra 18. janúar en það
reyndist ógjörningur, þar sem
Svíarnir leika í sænsku deildar-
keppninni 7.,11. og 14. janúar.
Var þá fallist á fyrrnefnda
leikdaga, sem Alþjóða hand-
knattleikssambandið var búið að
ákveða.
Ástæðan fyrir ósk Víkings um
breytingu á leikdögum vur sú að
íslenzka landsliðið fer í mikil-
væga keppnisferð til Vestur—
Þýzkalands og Belgíu vikuna
19—26. janúar og margir Vík-
ingar eru sem kunnugt er í
landsliðinu. Er ljóst að leikmenn
Víkings geta ekki tekið þátt í
þessarri erfiðu keppnisferð
landsliðsins vegna undirbúnings
fyrir leikinn í Svíþjóð. Mun það
veikja landsliðið verulega.
Hannes sagði að Lugi hefði sótt
mjög i sig veðrið að undanförnu
eftir slaka byrjun í sænsku
deildarkeppninni. „Við búumst
við jöfnum leikjum og verðum að
búa okkur undir þá eins vel og
mögulegt er,“ sagði Hannes.
Hannes sagði að lokum að
Víkingarnir hefðu strax orðið
varir við mikinn áhuga á leikn-
um og væri afráðið að hafa
forsölu.
hræringa á þessu svæði og atburða
á Kröflusvæðinu og Kelduhverfis-
svæðinu. í sjálfu sér kvaðst hann
þó ekki geta fullyrt að þetta boðaði
jarðelda á því svæði, en 1975, áður
en Kröflueldar hófust, kom hrina
viku áður á Öxarfjarðarsvæðinu.
Hann kvað skjálfta mjög tíða á
Öxarfirði, þar sem jarðskjálfta-
hrinur kæmu á fárra ára millibili.
Hann kvað þessa jólahrinu vera í
stærra lagi.
Sterkasti skjálftinn, sem mælzt
hefur á þessu svæði mun vera
kippur, sem varð 1910, sem var um
7 stig á Richter-kvarða, en upptök
hans voru allnokkru fjær Grímsey
og nær Tjörnesi. Þessir skjálftar
sem urðu nú munu vera með þeim
hörðustu, sem mælzt hafa svo
nálægt Grímsey.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins fannst skjálftinn nú
víða á Tjörnesi, en þó ekki á
Mánárbakka, en hins vegar á
næsta bæ við. Þó virtist hann
hvergi snarpur. Á Húsavík varð
fólk vart skjálftans, en þó einkum
nyrzt í kaupstaðnum. Skjálftinn
fannst einnig á Núpum í Áðaldal.
Á Ólafsfirði fundust kippir, bæði
klukkan 01,30 og 04,30 aðfaranótt
annars í jólum, svo að fólk vaknaði
við. í Mývatnssveit og á Akureyri
fundust kippirnir ekki, en komu
mjög greinilega fram á skjálfta-
mælum í Mývatnssveit.
Alfreð Jónsson hreppsstjóri í
Grímsey og fréttaritari Morgun-
blaðsins þar kvað ekki mikið orð á
skjálftunum gerandi, þeir hefðu
verið mestir í fjölmiðlum. Þó kvað
hann 3 kippi hafa verið þannig að
orð væri á gerandi og hafi verið
titringur á milli. Hann kvað engra
hræringa hafa orðið vart síðan
snemma morguns á annan í jólum.
Kippirnir hefðu engum skaða vald-
ið. Álfreð kvað hafa verið afburða
gott veður í Grímsey í fyrradag og
í gær voru sunnan hlýindi, 7 stiga
hiti og gengi á með skúrum. Hann
kvað Grímseyinga hafa etið yfir
sig um jólin þrátt fyrir góðan
ásetning.
FLUGELDASALA fyrir áramótin hófst I gærmorgun hjá flestum
þeim aðilum, sem selja, en þessi mynd var tekin í Skátabúðinni þegar
undirbúningur var á lokastigi i gærmorgun. Ljósmynd Mbi. Kri«tinn.
Skoteldar fyrir nokkur hundruð
milljónir brenna um áramót:
Ekki alltof bjartsýnir
á söluna að þessu sinni
- segir Tryggvi Páll Friðriksson, formaður
Landsambands hjálparsveita skáta, sem er
stærsti innflytjandi og söluaðili með skotelda
LANDSMENN brenna um hver áramót gifurlegu magni af ýmis
konar skoteldum og verður sjálfsagt ekki undantekning á þvi um
komandi áramót. Erfitt er að gera sér glögga grein fyrir verðmæti
þeirra skotelda, sem fuðra upp, en ljóst er þó að verðmætið skiptir
nokkur hundruð milljónum króna. Til að fá nánari fréttir af sölunni á
skoteldum fyrir þessi áramót hafði Mbl. samband við Tryggva Pál
Friðriksson, formann Landsambands hjálparsveita skáta, en land-
sambandið er stærsti innflytjandi og söluaðili skotelda hér á landj og
sveitir innan sambandsins byggja afkomu sína algerlega á sölu þeirra
um hver áramót.
Tryggvi sagði, að ellefu sveitir
sambandsins myndu selja flugelda
á 30 stöðum um þessi áramót, en
auk þess seldi Landsambandið
fjölmörgum aðilum víðs vegar um
landið flugelda. Tryggvi kvaðst
ekki vera alltof bjartsýnn á söluna
að þessu sinni. Þar kæmi til slæmt
efnahagsástand í landinu, slæmt
veður um helgina og svo það að
salan hæfist á helgi, en það hefði
mjög slæm áhrif.
Tryggvi sagði ógerlegt að gera
sér grein fyrir verðmæti þeirra
flugelda, sem seldir yrðu um þessi
áramót. Það væri vonlaust að átta
sig á því magni sem myndi seljast.
Benedikt Þ. Gröndal, formaður
hjálparsveitarinnar í Reykjavík,
sem er stærsti einstaki söluaðili
flugelda í landinu, sagði aðspurð-
ur, að sveitin yrði með sex útsölu-
staði í Reykjavík eins og undan-
farin ár. Benedikt sagði, að liðlega
helmingur allra seldra skotelda
væri í svokölluðum fjölskyldupok-
um, sem væru í fjórum stærðum.
Að þessu sinni yrðu þeir seldir á
12.000, 18.000, 25.000 og 35.000.
Sérstaklega væri valið blandað
úrval skotelda í þessa poka til að
auðvelda fólki viðskiptin, auk þess
sem fólk fengi 10% afslátt ef það
keypti fjölskyldupokana.
austurland og þar verður ekki
mokað fyrr en eftir helgi. Á
Austfjörðum var verið að
moka Fagradal og Oddsskarð,
en ófært um flesta fjallvegi.
Að sögn vegaeftirlitsmanna
var nokkuð um að yfirgefnir
bílar tefðu snjóruðning í gær
og sögðu þeir að svo virtist
sem fólk léti oft bjartsýni ráða
ferðum sínum fremur en að-
stæður og margir legðu út í
tvísýna færð.
Hiibner — Korchnoi 2Vfc:l%
„Þessi kröftuga byrjun
kemur skemmtilega á óvart“
- segir Guðmundur Sigurjónsson
„ÞESSI kröftuga byrjun einvígis-
ins hefur komið mér skemmti-
lega á óvart,“ sagði Guðmundur
Sigurjónsson stórmeistari, að-
stoðarmaður Róberts Hubners
um einvígi Hubners og Korch-
nois.
Venjulega hafa áskorendaein-
vígi farið rólega af stað og nokkr-
ar fyrstu skákirnar endað með
jafntefli en í einvígi þeirra Hiibn-
ers og Korchnois, sem hófst í
Merano á Ítalíu fyrir jól hefur
byrjað allt öðru vísi. Hubner vann
fyrstu skákina á hvítt, Korchnoi
vann aðra skákina á hvítt, sú
þriðja varð jafntefli en fjórðu
skákina vann Hubner á svart. Sú
skák var tefld á aðfangadag og fór
hún í bið. Korchnoi lenti í tíma-
hraki og Hubner náði sókn sem
Korchnoi gat ekki varizt og hann
52. leik. Fimmtu
þeir kapparnir að
gafst upp í
skákina áttu
tefla í gær.
„Ég er auðvitað mjög ánægður
með byrjunina hjá Húbner," sagði
Guðmundur, sem heldur utan til
Ítalíu 2. janúar. „Ég talaði við
Húbner í síma rétt áður en
einvígið hófst og hann var þá
bjartsýnn á útkomuna. Það kom
mér verulega á óvart, þessi svart-
sýni maður bjartsýnn á einvígi við
Korchnoi! Ég er því orðinn hóflega
bjartsýnn á sigur Húbners," sagði
Guðmundur.
Húbner
Korchnoi
Lítið um inn-
anlandsflug
INNANLANDSFLUG Flugleiða
lá niðri í gær þar sem hvasst var
um nánast allt land. Um hádegi í
gær var ljóst að ckki var útlit
fyrir neitt flug nema hvað reyna
átti að fljúga til Akureyrar og
Egilsstaða síðdegis, en ekki var
ljóst hvort úr því yrði þcgar Mbl.
fór í prentun. Flug gekk eðlilega
fyrir sig annan dag jóla og í dag,
sunnudag, er líklegt að fara verði
aukaferðir þar sem ferðir féllu
niður í gær.