Morgunblaðið - 03.01.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
- Alvarlegar
ásakanir
en alrangar,
segir ólaíur Ragnar
hvort rétt væri, að hún hefði
ekki talið ástæðu til þess, að
skýra forseta íslands frá fyrir-
vörum hennar. Hún var enn-
fremur innt eftir því hvort hún
hefði ekki andmælt lögunum á
þingflokksfundi. — „Það var
öllum ljóst, að ég hafði hvorki
lofað að styðja þessi bráðbirgða-
lög, né önnur lög og ég var
formlega hætt stuðningi við rík-
isstjórnina. Þetta lá alveg hreint
fyrir, þar sem ég hafði lýst þessu
yfir við alþjóð í útvarpinu dag-
inn áður. Eg lýsti því þegar yfir,
að ég tæki mér allan þann tíma
sem þyrfti til að áthuga þetta
mál. Það getur hins vegar veriö,
að ríkisstjórnin hafi einhverja
aðra stuðningsmenn í bakhönd-
inni og þetta því í lagi,“ sagði
Guðrún Helgadóttir. Að öðru
leyti vildi Guðrún ekki tjá sig
um málið.
-Hef ekki lof-
að að styðja
þessi lög,
- segir Guðrún Helgadóttir
flokksins og Kjartan Jóhanns-
son, formaður Alþýðuflokksins
eftir tildrögum þess, að þeir
gengu á fund forseta Islands á
gamlársdag vegna málsins.
Geir Hallgrímsson sagði, að
ákveðið hefði verið að hafa
samráð formanna flokkanna
tveggja og formanna þingflokk-
anna. — „Það varð síðan að ráði,
að við KJartan Jóhannsson gerð-
um forseta grein fyrir viðhorfum
flokka okkar til útgáfu bráða-
birgðalaganna. Á þessum fundi
með forsétanum lögðum við
áherzlu á, að við hefðum verið
andvígir frestun funda Alþingis
og jafnframt þeirri skoðun
okkar að það hefði verið mjög
óþingræðisleg vinnubrögð, að
senda Alþingi heim þegar til
stóð að setja bráðabirgðalög með
víðtækum efnahagsaðgerðum.
Því rifjuðum við ennfremur upp,
að við hefðum tjáð okkur reiðu-
búna til þess, að koma til funda
Alþingis hvenær sem þörf
krefði," sagði Geir Hallgríms-
Ólafur Ragnarsson lætur af
störfum sem ritstjóri Vísis
ÓLAFUR Ragnarsson lét af
störfum sem ritstjóri dagblaðsins
Vísis um áramót. Ólafur hefur
verið ritstjóri Vísis frá því í apríl
árið 1976, en áður hafði hann um
árahil verið fréttamaður við
Sjónvarpið. Meðritstjórar Ólafs
voru þeir Þorsteinn Pálsson og
Hörður Einarsson, og nú síðast
Ellert B. Schram, sem verður
áfram ritstjóri.
Hörður Einarsson, stjórnarfor-
maður Reykjaprents hf., útgáfufé-
lags Vlsis, staðfesti þessa frétt í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gærkvöldi. Hörður sagði
jafnframt, að ekki væru fyrirhug-
aðar aðrar breytingar á starfsliði
ritstjórnar Vísis, þær er frétt-
næmar gætu talist.
Ólafur Ragnarsson
Afleiðing vörugjaldshækkunar:
Gosdrykkir
hækka um 20
„Vil ekkert tjá mig
um málið nú“
Þá innti Mbl. Albert Guð-
mundsson eftir því hvort hann
hefði tekið ákvörðun um stuðn-
ing við setningu bráðabirgðalag-
anna. Albert kvaðst ekki vilja
tjá sig um bráðabirgðalögin á
þessu stigi málsins en þau væru
á umræðustigi í flokknum. Hann
væri hins vegar tilbúinn að gefa
upp um sína afstöðu eftir fund
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
sem haldinn verður í dag. —
„Við erum að kanna hvaða leiðir
eru vænlegastar í þessu rnáli,"
sagði Albert.
Kannao verði hvort
þingmeirihluti sé
fyrir bráðahirgðalögum
Þá innti Mbl. þá Geir Hall-
grímsson, formaður Sjálfstæðis-
Þá sagði Geir, að þeir hefðu
vakið sérstaka athygli á því, að
komið hefði fram í fjölmiðlum,
að einstaka stjórnarmenn teldu
sig ekki bundna af þessum
bráðabirgðalögum. Hefðu þeir
lagt á það þunga áherzlu, að
kannað yrði hvort þingstyrkur
væri yfir höfuð fyrir bráða-
birgðalögunum.
Kjartan Jóhannsson sagði, að
flokksformennirnir hefðu fyrst
og fremst viljað gera forseta
íslands grein fyrir afstöðu
flokka sinna. — „Við vildum
vara við ofnotkun bráðabirgða-
laga og benda ennfremur á, að
við sæjum ekki í fljótu bragði, að
þingmeirihluti væri fyrir þess-
um bráðabirgðalögum. Að mínu
mati er því nauðsynlegt, að
krefja þau Guðrúnu Helgadóttur
og Albert Guðmundsson sagna
um þeirra aísióv3,“ sagði Kjart-
an Jóhannsson.
VERÐ á gosdrykkjum hcfur
hækkað í kjölfar vörugjaldsins,
sem Alþingi samþvkkti
skömmu fyrir jól. Er hækkunin
á bilinu 20—24% á einstökum
tegundum.
Morgunblaðið fékk í gær upp-
lýsingar hjá Verðlagsstofnun
um hækkanir á nokkrum teg-
undum til að gefa dæmi um,
hækkanir. Appelsínflaska (25 cl)
hækkar úr 200 í 240 krónur, þ.e.
2,40 nýkrónur eða um 20%. Coca
Cola flaska (19 cl) hækkar úr
155 í 190 krónur þ.e. 1,90 ný-
krónur eða um 22,6%. Seven up
flaska (35 cl) hækkar úr 260 í
^ 315 krónur, þ.e. 3,15 nýkrónur og
-24%
er hækkunin 24%. Loks má
nefna að flaska af pilsner og
lageröli hækkar úr 350 í 435
krónur, þ.e. 4,35 nýkrónur eða
um 24%.
Nafn mannsins
MAÐURINN, sem fannst látinn í
Hafnarfjarðarhöfn s.l. þriðjudag
hét Garðar Björgvin Bjarnason,
52ja ára gamall Hafnfirðingur.
Garðar heitinn var skipverji á
mótorbátnum Valdísi. Talið er að
hann hafi verið að fara um borð í
bát sinn að kvöldi mánudags eða
aðfararnótt þriðjudagsins er hann
féll í höfnina og drukknaði.
|
í bönkum og verslunum í gær:
„Gjaldmiðilsbreytingin
hef ur gengið vonum f ramar44
BANKAR og sparisjóðir
opnuðu kl. 10 í gærmorgun
vegna gjaldmiðilshreytingar
innar og gat fólk þá komið og
skipt gömlum krónum yfir i
nýjar, þótt aðrar deildir bank-
anna væru lokaðar. Morgun-
blaðið tók nokkra menn tali þar
sem þeir biðu cftir afgreiðslu
en langar biðraðir höfðu mynd-
ast viðast hvar stuttu eftir
opnun. Flestar búðir voru lok-
aðar vegna vörutalningar en þó
opnuðu nokkrar eftir hádegið
þegar þær höfðu orðið sér úti
um nýja gjaldmiðilinn.
„Þetta hefði þurft að gera
fyrir löngu síðan, það er ófært að
hafa verðlausa peninga milli
handanna," sagði Gunnar
Proppé, verslunarmaður þarsem
hann stóð í biðröðinni í Sam-
vinnubankanum. „Eg var búinn
að skipta öllu mínu, en fékk
þetta borgað til baka í verslun í
morgun. Eg býst ekki við öðru en
að gjaldmiðilsbreytingin gangi
vel fyrir sig. Öll helstu atriðin
voru útskýrð ágætlega í bækl-
ingnum, sem Seðlabankinn gaf
út og fólk fer rólega í sakirnar.
Erfiðleikar verða helst í dag og á
morgun," sagði Gunnar.
I Vegamótaútibúi Landsbank-
ans á Laugavegi var staddur
Ingvar Páll Jónsson, nemi, og
sagist hann búast við að gjald-
miðilsbreytingin gengi vel fyrir
sig. „Ég vildi skipta öllu mínu til
þess að komast hjá óþarfa vand-
ræðum og þetta hlýtur að ganga
allt ágætlega."
Bjarnveig Guðbjörnsdóttir
var á sama máli. Hún sagðist
hinsvegar eiga svo litla peninga
að það tæki því varla að skipta.
Hún sagði að sér litist ágætlega
á gjaldeyrisbreytinguna: „Ein-
hverjuhj finnst þetta efalaust
spennandi," sagði hún.
Jónína Valdimarsdóttir,
gjaldkeri í Vegamótaútibúi sagði
að mikill erill hefði verið í
bankanum frá því um morgun-
inn en afgreiðslan hefði gengið
Ijómandi vel og miklu betur en
hún hefði þorað að vona. „Við
vorum fyrst að sjá nýju seðlana í
dag og myntin er öll mjög svipuð
svo það er erfitt að greina á milli
peninganna í fljótu bragði, en
eflaust fær maður þetta á til-
finninguna fljótt. Viðskiptavin-
irnir eru þolinmóðir og tillits-
samir og tveir starfsmenn bank-
ans taka á móti fólkinu við
innganginn og leiðbeina því ef
þörf er á. Fólkið veit vel hvað
það er að gera og gamla fólkið er
ekki síst vel með á nótunum.
Það kemur sér illa að gjald-
miðilsbreytingin skuli vera á
sama tíma og áramótauppgjörið
og það er ekki ljóst hvernig
afgreiðslan muni ganga á mánu-
daginn þegar tékkar, víxlar og
innborgunarskjöl af öllum sort-
um fara að koma inn, en við
erum þó bjartsýn. Fólk virðist
hafa mikið lausafé milli hand-
anna og mynt hefur borist í
ótrúlega miklu magni hingað í
bankann. Svo er bara að sjá
hvort kassinn stemmir í kvöld,“
sagði Jónína að lokum.
„Ég skipti nú bara að gamni
mínu til þess að sjá nýju pen-
ingana. Bankarnir taka ekki við
ávísunum í dag svo launin verða
að bíða þar til síðar,“ sagði Erla
K. Sigurgeirsdóttir, skrifstofu-
stúlka. „Ég hugsa að bre.vtingin
verði vandalaus þvi fólk virðist
almennt vakandi fyrir þessu." —
En gamla fólkið? „Ja, ég á afa,
sem kominn er yfir sjötugt en
hann var með allt sitt tilbúið á
gamlárskvöld svo ég held að sé
ekki ástæða til þess að hafa
áhyggjur.“
Kjötverslun Tómasar opnaði
kl. eitt eftir hádegið og þar var
full búð þegar Morgunblaðið leit
inn í gær. Garðar H. Svavars-
son, kaupmaður sagði að af-
greiðslan hefði gengið vonum
framar, og viðskiptavinir væru
þolinmóðir og skilningsríkir.
„Verslunin útvegaði sér nýjar
krónur strax í morgun og af-
greiðslufólkið hafði tíma til þess
að æfa sig stuttan tíma fram að
hádegi. Við fórum hægt af stað
og þetta hefur gengið allt saman
prýðilega."
I bönkum og sparisjóðum
var stoðugur straumur
fólks sem var að skipta
gömlum peningum í ný-
krónur. Þessi mynd var
tekin i Vegamótaútibúi
Landsbankans í gær.