Morgunblaðið - 03.01.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.01.1981, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981 Páf inn hvetur til hjálpar fötluðum Páfagardi, 2. janúar. AP. JÓHANNES PÁLL páfi II skoraði á þjóðir heims i nýársboðskap sinum að verja meira fé til hjálpar fötluðum ok minna fé til hergagna- smíði. Hann fordæmdi einnig morð Rauðu herdeildanna á háttsettum yfirmanni itölsku herlögreglunnar. Tuttugu þúsund manns sótti ára- mótamessu páfa í St. Péturskirkju og 80.000 manns hlýddu á hann flytja áramótaboðskapinn frá glugga einkaíbúðar sinnar við Pét- urstorg. Jóhannes Páll páfi minnti á, að SÞ hefðu tilnefnt árið 1981 „ár fatlaðra" og kvað vísindamenn hafa sýnt, að hægt væri að lækna margt fatlað fólk. „Vísindin færa því öllu mannkyni boðskap vonar og skyldu. Ef aðeins litlum hluta fjárframlaga, sem fara til vígbúnaðarkapphlaupsins, væri varið í þessu skyni, gætu orðið mikilvægar framfarir í þá átt að draga úr þjáningum mikils fjölda fólks," sagði páfi. Sendiráðstaka í Kaupmannahöfn Kaupmannahöfn, 2. janúar. AP. FIMM manns með líhýsk vega- bréf marseruöu i dag inn i sendiráð Libýu i Kaupmanna- höfn og lýstu sendiráðið „skrif- stofu fólksins“. Fyrsti sendiráðs- ritari sagði við fréttamenn, að hann væri nú libýskur rikisborg- ari — ekkert mcir. „Eins og ykkur er kunnugt, þá hafa iand- ar minir gengið inn i sendiráð lands okkar og lýst þau „skrif- stofu fólksins“. Nú var röðin komin að Danmörku," sagði sendiráðsritarinn, E1 Barani við fréttamenn. Svipaðir atburðir hafa gerst í nokkrum löndum Evrópu eftir að Khadafy, einræðisherra Líbýu hvatti landa sína til að taka sendiráð landsins og lýsa þau „skrifstofur fólksins". í yfirlýs- ingu fimmmenninganna sagði að atburðurinn hefði gerst vegna þess, að „viðteknar diplómatískar venjur þjóna ekki hag fólksins". Danska lögreglan fór til sendi- ráðsins skömmu eftir sendiráðs- tökuna en eftir að fyrsti sendi- ráðsritari í fjarveru sendiherrans hafði fullvissað lögregluna um, að sendiráðstakan hefði farið frið- samlega fram og að því er virtist í þökk líbýskra stjórnvalda, yfirgaf lögreglan sendiráðið. Jólaveizla gíslanna Issaie, biskup armensku kirkjunnar I Teheran, sker sér tertusneið og einn bandarisku gislanna sleikir krem af tertunni. Myndin er frá hinni opinberu fréttastofu Pars og var tekin á jóladag. íranar fá svar frá Washington ALSÍRSKU milligöngumennirnir f gisladeilunni komu til Teheran í gær, föstudag, með svar Banda- rikjastjórnar við kröfu írana um 24 milljarða dollara. Kunnur ir- anskur klerkur sagði, að íranar ættu að hætta að semja um gíslana og leiða þá fyrir rétt eins og hverja aðra glæpamenn, þvf að þeir væru njósnarar, ekki gislar. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum í Washington býðst Banda- ríkjastjórn til þess í svarinu að leggja um 12 milljarða dollara á reikning í hlutlausu landi, senni- lega Alsír, og segir að Iranar geti fengið féð þegar gíslarnir hafi verið látnir lausir. Flestir sérfræðingar telja, að Jimmy Carter takist ekki að leysa málið áður en Ronald Reagan, næsti forseti, tekur við völdum 20. janúar. Blaðið Washington Post sagði í dag, að í svarinu fái Iranar frest til 16. jan. til að samþykkja tillögurn- ar. Ef tillögurnar verða samþykkt- ar fyrir þann tíma hefur stjórn Carters ráðrúm til að hrinda þeim í framkvæmd áður en hún lætur af störfum. Blaðið segir, að Carter vilji ekki skilja þannig við gíslamálið að þar fari eitthvað á milli mála, þar sem það muni takmarka svigrúm næstu ríkisstjórnar. Vesco horfinn á Bahama-eyjum Naxsau. 2. janúar. AP. Fjármálamaðurinn Robert Vesco er horfinn, en rikisstjórnin á Ba- hamaeyjum hefur ekki f hyggju að reyna að hafa upp á honum i bráð að sögn talsmanns stjórnarinnar i dag. Vesco hvarf í síðustu viku, einum degi áður en embættismenn fóru til heimilis hans til að skipa honum að fara úr landi innan 14 daga. Embættismenn segja, að Ulysses Brown, skipstjóri á bát Vescos, hafi sagt, að Vesco hafi safnað fjölskyldu sinni sarnan og farið, en hann vissi ekki hvert. Bandarísk stjórnvöld lýstu eftir Vesco 1974, þegar því var haldið fram, að hann hefði .rænt 224 milljónum dollara frá fyrirtækinu Investors Overseas & Services og hann hefði reynt að fá ákærur felldar niður í málinu með því að leggja 200.000 dollara í kosningasjóð Richard Nixons 1972. Vesco hefur búið í Nassau í húsi sem er í eigu gríska kaupsýslu- mannsins Georgs Mosko síðan 1978. Nairobi, Kenya. 2. janúar. AP. VÍÐTÆK leit stóð i dag yfir i Kenya að manni og konu. sem grunuð eru um að hafa komið fyrir sprengju á Norfolkhótelinu f Nairobi á gamlárskvöld með þeim afleiðingum, að 16 manns fórust og 85 slösuðust. Enn er 50 saknað, starfsfólk og gestir en talið er, að það fólk hafi ekki verið á hótelinu þegar sprengjan átti sér stað. Sprengjunni var komið fyrir í herbergi á 2. hæð hótelsins. í því herbergi dvaldi maðurinn, sem lögreglan leitar að. Kona nokkur kom í heimsókn til mannsins og leitar lögreglan einnig hennar. Lögregluyfirvöld hafa ekki skýrt frá nöfnum látinna eða nafni mannsins, sem leitað er að. Talið Dóminum gegn van der Lubbe hnekkt er, að hann hafi sýnt vegabréf á hótelinu, gefnu út á Möltu. Sprengingin á gamlárskvöld var gífurlega öflug og grófst fólk undir braki. Fyrir neðan herberg- ið þar sem sprengjunni var komið fyrir var matstofa hótelsins og grófust margir undir braki þar. Þeir sem fórust voru flestir út- lendingar, hvítir menn. Nú stend- ur ferðamannatíminn sem hæst í Kenya. Lögreglan leitaði í dag að sprengju á öðru stóru hóteli en engin fannst. Sprengjutilræðið í Nairobi er hið fyrsta í Kenya í fimm ár. Stöðugleiki hefur verið meiri í Kenya en víðast í Afríku og sambúð kynþátta óvíða betri í Afríku en einmitt í Kenya. Það að hinn grunaði maður bar vegabréf útgefið á Möltu kom orðrómi á kreik, að arabískir hermdar- verkamenn hafi komið sprengj- unni fyrir en eigendur hótelsins eru einmitt gyðingar. Carter fram- lengir korn- sölubannið Washlngton, 2. janúar. AP. JIMMY Carter, forseti Bandaríkj- anna. hefur framlengt kornsölu- banni á Sovétrikin i eitt ár, hins vegar má búast við að stefnubreyt- ing verði á þegar Ronald Reagan, verðandi forseti tekur við embætti. I kosningabaráttunni lýsti Reagan því yfir, að hann mundi afnema bannið vegna áhrifa þess á afkomu bandarískra bænda. Philip Klutznik, viðskiptamálaráðherra Bandaríkj- anna, réttlætti framlengingu banns- ins með áframhaldandi veru Sovét- manna í Afganistan. Indland: Yfir 100 þús. ólöglega í fangelsi Nýju Delhl, 2. janúar. AP. YFIR 100 þúsund manns eru nú í indverskum fangelsum án þess nokkurn tima að hafa hlotið dóm, að sögn indverska blaðsins „Indi- an Express". Þar af eru yfir 50 þúsund manns i haldi i héruðun- um Uttar Pradesh og Bihar að sögn blaðsins. Að sögn blaðsins þá er er algengt að fólki sé haldið í fangelsum frá sex mánuðum upp í eitt ár áður en dómur fellur í málum. Samkvæmt indverskum lögum, þá má ekki halda manni lengur en í 24 klukku- stundir án þess að verða leiddur fyrir dómara. Sextán biðu bana í sprengingu í Kenya Veður víða um heim Akureyri -8 snjókoma Amsterdam 6 rigning Aþena 13 skýjað Berlín 5 skýjað BrUasel 8 rigning Chicago 1 heiðskírt Feneyjar 10 heiðskírt Frankfurt 6 skýjað Færeyjar 0 slydda Genf 5 skýjað Helsinki 2 skýjað Jerúsalem 9 skýjað Jóhannesarb. 27 heiðskírt Kaupmannahöfn 4 heiðskírt Las Palmas 18 léttskýjað Lissabon 14 heiðskírt London 11 skýjað Loa Angeles 26 heiðskirt Madrid 11 heiðskirt Malaga 15 heiðskfrt Mallorka 14 léttskýjað Miami 22 heiðskirt Moskva 3 heiðskírt New York -2 skýjað Osló -3 heiðskirt París 8 skýjað Reykjavík A skýjaö Ríó de Janeiro 30 skýjað Rómaborg 10 heiðskírt Stokkhólmur 0 skýjað Tsl Aviv 17 skýjað Tókýó 7 skýjað Vancouver 6 skýjað Vínarborg 8 skýjað Þetta gerðist Bonn, 30. des. AP. DÓMSTÓLL í Vestur-Berlín hefur hnekkt dómnum, sem var upp kveóinn fyrir 47 árum yfir Hollend- ingnum Marinus van der Lubbe fyrir Rikisþinghúsbrunann. sem nazistar notuðu til að treysta sig í sessi. Dómstóllinn úrskurðaði, að rang- ur dómur hefði verið upp kveðinn yfir van der Lubbe, en lét ósvarað þeirri spurningu, hvort hann hefði í raun og veru kveíkt í ríkisþinghús- inu. Adolf Hitler notaði þinghúsbrun- ann til þess að banna starfsemi kommúnista og van der Lubbe var hálshöggvinn, en fjórir búlgarskir kommúnistar, sem voru ákærðir ásamt honum, voru sýknaðir. Margir sagnfræðingar álíta, að nazistar hafi sjálfir kveikt í þing- húsinu til þess að fá átyllu til að bæla niður andstöðu gegn stjórninni, en aldrei hefur tekizt að fá með vissu skorið úr um eldsupptökin. Bent hefur verið á, að göng lágu til byggingarinnar frá aðsetri Hermans Görings, staðgengils Hitlers. Robert Kempner, lögfræðingur bróður van der Lubbe, sem höfðaði málið, benti á þessi rök í réttarhöld- unum og sagði að van der Lubbe hefði í raun réttri verið handhægt verkfæri nazista. Kempner, sem var varasækjandi í réttarhöldunum í Núrnberg, lítur svo á, að með úrskurðinum hafi réttlætið sigrað að lokum. Bróðir van der Lubbe, J.M. van der Lubbe frá Amsterdam, hafði reynt síðan 1955 að fá dóminum hnekkt, en honum tókst aðeins að fá dóminn „mildaðan" úr dauðarefsingu í fangavist. Dómstóll í Vestur-Berlín úrskurð- aðí 1968, að van der Lubbe hefði ekki átt skilið að deyja, en sagði að hanh hefði samt verið sekur um þinghús- brunann. 1959 — Alaska verður ríki í Bandaríkjunum. 1777 — Órrustan við Princeton. 1521 — Marteinn Lúther bann- færður. Afmæli — Marcus Tulluis Cicero, rómverskur stjórnmáialeiðtogi og rithöfundur (106 f.Kr. - 43 f.Kr.) — Clement Attlee, brezkur stjórn- málaleiðtogi (1883-1967) - Her- bert Morrison, brezkur stjórn- málaleiðtogi (1883-1951). Andlát. 1670 George Monck, her- maður — 1931 Joseph Joffre, hermaður. Innlent. 1597 Heklugos hefst — 1875 Stórfelld eldgos í Dyngju- fjöllum valda miklu tjóni 1895 Eldgos í Dyngjufjöllum — 1898 f. Pálmi Hannesson — 1903 Land- varnarflokkur stofnaður — 1969 Verksmiðja eyðileggst og önnur skemmist í stórbruna á Akureyri. Orð dagsins. Við höfum alltaf nógu mikinn tíma, ef við aðeins viijum nota hann rétt — Johann Wolfgang von Goethe, þýzkt skáld (1749-1832).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.