Morgunblaðið - 03.01.1981, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.01.1981, Blaðsíða 34
 34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981 Helgi Olafsson kjörinn íþrottamaður Kopavogs Skákmeistarinn HcIkí Ólafs- s«n var kjörinn íþróttamaöur ársins 1980 í KópavoKÍ. en þaö er RotaryfélaK Kópavojrs sem velur íþróttamann ár hvert. Helgi hef- ur verið ört vaxandi skákmaður siðustu árin. þannÍK náði hann þeim áfanKa 1978. að verða al- þjóðleKur meistari. HcIkí er unKur að árum. fædd- ur 1956, meðlimur í TaflfélaKÍ KópavoKs. Hann hefur víða kom- ið við, en þrífst best í krinK um hlaðamcnnsku. Er hann núver- andi ritstjóri Tímaritsins Skák. auk þess sem hann starfar hjá Þjóðviljanum. Skákferill Helga er þessi í stuttu máli: Skákmeistari Vestmannaeyja 1972 og 1973 Unglingameistari íslands 1970 Skákmeistari Reykjavíkur 1976 og 1977 Haustmeistari Taflfélags Reykja- víkur 1975 íslandsmeistari 1978 Hraðskákmeistari Islands 1974, 1976, 1977 og 1979. Unglingameistari Norðurlanda 1975 Alþjóðlegur meistari 1978 Keppti fyrir íslands hönd á Ólympíuskákmótunum 1976, 1978 og 1980 Sigurvegari á 4 Helgarmótum 1980 Þátttakandi í Reykjavíkurmótum undanfarin ár (síðast 1980) Hefur keppt víða erlendis á al- þjóðamótum. Ljósm. Kristján. • Helgi Ólafsson tekur við verðlaunum sinum úr hendi eins forráðamanna Rotaryklúbbs Kópavogs. Dómarinn rotaðist VESTUR-ÞÝSKUR knattspyrnu- dómari að nafni Klauser, varð fyrir skömmu fyrir því óhappi, að verða fyrir þrumuskoti. Ilæfði knötturinn dómarann í hnakk- ann með þeim afleiðingum. að Klauser rotaðist og vissi hvorki í þennan hcim né annan i rúmar þrjár mínútur. Þetta átti sér stað i „Búndcslígulcik“ Armenia Bielcfeldt ok 1860 Munchen. Dómarinn var drifinn á sjúkra- hús þar sem hann fékk fullan bata. Annar línuvarðanna tók að sér dómgæsluna og lærður línu- vörður úr röðum áhorfenda hljóp með línunni það sem eftir lifði leiks. Þannig bjargaðist það. En það sem mönnum þótti næstum hlægilegt, var, að beint fyrir framan þann stað þar sem Klaus- er hné niður, er staðsett auglýsing frá tryggingafélagi. Á skiltinu eru menn hvattir til þess að næla sér umsvifalaust í líftryggingu. Það margborgi sig! Gunnar Finnhjörnsson einn besti borðtennisleikari landsins sýndi mikla keppnishörku i forgjafamótinu. Gunnar Hall vann forgjafarmótið FYRSTA forgjafarmót borð- tennisdeildar KR og jafnframt fyrsta forgjafarmót, sem haldið er á íslandi fór fram í íþrótta- húsi Kennaraháskólans 28.12/80. Flest okkar besta borðtennisfólk var meðal þátt- takenda. Mótið var allt spennandi og féll þar úr margur meistarinn fyrir sér lakari mönnum. Eng- inn var unninn fyrirfram. um það sá forgjöfin. Mót með þessu fyrirkomulagi reynir mjög á meistaraflokksmenn, þvi þeir mega ekki gera mörg mistök þegar þeir eru að spila við mann með marga punkta i forKjöf, Ketur sá munur verið 15 til 25 stig. IJrslit urðu þau, að Gunnar H. Hall Erninum vann Gunnar Þ. Finnbjörnsson Erninum í úrslitalcik 21 — 1 og 21 — 15. Gunnar H. Hall var með 6 í forgjöf en Gunnar Þ. Finn- björnsson —13. Gunnar Þ. Finnbjörnsson sýndi mikla hörku í mótinu. var hann búinn að leika sex lotur nær hvíldar- laust er f úrslitaleikinn kom. í þriðja til fjórða sæti urðu Krist- inn Már Emilsson KR ok Krist- ján Jónsson Víkingi. I 5.-8. sæti urðu: Stefán Konráðsson VíkinKÍ. Iljálmar Aðalsteinsson KR. Sigurður Guðmundsson Erninum, og Gunnar Andrésson Fram. Bikarleikur í Skemmunni JÓLAFRll körfuknattleiks- manna er nú lokið. í dag fer fram einn leikur í bikarkeppni KKÍ. Þá ma-tast á Akureyri lið Þórs ok B-lið KR. Fer leikurinn fram í SIGURÐUR BjörKvinsson Kefl- víkinKur. mun að öllum líkindum leika með liði ÍA á komandi sumri f 1. deildarkeppninni i knattspyrnu. Sigurður. sem er baráttuglaður miðvallarleikmað- ur. var lykilmaður í liði ÍBK Gamlárshlaup á nýju ári Gamlárshlaupi ÍR, sem fram átti að fara á gamlársdag. var frestað vegna veðurs ok ófærðar, en í ráði er að hlaupið fari fram á morgun. sunnudaK- Ilefst hlaupið við IR-húsið kl. 14. Aðalfundur AÐALFUNDUR frjálsíþrótta- deildar ÍR verður haldinn að Hótel Esju. fimmtudaginn 8. janúar nk., kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Skemmunni og hefst hann klukk- an 15.00. Þessi lið áttust við i bikarkeppninni á síðasta keppn- istímabili og bar þá B-lið KR-inga sigur úr býtum. fyrir fáum árum. en hefur reynt fyrir sér í sænsku knattspyrn- unni síðustu misserin. Hann verð- ur í A áreiðanlega mikill styrkur, enda komst hann um tima í fslenska landsliðið. - KK- Sifíurður Björtfvinsson leikur með ÍA Guðmundur leiðtogi lyftingamanna LYFTINGASAMBANDIÐ hélt nýverið ársþing sitt og urðu þar m.a. þær brcytingar, að kosinn var nýr leiðtogi lyftingarmanna, þar sem fráfarandi formaður lyftingasambandsins, Ólafur Sig- urgeirsson. gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Ilinn nýi formaður sambandsins er Guðmundur Þór- arinsson. sem er betur þekktur fyrir störf sin i þágu frjáls- iþrótta. Guðmundur hefur verið i stjórn Lyftingasambandsins i nokkur ár. Mikil gróska hefur verið i lyftingaiþróttinni á sið- ustu árum. einkum á þvi ári sem nýliðið er. Sigurður Björg- vinsson í IA? Irlandslið KR mætir Suður nesjaúrvalinu STÓRLEIKUR verður f körfu- knattleik i hinu glæsilega íþróttahúsi i Keflavik i dag. Hefst hann klukkan 14.00. Þá eigast við lið KR, styrkt af þeim Andy Fleming úr IR og Pétri Guðmundssyni. eða með öðrum orðum: írlandslið KR. og suður- nesjaúrval. Hér ætti að geta orðið um hörkuviðureign að ræða. enda mjög liðtæk lið á Suðurnesjum. m.a. UMFN sem er lang efst í úrvalsdeildinni og lið ÍBK, sem er annað tveggja efstu liða 1. deildarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.