Morgunblaðið - 03.01.1981, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
9
er til
Veistu, að vonin
íslendingar.
Gleðilegt ár 1981. Megi það
færa okkur þá gæfu og farsæld,
sem við leitum ðll.
Vel ég því að hér má skýr orð skilja,
skili þjóðin minn Ijósan vilja,
tal óbreytiiegt veitt af vilja.
Vil ég að kvæðið heiti Lilja.
kvað Eysteinn munkur Ás-
grímsson á 14. öld. Hann kvað
það ljóð, sem allir viidu kveðið
hafa, og skildi að vandi er að
orða svo hugsun að hún komist
til skila. Orð geta verið innan-
tóm, en oft eru þau hlaðin
merkingu, og þá eru þau verð-
mæti, vandmeðfarin að vísu. Þau
geta verið sannleiksperlur, en
einnig sindrandi hjóm, misnotað
í þeim tilgangi að sljóvga dóm-
greindina.
Orð eru til alls fyrst, stendur
einhvers staðar. Það er ekki
án þess þó að lúta þeim. Mæltu
þinn sannleika skýrt en af hóg-
værð; ljáðu öðrum eyra, jafnvel
heimskum mönnum og fáfróð-
um, einnig þeir hafa sína sögu að
segja. Forðastu háværa menn og
ágenga. Þeir eru sálarangur.
Farir þú í mannjöfnuð geturðu
orðið bitur og hégómlegur, því
ávallt verða á vegi þínum þeir,
sem bæði eru meiri menn og
minni en þú sjálfur. Njóttu bæði
afreka þinna og ráðagerða.
Varðveittu áhuga á starfi þínu,
hversu fábrotið sem þér virðist
það vera; það er sönn eign í
tímans rás. Hafðu varan á í
viðskiptum því að veröldin er
full af prettum. Láttu það samt
ekki verða til þess að þú kannist
ekki við dyggðina er hún verður
á vegi þínum; margir eiga sér
háleita hugsjón og hvarvetna
Áramótaávarp frú Vigdísar
Finnbogadóttur forseta Islands
nema hálfur sannleikur, því séu
orðin einhvers virði kemur hugs-
unin á undan. En í þjóðfélagi
nútímans, þar sem glamur,
skarkali og orðaflaumur sýnast
oft verða hljóðri yfirvegun
sterkari, er okkur hollt að hug-
Ieiða pistil, sem fyrir allmörgum
árum fannst í kirkju í Baltimore
í Bandaríkjunum, og ber yfir-
skriftina Desiderata, sem út-
leggst Leiðarljós:
„Gakktu með stilling í skark-
ala heimsins og mundu þann frið
sem í þögninni býr. Láttu þér
eftir megni lynda við alla menn
eru hetjur á ferð. Vertu þér
sjálfum trúr. Umfram allt, gerðu
þér ekki upp elskusemi. Gerðu
ekki lítið úr kærleikanum, hann
stenzt og er lífseigur eins og
gróður jarðar, þrátt fyrir þurrka
og hallæri. Taktu reynslu ár-
anna með glöðu geði og sjáðu
ekki eftir æskunni. Efldu innri
styrk svo áföll verði þér ekki um
megn, en láttu hugarfóstur ekki
draga úr þér þrótt. Oft er óttinn
sprottinn af lúa og einmana-
kennd. Þegar hollri sjálfsögun
sleppir, þá skaltu hlífa sjálfum
þér. Þú ert barn þessa heims,
ekki síður en himintunglin og
allt sem lífsanda dregur, og
réttborinn ertu til þessarar arf-
leifðar. Og hvort sem þú skilur
það eða ekki þá stendur alheim-
urinn þér svo opinn sem skildi.
Því skaltu lifa sáttur við guð,
hver sem þér finnst hann vera,
og sáttur við sjálfan þig í erli og
amstri daganna. Því þrátt fyrir
brostnar vonir, strit og undir-
ferli er heimurinn undursamleg-
ur. Hafðu gát. Leitaðu gæfunn-
ar.“
Og auðvitað er það vonin, sem
er leiðarljósið. Það leiðarljós,
sem getið er í upphafi.
Veiztu
að vonin er til
hún vex
inni i dimmu gili,
ok eigirðu leið
þar um
þá leitaðu
i urðinni
leitaðu
á sillunum
og sjáðu
hvar þau sitja
litil og veikbyggð
vetrarblómin
litil ok veikbyKKð
eins ok vonin.
Meðan ung skáld yrkja slík
ljóð með þessari þjóð þarf hún
ekki að örvænta um sinn hag, og
það eru þessi orð, sem ég vil gera
að einkunnarorðum okkar um
þessi áramót: Veiztu að vonin er
til...
Þegar litið er um öxl virðist
svo sem verstu ár íslenzkrar
þjóðar hafi verið þegar hún lét
vonleysi ná tökum á sér. Við
búum í landi, sem einatt hefur
verið okkur erfitt. Það er oft
ekki á færi okkar að afstýra
margskonar vanda, sem að
okkur steðjar. En við getum
brugðizt við vandanum. Okkur
er gefið vit. Okkur er gefinn
styrkur. Hagsýni er okkur í blóð
borin. Allt þetta og miklu fleira
býr í okkur, aðeins ef við viljum
nýta það, en látum vonleysishjal
og úrtölur ekki villa um fyrir
okkur.
Glamur og skarkala bar hér
áður á góma og misnotkun orða í
áróðursskyni. Við skulum ekki
láta telja okkur trú um það að
íslenzkt þjóðfélag sé á vonarvöl.
Dægurþras og karp um keisar-
ans skegg breyta ekki þeirri
staðreynd, að þrátt fyrir úr-
lausnarefni daglegs lífs, erum
Frá sæluhúsi orðanna
Ingimar Erlendur Sigurðsson:
NUVIST. Ljóð 170 bls. Letur,
1980.
Þrjátíu ár eru síðan Steingrím-
ur Sigurðsson »uppgötvaði« Ingi-
mar Erlend Sigurðsson og sló
honum upp í Lífi og list. Þá var
skáldið sextán ára. Það er ágætur
aldur fyrir skáld. En þrjátíu ár til
viðbótar gera líka gagn. Þann
tíma hefur skáldið meðal annars
notað til að senda frá sér fjórtán
bækur, þar af sjö ljóðasöfn. Skáld-
ið hefur vaxið að aldri og reynslu.
En höfundareinkennin eru alltaf
skýr, alveg frá fyrstu sögunni sem
Steingrímur tók sér ótilkvaddur
fyrir hendur að birta í tímariti
sínu.
Ingimar Erlendur er sérstæður
sem ljóðskáld. Og Núvist hans er
líka að ýmsu leyti sér á parti
meðal bóka hans. Á ég þá bæði við
tjáningaraðferðina, formið, og
eins hitt hvernig skáldið nálgast
yrkisefni sín; eða með öðrum
orðum við anda eða hugblæ ljóð-
anna. Þetta eru stuttorð og gagn-
orð ljóð, mjög svo. Þetta er einnig
líkingaauðugur skáldskapur. En
líkingar Ingimars Erlends vega
ekki salt á einu allsherjar eins og
líkt og lengi vel þótti ómissandi í
svo til öllum skáldskap á íslandi.
Skáldskapur Ingimars Erlends
hefur í aðra röndina markast af
dulhyggju og svo er enn. Þess
vegna rímar hann — rími fylgir
oftast einhver seiður. En Ingimar
Erlendur er líka uppreisnarmað-
ur, byltir við orðum og orðasam-
böndum, sýnir þau í nýju ljósi.
Stundum aðskilur hann atkvæði
samsettra orða þannig að hvor
hlutinn um sig fær sina sjálfstæðu
merking án þess þó að bægja frá
þeirri merking sem í heildinni
felst. Með þessu móti verða ljóðin
— svo fáorð sem þau eru — eins
og margræð vígorð. Við getum
eins kallað það aforisma, það er
gagnorðar ályktanir, spakmæli,
lífsspeki í plakatstíl eða hvað sem
verkast vill. En líking felur þetta í
sér hvað sem við köllum það.
En merking orða er takmörkuð,
hversu margræð sem þau eru og
hversu hugvitlega sem þau eru
valin. Hvorki segja þau fyrir um
hinstu rök né endurspegla þau
ávallt það sem þeim er þó ætlað:
hugsun manns og tilfinning, sam-
anber ljóðið Orðvist:
Við orðum
inni
búum.
Og orðum
okkar
ljúgum.
Við orðum
engum
trúum.
Innsta tilfinningin fær aldrei
útrás í orðum. Óttinn, til dæmis
að taka, á engin orð eins og segir í
ljóðinu Heimsvilla:
Niðadimm nótt
og nöturleg;
á fótalausum flótta
feta ég,
með orðlausum ótta
engan veg.
Mestallur skáldskapur hverfur
undir græna torfu án þess að vera
nokkru sinni felldur í orð. Margir
hafa ort um Kirkjugarð en enginn
eins og Ingimar Erlendur. Hér er
ljóð hans með því nafni:
Hér hvila þau,
öll hin
óortu ljóð.
Heil skáldaþjóð.
Ingimar Erlendur Sigurðsson
Bókmenntir
eftir ERLEND
JÓNSSON
Ingimar Erlendur er mikill stíl-
isti og leikur með orðin en setur
oftast fyrirvara um inntak þeirra.
Að teygja orðin sem næst því sem
manni liggur á hjarta en ná þó
aldrei alla leið kölluðu menn í
gamla daga að leita sannleikans.
En í orðinu »sannleiki« fólst þó
jafnframt trúarleg merking. Menn
gáfu sér þá forsendu að skáldinu
væri, þrátt fyrir allt, ætlað að
leita sannleikans, leita að ein-
hverjum tilgangi handan við
stund og stað, lyfta huganum frá
duftinu. Þetta ævaforna hlutverk
skáldskaparins orðar Ingimar Er-
lendur svo í ljóðinu Skáldtrú:
af geisla
frá guðdóms
glugga
heimsins
hjörtu
að hugga.
Trúarljóð eru snar þáttur í
þessari bók. Að því leyti eru ljóðin
aldarspegill: viðbrögð skálds and-
spænis efnishyggju og ofstækis-
fullri skipulagshyggju sem hefur
hvor tveggja brugðist. Vegna þess
að mannlegi þátturinn gleymdist.
Bókin Núvist skiptist í þrjá
kafla: Þávist, Ljóðvist og Núvist.
í síðasta og lengsta kaflanum eru
einkum trúarljóð. Kristin trú fel-
ur ávallt í sér þær andstæður að
hún játar ófullkomleik mannsins
en setur honum jafnframt tak-
mark fullkomnunar. Þessar gagn-
gerðu andstæður höfða öðru frem-
ur til Ingimars Erlends sem
skálds: annars vegar óburðug og
yfirborðsleg merking orðanna —
hins vegar tilfinningin sem innst
inni er ósvikin er verður aldrei
fullkomlega með orðum tjáð.
Að sjálfsögðu koma stjórnmála-
átökin í samtímanum inn í þetta
dæmi: fölsun hugtaka og samvisk-
uspursmál sem knýja skáld til að
vera með eða móti. Núvist felur í
sér andstöðu gegn þeirri pólitísku
nauðhyggju, virðist mér, sem
kennir að skáld skuli fylgja ákveð-
inni línu sem ein leiði til fram-
þróunar og ein sé rétt, ella verði
þau viðskila við bæði skáldskap-
inn og samtíð sína. Hér er eins og
forðum leitað inn á huglægu
sviðin — með hefðbundin trúar-
tákn sem leiðarmerki en ósvikin
lífsgildi — ideal — að markmiði.
Erlendur Jónsson
við ekki að syngja okkar síðustu
vers. Sannanir þessa blasa
hvarvetna við. Landið okkar og
það afl, sem í okkur sjálfum býr,
veitir okkur svo ríkulegt viður-
væri, að áþreifanleg velmegun er
hér miklu meiri en víðast gerist,
og svo mikil að barlómur hlýtur
að vera fyrir neðan okkar virð-
ingu. En velmegun, talin í krón-
um og aurum, er annað en
velmegun andans.
Það sæmir okkur að vera
bjartsýn og trúa á okkur sjálf.
Það er velmegun andans, og til
að öðlast þá velmegun þurfum
við þessa von, sem svo fallega
hefur verið ort um. Megi það
verða kjörorð okkar íslendinga
um þessi áramót, að vonin sem
stundum er veikbyggð eins og
vetrarblóm, dafni og verði að
sóleyjum sumarsins 1981 — von-
in um batnandi tíð og góðæri til
sjós og lands og í hugum okkar
mannanna. Með samstöðu og
sjálfstæðishugsjón, tillitsemi og
skilningi, hófsemi, sannleiksást
og ræktun lýðræðisins mun okk-
ur vel vegna. Þá munum við
kunna fótum okkar forráð, og þá
eigum við verðmæti að gefa, ekki
aðeins okkur sjálfum heldur
einnig öðrum þjóðum.
Gleðilegt ár og megi allt gott
sem hugsað er í heiminum og
nefnt sínum réttu nöfnum, frið-
ur, vísindi og manngæska fylgja
okkur á árinu sem fer í hönd og
alla tíma.
28611
Vatnsendablettur
Nýlegt einbýlishús um 200 ferm.
á tveimur hæðum m/innbyggð-
um bílskúr, 5 svefnherb.
Óvenjustór lóð. Skipti á
3ja—4ra herb. íbúð m/bílskúr
æskileg.
Hraunbær
5—6 herb. 140 ferm. íbúö á 2.
hæö.
Grenimelur
Efri hæö 110 ferm. ásamt 2—3
herb. og snyrtingu í risi. Sér
inngangur. Mikið endurnýjaö.
Framnesvegur
Endaraöhús á þremur hæöum,
grunnflötur ca. 50 ferm.
Stórageröi
3ja—4ra herb. 96 ferm. falleg
íbúö á 4. hæð ásamt herb. í
kjallara, bílskúr.
Miöstræti
3ja herb. góö íbúö á 2. hæö í
steinhúsi ásamt tveimur herb. á
1. hæö. Bftskúr.
Drápuhlíö
4ra herb. 127 ferm. íbúö á 1.
hæð. Allt sér, mikiö endurnýjaö.
Hraunbær
4ra—5 herb. rúmlega 120 ferm.
íbúö á 3. hæð. Sklpti á 2ja—3ja
herb. íbúö æskileg.
Hólmgaöur
Ný stórglæsileg 3ja herb. íbúð á
1. hæö.
Engihjalli
3ja herb. 90 ferm. íbúö á 7.
hæö. Glæsileg íbúö.
Goöatún
3ja herb. 70 ferm. jaröhæö
ásamt stórum bílskúr.
Frakkastígur
2ja herb. 55 ferm. íbúö á 2.
hæð í timburhúsi.
Hrísateigur
2ja herb. 55 ferm. kj.íbúö.
Mánagata
2ja herb. 50 ferm. kjallaraíbúö.
Bergþórugata
2ja herb. 65 ferm. samþykkt
jaröhæö.
Vallargeröi
2ja herb. óvenjuvönduö og fal-
leg íbúö á 2. hæö í þríbýlishúsi,
bftskúrsréttur.
Hef kaupanda
aö 2ja herb. íbúö í Neðra-
Breiðholti.
Hús og eignir
Bankastræti 6
túðvik Gizurarson hrl
Kvöldsimí 17677