Morgunblaðið - 04.01.1981, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANUAR 1981
Hæstaréttardómur frá 1975:
Gildi opinberra hækk-
ana miðast við birtingu
í Stjórnartíðindum
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á
gamlársdaK ad hækka alla
opinbcra þjónustu um
10%. Jaínframt var svo
ákveðið með bráðabirKÓa-
lóRum. að vísitala í nóv-
emher or desember skyldi
skert ofí verða ekki bætt
þar 7 visitölustijí. I>rátt
fyrir ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar. var hækkun opin-
beru þjónustunnar ekki
tilkynnt í stjórnartíðind-
um á Kamlársdají. heldur
aðeins birt þar bráða-
hirRðalöKÍn. Ilakkun
opinberu þjónustunnar
tekur samt ekki RÍldi fyrr
en hún hefur verið birt í
B-deild Stjórnartíðinda.
Fyrir því er Hæstaréttar-
dómur frá 1975.
Hæstaréttardómurinn er í máli
Rafveitu Hafnarfjaróar gegn
Raftækjaverksmiðjunni hf. og var
kveðinn upp 28. október það ár.
Málavextir voru þeir, að Rafveitan
hafði fengið leyfi iðnaðarráðherra
til hækkunar á gjaldskrá sinni frá
10. febrúar 1972, en hækkunin,
10%, var ekki tilkynnt í B-deild
Stjórnartíðinda, fyrr en í júlímán-
uði 1972. Krafa Raftækjaverk-
smiðjunnar var að hún fengi
andvirði hækkunarinnar þennan
tíma endurgreidda og féllst undir-
réttur á það. Hæstiréttur staðfesti
síðan undirréttardóminn.
í forsendum undirréttardóms-
ins, sem Hæstiréttur staðfesti, er
vitnað í lög nr. 64 frá 1943 um
birtingu laga og stjórnvaldser-
inda. I 1. grein þeirra laga segir,
að í A-deild Stjórnartíðinda skuli
birta lög öll, tilskipanir, opinber
bréf, auglýsingar og aðrar tilskip-
anir annars efnis, sem út eru
gefnar af æðsta handhafa fram-
kvæmdavalds, svo og reglur og
þingsályktanir, sem Alþingi sam-
þykkir. í 2. grein er mælt fyrir um
birtingu reglugerða í B-deild og
vitnar dómurinn sérstaklega i 1.
málsgrein 7. greinar laganna, þar
sem segir, að fyrirmæli, sem felast
í lögum, auglýsingum, tilskipun-
um, reglugerðum, opinberum bréf-
um, samþykktum eða öðrum slík-
um ákvörðunum almenns eðlis
megi eigi beita, fyrr en birting
samkvæmt 1. og 2. jrrein laganna
hefur farið fram. I dómsorði er
vitnað í undirréttardóminn, sem
Hæstiréttur staðfesti m.a. með
skírskotun til forsendna hans.
Ljósm.: Raxnar Axelsson.
Þetta er Grímur A. Grímsson
leigubifreiðarstjóri, sem varð
fyrir þeirri óskemmtilegu
reynslu fyrir helgi, að á hann
var skotið úr riffli af farþega
hans. Skotið hljóp í hurð
hílsins. er Grimi tókst að ná
taki á hiaupi riffiisins, og
bendir hann á skotgatið. sem
sést betur á innfelldu mynd-
inni.
Riffilskytta í gæsluvarðhald
MAÐURINN, sem á aðfaranótt
föstudagsins ógnaði leigubílstjóra
í Reykjavík með riffli og skaut að
honum, hefur nú verið úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til 21. janúar
og honum gert að sæta geðrann-
sókn.
Að sögn Erlu Jónsdóttur deild-
arstjóra hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins, er unnið að rannsókn
málsins, en enn hefur ekkert það
komið fram er skýri gerðir
mannsins, sem er rösklega tvítug-
ur að aldri, umrædda nótt.
0'
1% hækkun fiskverðs
kostar 1,4 milljarða
INNLENT
Misritun leiðrétt
I FRÉTT í Morgunblaðinu fyrir
skömmu misritaðist að Gunnar
Friðriksson, forseti Slysavarnafé-
lags íslands væri framkvæmda-
stjóri þess. Þetta er að sjálfsögðu
rangt, því að framkvæmdastjór-
inn er eins og kunnugt er Hannes
Hafstein. Hlutaðeigendur eru
beðnir velvirðingar á þessari mis-
ritun.
REIKNAÐ er með að fundur
verði haldinn í Yfirnefnd verð-
lagsráðs sjávarútvegsins um nýtt
fiskverð á morgun. Ekki er enn
ljóst hvernig ríkisstjórnin hyggst
leysa þann vanda. sem fylgir
ákvörðun fiskverðsins, en Morg-
unblaðið raddi þetta mál í gær
við Eyjólf ísfeld Eyjólfsson. sem
sæti á í Yfirnefndinni.
— Fiskverðshækkunin, sem er
framundan er miklu meiri, en sem
nemur þeim afkomubata, er leiddi
af gengissigi síðustu mánuði árs-
ins, en gengissigið var t.d. um 7%
í desember. Til að styrkja stöðu
útflutningsatvinnuveganna hefur
verið rætt um millifærzlu á 8—10
milljörðum króna m.a. í gegnum
verðjöfnunarsjóð. Hvernig sú upp-
hæð á að skiptast virðist enginn
vita, en í þessu sambandi er talað
um útflutning sjávarafurða, sam-
keppnisiðnað og það er talað um
annan útflutningsiðnað, t.d. ullar-
og skinnaiðnað. I raun eru átta
eða tíu milljarðar ekki stór upp-
hæð í þessu dæmi því þarna er
verið að tala um miklar upphæðir.
Hvert prósentustig til hækkunar á
fiskverði kostar t.d. 1,4 milljarða
(g.kr.).
— Svo er annað, sem alveg
virðist gleymast í þessu sambandi.
Það er að hér verða áfram kostn-
aðarhækkanir þrátt fyrir hin nýju
lög ríkisstjórnarinnar og ef það á
að binda gengið í marga mánuði
leiðir það af sjálfu sér, að ekkert
getur jafnað það nema verðhækk-
anir erlendis eða þá að gengið
verður að gefa eftir. Ef verðhækk-
anir verða á erlendum mörkuðum
virðast mér næg tilefni kostnaðar-
hækkana hér innanlands til að éta
þær upp. Nefna má vísitöluhækk-
unina, sem verður 1. marz og
fiskverðshækkun, sem væntanlega
verður að taka í framhaldi af því,
en nú er ekki verið að ræða um
ákvörðun fiskverðs lengur en í 2
mánuði, sagði Eyjólfur Isfeld Eyj-
ólfsson að lokum. ■
Ólafur Ragnar Grímsson:
Sighvatur ekki vitni að neinu
„ÞESSAR ásakanir Sighvats
Björgvinssonar eru alvarlegar og
staðlausar. Sighvatur Björgv-
insson var ekki vitni að einu eða
neinu í þessu samhandi og það er
fordæmanlegt. að hann skuli
hafa hlandað forsetaemha'ttinu
inn í pólitískt ár<>ðursstríð sitt.
Ég tck ekki þátt i sliku,“ sagði
Ólafur Itagnar Grimsson, for-
maður þingflokks Alþýðuhanda-
lagsins. er Mbl. spurði hann í
gær í framhaldi af orðaskiptum
hans og Sighvats Björgvinssonar,
formanns þingflokks Alþýðu-
flokksins, í Morgunpósti útvarps-
ins á föstudagsmorgun. hvenær
bráðahirgðalögin hefðu verið
undirrituð á gamlársdag og
hvenær hann hefði talað við
Guðrúnu Ilelgadóttur, alþing-
ismann. en í Morgunpóstinum
dró Sighvatur þá ályktun af
orðum ólafs Ragnars, að hann
hefði talað við Guðrúnu fyrir
setningu bráðabirgðalaganna. en
ólafur sagði það samtal hafa
farið fram síðar. Sighvatur ítrek-
aði þá orð sín og sagði Ólaf
Ragnar hafa gefið forseta ís-
lands rangar upplýsingar. «Ég
hef sagt það, sem ég vil segja um
þetta mál.“ svaraði Ólafur Ragn-
ar ítrekaðri spurningu Mbl. um
fyrrgreindar tímasetningar.
Samkvæmt þeim upplýsingum.
sem Mbl. hefur, mun forseti
íslands hafa undirritað bráða-
birgðalögin á sjötta tímanum á
gamlársdag.
I Morgunblaðinu í gær er getið
að nokkru orðaskipta Sighvats og
Ólafs Ragnars, en þar skýrði
Ólafur frá því, að. síðdegis á
gamlársdag hafi hann haft sam-
band við Guðrúnu Helgadóttur og
í því samlali hafi komið fram, að
hún tengdi nú málið Gervasoni-
málinu og vildi áskilja sér rétt til
þess að fresta því að lýsa opinber-
lega afstöðu sinni til bráðabirgða-
laganna. Ólafur segist þá hafa
spurt Guðrúnu, hvort þetta þýddi
að hún væri andvíg efni bráða-
birgðalaganna, þar sem hann teldi
sig þá þurfa að skýra forseta
íslands frá því og segist hafa
spurt, hvort þessi nýja staða
hennar þýddi, að hann þyrfti aftur
að fara til forseta. Því hefði
Guðrún svarað neitandi. Kjarni
málsins væri sá, að Guðrún hefði
ekki tekið afstöðu gegn málinu.
Sighvatur sagði þá, að nú hefði
Ólafur Ragnar upplýst það, að
þegar ríkisstjórnin hefði sett
bráðabirgðalögin, hafi hún ekki
vitað, hvort þingmeirihluti væri
fyrir þeim í neðri deild, þar sem
einn þingmanna hennar hefði lýst
því yfir opinberlega, að hann væri
ekki búinn að taka afstöðu til
málsins.
Ólafur Ragnar sagði víst að ekki
væri þingmeirihluti á móti, en
Sighvatur sagði þá ekki það skipta
máli, heldur hitt að Ólafur Ragnar
hafi vitað um það áður en bráða-
birgðalögin voru sett, að Guðrún
Helgadóttir hefði ekki gert upp
sinn hug og þar með ekki tekið
afstöðu til bráðabirgðalaganna.
Ólafur Ragnar sagði þá, að það
hefði ekki gerzt fyrr en eftir að
bráðabirgðalögin voru sett, en
Sighvatur sagði, að það hlyti að
hafa verið áður, því Ólafur Ragnar
hefði sagt, að hann hefði getað
gengið á fund forseta íslands og
tilkynnt honum þessa afstöðu
Guðrúnar Helgadóttur, ef hún
hefði viljað. Það sé fordæmalaust í
þingsögunni, að formaður þing-
flokks gefi forseta íslands vísvit-
andi rangar upplýsingar og afleið-
ingin sé sú, að sett hafi verið
bráðabirgðalög án vitneskju um
það, hvort þingmeirihluti væri
fyrir þeim og væri það mjög
alvarlegur atburður í íslenzkri
þingsögu. Ólafur Ragnar mót-
mælti þessum ásökunum, en Sig-
hvatur ítrekaði það, að formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins
hefði legið á þeirri vitneskju við
forseta íslands, að einn af þing-
mönnum flokks hans hefði ekki
gert upp hug sinn til efnis bráða-
birgðalaganna.
Mbl. spurði Guðmund Bene-
diktsson, ráðuneytisstjóra í for-
sætisráðuneytinu, að því í gær,
hvenær bráðabirgðalögin hefðu
verið undirrituð. Hann kvaðst
ekki geta sagt til um það ná-
kvæmlega. Það hefði verið síðdeg-
is á gamlársdag. Hins vegar
kvaðst hann fullyrða, að farið
hefði verið að lögum í hvívetna við
setningu bráðabirgðalaganna. Það
væri útgáfudagurinn, sem máli
skipti, en ekki hvenær dagsins
lögin væru undirrituð. Guðmund-
ur sagði gang mála þann, að
forsætisráðherra gerði tillögu til
forseta um setningu bráðabirgða-
laga og skrifaði hann um það
tillögu, en síðan væri tillagan og
texti laganna lögð í einu lagi fyrir
forsetann. Þá hefði forsætirað-
herra meðundirritað lögin. Forseti
skrifaði fyrst á tillöguna: „Fellst á
tillöguna" og síðan undirritaði
forseti Islands lögin, en lagagildi
fengju þau ekki fyrr en þau hefðu
verið prentuð og það hefði fengizt
með útkomu Stjórnartíðinda á
gamlársdag.
Áramótaspilakvöld
Varðar á Sögu
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður
heldur sitt árlega Áramótaspila-
kvöld að Hótel Sögu í kvöld,
sunnudagskvöld 4. janúar.
klukkan 20.30. Að venju er spilað
um mjög vegleg verðlaun, en
einnig gildir aðgöngumiðinn sem
happdrættismiði og er vinningur-
inn flugfar til Kaupmannahafn-
ar og til haka.
Geir Hallgrímsson alþingismað-
ur, formaður Sjálfstæðisflokksins,
flytur ávarp.
Skemmtiatriði verða þau að
Hjálmtýr Hjálmtýsson og Mar-
grét Matthíasdóttir syngja óperu-
lög, við undirleik Gísla Magnús-
sonar. Þá syngur Sigríður Hann-
esdóttir gamanvísur við undirleik
Aage Lorange.
Að lokum leikur Hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar fyrir dansi
til klukkan 1 eftir miðnætti. Gest-
ir eru hvattir til að koma stund-
víslega svo unnt verði að hefja
spilamennskuna á réttum tíma.
Fjölmennið.
(Fréttatilkynning frá Verði).
Síðasti dagur
afmælissýningar
I DAG, sunnudag, lýkur 20 ára
afmælissýningu Ásgrímssafns,
sem staðið hefur frá 9. nóv. Á
þessari sýningu eru mörg af
úrvalsverkum safnsins og
spannar hún yfir langt tímabil
á ferli Ásgríms.
Safnið verður lokað um tíma
meðan komið er fyrir næstu
sýningu þess, sem verður hin
árlega skólasýning. Ásgríms-
safn, Bergstaðastræti 74 er
opið í dag kl. 1.30—4. Aðgang-
ur er ókeypis.