Morgunblaðið - 04.01.1981, Síða 11

Morgunblaðið - 04.01.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1981 11 tilgangur þjóðgarðs er sá, að fólk geti skoðað og notið landsins, þarf að vera sæmilega greiðfært, þó með þeim hætti að umferð raski ekki kyrrð eða valdi mengun og hávaða. Og ekki síst, að verndaðir séu viðkvæmustu staðirnir, sem ekki þola mikla umferð. — Til þess að átta okkur á hvernig mætti koma þessu fyrir, fengum við náttúrufræðing, Helga Hallgrímsson, til þess að gera úttekt á þjóðgarðslandinu. En síðar hafa þeir Einar Sæmundsen, landslagsarkitekt og Stefán Örn Stefánsson, arkitekt unnið að skipulagi á grundvelli úttektar- innar. I tillögum þeirra er mælt með því að aðaltjaldstæði og móttaka ferðamanna verði í utan- verðu Asbyrgi, á landi sem liggur mjög vel við umferð og þjónustu og sem hentar mjög vel til upp- græðslu. Enda er það stefna okkar að leggja ekki fegurstu staði landsins undir mannvirkjagerð, og að sjálfsögðu gilda sömu lögmál um okkar eigin starfsemi sem annarra. Með þessu eigum við að geta létt verulega á þeim tjald- stöðum, sem hingað til hafa verið notaðir, en þeir eru botn Asbyrgis og Vesturdalur, þótt þar verði sem Einar Sæmundsen, landslagsarkitekt og Helgi Hallgrímsson náttúru- fræðingur að störfum í þjóðgarðinum. — Annað höfuðatriði er að leggja bílvegi um þjóðgarðinn, heldur Árni áfram þar sem frá var horfið fyrr í viðtalinu. Þarna var á sínum tíma aðeins lélegur moldar- slóði og ekki fært nema jeppum, sem auk þess lá um viðkvæm og athyglisverð svæði. Höfðu orðið verulegar skemmdir af akstri út fyrir þennan slóða, sem viidi verða gjörsamlega ófær þegar rigndi. Þegar þessi þáttur var skoðaður, gerðum við ráð fyrir því að umferð um þjóðgarðinn gæti margfaldast á næstu árum og áratugum, og að markmiðið yrði að gera fólki á öllum bílum fært að helstu skoð- unarstöðum þjóðgarðsins, en að halda hávaða, ryki og öðru slíku í lágmarki. Því var ákveðið að færa umferðarþungann vestur fyrir gljúfrin á land sem þolir vel slíkt álag. Út frá þeim vegi eru síðan afleggjarar að helstu útsýnis- og skoðunarstöðum, og víða sést af veginum sjálfum yfir þjóðgarðs- landið og sveitina, sem ekki sást frá gamla veginum. Með þessu móti teljum við að almenningur hafi greiðari aðgang að helstu náttúruundrum þjóðgarðsins en áður og fleiri geti notið hans. Og að þrátt fyrir vaxandi umferð, sé þessum viðkvæmu stöðum hlíft og Margt býr í klettunum ef grannt er gáð. Hér er „Kristsmyndin“ i Vígabjargi í Forvöðum við Jökulsá. fyrr frumstæðari tjaldstæði í skógarjaðri. Þannig er gefinn kostur á tvenns konar tjaldvist. Fólk getur valið um að komast á tjaldstæði með fullkominni þjón- ustu og hins vegar að vera meira út af fyrir sig í sem náttúru- legustu umhverfi, en þá við frum- stæðari aðbúnað. Fleiri undur gljúfr- anna aðgengileg — Hvað um botninn í Ásbyrgi í þessu sambandi? — Innsti hluti Ásbyrgis er tví- mælalaust ein helsta perla þjóð- garðsins og að sjálfsögðu er stefnt að því að sem flestir geti gengið þar um og notið náttúrunnar. Það getur því reynst nauðsynlegt að draga úr tjaldvist þar, bæði til aö hlífa gróðri skógarbotnsins og til að skapa sem best næði til að ganga þar og skoða sig um. Mér er vel ljóst, að slíkar breytingar, hér sem annars staðar, geta fallið þeim þungt, sem hafa bundið tryggð við þann stað, sem í hlut á. En ég er iíka viss um, að flestir fallast á að örlítil sjálfsafneitun getur ráðið úrslitum um það, hvernig til tekst með verndar- störfin. Tjaldstæði i Vesturdal. Hugm.vndin er að fólk geti valið um að komast á tjaldsta'ði með fullkominni þjónustu eða verið út a( fyrir sig i náttúrulegu umhverfi. en þá við frumsta'ðan aðhúnað. fólk geti haft þar sæmilegt næði. Loks er svo gert ráð fyrir því að gerðir verði göngustígar víðar um þjóðgarðinn en nú er. Þannig verði enn fleiri undur gljúfranna að- gengileg en hingað til. Einhvern tíma í framtíðinni kemur svo kannski göngubrú á Jökulsá sjálfa og þannig getur opnast hringleið um allt þjóðgarðslandið. Alvarlegur uppblástur — Og hvað um búskap innan þjóðgarðsins? — Við stefnum að sjálfsögðu að sem allra bestri sambúð við íbúða Kelduneshrepps, sem hafa átt þarna upprekstrarland frá alda öðli. Því er ekki stefnt að alfriðun þjóðgarðslandsins, eins og mál standa nú. — Ekki þurfa menn þó lengi að horfa á árangur skógverndar í Ásbyrgi til að sjá, að freistandi er að halda áfram friðunarstörfum í þjóðgarðinum, heldur Árni áfram. Og til athugunar er að girða t.d. Hólmatungur og leyfa öllum þeim gróðri að dafna, sem þar getur þrifist. Að vísu erum við ekki alltof hrifnir af girðingum á útivistarsvæðum af augljósum ástæðum, þær hindra umferð og eru til lítillar prýði. Best væri að ná slíkum markmiðum fram með öðrum hætti, ef hægt er. Því er ekki að neita, að alvarlegur upp- blástur herjar á stór svæði innan þjóðgarðsins. Það er kannski al- varlegasta vandamálið, sem steðj- ar að þjóðgarðinum við Jökulsár- gljúfur. Þegar hægist um vegna b.vggingar gestamóttöku, bíður okkar mikið starf í samvinnu við Keldhverfinga við að leggja á ráðin um aukna gróðurvernd. Andstæðar hug- myndir um Jökulsá — Þá komum við að siðasta þættinum, sem þú nefndir, Árni, mannvirkjagerð í Jökulsárgljúfr- um? — Ekki er því að leyna að uppi eru andstæðar hugmyndir um hagnýtingu Jökulsár á Fjöllum. Náttúruverndarráð hefur fyrir sitt leyti lagt til að Jökulsá verði friðuð í gljúfrinu með fossum sínum, enda er hætt við að gljúfrið verði eins og draugaborg þegar þetta mikla vatnsfall er þaðan horfið og gnýrinn sem því f.vlgir. Það er því stefna okkar að halda sem allra lengst í þetta magnaða náttúruundur. — En hvernig á nú ferðafólk, sem kemur þarna í þjóðgarðinn, að vita um þetta allt og þekkja þau mörgu undur, sem þarna er að finna? — Það er rétt, að fólk lætur sér ekki nægja að dáðst að gljúfrun- um, heldur fer það að velta því fyrir sér hvernig þau hafi orðið til. Þjóðsagan um það hvernig Sleipn- ir myndaði Ásbyrgi með einu duglegu sparki sýnir glöggt að menn byrjuðu fljótt að velta fyrir sér tildrögunum. Eitt meginhlut- verk Náttúruverndarráðs í þjóð- görðum er að hjálpa fólki til að svala forvitninni og svara spurn- ingum um allt frá nafni á blómi og til þess að rekja náttúrusöguna, hvernig þetta hefur allt orðið til. Til dæmis er fæstum Ijóst að Hljóðaklettar og Rauðhólar eru myndaðir í sama gösinu. Að Hljóðaklettar eru raunverulega gígkjarnar úr Rauðhólum, sem áin hefur hreinsað allt laust utan af. — Bíddu aðeins við. Nú eru enn að gerast atburðir í jarðsögu þessa svæðis með jarðskjálftum og gliðnun lands, sem mvnda nýjar gjár.. — Já, og ný stöðuvötn, grípur Árni inn í. Stuttu eftir umbrotin fyrir fáum árum, sem leiddu til þess að nýtt vatn myndaðist, var á aðalfundi náttúruverndarsamtak- anna norðlensku verið aö velta fyrir sér nafni á þessu nýja vatni. Þá stakk ég upp á því i grini að skíra það eftir myndunarsögu þess og kalla Skjálftavatn, sem líka SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.