Morgunblaðið - 04.01.1981, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.01.1981, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1981 VER<jLD ATÓMVOPN Samkvæmt upplýsingum sem ný- lega komu frá Bandaríkjastjórn er ljóst, að bandaríska þjóðin hefur á undanförnum árum ekki verið leidd í allan sannleikann um slys, sem orðið hafa vegna kjarnorkuvopna. Banda- ríska hermálaráðuneytið hefur kall- að þessi slys dulnefninu „brotnar örvar". Frá árinu 1945 hafa slík slys orðið 26—36 sinnum og er það hálfu meira, en hingað til hefur verið álitið. Þar að auki hafa orðið hundruð minniháttar óhappa með kjarn- orkuvopn. Dulnefnið fyrir þau er Verður „bogin spjót", en óhöpp, sem eru ennþá lítilvægari eru kölluð „sljó sverð". Um það bil 10 „brotnar örvar" hafa verið flokkaðar sérstaklega vegna þess að þessi tilvik geta haft stjórnmálaleg áhrif, að því er tals- maður hermálaráðuneytisins segir. Þessi slys hafa m.a. átt sér stað þannig að kjarnorkuvopn hafa eyði- lagzt og geislavirkt, krabbameins- valdandi plúton dreifðist um byggðir bandamanna Bandaríkjanna. Hins vegar hefur Bandaríkjamönnum tek- izt að halda þessum mistökum leyndum. Ein hinná „brotnu örva“, sem ekki tókst að halda leyndri, var slysið, er B-52 sprengjuflugvélin hrapaði í Paiomare á Spáni árið 1966 með þeim afleiðingum að plúton dreifðist yfir víðlent svæði, og hreinsun þess kostaði 50 milljónir dollara á þeim tíma. Tveim árum síðar hrapaði flugvél með svipuðum afleiðingum skammt frá Thule á Grænlandi. Hermálaráðuneytið leggur áherzlu á, að engin hinna „brotnu Launungin viröist einatt af „atjórnmálalegum istœöum örva“ hafi haft í för með sér kjarnorkusprengingu vegna þess hve varúðarráðstafanir séu rækilegar í sprengjum og flaugum-. En samkvæmt upplýsingum frá bandarískum embættismanni skall samt eitt sinn hurð nærri hælum að ekki sé meira sagt. Það var árið 1961, er sprengjuflugvél af gerðinni B-52 missti 24-megatonna kjarnorku- sprengju yfir Goldsboro í Norður- Karólínu í Bandaríkjunum. í sprengjunni voru 6 öryggiskerfi, en þegar hún lenti á jörðunni voru 5 þeirra óvirk og aðeins einn öryggis- lás kom í veg fyrir að þarna yrði kjarnorkusprenging og hún tvö þús- und sinnum öflugri en sprengjan sem varpað var á Hiroshima á sínum tíma. Þrátt fyrir þessar játningar sagði talsmaður hermálaráðuneytisins, að varúðarráðstafanir Bandaríkja- manna hefðu reynzt vel. En ýmsir telja, að hætta sé á fleiri „brotnum örvum". Varnar- málastofnunin í Washington, sem er hugmyndabanki einstaklinga, segir, að Bandaríkjamenn hafi nú þegar yfir að ráða 31 þúsund kjarnorku- vopnum af ýmsum gerðum. Ymsir sérfræðingar telja óum- flýjanlegt að á næsta áratug bætist ýmsar þjóðir í hóp kjarnorkuvelda, og aukist þar með stórlega hættan á fleiri „brotnum örvum". - RICHARD THAXTON. banamein mannkyns „brotin ör“? HJARTASJÚKDÓMAR Dæmið gerist flóknara Samtímis því að dauðsföllum af völdum hjartaáfalla hefur fækkað mjög mikið í sumum löndum hefur þeim fjölgað í öðrum, að því er segir í nýrri skýrslu frá Alþjóða heilbrigðisstofnuninni. Raunar hafði verið vitað, að hjartasjúk- dómum hafði farið fækkandi í Bandaríkjunum en það kom á óvart, að sama þróun hafði átt sér stað víða annars staðar. Þessar nýju upplýsingar, sem taka til áranna 1968—77, hafa slegið sérfræðinga svo út af laginu að nú er fyrirhuguð ný rannsókn á sérstökum svæðum í Evrópu, Sovétríkjunum, Bandaríkjunum og e.t.v. Kína. í skýrslu Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar kemur fram, að dauðsföllum af völdum hjarta- Meö sumum þjóöum er þetta allt aö lagast áfalla hefur fækkað verulega í Ástralíu, Belgíu, Kanada, Finn- landi, ísrael, Nýja Sjálandi og Noregi. I Búlgariu, Póllandi og Júgóslavíu hefur þeim aftur á móti fjölgað allískyggilega og nokkru minna í Danmörku, Frakklandi, Ungverjalandi, írlandi, Rúmeníu, Norður-írlandi og Svíþjóð. í flestum öðrum löndum, sem skýrslan tók til, hafði engin breyt- ing orðið á tíðni hjartaáfalla og dauðsfalla af völdum þeirra. I Belgíu og Japan, þar sem tiltölu- lega fáir deyja vegna hjartaáfalls, hafði enn dregið úr tíðninni, en á írlandi og N-írlandi, þar sem tíðnin er mikil, hafði enn sigið á ógæfuhliðina. Hjartasjúkdómar verða fiestum að fjörtjóni víðast hvar um heim, að því er segir í skýrslu Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar. í Bandaríkjunum eru þeir banamein þriðjungs þeirra, sem falla frá, svo að dæmi sé tekið. Dr. Zbynek Pisa, sem veitir hjartasjúkdómarann- sóknum Alþjóða heilbrigðisstofn- unarinnar forstöðu, sagði í viðtali, að ástæðan fyrir ýmist fækkun eða fjölgun hjartasjúkdóma væri með öllu ókunn. Sumir vísindamenn hafa komið með þá kenningu, að landfræði- legar aðstæður ásamt lífsvenjum fólks, reykingum, mataræði, kól- esterolmagni í blóði og hreyfingu, ráði hér mestu um. Pisa segir þó, að vegna þess, að ekkert augljóst samband sé á milli breytinga á tíðni hjartasjúkdóma og breytinga á lífsvenjum fólks sé hætt við auknum deilum um þau atriði, sem talin eru valda mestu um hjarta- sjúkdóma. - LAWRENCE K. ALTMAN PRETTIR Horn af nashyrningum hafa löngum þótt eftirsóknarvert stofu- stáss í Vestur-Evrópu, en nú er svo komið, að þau eru nær ófáan- leg. Af þeim sökum hafa menn freistazt til þess að setja á markað eftirlikingar úr plasti, og eru þær seldar sem ósvikin horn. Nashyrn- ingahorn eru einnig eftirsóknar- verð á Austurlöndum, en þar þykja þau hafa hagnýtt gildi og lækningamátt og ástarkveikju. Anne Cox, sem starfar hjá þeirri deild uppboðsfyrirtækisins Christie í Suður-Kensington í London, þar sem má eru seld horn villtra veiðidýra, segist hafa séð furðulega góðar eftirlíkingar — Nýlega munaði minnstu að við keyptum nokkur horn sem ósvikna vöru. En til allrar hamingju kom- umst við að raun um að þau voru úr plasti áður en við höfðum Flest er nú hægt að falsa.J gengið að kaupunum. — Verð á ósviknum hornum er að jafnaði 10 sterlingspund, eða 14000 krónur fyrir hvert pund, svo virðist sem talsverður fjöldi manna safni hornum villidýra. Þetta er yfir- leitt fólk sem hefur ekki aðstöðu til að fara sjálft á dýraveiðar og kaupir einfaldlega horn og setur þau upp á veggi hjá sér. Þetta virðist vera stöðutákn í Vestur- Þýzkalandi, — segir Anne Cox. Fyrir skömmu var birt skýrsla um nashyrningaveiðar. Höfundur hennar var Dr. Esmond Martin, sem starfar á vegum World Wild- life sjóðsins og Alþjóðasambands um verndun náttúru og náttúru- auðlinda. Ýmis fyrirtæki hafa sýnt náttúruverndarsjónarmiðum vaxandi skilning og hið fræga uppboðsfyrirtæki Sotheby í Bret- landi vill ekki höndla með nas- hyrningahorn vegna hættunnar á, að þessari dýrategund verði út- rýmt. Eins og fyrr segir eru nashyrn- ingshorn talin hafa annað og veigameira gildi en að vera stöðu- tákn hjá betri borgurum. í Suð- Austur-Asíu eru þau talin geta læknað hitasótt, hjartakvilla og húðsjúkdóma. Þar getur kílóið af þessari eftirsóttu vöru kostað allt að 7.000 sterlingspund. - DONALD WINTERSGILL SPADOMAR Gömul indíánakona frá N-Arizona. „Jördin mun umhverfast“ Gamli og lúni IIopi- indíáninn frá Norður-Ariz- ona sat fyrir utan ráðstefnu- salinn í Rotterdam og heið þess að tekið yrði fyrir málið um indíánamorðin í Perú. „Ég vil ekki vera að hræða neinn.“ sagði hann. ~en á steintöflunum okkar segir, að ragnarök séu í nánd. Jörðin mun umhverf- ast og þa*r hamfarir munu aðeins maurarnir lifa af. Kannski munu þeir verða ættfeður nýs manns þegar stundir líða.“ Þetta voru fjórðu Russell- réttarholdin um örlóg ind- íánanna í Ameríku og hvert vitnið á fætur öðru sagði frá fjöldamorðum, níðingsverk- um og svikum. Það varð þó fljótlega ljóst, að ekki var eingöngu verið að fjalla um mannréttindabrot og yfir- gang einstakra ríkisstjórna. Fulltrúar þessara gömlu samfélaga voru að vara hið iðnvædda þjóðfélag við og leiða því fyrir sjónir, að það væri komið langt með að uppfylla hina gömlu spá- dóma um ragnarök alls mannkyns. Menning indíána var í nánum tengslum við náttúr- una, sagði Phillip Deer, and- legur leiðtogi Muskogee- ættflokksins í Oklahoma. Það var engin þörf á fangels- um, geðveikrahælum eða lás- um. „Evrópubúar hafa misst sjónar á náttúrunni. Þeir eru orðnir vanir því að láta stjórnast af vekjaraklukk- unni. Aðeins þeir, sem skilja frumlögmál lífsins munu erfa jörðina." Shoshone-indíánarnir frá Nevada þurftu ekki á neinum slíkum yfirlýsingum að halda: Bandaríkjastjórn hef- ur farið fram á að þeir láti af hendi 10.000 fermílur af landi þeirra vegna „þjóðar- hagsmuna" en þar á að koma fyrir MX-eldflaugakerfinu svokallaða. „Það er verið að binda enda á lífshætti okkar," sagði fulltrúi þeirra, Pearl Dann. „Það er verið að ógna lífríkinu. Landið er blóðmjólkað meðan það get- ur gefið eitthvað af sér án nokkurs tillits til afleið- inganna.“ Eftir því sem á leið réttar- höldin og vitnaleiðslurnar kom æ betur í Ijós sú aðför, sem verið er að gera um allan heim að síðustu griða- stöðum frumstæðra samfél- aga. Oftar en ekki eru þeir á hrjóstruguin og afskekktuin svæðum en þarfir hins iðn- vædda þjóðfélags eru óseðj- andi og eira engu. „Guð skapaði heiminn fyrir alla en ekki bara fyrir fáa útvalda," sagði indíáni frá Perú en hann og hans fólk hafa verið flutt nauðungarflutningi tvisvar sinnum á þessu ári, húsin brennd til grunna, búfénaði og öðrum eigum stolið og tveir úr hópnum drepnir. Maori frá Nýja-Sjálandi með társtokkið andlit hélt á eftirgerð af 140 ára gömlum samningi við bresku krún- una. „Við tókum ykkur sem gestum en nú eruð þið búnir að éta okkur út á gaddinn. Af þeim 66 milljónum ekra, sem voru okkar land, eru nú eftir tvær og hálf. Japönsk fyrir- tæki hafa skógana okkar á leigu og allt okkar erfðagóss er niðurkomið í Evrópu. Stundum finnst mér sem hjarta mitt ætli að bresta." Við réttarhöldin urðu margir til að beina spjótum sínum að Bretum. Fulltrúi ástralskra frumbyggja sagði, að með komu þeirra þangað hefði fagur draumur breyst í martröð enda hefði frum- byggjendunum verið slátrað í þeim stíl, að jafnvel Hitler og Pol Pot hefðu mátt skammast sín. Kanadískur indíáni mótmælti því harð- lega, að frú Thatcher og drottningin hefðu neitað að ræða kanadísku stjórnar- skrána og gengið með því á rétt indíána. „Við höfum aldrei afsalað okkur ættlandi okkar, Kanada. Við eigum það enn,“ sagði hann. í dóminn vantaði einn mann, Mario Juruna, leið- toga Xavante-indíána í Bras- ilíu, og var fjarvera hans lýsandi dæmi um þá auknu kúgun, sem Funai, brasilíska indíánastofnunin, hefur beitt sér fyrir að undanförnu. Vitni sögðu frá Nambiqu- arra-ættflokknum, sem á síð- asta áratug hefur verið sviptur næstum öllu sínu landi; frá Yanomami-fólkinu sem er sjúkt og volað vegna innrásar vegagerðarmanna og jarðabraskara, og frá Aruak- og Tukano-fólkinu, en því var haldið fram, að trúboðar frá Slesíu hefðu skipulega unnið að því að uppræta menningu þess. Russell-dómstóllinn hefur ekki vald til að fylgja dómum sínum eftir en við það eru vonirnar bundnar, að unnt sé að ýta svo við samvisku mannanna, að hún vakni af værum blundi. - STUART WAVELL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.